Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 33
UMRÆÐAN
VIÐ sem búum og störfum í
Breiðholti erum flest sammála um
að frá náttúrunnar hendi er fallegt
í Breiðholti. Neðra Breiðholtið kúr-
ir undir brekkunni í góðu samspili
við Elliðaárdalinn. Landslag í
Fella- og Hólhverfi einkennist af
sléttlendi og brekkubyggð. Selja-
hverfið stendur að miklu leyti í
halla og er í góðu nágrenni við opin
svæði.
Útsýni yfir borgina, út á sjóinn,
til Esjunnar og Akrafjallsins er
óvíða betra en ofan úr Breiðholti.
Eins og eðlilegt er í byggð sem
stendur hátt og vítt er til allra átta
þá getur vindurinn stundum blásið
hressilega.
Á liðnum árum hefur trjágróður
tekið vel við sér í hverfinu og
myndar nú gott skjól fyrir mannlíf
og dýralíf.
Á margan hátt hefur vel tekist
til með skipulag hverfisins og stutt
er að fara í vel gróin og skógivaxin
opin svæði. Þar má nefna Elliðaár-
dalinn, brekkuna milli neðra og
efra Breiðholts, svæðið fyrir ofan
Seljahverfið og Seljadalinn.
Elstu hverfi Breiðholtsins eru
komin á fertugsaldurinn og því orð-
in vel gróin og íbúar hafa með mik-
illi eljusemi skipulagt lóðir sínar og
flestir haldið þeim vel við.
Þrátt fyrir fallegt landslag og
víða gott skipulag eru til staðir í
hverfinu okkar sem við þurfum að
hugsa betur um.
Of mikið er um að lóðum og
mannvirkjum er ekki vel við haldið.
Reykjavíkurborg á miklar eignir í
Breiðholti sem og í öðrum hverfum.
Borgin hefur metnað til að bygg-
ingar, götur og opin svæði séu í
sem besta standi. Þrátt fyrir góðan
hug borgaryfirvalda er víða þörf á
að taka til hendinni. Nokkuð er um
að viðhald bygginga og leiksvæða
hafi setið á hakanum, þar sem
áhersla hefur frekar verið lögð á
nýbyggingar í öðrum hverfum. Því
má segja að viðhald eigna í eigu
Reykjavíkurborgar í Breiðholti hafi
verið sett aftar í forgangsröðina en
ásættanlegt er.
Húsnæði og lóðir í einkaeigu,
hvort sem um er að ræða íbúðar-
eða atvinnuhúsnæði eru á ábyrgð
eiganda sinna.
Því miður má sjá ljóta bletti í
hverfinu okkar, þar sem viðhald
einkaeigna er ekki ásættanlegt og
setur ljótan svip á næsta umhverfi.
Rekstaraðilar atvinnuhúsnæðis
þurfa að bindast samtökum og
mála yfir veggjakrot og fegra sitt
næsta umhverfi. Það getur ekki
verið gott fyrir viðskiptin að versl-
unarhúsnæðið sé útkrotað og gler-
brot og tyggjóklessur á gang-
stéttum.
Við sem búum og störfum í
Breiðholti eigum ekki að sætta
okkur við að í hverfinu séu staðir
sem er svo illa gengið um að við
viljum helst ekki af þeim vita.
Við getum snúið þessari þróun
við með þeirri hugarfarsbreytingu
að fegurra umhverfi skapi betra
mannlíf. Við eigum ekki að sýna
umburðarlyndi gagnvart rusli á
götum og slæmri umgengni. Við
viljum ekki að börnin okkar alist
upp við að sjálfsagt sé að ganga
sóðalega um. Við verðum öll að
taka saman höndum og aðstoða
hvert annað við að halda hverfinu
okkar hreinu og snyrtilegu.
Borgaryfirvöld hafa skorið upp
herör gegn slæmri umgengni og
sóðaskap í borginni og munu á
næstu árum standa að fegr-
unarátaki í öllum hverfum.
Við erum svo lánsöm hér í Breið-
holtinu að fá að vera fyrsta hverfið
í þessu átaki. Laugardagurinn 22.
júlí mun verða fegrunardagur hér í
Breiðholti þar sem borgarstarfs-
menn, nemendur Vinnuskóla
Reykjavíkur, félagasamtök, íbúar
og aðrir áhugasamir ætla að sam-
eina krafta sína og fegra Breiðholt-
ið.
Auk þess að snyrta okkar eigin
lóðir og næsta umhverfi þá ætlum
við að vinna fyrir hvert annað og
hjálpast að við að fegra Breiðholtið.
Settar verða upp þrjár stöðvar í
hverfinu, við Breiðholtsskóla í
neðra Breiðholti, við Breiðholtslaug
í efra Breiðholti og við
Hólmasel í Selja-
hverfi. Á þessum
stöðvum söfnumst við
saman kl. 11, fáum
verkfæri, ruslapoka og
annað sem til þarf,
skiptum okkur niður á
svæði undir góðri
verkstjórn borg-
arstarfsmanna og
hefjumst handa.
Við munum snyrta
opin svæði, tína rusl,
hreinsa veggjakrot,
leggja torfur, hnýta fótboltanet,
kantskera, sópa og bæta girðingar
svo dæmi séu tekin.
Að loknu góðu dagsverki fögnum
við vel heppnuðum degi með því að
koma saman
kl. 16–17 á sömu stöðum, þar
sem boðið verður upp
á veitingar og
skemmtiatriði.
Til þess að dagurinn
heppnist eins vel og
vænst er til þá hvet ég
alla íbúa og rekstr-
araðila í Breiðholti að
taka höndum saman
við borgaryfirvöld með
það í huga að fegra
Breiðholtið.
Bjóðum ekki hvert
öðru upp á illa hirt
umhverfi og sóðaskap
heldur sameinumst um að gera
hverfið okkar Breiðholt fallegasta
hverfi Reykjavíkur. Það verður
okkur öllum til hagsbóta.
Fegrum Breiðholt
Ragnar Þorsteinsson
fjallar um fegrunarátak
í Breiðholti 22. júlí ’Við verðum öll að takasaman höndum og að-
stoða hvert annað við að
halda hverfinu okkar
hreinu og snyrtilegu.‘
Ragnar Þorsteinsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Þjónustumiðstöðvar Breiðholts.
Smásögubók fylgir júlíblaðinu
„Júlíblaðið okkar er stútfullt af skemmtilegu og fræðandi efni, auk þess sem bók
með smásögum fylgir blaðinu að þessu sinni. Við auglýstum eftir sögum í blaðinu
og fengum frábær viðbrögð. Niðurstaðan er skemmtileg blanda af ólíkum sögum
eftir höfunda á aldrinum 17 til 80 ára, þekkta sem óþekkta. Góða skemmtun!“
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, ritstjóri
Hvaða blað ert þú að lesa? Kynntu þér frábær áskriftarkjör í síma 515 5555
eða sendu okkur póst á askrift@frodi.is