Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 23

Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 23 DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ Í útileguna Ásumrin jafnast ekkert á við að bjóða uppá salat í matinn, það getur verið einfalteða margslungið innihaldið framandibragð eða gamla góða bragðið aftur og aftur. Aldrei er eins gott grænmeti í boði og á sumrin og því um að gera að nýta tímann vel. Sal- öt eru holl, fljótleg, falleg og bragðgóð. Auðvelt er að laga allar uppskriftir að bragðlaukum fjöl- skyldunnar og fljótlega verða uppskriftir óþarfar því ekkert er eins auðvelt og að búa til salatupp- skrift. Bara hugsa um hvað er gott saman og prófa og prófa. Á ferðalagi er gaman að hafa aug- un opin fyrir hugsanlegum sölustöðum á fersku grænmeti, sem leynast víða og nota grænmetið í salat kvöldsins. Reyktur silungur, soðinn lax eða fersk egg eru líka kjörin í salat og fást víða. Teriaki-kjúklingasalat fyrir 6 2 brauðsneiðar 3 msk. olía 2 hvítlauksgeirar 1 kúrbítur, sneiðar 400 g kjúklingalundir 1 dl teriaki-sósa 1 poki klettasalat 1 lambhagasalat, saxað 1 box kirsuberjatómatar 1 rauðlaukur 1 rauð paprika 1 ítalskur mozzarella ½ krukka sólþurrkaðir tómatar ½ krukka grískar ólífur 1 pakki baunaspírur graslaukur (eftir smekk) Skerið brauðsneiðar í teninga. Hitið olíu á pönnu ásamt hvítlauk og steikið brauðteningana, stráið nýmöluðum svörtum pipar yfir. Takið brauðið af pönnunni og geymið á diski. Hitið meiri olíu á pönnunni og steikið kúrbítssneiðar þannig að þær verði gullinbrúnar á báðum hliðum, setjið á disk og geymið. Hellið smá olíu á pönnuna og steikið nú kjúklingalundir, hellið teriaki-sósu yfir rétt í þann mund sem lundirnar eru gegnsteiktar og takið af hitanum. Rífið salat gróft í skál. Skerið tómata í tvennt og setjið yfir, skerið mozzarella í grófa bita ásamt sólþurrkuðu tómötunum og setið saman við. Skerið papriku og rauðlauk í strimla og setjið út í salatið ásamt ólífum og baunaspírum. Setjið kjúkling, kúrbít og brauðteninga út í og hrærið saman. Smakkið til með teriaki-sósu. Klippið graslauk yfir og njótið með brauði og e.t.v. glasi af góðu hvítvíni. Núðlusalat með límónusteiktum rækjum fyrir 4 eggjanúðlur 24 stórar rækjur (hráar) 2 límónur 1 papaja (papaya) ½ jöklasalat 2 gulrætur 3 tómatar, skornir í bita 2 msk. olía 100 g sykurbaunir 3 msk. sæt chilisósa, Thai 2 msk. vatn 3 msk. jarðhnetur 1 dl ferskt kóríander, saxað gróft Setjið núðlurnar í sjóðandi vatn og látið standa í 5 mínútur (eða skv. pakka). Pillið rækjurnar en skiljið eftir „halann“. Kreistið safann úr tveim límónum og hellið safanum yfir rækjurnar og látið standa í að minnsta kosti 15 mínútur. Afhýðið papaja, takið burt kjarnana og skerið kjötið í bita. Skolið og skerið salatið gróft, afhýðið og skerið gulræturnar gróft og setjið í skál eða á fjóra diska. Setjið tómatbita og papaja yfir. Hitið olíu á pönnu og steikið sykurbaunirnar, setjið þær yfir, steikið því næst rækjurnar þannig að litur þeirra breytist úr bláum yfir í bleikan. Setjið yfir salatið. Blandið saman chilisósu og vatni og hellið yfir sal- atið. Dreifið kóríander yfir og létt muldum jarð- hnetum. Berið fram með heitum eggjanúðlum. Matarmikið baunasalat Frábært að grípa með sér niðursoðnar baunir í bústaðinn, kaupa ferskt grænmeti í sveitinni og gera þetta matarmikla baunasalt. Heil holl máltíð eða saðsamt meðlæti. fyrir 4 1 dós niðursoðnar kjúklingabaunir 1 dós niðursoðnar smjörbaunir 1 rauðlaukur 4 tómatar 2 paprikur ½ dl gróft söxuð basilíka 2 msk. ólífuolía 1 msk. hvítvínsedik 1 hvítlauksgeiri, marinn smátt ½ tsk. salt nýmalaður svartur pipar sósa: 250 g kotasæla 2 tsk. karrí 1 tsk. sinnep örlítill svartur pipar Opnið baunadósirnar og síið á sigti, skolið með köldu vatni. Afhýðið og sneiðið lauk í þunnar sneiðar, skerið tómatana og paprikuna í bita, sax- ið basilíkuna og blandið öllu saman við baunirnar í stórri skál. Blandið saman hvítlauk, hvítvínsediki og ólífuolíu, hellið yfir salatið og blandið vel. Saltið og piprið eftir smekk. Hrærið saman kotasælu, karríi og sinnepi og smakkið til með karríi og pip- ar. Berið fram með salatinu ásamt góðu brauði.  MATUR | Það jafnast fátt á við gott grænmeti þegar kemur að sumarlegri máltíð Sumarsalöt fyrir sæludaga Eftir Heiðu Björgu Hilmarsdóttur Teriaki-kjúklingasalat er fín máltíð. Matarmikið og litríkt baunasalat er gott í bústaðinn. Núðlusalat með límónusteiktum rækjum. RÉTT mataræði er krabbameins- sjúkum jafnnauðsynlegt og lækn- isfræðileg krabbameinsmeðferð og gæti í reynd skipt sköpum um fram- vindu sjúkdómsins, að því er sumir krabbameinssérfræðingar halda fram nú orðið. Því telja þeir að um leið og ákveðin sé meðferð þurfi sam- hliða að taka næringuna traustum tökum, að því er fram kemur í net- útgáfu breska dagblaðsins Daily Telegraph. Nýleg könnun, sem gerð var við krabbameinsstöðina í Bristol, sýnir að 83% sjúklinga höfðu ekki fengið neina næringarráðgjöf eftir grein- ingu. Þessu vilja sérfræðingar nú snúa við enda vilja þeir meina að rétt mataræði sé jafnmikilvægt og hver önnur lyfjameðferð eða skurðaðgerð. Áströlsk rannsókn, sem birt var árið 2003, leiddi í ljós að konur, sem lifað höfðu hvað lengst af legháls- krabbamein, höfðu borðað mikið grænmeti á meðan þær, sem voru með mikið af mjólkurvörum í mat- aræðinu, voru líklegri til að deyja fyrr. Hér að neðan koma nokkur ráð til krabbameinssjúkra frá krabbameins- stöðinni í Bristol.  Veljið lífrækt ræktaðar vörur um- fram þær ólífrænu.  Borðið mikið af vörum úr heilu korni, fersku grænmeti, ávöxtum, belgjurtum, hnetum, fræjum, feitum fiski, kryddjurtum, grænmetisolíum, ávaxtasöfum og vatni.  Borðið í hófi fuglakjöt og egg.  Borðið mjög lítið af rauðu kjöti, reyktum og söltuðum mat, grilluðum og brenndum mat, unnum vörum, kaffíni, alkóhóli, salti, sykri og mjólk- urafurðum. Rétt nær- ing lífs- nauðsynleg  HEILSA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.