Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 28

Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HLUSTAÐ Á ALDRAÐA Ríkisstjórnin hefur stigiðmikilvægt skref með þvísamkomulagi, sem hún gerði við Landssamband eldri borgara um margs konar umbætur á kjörum og aðbúnaði aldraðra. Segja má að stærsti sigur aldraðra og samtaka þeirra sé sá, að hafa náð eyrum stjórnmálamannanna og fengið þá til að hlusta á um- kvörtunarefni sín og kröfur. Eins og Ólafur Ólafsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir í Morgunblaðinu í gær, náð- ust ekki fram allar þær kröfur, sem settar voru fram fyrir hönd aldraðra, en margur vandi hefur verið leystur. Og fyrirheit gefið um frekari viðræður og samvinnu næstu fjögur ár. Það skiptir auð- vitað miklu máli. Með samkomulaginu við eldri borgara má segja að ríkisstjórnin hafi aftengt sprengju, sem hefði getað sprungið framan í hana þeg- ar nálgaðist kosningar næsta vor. Gífurleg sárindi og gremja hafa safnazt upp hjá eldri borgurum í landinu vegna bágra kjara stórs hóps þeirra, vegna úrræðaleysis í heilbrigðis- og vistunarmálum aldraðra og vegna þess, sem þeir hafa upplifað sem skeytingarleysi og lítilsvirðingu stjórnvalda gagn- vart sjónarmiðum þeirra. Í hópi eldri borgara hafa farið af stað fyrir alvöru umræður um að bjóða fram lista til þingkosninga og slík- ir listar hefðu getað náð mönnum á þing. Ekki fer fólki á ellilaunaaldri einungis fjölgandi, heldur ofbýður mörgum aðstandendum aldraðra hvað lítið hefur þokazt í málefnum þeirra. Nú hefur hins vegar náðst ár- angur á flestum þeim sviðum, þar sem vantað hefur upp á undanfarin ár. Í fyrsta lagi hækkar ellilífeyrir verulega, sem er ekki sízt hags- munamál þeirra sem ekki hafa aðr- ar tekjur sér til framfærslu. Mark- miðið er að allar bætur hækki að lágmarki um 15.000 krónur á mán- uði, sem er sú upphæð, sem samið var um í viðræðum aðila vinnu- markaðarins á dögunum. Í öðru lagi verður dregið úr tekjutengingu, sem er sömuleiðis mikilsverður áfangi. Morgunblaðið hefur lengi stutt tekjutengingu í velferðarkerfinu, en hins vegar talið að hún væri komin út í öfgar og sáralitlar tekjur farnar að valda skerðingu á ellilífeyri. Nú verður m.a. komið á frítekjumarki at- vinnutekna og dregið úr skerðingu vegna tekna maka. Vafalaust verð- ur deilt um hvort tekjutengingin nái enn of langt niður tekjustig- ann, en þessi breyting er a.m.k. skref í áttina. Í þriðja lagi er sá hluti sam- komulagsins, sem fjallar um sveigjanleg starfslok, einnig já- kvætt skref. Gert er ráð fyrir að hægt sé að fá hækkun ellilífeyris gegn því að fresta töku hans um lengri eða skemmri tíma. Þetta er hagur beggja; ríkissjóðs og þeirra, sem hafa óskerta starfsorku fram yfir sjötugt og telja sig ekki strax þurfa á aðstoð samfélagsins að halda. Í fjórða lagi heitir ríkisstjórnin aðgerðum til að bæta búsetu aldr- aðra og þjónustu við þá. Haft er að leiðarljósi að flestir vilji búa heima eins lengi og þeir hafa heilsu til og í því skyni á að efla heimaþjónustu og heimahjúkrun. Þá á að ráðast í ýmsar aðgerðir til að fjölga hjúkr- unarrýmum fyrir aldraða og stytta biðlista. Þær aðgerðir ættu í ein- hverjum tilvikum að geta leitt til sparnaðar hins opinbera, því að mörg dæmi hafa komið upp um að aldraðir taki upp dýr rúm á sjúkrahúsum vegna þess að pláss á hjúkrunarheimilum, sem eru mun ódýrari í rekstri, eru ekki til stað- ar. Miklu skiptir að heitið er fram- lögum til að breyta og endur- byggja hjúkrunarheimili þannig að þau svari kröfum tímans um að aldraðir geti búið á einbýlisstofum í stað þess að deila herbergi með öðrum. Ástandið í þeim málum er löngu orðið óviðunandi. Við útfærslu þessara aðgerða þarf að gefa starfsmannamálum sérstakan gaum. Það er til lítils að reisa ný hjúkrunarheimili eða efla heimaþjónustu og heimahjúkrun ef ekki fæst fólk til að vinna þau störf, sem um ræðir. Samkvæmt samkomulaginu eiga yfirvöld menntamála að huga sér- staklega að því að mennta ófag- lærða starfsmenn til aðstoðar við aðhlynningu og þau eiga ennfrem- ur að leggja áherzlu á að fjölga hjúkrunarfræðingum og sjúkralið- um. Þetta er auðvitað gott og bless- að, en það má ekki gleyma að taka það með í reikninginn að greiða þarf þessu fólki laun sem duga til að það fáist til að gegna erfiðum störfum við aðhlynningu aldraðra. Í ástandi eins og nú er á vinnu- markaðnum eru t.d. margir hjúkr- unarfræðingar í öðrum störfum vegna þess að þar eru greidd betri laun og skiptir þá ekki öllu, þótt menntaðir séu fleiri hjúkrunar- fræðingar. Yfirlýsing Geirs H. Haarde for- sætisráðherra um að breytingar á lífeyrisbótum muni einnig ná til öryrkja er mikilvæg. Öryrkjar og aðstandendur þeirra eru annar hópur, sem hefði getað reynzt stjórnarflokkunum óþægur ljár í þúfu fyrir kosningar. Ríkisstjórnin á ekki annan kost en að gera leið- réttingar á kjörum öryrkja, jafn- framt því sem hún gerir betur við aldraða. Samkomulag ríkisstjórnarinnar og aldraðra stuðlar ekki eingöngu að aukinni sátt um málaflokk, sem hefði getað orðið eitt helzta deilu- málið fyrir næstu kosningar. Það stuðlar líka að því að við getum sem samfélag búið í meiri sátt við sjálf okkur. Því að rík þjóð, sem býr illa að gamla fólkinu, sem byggði upp ríkidæmi hennar með þrotlausri vinnu, getur ekki horfzt í augu við sjálfa sig og haft góða samvizku. S ólin var í aðal- hlutverki á suð- vesturhorni lands- ins í gær og sama hvar komið var mátti sjá fólk njóta blíð- unnar. Á höfuðborgarsvæðinu flykktist fólk á helstu sund- staði og á ylströndinni í Nauthólsvík var stemningin loksins eins og gerist á sól- arströndum erlendis. Um miðjan dag mátti vart greina ský á himni og gripu nokkrir miskunnsamir vinnu- veitendur tækifærið, lokuðu fyrirtækjum og gáfu svokall- að sólarfrí. Á höfuðborgarsvæðinu fór hitinn mest upp í 20,7 gráð- ur á Geldinganesi en að sögn Óla Þórs Árnasonar, veð- urfræðings hjá Veðurstofu Íslands, var hiti mestur á landinu í Árnesi þar sem hann mældist 22 gráður. „Það eru nokkuð margir staðir búnir að fara í 20 gráður á Suðurlandsund- irlendinu. Á Þingvöllum er til dæmis 20 gráðu hiti núna,“ sagði Óli Þór þegar blaðamaður ræddi við hann um kvöld- matarleytið í gær. Í dag verður áfram hlýtt og bjart í veðri og hefur dregið úr vindi. Óli Þór bjóst ekki við því að hitinn færi alveg jafnhátt og í gærdag en bætti við að varla væri þó hægt að kvarta yfir veðrinu – ekki nema þá hugsanlega á Norð- ur- og Austurlandi. „Það er svalt fyrir norðan og austan og í raun sjáv- arhitinn sem fólk er að lesa af hitamælum sínum, þetta átta, níu gráður,“ sagði Óli Þór en bætti við að í fyrra- málið ættu flestir landsmenn að vakna upp við mjög fal- legt veður. Sundstaðir á höfuðborgarsvæðinu fylltust snarlega þegar loksins sást til sólar og í Laugardalslaug bru Morgunblaðið/Jim Smart Fjöldi fólks lagði leið sína niður í miðborg Reykjavíkur síðdegis í gær, til að mynda á Austur- völl þar sem fólk ýmist las, lék sér eða kældi sig með drykkjarföngum af öllum gerðum. Iðandi sjóböð … og þá lét sólin sjá sig Fólk gerði ýmislegt sér til skemm voru allir jafn ánægðir með það o Eftir Andra Karl andri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.