Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Í MIÐBORG Beirút er nú eyðilegt um að lit-
ast. Umferðin í þessari miklu ferðamanna-
borg liggur niðri og hvarvetna getur að líta
merki um eyðilegginguna eftir sprengju- og
eldflaugaárásir Ísraelshers. Margra hæða
íbúðarhús hafa verið jöfnuð við jörðu og í
rústunum má finna skó, myndaalbúm, leik-
fangabangsa og búðarkassa á stangli.
Yfir hálf milljón manna hefur flúið heimili
sín í höfuðborg Líbanon, flestir til svæða inn-
an landsins. Óttast er að þessir fólksflutn-
ingar hafi alvarlegar afleiðingar og á síðustu
dögum hafa mannréttindasamtök varað við
því að neyðarástand kunni að skapast.
„Við stöndum andspænis neyðarástandi,“
sagði Amadeu Altafaj, talsmaður Louis
Michel, sem fer með neyðaraðstoð í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins, og vís-
aði þar með til áætlaðs fjölda flóttamanna.
„Þessi tala gæti hratt hækkað upp í eina
milljón flóttamanna ef átökin halda áfram.
Ef átökunum linnir ekki … gæti ástandið
fljótt breyst í hörmungarástand.“
Aðvörun Altafaj um vaxandi neyð kom á
sama tíma og framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins ákvað að tvöfalda neyðaraðstoð
sína til Líbanons í um 925 milljónir ísl.
króna.
Frakkar leggja sitt af mörkum
Þá hafa Frakkar sent drekkhlaðna flutn-
ingaflugvél með lyfjum, vatnshreinsibúnaði,
mjólkurdufti og tækjum til læknisaðgerða á
svæðið. Jafnframt hefur Jacques Chirac
Frakklandsforseti hvatt til þess að neyðarað-
stoð verði stóraukin.
Margar alþjóðlegar stofnanir og samtök
hafa reynt að aðstoða íbúa Líbanons. Meðal
þeirra er Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
sem hefur varið 550 milljónum króna til að
kaupa birgðir sem dreift er til Beirút. Dreif-
ing þeirra hefur þó gengið hægt og kvartar
Barnahjálpin undan skorti á ýmsum aðföng-
um á svæðinu vegna eyðileggingarinnar.
Má rekja þetta til þess að verksmiðjur,
iðnfyrirtæki, verslanir og vöruhús hafa verið
jöfnuð við jörðu, auk þess sem helstu að-
flutningsleiðir að höfuðborginni hafa víða
lokast.
Ennfremur hafa mannréttindasamtökin
Human Rights Watch, HRW, hvatt Ísraels-
menn til að heimila för flutningalesta með
hjálpargögn og neyðarbirgðir til Líbanon
vegna „alvarlegs skorts á lyfjum og mat-
vælum“ í Beirút.
Kostar hundruð milljarða
Fyrir utan að raska daglegu lífi Líbana
hafa átökin á milli liðsmanna Hizbollah-
hreyfingarinnar og Ísraelshers haft gríðar-
legar efnahagsafleiðingar, að sögn Jihad
Azour, fjármálaráðherra Líbanon, í gær.
„Það hafa orðið gríðarlegar skemmdir sem
kosta hundruð milljarða króna,“ sagði Azour
í samtali við AFP-fréttastofuna í gær. „Eng-
inn getur lagt fram nákvæmt mat á kostn-
aðinum vegna skemmdanna, vegna þess að
þær aukast á hverjum klukkutíma, þegar
árásir eru gerðar á hús, vegi og brýr.“
Við þetta má bæta að flug frá alþjóðalega
flugvellinum í Beirút liggur niðri vegna
sprengjuárása Ísraelshers, en ferðamenn
eru ein helsta tekjulind landsins.
Vannærð börn
Matarskorturinn hefur að sögn talsmanna
HRW þegar haft veruleg áhrif á heilsufar
Líbana. Þannig hafa talsmenn samtakanna
það eftir ráðgjafa í líbanska félagsmálaráðu-
neytinu að þegar séu komin upp vandamál
vegna vannæringar barna.
Skortur á aðföngum hefur einnig haft áhrif
á daglegt líf fjölþjóðlegs hóps útlendinga
sem er ýmist búsettur eða á ferð í Beirút og
hafa stjórnvöld fjölmargra ríkja unnið dag
og nótt við að flytja þegna sína í öruggt
skjól.
Margir þeirra hafa hins vegar hvorki kom-
ist lönd né strönd og mun taka nokkurn tíma
að koma öllum sem þess óska út úr borginni.
Skapar örtröð á Kýpur
Þetta hefur skapað ringulreið í öðrum ríkj-
um og hafa meðal annars stjórnvöld á Kýpur
beðið um hjálp við að taka á móti og flytja á
brott þá 60.000 flóttamenn sem þau telja að
muni flykkjast til eyjarinnar.
Að auki hafa erlend stjórnvöld aðstoðað
Líbana sem eru staddir erlendis með marg-
víslegum hætti. Þeirra á meðal eru stjórn-
völd í Svíþjóð, sem hafa heimilað að vega-
bréfsáritanir Líbana sem eru við leik og
störf í landinu verði framlengdar.
Hundruð
þúsunda
manna á flótta
Átökin sögð hafa gríðarleg efnahagsáhrif
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
EPA
Líbönsk kona grætur eftir að loftárás var gerð á bílalest suðaustur af Beirút í gærmorgun.
Mannréttindasamtök vara við neyðarástandi í Líbanon vegna mannskæðs lofthernaðar Ísraela
Teheran. AFP. | Stjórnvöld í
Teheran ýttu á miðvikudag
úr vör nýrri herferð auglýs-
inga sem ætlað er að hvetja
neytendur til að sniðganga
vörur „síonista“, á borð við
Coca-Cola gosdrykki, Calv-
in Klein-fatnað og Nestle-
matvörur.
„Pepsi stendur fyrir
„greiddu hverja krónu til að
bjarga Ísrael,“ segir í laus-
legri þýðingu í þriggja mín-
útna langri auglýsingu
stjórnarinnar í sjónvarpi.
Varar auglýsingin neyt-
endur eindregið við því að
kaupa vörur síonista, nú
þegar átökin á milli stjórn-
valda í Ísrael og Hizbollah-
hreyfingarinnar í Suður-
Líbanon eru í hámæli.
„Síonistar eru stærstu
hluthafarnir í gosdrykkja-
iðnaðinum og á hverju ári
verja þeir milljörðum Bandaríkjadollara til
stuðnings nýlendumarkmiðum sínum,“ segir
ennfremur í auglýsingunni.
Íranar eru einnig varaðir
við Coca-Cola-gosdrykkn-
um.
„Þetta fyrirtæki styður
Ísrael opinberlega og hefur
jafnvel sagt sig tilbúið til að
láta fé af hendi rakna til að
fella íslamska lýðveldið [í
Íran].“
Þá er verslanakeðjan
Marks and Spencer sökuð
um að tengjast samsæri
gyðinga um heimsyfirráð,
án þess að það sé rökstutt
frekar.
Vörur verða að
byssukúlum
Að samanlögðu hvetja
auglýsingar stjórnvalda
neytendur til að gjörbreyta
neysluvenjum sínum.
„Því miður eru flest
arabaríkin þakin auglýs-
ingum sem kynna ísraelsk-
ar vörur. Eftir sérhver vörukaup er fé um-
breytt í byssukúlur sem hola brjóst líbanskra
og palestínskra barna.“
Herferð gegn vörum „síonista“
Reuters
Írani með fána Hizbollah við mynd
af leiðtoga hreyfingarinnar.
DÝRAVERNDARSINNI liggur
inni í hundabúri á mótmælafundi
gegn hundakjötsáti í Seoul,
höfuðborg Suður-Kóreu, í gær.
Margir landsmenn trúa því að
borði fólk hollan mat 20. júlí eigi
það hægara með að lifa af sumar-
hitana. Hundakjöt er á meðal
matvæla sem borðuð eru þann
dag.
Reuters
Hundakjötsáti mótmælt
Peking. AFP. | Kínversk stjórnvöld
hafa í hyggju að banna „óholl
sönglög“ á svokölluðum karaoke-
börum, sem þeim þykja æði vafa-
samir og uppspretta óæskilegra
menningaráhrifa, að því er upp-
lýst var í tilkynningu frá stjórn-
inni í gær.
„Sum sönglög innihalda óholl
viðfangsefni og hafa ekki verið
ritskoðuð af menningarráðuneyti
stjórnarinnar,“ hafði dagblað
ungliðahreyfingar kínverska
kommúnistaflokksins eftir Liang
Gang, sem er embættismaður í
ráðuneytinu.
Liang útskýrði ekki frekar skil-
greininguna á því hvað flokkaðist
undir „óholl viðfangsefni“ í
sönglögum, en bætti því þó við að
þetta skref væri meðal annars
stigið til að verja höfundarrétt
tónlistarmanna.
Á hinn bóginn eru karaoke-
barir í Kína þekktir fyrir að leyfa
flutning óritskoðaðra popplaga
frá Hong Kong og Taívan sem
innihalda e.t.v. ekki áróður gegn
stjórninni en eru engu að síður
talin grafa undan siðferðisgildum
og pólitískum markmiðum komm-
únistaflokksins.
Til að byrja með verður fram-
fylgd hinna nýju reglna undir
rekstraraðilum karaoke-bara
komin, en tilraun með þær verður
gerð í þremur kínverskum borg-
um, áður en ákvarðanir verða
teknar um næstu skrefin í rit-
skoðun á tónlistarflutningi.
Banna villandi
auglýsingaþætti
Kínversk stjórnvöld gripu einn-
ig til aðgerða á sviði auglýsinga-
gerðar, þegar þau bönnuðu í gær
villandi auglýsingaþætti í sjón-
varpi. Meðal þess kynningarefnis
sem hefur vakið reiði almennings
í Kína eru sjónvarpsþættir sem
bjóða konum upp á sérstakt gel,
„töfravökva“, sem ætlað er að
stækka brjóst. Gelið hefur hins
vegar ekki leitt til þess árangurs
sem framleiðendur þess hafa lof-
að, en konur hafa kvartað undan
því að það valdi miklum sársauka
og óþægindum.
Banna „óholl sönglög“
Ketchum. AP. | Bjarga þurfti 3,6
metra langri kyrkislöngu með
skurðaðgerð eftir að slangan
gleypti heilt rafmagnsteppi – ásamt
rafmagnssnúru og stjórnkassa, í
Idaho í Bandaríkjunum.
Eigandi kyrkislöngunnar, Karl
Beznovska, sagði að teppið hlyti að
hafa flækst í kanínuhræi sem át-
vaglið hafði gætt sér á. Teppið var
haft í búri slöngunnar til að ylja
henni. „Henni tókst einhvern veg-
inn að taka rafmagnssnúruna úr
sambandi,“ sagði Beznovska um
kyrkislönguna sem nefnist Houdini.
Skurðaðgerðin tók tvær klukku-
stundir. Læknar telja að það hafi
tekið Houdini sex klukkustundir að
gleypa teppið.
AP
Sporðrenndi
rafmagnsteppi