Morgunblaðið - 21.07.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 21
MINNSTAÐUR
– fegrunará
tak
í Breiðholti
Gerum okkur glaðan dag og
tökum upp hanskann fyrir Reykjavík
Dagskrá: Fegrun Breiðholts 22. júlí
Átakið hefst á þremur stöðum
á sama tíma:
- Í neðra Breiðholti við Breiðholtsskóla.
- Í Fella- og Hólahverfi við Breiðholts-
laug við Austurberg.
- Í Seljahverfi við Hólmasel.
Kl. 11.00 Kl. 16.00–17.00
Deginum lýkur svo á
sömu stöðum þar sem
fjölskyldur fagna vel
heppnuðum degi. Boðið
verður upp á veitingar
og skemmtiatriði.
Allir í sund kl. 16–20
Eftir fegrunarátakið á
laugardaginn býður
Reykjavíkurborg öllum
í Breiðholtslaugina.
Reykjavík er falleg borg. En lengi getur
gott batnað og þess vegna hefur
borgarstjórnin búið til áætlun um fegrun
Reykjavíkur. Áætlunin byggist á því að
einbeita sér að einu hverfi borgarinnar í
einu og virkja íbúa til að taka þátt í að
fegra sitt nánasta umhverfi.
Laugardaginn 22. júlí hefst átakið með
fegrun Breiðholts þar sem íbúar munu
ganga til liðs við borgarstarfsmenn og
aðstoða þá við að snyrta hverfin, tína rusl,
hreinsa veggjakrot, leggja torfur, hnýta
net, kantskera, sópa og bæta girðingar.
Allir, jafnt fyrirtæki, stofnanir sem og íbúar
í Breiðholti, eru hvattir til að láta ekki sitt
eftir liggja. Hrein og fögur Reykjavík er
metnaðarmál allra borgarbúa og nú er lag
að láta hendur standa fram úr ermum.
LANDIÐ
Akraneshreppur | Sá leiði atburður
gerðist sl. laugardagsmorgun að ung
kona, sem sagðist vera frá Þýska-
landi, stakk af frá gistiheimilinu
Móum í Innri-Akraneshreppi án
þess að greiða fyrir gistinguna. Að
sögn Sólveigar Jónu Jóhannesdótt-
ur, eiganda gistihússins, er þetta í
fyrsta skipti sem það kemur fyrir að
gestur yfirgefur staðinn án þess að
greiða reikninginn.
Sólveig segir konuna hafa verið
um þrítugt og hafa keyrt um á hvít-
um Toyota Yaris-bílaleigubíl. Hún
ætlar þó ekki að hafa samband við
lögreglu vegna málsins en vonar að
aðrir gistihúsaeigendur vari sig á
ungu konunni, sækist hún eftir gist-
ingu annars staðar. „Ég er ekkert að
eltast við þetta. Ég vona aðeins að
hún hafi sofið vel úr því að hún hafði
hjarta í sér til að gera þetta,“ segir
Sólveig sem mun að öllum líkindum
herða reglur varðandi greiðslutöku á
gistiheimilinu.
Greiddi ekki
fyrir gistingu
Hrunamannahreppur | Á milli 15 og
20 lömb vantar á tveimur bæjum í
Auðsholti og eru refir grunaðir um
að hafa drepið þau. Lambabein hafa
fundist við grenismunnann. Aðburð-
ur lamba hefur einnig fundist við
greni í högum í Skipholti. Talið er að
um dýrbíta sé að ræða.
Þessi greni hafa nú verið unnin að
mestu ásamt fimm öðrum í sveitinni,
tvö þeirra fundust í afréttinum. Ann-
an framfótinn vantaði á refinn við
grenið í Auðsholti. Hefur sennilega
verið skotið á hann áður. Ekkert lát
virðist vera á ágangi tófunnar sem
sést m.a. á hrakandi fuglalífi en þar
kemur minkurinn einnig til sögunn-
ar. Áhugasamir ungir menn, sem eru
afburða skyttur, hafa verið dugmikl-
ir við að reyna að halda stofninum
niðri undanfarin ár og virðist sem
ekki sé um fækkun að ræða.
Í sveitarfélaginu voru skotin yfir
30 hlaupadýr frá miðjum september
þar til nú í vor. Í fyrrahaust vantaði
óeðlilega mikið af lömbum á nokkr-
um bæjum, bæði úr heimahögum og
afréttinum. Grunur fellur á refinn.
Tófan leggur víða
Svipaða sögu er að segja úr ná-
grannasveitarfélögunum, t.d. voru
unnin þrjú greni á Skeiðum nú í vor
með 23 dýrum, þrjú hlaupadýr voru
unnin síðla vetrar. Tvær læður voru
skotnar á Flóamannaafrétti. Í Gnúp-
verjahreppi hefur náðst úr einu
greni en vart við umgang um greni
víða. Dýrbítur er í Hagafjalli í Þjórs-
árdal, a.m.k. eitt lamb hefur fundist
bitið, fleiri vantar. Í Biskupstungum
unnust 49 dýr í 9 grenjum í vor,
steggirnir sluppu úr fjórum þeirra.
Tófa er komin um alla Árnessýslu,
meðal annars í lágsveitirnar, allt til
sjávar. Þær grenjaskyttur sem haft
var tal af ber saman um breytt hegð-
unarmynstur tófunnar. Hún er nú
svæðum sem hún var ekki áður.
Leggur í ný greni í byggð sem finn-
ast síður. Refaskyttunum ber saman
um að ríki og sveitarfélög verði að
leggja meira fjármagn til fækkunar
á mink og tófu. „Við bíðum eftir að
sjá hvað nýskipaður umhverfisráð-
herra gerir í þessum efnum,“ sagði
ein refaskyttan.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Vargur Tófa veldur búsifjum hjá
sunnlenskum sauðfjárbændum.
Dýrbítar
gera usla
Húsavík | Kísiliðjan í Mývatnssveit
skipaði stóran sess í atvinnulífi Mý-
vetninga og Húsvíkinga um áratuga-
skeið en svo er ekki lengur og þessa
dagana er verið að skipa verksmiðj-
unni um borð í flutningaskipið
Salmo í Húsavíkurhöfn.
Til að fyrirbyggja misskilning er
rétt að taka fram að þarna er um að
ræða brotajárn það sem til féll við
niðurrif verksmiðjunnar og er það
fyrirtækið Hringrás ehf. sem sér um
verkið.
Að sögn Hafþórs Þórssonar
starfsmanns Hringrásar er áætlað
að það taki þrjá til fjóra daga að
koma brotajárninu, sem hann gisk-
aði á að væri hátt í þrjú þúsund tonn
að þyngd, um borð í skipið.
Kísiliðjan sett
um borð í skip
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavíkurhöfn Kísilgúrnum
úr Mývatni var alla tíð skipað
út á Húsavík en hér er verið
að skipa verksmiðjunni
sjálfri, í brotajárnsformi, um
borð í flutningaskip.
♦♦♦