Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 18
Arnarstapi | Þótt krían sé mikill flökkufugl, sem
ekki veigrar sér við að fljúga milli landa, þurfa þær
að hvíla sig eins og aðrir.
Þessi kría hafði hvílt lúna vængina á brunahana á
Arnarstapa, og greinilega fengið sér vatnsopa við
þorstanum áður en hún flaug á vit ævintýranna.
Morgunblaðið/Alfons
Kría svalar þorstanum
Vatnssopi
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Rafrænt kjötmat | Kaupfélag Skagfirð-
inga stefnir á að taka upp rafrænt kjöt-
mat í sláturhúsi sínu í haust.Um er að
ræða búnað sem metur með því að taka
mynd af skrokknum. Myndin fer síðan
inn í þar til gerðan hugbúnað sem reikn-
ar út kjötprósentu og fitu á hverjum
skrokk.
Áætlað er nýta þessa tækni í haust
samhliða því kjötmati sem verið hefur.
Síðan verða kostir og gallar við þessa
matsaðferð metnir í framhaldinu.
Rafrænt kjötmat hefur verið við líði á
NýjaSjálandi í nokkurn tíma og hefur
sláturhússtjóri K.S. Ágúst Andrésson
kynnt sér þessa aðferð þar. Fengið verð-
ur eitt tæki til landsins fyrir haustið og
það notað á Sauðárkróki. Verði þessi að-
ferð við mat á dilkakjöti tekin upp hér-
lendis ætti að verða verulega samræmt
mat milli sláturhúsa í framtíðinni
Vegagerð á fullu | Nýtt snyrtihús hefur
verið tekið í notkun við tjaldstæðið á
Kópaskeri. Húsið er með vöskum til
þvotta, sturtu og salerni. Heitt vatn er í
húsinu segir á vefnum dettifoss.is.
Þar er þess líka getið að vegagerð
standi nú yfir á fullu frá Núpsmýri að
Magnavíkurás. Burkney ehf sér um fram-
kvæmdina sem á að vera lokið í haust.
„Því miður verða samt enn eftir um 5
km af óbundnu slitlagi til Kópaskers þeg-
ar þessum áfanga lýkur. Allt er í óvissu
hvenær það verður klárað,“ segir í frétt á
vefnum.
Dökkar horfur | Ársreikningur Fjord fis-
ing ehf fyrir árið árið 2005 var til umfjöll-
unar á fundi bæjarráðs Vesturbyggðar í
vikunni en þar var farið yfir stöðu félags-
ins. Vesturbyggð er hlutafi, á 2,1 milljón
króna hlut eða rúm 18%.
Afkoma félagsins er neikvæð og horfur
fyrir yfirstandandi ár mjög dökkar segir í
bókun bæjarráðs.
Því veldur að mestu kvótaleiga sem fé-
lagið hefur tekið á sig vegna veiðanna,
þar sem ekki hefur fengist kvóti til verk-
efnisins nema að mjög takmörkuðu leyti
þ.e. hluti byggðakvóta Tálknafjarða-
hrepps og Súðavíkur.
Bæjarráð óskar eftir því að viðtakandi
stjórn í félaginu leggi fram ítarlega
rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir kom-
andi starfsár og helst þriggja ára áætlun.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Skálholtshátíð verð-ur haldin nú umhelgina, 21. til 23.
júlí og verður þess minnst
að að 950 ár eru liðin frá
biskupsvígslu Ísleifs Giss-
urarsonar, fyrsta íslenska
biskupsins.
Hátíðarhaldið hefst í
dag kl. 18 með róm-
verskri biskupsmessu, en
síðan rekur hver viðburð-
urinn annan næstu daga.
Samkomur verða á morg-
un kl. 14 og 16.30. Tekið
verður á móti bókagjöf
Jaap Schröders til Skál-
holtsstaðar, en hann hef-
ur gefið staðnum safn
nótna og tónlistar-
bókmennta.
Þá verður á síðari sam-
komunni opnaður vefur
um íslenskan trúar- og
tónlistararf og hann
kynntur.
Mikið verður um dýrðir
á sunnudaginn , en slag-
verkshópurinn Stein-
tryggur leikur kl. 13
framan við kirkjuna, hóp-
reið verður að Skálholti
með fánaborg og Gunnar
Eyjólfsson les Ísleifs þátt
á meðan leikið verður á
trompet úr kirkjuturni.
Pílagrímar sem hafa
gengið frá Þingvöllum til
Skálholts um helgina
munu ganga í hlað í Skál-
holti um þetta leyti.
Messa hefst kl. 14, þar
mun herra Sigurbjörn
Einarsson predika en
vígslubiskup ásamt stað-
arprestum þjóna fyrir alt-
ari.
Eftir kirkjukaffi verð-
ur aftur samkoma í kirkj-
unni. Þar sem flutt verða
ávörp.
Skálholtshátíð um helgina
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kveðandi stendurfyrir árlegu hag-yrðingakvöldi á
Mærudögum á Húsavík,
Þar verður Ósk Þorkels-
dóttir meðal hagyrðinga.
Hún er spurð hvort hún
hafi valið maka eftir
stjörnumerki:
Í þátíð fór ég þess á mis
þekkti engin stjörnumerki
heldur voru horngrýtis
hormónarnir þar að verki.
Guðmundur G. Hall-
dórsson á Húsavík sendi
frá sér kvæðabókina Und-
ir kvöldkyrru mánans.
Þar eru vísur um ógöng-
ur Framsóknar. Hann
orti þegar Guðni Ágústs-
son kallaði Dagnýju Jóns-
dóttur gimbrina sína:
Formaðurinn flestu laug
fylgisleysið harmaði.
Guðni setti upp geislabaug
en gimbrin stóð og jarmaði.
Eftir skoðanakönnun
orti Guðmundur:
Flokkurinn er á leið til loka
leyna sér ekki viðbrögð hörð.
Setja ætti Halldór í síldarmjölspoka
og senda hann austur á Hornafjörð.
Rýnt í stjörnur
pebl@mbl.is
Hrísey | Fjölskylduhátíð fullveldisins í
Hrísey verður haldin nú um helgina og
áætla mótshaldarar að um 4.000 manns
leggi leið sína út í eyju til að fagna fullveld-
inu með íbúunum.
Þetta er í 10. sinn sem hátíðin er nú hald-
in, en til þeirrar fyrstu var efnt til að fagna
því að tillaga um að sameina Hrísey og þrjú
sveitarfélög uppi á landi, Dalvík, Svarfað-
ardal og Árskógsstrandarhrepp, var felld
af eyjarskeggjum.
Lýsa yfir sjálfstæði sínu eina helgi
Uppf rá því hefur eina helgi á ári verið
lýst yfir sjálfstæði Hríseyjar, jafnt þó
Hrísey og Akureyri hafi sameinast á liðnu
ári í eitt sveitarfélag. Allir gestir á hátíð-
inni fá þar til gerðan passa sem þeir bera
meðan á hátíðinni stendur, þeir verða að
nokkurs konar Hríseyingum.
Dagskráin er að venju fjölbreytt, ýmiss
konar keppnir í gangi, svo sem í kassak-
lifri, hreysti, söng, stangveiði og einnig
lyftarakeppni svo eitthvað sé nefnt. Boðið
er upp á vitaferðir og sýningu á gömlu
dráttarvélum. Þá verða Tóti tannálfur,
Jósafat mannahrellir og Ingó töframaður á
ferðinni, líka Ómar Ragnarsson, Snorri
málari, Helga Braga, Steinn Ármann, Odd-
ur H. Halldórsson og sveiflukóngurinn
Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit
sinni um leika fyrir dansi.
Í tilefni af hátíðinni mun ferjan Sæfari
sigla aukaferðir milli lands og eyjar seint á
föstudags- og laugardagskvöld.
Fullveldishá-
tíð í Hrísey í
tíunda sinn
Fjallabyggð | Þórir Kristinn Þórisson á
Seltjarnarnesi hefur verið ráðinn bæjar-
stjóri í Fjallabyggð. Þetta var afráðið á
fundi sveitarstjórnar nú í vikunni. Þórir er
rafeindavirki að mennt og hefur auk þess
sótt fjölda námskeiða er lýtur að stjórnun
og tölvunotkun. Hann er nú starfsmaður
Nýherja en mun taka við bæjarstjórastarf-
inu 1. september nk. og verða búsettur í
Siglufirði.
Þórir er kvæntur Erlu Bjarmarz og eiga
þau tvær dætur. Þórir verður fyrsti bæj-
arstjóri þessa sveitarfélags sem til varð við
sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar á
þessu ári. Starfandi bæjarstjóri nú er Þor-
steinn Ásgeirsson í Ólafsfirði og hann er
einnig forseti bæjarstjórnar.
Þórir ráðinn
í Fjallabyggð
♦♦♦
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
HVERAGERÐI - SÆLUREITUR
Vorum að fá í sölu einstaklega fallegt um 100 fm einbýlishús á einni hæð
við Dynskóga í Hveragerði. Auk þess fylgir 29 fm geymsluskúr. Um er að ræða
timburhús sem stendur í jaðri Hveragerðis. Mjög rólegt umhverfi. Glæsilegt
útsýni yfir Hamarinn og gróðursvæði. Fallegar gönguleiðir. Húsið skiptist
m.a. í stofu, borðstofu og tvö rúmgóð herbergi (fjögur skv. teikningu).
Stór timburverönd í garði og heitur pottur. Húsið stendur á 1.120 fm fallega
ræktaðri lóð. Verð 25,0 millj. 5828
Nánari upplýsingar veitir Magnea fasteignasali í síma 861 8511.