Morgunblaðið - 21.07.2006, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
SAMTÖKIN Ísland Panorama
(samtök fyrir fjölbreytni gegn
mismunun og kynþáttafordómum
á Íslandi) fordæma harkalega
hegðun stuðningsmanna FH sem
voru með kynþáttahatur í garð
leikmanns ÍBV sem er af erlend-
um uppruna og dökkur á hörund.
Þetta er skammarlegt og ættu
þeir sem hegða sér þannig að
skammast sín. Sem íbúar sam-
félagsins græðum við ekkert á því
að byggja upp hatur í garð þeirra
sem líta öðruvísi út.
Það er ánægjulegt að forsvars-
menn liðsins ásamt öðrum með
siðferðiskennd ætli að leggja mál-
inu lið til að útrýma eitri af þessu
tagi úr fótboltanum hér á landi.
KSÍ og ÍSÍ þurfa að taka virkan
þátt í þessu. Við verðum að taka
málið alvarlega og sýna það í
verki. Það er þörf fyrir fræðslu.
Þátttaka
Í mörgum löndum í Evrópu er
Evrópusambandið ásamt rík-
isstjórnum, sveitarfélögum og fé-
lagasamtökum að vinna hörðum
höndum að því að kynna hugtakið
„Þátttaka“. Það er að segja að
vekja almenning til umhugsunar
um mikilvægi þess að hvetja og
aðstoða alla í samfélaginu til að
vera virkir þátttakendur óháð
uppruna, trú, þjóðerni, kynþætti,
litarhætti o.s.frv. Þannig samfélag
er mun sterkara en ella og við
högnumst öll á því. Þetta er eitt-
hvað sem við verðum öll að gera
okkur grein fyrir og vera með-
vituð um. Við verðum að gera öll-
um kleift að vera með og í leiðinni
að fjarlægja það sem heldur okkur
í sundur.
Kastljósið
Umsjórnarmenn Kastljóssins
þurfa að gefa fólki af erlendum
uppruna tækifæri til að vera með í
umræðum. Þetta á sérstaklega við
þegar umræðuefnið er innflytj-
endur í samfélaginu, því það marg
borgar sig fyrir þjóðfélagið að
heyra raddir þeirra líka. Nýlega
reyndi einn að komast í þáttinn til
að tjá sig um ákveðið umræðuefni
en án árangurs þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir og mörg loforð rit-
stjóra þáttarins.
Kaffi Sólon
Það virðist vera að sumir í sam-
félaginu upplifi það að fá ekki að-
gang að skemmtistöðum bæjarins
vegna uppruna eða litarháttar.
Nýlega var nokkrum ungmennum
frá Gambíu, sem voru hérna á
vegum Rauða krossins, neitað um
aðgang að Kaffi Sólon og bendir
margt til þess að um kynþátta-
fordóma hafi verið að ræða í garð
þeirra. Fleiri einstaklingar, af er-
lendum uppruna, sem hafa viljað
fara á skemmtistaði um helgar
hafa kvartað undan þessu. Hvað
er eiginlega í gangi?
Alþjóðlegt
samfélag
Menn gleyma oft að Ísland er orð-
ið stór partur af svokölluðu al-
þjóðlegu samfélagi þar sem fólk af
mismunandi uppruna þarf daglega
að vera í gagnkvæmum sam-
skiptum vegna efnahags, félags,
viðskipta og menntamála svo eitt-
hvað sé nefnt. Fólk ferðast milli
landa en sumir stoppa stutt og
aðrir lengi. Sumir finna ástina,
fósturfjölskyldu, vini, félaga, skóla
o.s.frv og þurfa þess vegna að búa
hérna eða erlendis. Þurfum við að
vera eitthvað hrædd eða fordóma-
full bara af því að sumir eru öðru
vísi að sjá. Sýnum umburðarlyndi
og gefum öllum tækifæri rétt eins
og við viljum að aðrir komi fram
við okkur. Byggjum betra sam-
félag sem er öllum í hag og verum
til fyrirmyndar. Við höfum engu
að tapa.
AKEEM CUJO,
formaður Ísland Panorama,
Hamraborg 7, Kópavogi.
Gagnkvæm virðing, þátttaka,
jafnræði og rétt hugarfar
Frá Akeem Cujo:
Á LÖNGUFJÖRUM er vinsæl
reiðleið sem fjöldi hestamanna nýt-
ur á hverju sumri. Flestir ferða-
langar eiga góð samskipti við land-
eigendur en því miður verður
stundum misbrestur þar á. Á und-
anförnum árum hafa átt sér stað
nokkur leiðinleg atvik á Löngu-
fjörum þar sem góð samskipti við
landeigendur ásamt aðgát hefðu
getað skipt sköpum. Við urðum
vitni að mjög undarlegu háttalagi
nú nýverið:
Við urðum vör við ferðahóp á leið
suður Löngufjörur. Tók hópurinn
með sér nautgripi, alls 26, inn í
reksturinn og út á fjörur við Stakk-
hamarsnes. Stutt var í að sjór félli
inn á fjörur og sáum við enga til-
burði hjá hópnum að skilja naut-
gripina frá. Það eina sem við gátum
gert í stöðunni til að bjarga naut-
gripunum var að leggja á hest og
ríða ferðahópinn uppi. Nautgrip-
irnir urðu viðskila við ferðahópinn
og voru ráðvilltir á miðjum fjörum í
bullandi aðfalli. Hér hefði getað far-
ið illa ef ekki hefði sést til ferða-
hópsins. Nautgripina hefði getað
flætt á fjörunum og þeir drukknað
sem hefði verið stórskaði fyrir
kúabúið. Í þetta sinn var það til-
viljun ein að til hópsins sást og
hægt var að bjarga nautgripunum
áður en illa fór.
Sé vitnað í lög um náttúruvernd
nr. 44 frá 22. mars 1999 segir í 13.
gr.:
„För um landið og umgengni. Á
ferð sinni um landið skulu menn
sýna landeiganda og öðrum rétt-
höfum lands fulla tillitssemi, virða
hagsmuni þeirra, m.a. vegna búpen-
ings og ræktunar, þar á meðal
skógræktar og landgræðslu, og
fylgja leiðbeiningum þeirra og fyr-
irmælum varðandi ferð og um-
gengni um landið.“
Af þessu er ljóst að sé þessu
fylgt eftir ættu svona atvik ekki að
þurfa að eiga sér stað. Þessi grein
um náttúruvernd felur í sér al-
mennar kurteisisvenjur í sam-
skiptum manna á milli. Á tímum
upplýsingatækni á að vera einfalt
mál að leita uppi símanúmer land-
eigenda ef ferðamenn lenda í vand-
ræðum.
Í þessu tiltekna atviki var um að
ræða skipulagðan ferðahóp í at-
vinnuskyni. Maður skyldi ætla að
slíkir ferðahópar sýndu vandaðri
vinnubrögð og hefðu samband við
landeigendur eins og segir í 22. gr.
laga um náttúruvernd:
„Skipulagðar hópferðir. Þegar
skipulagðar eru hópferðir í atvinnu-
skyni um eignarlönd skal hafa sam-
ráð við eiganda lands eða rétthafa
um umferð manna og dvöl á landi
hans.“
Við viljum þakka þeim ferða-
mönnum sem hafa haft samband
við landeigendur við skipulagningu
ferða sinna og hvetjum við aðra
ferðamenn til að gera slíkt hið
sama. Við erum ávallt boðin og bú-
in að greiða för þeirra sem vilja
njóta þessarar útivistar.
LAUFEY BJARNADÓTTIR,
bóndi á Stakkhamri.
Ábending til ferðamanna um Löngufjörur
Frá Laufeyju Bjarnadóttur:
FULLBURÐA heilbrigt barn er
með nægar járnbirgðir við fæðingu
sem nægir fram til um sex mánaða
aldurs ásamt því járni sem barnið
fær með móðurmjólkinni.
Þrátt fyrir að magn í brjósta-
mjólk sé lítið nýtir barnið það vel á
milli 20–40% samanborið við nýt-
ingu járns úr þurrmjólk sem er ein-
ungis 4%. Hár styrkur lactósu og
C-vítamíns í brjóstamjólk eykur
upptöku á járni. Brjóstabörn þurfa
ekki aukalega járn. Rannsókn sem
gerð var á börnum sem eingöngu
voru á brjósti til 7 mánaða aldurs
sýndi að börnin höfðu hærri styrk
hemoglobins við 2 ára aldur, en þau
börn sem fengið höfðu aðra fæðu
fyrr.
Ef talin er hætta á járnskorti er
einfaldast að senda barnið í blóð-
prufu og með-
höndla hvert ein-
stakt barn. Þegar
járnbættri fæðu
er bætt við fæði
brjóstabarns er
oft búið til
vandamál. Það
eru tvö prótein í
brjóstamjólkinni
lactoferin og
transferrin sem
taka upp og binda járn í melting-
arvegi barnsins. Prótein þessi binda
járnið til að hefta vöxt skaðlegra
baktería en þær þurfa járn til að
fjölga sér. Aukaverkanir tilbúinnar
járnbættrar fæðu til brjóstabarna
eru oft uppköst og niðurgangur.
Líkami lítils barns getur ekki bund-
ið allt það járn sem gefið er, því fá
óæskilegar bakteríur tækifæri til að
fjölga sér. Um sjö mánaða aldur er
æskilegt að fara rólega að kynna
fyrir brjóstabarninu ávexti, græn-
meti og kjöt. Brjóstagjöf sleppir
ekki um 6 mánaða aldur heldur er
það sá lágmarkstími sem barn ætti
að vera eingöngu á brjósti, mælt er
með að börn séu á brjósti að lág-
marki eitt ár, en helst tvö ár eða
lengur. Allt aðrar leiðbeiningar
gilda um börn alin á þurrmjólk. Ís-
lenskar mæður hafa mikið rætt á
rabbsíðum um aukaverkanir stoð-
mjólkur sem manneldis- og næring-
arráðgjafar mæla með. Það er ekki
hægt að nota sömu leiðbeiningar
fyrir þurrmjólkur- og brjóstabörn
þar sem líkami þeirra starfar ólíkt.
ARNHEIÐUR
SIGURÐARDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur, brjósta-
gjafaráðgjafi IBCLC og brjósta-
gjafaleiðbeinandi LLL.
Járnskortur er nær
óþekktur meðal brjóstabarna
Frá Arnheiði Sigurðardóttur:
Arnheiður
Sigurðardóttir
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 577 2000