Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Allt á hálfvirði
Ennþá gott úrval
af sumarfatnaði
Tískuverslun
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Finnur þú ekki stærðina þína? Gerum buxur eftir pöntun.
ÚTSALA
Opið:
mán.-fös. kl. 14-18.
Stærðir 38-50
Til og með 31. júlí
opið alla daga
ÍSRALESKA kajakkonan Rotem
Ron á nú raunverulega möguleika á
því að ná þeim tímamótaáfanga í
kajakíþróttinni að verða fyrsti ræð-
arinn sem tekst að róa í kringum Ís-
land ein síns liðs. Hún kom til Víkur
í Mýrdal á mánudaginn og hvílir sig
þar fyrir næsta kafla, sem er einn
erfiðasti hluti leiðarinnar, nefni-
lega fyrir suðvesturhorn landsins.
Takist henni að róa áfallalaust fyrir
Reykjanestána á næstu dögum eða
vikum er eftirleikurinn næsta auð-
veldur yfir Faxaflóa og fyrir Snæ-
fellsnes að lokamarkinu í Stykkis-
hólmi.
Rotem lagði af stað frá Hólm-
inum 10. júní og reyndist henni til-
tölulega auðvelt að róa alla leið að
Höfn í Hornafirði en á næstu köfl-
um fékk hún að reyna erfiðleika á
borð við miklaölduhæð, hörkulens
og brim með tilheyrandi látum við
lendingar auk þess sem sandbyljir
gerðu henni erfitt fyrir í landi.
Erfitt sjólag við suðurströndina
þarf þó ekki að koma á óvart því
straumar liggja upp að ströndinni
en í ofanálag lenti Rotem í sunn-
anáttum sem ekki bættu ástandið.
Hún varð að bíða af sér veður í
neyðarskýli á Skeiðarársandi og
hélt því næst áfram til Víkur þar
sem hún tók því rólega.
Einu sinni áður hefur kajak-
leiðangri tekist að róa í kringum
landið, en þá voru þrír bandarískir
ræðarar saman á ferð fyrir fáeinum
árum. Enginn hefur hins vegar róið
einn í kringum landið og vex því
spennan dag frá degi í leiðangri
Rotem.
Stefnir áfram með
suðurströndinni
)( *+*",*
& ! --
. /0
",*
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann á þrítugsaldri til
níu mánaða fangelsisvistar, en til-
efni þótti til að skilorðsbinda átta
mánuði refsingarinnar. Var hann
dæmdur fyrir eignaspjöll, líkams-
árás og þjófnaði. Auk þess var
ákærða gert að greiða fórnarlömb-
um sínum rúma hálfa milljón króna í
skaðabætur.
Ákæran á hendur manninum var í
tveimur liðum, annars vegar vegna
árásar á ómerkta lögreglubifreið,
þar sem ákærði braut hliðarrúðu
með þeim afleiðingum að glerbrot-
um rigndi yfir óeinkennisklæddan
lögregluþjón, og hins vegar vegna
fjögurra þjófnaðarbrota. Í þjófnað-
arbrotunum fór maðurinn m.a. inn á
veitingastað í Reykjavík og stal
skiptimynt, inn í íbúðarhúsnæði þar
sem hann stal m.a. fartölvu, mynda-
vél, skartgripum og postulínskönnu
og inn í grunnskóla og leikskóla þar
sem hann tók m.a. tölvu og leikföng
ófrjálsri hendi.
Ákærði játaði brot sín skýlaust að
undanskilinni líkamsárás, en hann
kvaðst aðeins hafa brotið rúðuna í
ómerkta lögreglubílnum til að
hræða þá sem í henni voru. Á þeim
tíma vissi hann ekki að um lögreglu-
menn væri að ræða og hélt að í bif-
reiðinni væru ungir karlmenn sem
stolið höfðu GSM-síma félaga
ákærða nokkru áður.
Fram kemur í niðurstöðu héraðs-
dóms að maðurinn hefur frá árinu
1998 hlotið átta dóma og verið
dæmdur til að sæta fangelsisvist í 24
mánuði fyrir brot gegn almennum
hegningarlögum, lögum um ávana-
og fíkniefni og umferðarlagabrot.
Tilefni þótti til að skilorðsbinda
refsinguna þar sem hagir ákærða
eru nú breyttir, hann í sambúð og á
barn. Hann hefur auk þess leitað sér
lækninga vegna vímuefnavanda og
hyggst fara í iðnnám.
Tók þátt í árásinni
Í dómhaldinu var á sama tíma
tekið fyrir mál annars karlmanns á
þrítugsaldri en sá tók þátt í árásinni
á ómerktu lögreglubifreiðina, en
auk þess fundust við húsleit á heim-
ili mannsins tæpt hálft gramm af
tóbaksblönduðu kannabisefni. Ját-
aði maðurinn brot sín og var dæmd-
ur til að greiða hundrað þúsund
krónur til ríkissjóðs í sekt auk þess
að greiða hluta viðgerðarkostnaðar
vegna lögreglubifreiðarinnar og
hluta af sakarkostnaði.
Guðmundur L. Jóhannesson hér-
aðsdómari kvað upp dóminn. Arn-
þrúður Þórarinsdóttir, fulltrúi lög-
reglustjórans í Hafnarfirði, flutti
málið af hálfu ákæruvaldsins en
Hilmar Ingimundarson hrl. og
Bergsteinn Georgsson hdl. vörðu
mennina.
Níu mánaða fangelsi fyrir
eignaspjöll og þjófnaði
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hefur skipað nefnd til að
leggja fram tillögur um við hvaða að-
stæður einkaframkvæmd í sam-
göngum getur talist vænlegur kost-
ur. Nefndinni er falið að skila
tillögum eigi síðar en 1. september
þannig að hafa megi álit hennar til
hliðsjónar við afgreiðslu samgöngu-
áætlunar 2007 til 2018.
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Íslandspósts, er formaður
nefndarinnar en aðrir nefndarmenn
eru Halldór Árnason skrifstofustjóri,
sem tilnefndur er af forsætisráðu-
neytinu, og Stefán Jón Friðriksson
viðskiptafræðingur, sem tilnefndur
er af fjármálaráðuneytinu. Ritari
nefndarinnar verður Eiríkur Bjarna-
son, verkfræðingur í samgönguráðu-
neytinu.
Í skipunarbréfi nefndarmanna
kemur fram að borist hafi tilboð að
undanförnu frá ýmsum aðilum um
einkaframkvæmd samgöngumann-
virkja. Til dæmis gerð jarðganga um
Vaðlaheiði og Óshlíð, tilboð um
breikkun Suðurlandsvegar frá
Reykjavík og austur fyrir Fjall, til-
boð um að hringvegur nr. 1 liggi um
Svínvetningabraut, gerð vegar um
Arnkötludal og um gerð Sundabraut-
ar í Reykjavík. Nefndinni er ætlað að
marka stefnu um hvaða skilyrði þurfi
að vera fyrir hendi til að einkafram-
kvæmd eigi við um samgöngumann-
virki og hvenær ekki.
Hún á einnig að marka stefnu um
við hvaða aðstæður, hvort og á hvern
hátt verði gengið til samninga við að-
ila sem bjóðast til að fjármagna fyrir
ríkið einkaframkvæmd í sam-
göngum. Í því sambandi komi til álita
hvort skylt sé með vísan til laga og
alþjóðasamninga að fram fari al-
mennt eða lokað útboð þar sem fleiri
aðilum en þeim sem hugmynd eiga
að einkaframkvæmdinni er boðið að
sinna verkinu.
Þá er nefndinni ætlað að meta
hvort samstarf við einkaaðila um
verkefni sem ekki hafa komist inn í
12 ára samgönguáætlun raski inn-
byrðis forgangsröð annarra brýnna
framkvæmda og hafi þannig áhrif til
langrar framtíðar um röðun verk-
efna.
Nefnd skipuð um einkafram-
kvæmdir í samgöngumálum
HEIÐDÍS Lilja Magnúsdóttir hefur
verið ráðinn ritstjóri á tímaritinu
Nýju lífi. Heiðdís er píanókennari
að mennt en hefur starfað á tíma-
ritinu síðastliðin fimm ár og er því
öllum hnútum kunnug á blaðinu.
Júlíblað Nýs lífs er að koma út og
er forsíðuviðtalið við Bryndísi
Schram. Með blaðinu fylgir smá-
sögubók, með 14 sögum eftir les-
endur blaðsins sem og þekkta höf-
unda. Yngsti höfundurinn er 17 ára
en sá elsti á áttræðisaldri.
Nýr ritstjóri
Nýs lífs
Innihaldið skiptir máli