Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 35

Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 35 MINNINGAR ✝ GuðmundurÞorvaldur Jóns- son var fæddur að Bjarnastöðum í Reykjafjarðar- hreppi í N-Ísafjarð- arsýslu hinn 1. júlí 1912. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi hinn 11. júlí síðastliðinn. Hann var ókvæntur og barnlaus. Guðmundur var sonur hjónanna Guðbjargar Efemíu Steinsdóttur og Jóns Ólasonar, bónda á Bjarnastöðum í Reykjafjarðar- hreppi í N-Ísafjarðarsýslu. Í júní 1911 höfðu þau hjón eignast dreng sem var andvana fæddur. Guðmundur var því elst- ur systkina sinna. Samtals voru þau 11 og þar af komust níu til Guðmundur, þá á átjanda ári, fer í vinnumennsku víða um Djúpið, var m.a. í Botni, Mið- húsum, Þúfum og eynni Vigur, kom að byggingu Héraðsskólans í Reykjanesi og rafveitu sem Jón Fannberg reisti í Botni. Við Djúpið er Guðmundur fram til ársins 1942, en þá flyst hann til Reykjavíkur og bjó þar alla tíð síðan. Í Reykjavík stundaði hann al- menna verkamannavinnu, sem til féll á hverjum tíma, s.s. við Reykjavíkurhöfn, lóðadeild Rík- isspítala, trésmiðju Völundar, prentsmiðju Þjóðviljans og hreinsunardeild Reykjavíkur- borgar, en þar vann hann alveg fram undir áttræðisaldur. Guðmundur var afar sjálfstæð- ur maður, bjó lengst af á Hverf- isgötu 58A í Reykjavík, en árið 2003 flutti hann í Seljahlíð heim- ili aldraðra, í Hjallaseli 55 í Reykjavík, og dvaldist þar síð- ustu þrjú ár ævinnar. Útför Guðmundar Þorvalds Jónssonar verður gerð frá Há- teigskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. fullorðinsára. Þau eru: Valgerður Sig- urborg, f. 11. júní 1914, d. 1. febr. 1982; Kristján Mar- geir, f. 22. okt. 1915, d. 1. júní 1996; Kjartan Aðalsteinn, f. 29. jan 1917, d. 27. mars 2006; Ingi- björg Guðný Jónína, f. 11. nóv. 1918; Guðbjörg Gróa og Bjarni Sigurður, tví- burar, f. 28. okt. 1920; Bjarni Sigurð- ur, d. 21. mars 1922; Elín Bjarn- ey, f. 26. okt. 1922; Óli Kristján, f. 21. sept. 1925, d. 26. apríl 2004; og Bjarni, f. 15. des. 1926. Árið 1930 um vorið andast Jón Ólason frá konu og börnum. Þá er heimilið leyst upp og systk- inunum komið í fóstur á bæjum víða við Ísafjarðardjúp. Móðurbróðir minn, Guðmundur Þorvaldur Jónsson, er látinn níutíu og fjögurra ára. Lífshlaup Gumma frænda míns er að mörgu leyti dæmigert fyrir marga er fæddust við Djúp á fyrri hluta síðustu aldar. Að Gumma standa ættir við Ísafjarðar- djúp með ívafi í sveitum við norð- anverðan Breiðafjörð. Gummi er al- inn upp á Galtarhrygg í Mjóafirði, elstur af níu systkinum er upp kom- ust. Árið 1930 féll faðir hans frá langt um aldur fram. Að þeirra tíma hætti var fjölskyldan vægðarlaust leyst upp, eldri börnin fóru í fóstur í sveitinni en móðirin í vinnumennsku með tvö yngstu börnin. Á þessum tíma var fjölmennt við Djúp, hver jörð setin, útræði víða og fjöldi fólks í vinnumennsku til sjós og lands. Næsta áratuginn var Gummi í vinnumennsku víða við Djúp, en á stríðsárunum breytti hann til og fór til vinnu í Reykjavík. Átti hann þar heima síðan. Í höfuðborginni vann hann framan af við hin ýmsu störf svo sem hafnarvinnu, koladreifingu, garðyrkju, kertasteypu og trésmíðar svo eitthvað sé nefnt. Lengst vann hann hins vegar í Prentsmiðju Þjóð- viljans, langt á annan tug ára. Er hann hætti störfum hjá Þjóðviljan- um, kominn hátt á sjötugsaldur, fór hann að vinna hjá Reykjavíkurborg og vann þar meðan hann gat fram á áttræðisaldur. Trúmennska hans og samviskusemi í starfi var einstök. Gummi kvæntist aldrei, en þrátt fyrir það má segja að hann hafi verið mikill fjölskyldumaður. Hann um- gekkst skyldfólk sitt náið, tók þátt í lífi þess og var ætíð reiðubúinn til að taka á sig snúninga og aðstoða ef með þurfti. Þó frændi minn hefði ekki notið langrar skólagöngu las hann mikið og var vel fróður. Ættfræði var hon- um einkar hugleikin. Safnaði hann saman miklum fróðleik um ætt okk- ar og tók saman niðjatöl sem voru prentuð og fjölrituð og dreift meðal ættingja. Kostaði þetta mikla vinnu því allar upplýsingar handskrifaði hann. Ég hef þekkt Gumma frænda minn nánast alla ævina og hafa sam- verustundir okkar verið margar. Hann kom gjarnan vestur á firði í sumarfríum sínum og tvisvar var hann hjá okkur sumarlangt við hey- skap. Börn sóttust eftir að vera í ná- vist hans því hann var óþreytandi við að segja okkur sögur og miðla af fróðleik sínum. Ef útvega þurfti ein- hvern hlut sem bara fékkst í Reykja- vík var frændi minn boðinn og búinn til að útvega hann. Seinna er ég hafði lokið háskólanámi og hóf að dvelja í Reykjavík fékk ég að búa hjá Gumma á Hverfisgötunni af og til í rúmlega tvö ár. Er áhugi minn á ætt- fræði vaknaði áttum við oft langar samræður um fólk og staðhætti, sér- staklega við Ísafjarðardjúp. Gummi var grannvaxinn, meðal- maður á hæð, kvikur í hreyfingum, glaðlyndur og einstakt ljúfmenni. Hann neytti hvorki áfengis né tób- aks. Sem betur fór entist honum heilsa til að búa í íbúðinni sinni á Hverfisgötu 58a, þar sem hann hafði búið í 40 ár, og sjá að mestu um sig sjálfur fram yfir nírætt. Síðustu þrjú árin bjó hann í íbúð fyrir aldraða í Seljahlíð. Andlegu atgervi sínu hélt hann fram í andlátið. Blessuð sé minning Guðmundar Þ. Jónssonar. Bragi Líndal Ólafsson. GUÐMUNDUR Þ. JÓNSSON ✝ Ingibjörg Jó-hannesdóttir fæddist á Ísafirði 27. desember 1913. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Ísafjarðar 11. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhannes Þor- steinsson, f. 28. sept. 1889 á Borg í Skötu- firði í Ísafjarðar- djúpi, d. 12. febr. 1944, og Jóhanna Margrét Pétursdótt- ir, f. 26. maí 1881 í Reykjarfirði í Árneshreppi á Ströndum, d. 7. maí 1918. Alsystk- ini Ingibjargar voru Ari Guðjón, f. 4. des. 1911, d. 5. febr. 1999, og Jó- hanna María, f. 19. okt. 1917, d. 25. sept 1993. Hálfsystir hennar sam- mæðra var Sigurey Júlíusdóttir. Sonur Ingibjargar og Ásgeirs Guðmundssonar frá Þorfinnsstöð- um í Önundarfirði, f. 9. sept. 1912, d. 29. ágúst 1987, er: 1) Eiríkur Ás- geirsson, f. 7. nóv. 1933, k. Guðný Þorvaldsdóttir, f. 24. jan. 1929. Þau búa í Reykjavík. Hún átti fyrir þrjár dætur: a) Kristjönu Þórarins- dóttur, f. 1952, m. Sigurður Gunn- arsson, f. 1951, búsett á Akranesi og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn, b) Kolbrúnu Þórarins- dóttur, f. 1953, býr í Reykjavík og á tvær dætur og c) Báru Þórarins- dóttur, f. 1955, m. Kristján R. dóttur, d) Margrét Kristjánsdóttir, f. 1968, býr á Flateyri, og e) Hlyn- ur Kristjánsson, f. 1981, býr með Hörpu Oddbjörnsdóttur, f. 1977, þau eru búsett á Ísafirði. 3) Elín S. Jóhannesdóttir, f. 22. apríl 1942, m. Gísli Þorsteinsson, f. 15. des. 1935, búsett á Brekku í Norðurár- dal í Borgarfirði. Þeirra börn eru: a) Þorsteinn Gíslason, f. 1966, k. Anna B. Sigurðardóttir, f. 1967, búsett í Eyjafjarðarsveit, þau eiga tvö börn, b) Sigurlaug Gísladóttir, f. 1967, býr í Kópavogi og c) Ingi- björg M. Gísladóttir, f. 1969, m. Einar S. Kjartansson, f. 1962, d. 1996, einnig búsett í Kópavogi, hún á tvö börn. 4) Drengur, f. 25. sept. 1945, d. 13. febr. 1946. 5) Helga M. A. Jóhannesdóttir, f. 2. apríl 1951, m. Arnór G. Jósefsson, f. 7. nóv. 1944, búsett í Reykjavík. Þeirra börn eru: a) Guðrún Ó. Arn- órsdóttir, f. 1979, búsett í Reykja- vík, og b) Þorsteinn Arnórsson, f. 1981, búsettur í Reykjavík. Ingibjörg ólst upp hjá afa sínum og ömmu á Borg í Skötufirði frá því að móðir hennar lést og fram til fermingar er hún fór í vist til Ísafjarðar. Hún var í kaupavinnu á Þorfinnsstöðum í Önundarfirði og seinna í Ytri-Hjarðardal en þar hóf hún búskap með Jóhannesi Krist- jánsyni og bjuggu þau þar nánast allan sinn aldur utan örfá ár er þau bjuggu á Vöðlum. Þau brugðu búi í kringum 1990 og fluttu til Ísafjarð- ar. Útför Ingibjargar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í kirkjugarðinum í Holti í Önundarfirði. Kristjánsson, f. 1953, Búa í Reykjavík og eiga fjórar dætur og fimm barnabörn. Saman eiga Eiríkur og Guðný þrjú börn. Þau eru: d) Guð- mundur Á. Eiríksson, f. 1957, k. Elínborg V. Halldórsdóttir, f. 1956, þau búa í Hafn- arfirði og eiga tvo syni. e) Ingibjörg J. Eiríksdóttir, f. 1962, m. Sigurður Sigurðs- son, f. 1961, þau eru búsett í Reykjavík og eiga þrjár dætur, og f) Anna S. Eiríksdóttir, f. 1969, m. Einar K. Gíslason, f. 1964, búa á Akranesi og eiga tvær dæt- ur. Einar átti fyrir þrjú börn. Sambýlismaður Ingibjargar var Jóhannes Kristjánsson, f. 8. des. 1911, d. 24 des. 2002. Þau eignuð- ust fjögur börn: 2) Kristján Jó- hannesson, f. 20. sept. 1938, k. Guðrún Jónsdóttir, f. 7. sept. 1940. Þau búa á Flateyri og eiga fimm börn: a) Jóhannes Kristjánsson, f. 1961, k. Hulda B. Baldvinsdóttir, f. 1956, búsett í Kópavogi. Þau eiga tvö börn, b) Jón Jens Kristjánsson, f. 1963, k. Kolbrún Guðbrandsdótt- ir, f. 1963, búa í Ytri-Hjarðardal og eiga tvo syni, c) Steinþór B. Krist- jánsson, f. 1966, býr á Flateyri, á tvær dætur með Hildi Halldórs- dóttur, f. 1965, fyrir á Hildur eina Það er svo margt sem fer um hugann þegar ég hugsa um Ingi- björgu Jóhannesdóttur eða ömmu niður frá eins og hún var oftast kölluð hér í Hjarðardal. Ég var svo gæfusöm að kynnast Ingu fyrir 24 árum þegar ég fékk hana eiginlega í heimanmund með manni mínum. Hún studdi okkur heilshugar ungu hjónin þegar við tókum við búi í Hjarðardal Ytri og sýndi ávallt mikla hjálpsemi og hlýju. Þá var margur kaffisopinn drukkinn í eld- húsinu hjá henni og afa þegar kom- ið var úr fjósinu og um margt spjallað. Hún var alla tíð minnug svo af bar bæði á gamla samferða- menn og atburði, svo unun var að heyra hana segja frá. Hún gat aldr- ei óvinnandi verið og ef hún var ekki að sýsla við heimilisstörf var hún síprjónandi. Þeir eru ófáir sokkarnir og vettlingarnir sem hún gaf okkur og öðrum sem vildu þiggja, skyldum sem óskyldum. Henni leið best ef hún gat lagt eitt- hvað gott til annarra með gjöfum eða kaffi og kökum, sem alltaf var til nóg af. Hún var komin á áttræð- isaldur þegar hún kom upp hólana á hverjum degi fyrsta veturinn minn í Hjarðardal til að passa eldri strákinn okkar sem þá var sex mánaða gamall svo við hjónin gæt- um sinnt fjósverkunum saman. Og ekki voru þeir gamlir hann og bróð- ir hans þegar þeir kjöguðu niður hólana til að fara „til ömmu“ eins og þeir sögðu. Eftir fyrstu árin okkar saman hér í Hjarðardal fluttu hún og afi í íbúð á Hlíf II á Ísafirði. Þar áttu þau góð ár. Inga endurnýjaði kynni við gamla kunningja síðan hún bjó á Ísafirði sem ung stúlka og eign- aðist jafnframt nýja vini. Hún tók virkan þátt í félagslífi og naut þess að búa í góðu húsnæði í nálægð við skemmtilegt fólk. Afa missti hún svo fyrir fjórum árum, en hélt ótrauð áfram jákvæð að vanda umkringd góðum vinkon- um. Hún fékk að halda ágætri heilsu fram að því að hún veiktist þremur vikum áður en hún lést, á sjúkrahúsi Ísafjarðar þar sem hún naut góðrar umönnunar. Með þessum línum vil ég þakka Ingu ömmu samfylgdina og það sem hún var mér og mínum. Hvíl í friði. Kolbrún. Árið 1913 var Ísland tæplega komið inn í nútímann. Lífsskilyrði þjóðarinnar voru með svipuðu móti og þau höfðu verið nánast frá upp- hafi byggðar í landinu eða í u.þ.b. þúsund ár. Inn í þennan veruleika var þann 27. desember það ár í heiminn borin á Smiðjuvegi 4 á Ísa- firði amma mín, Ingibjörg Jóhann- esdóttir. Að henni stóðu sterkir ættstofnar úr Djúpi, m.a. Vigur- og Arnardalsættir, en föðurætt móður hennar var af Ströndum. Heimilis- faðirinn stundaði sjómennsku fjarri heimilinu þannig að heimilishald og barnauppeldi lenti á herðum móð- urinnar. Þegar hér var komið sögu hafði þeim, liðlega tveimur árum fyrr, fæðst sonurinn Ari. Fyrir hafði móðirin eignast dóttur, Sig- ureyju, sem ekki ólst upp hjá henni. Þegar amma var tæplega fjögurra ára bættist systirin Jó- hanna María í systkinahópinn. Við barnsburðinn veikist móðir þeirra alvarlega og lést af völdum þeirra veikinda liðlega hálfu ári síðar. Eft- ir það var fjölskyldan leyst upp. Börnin voru send í fóstur, tvö þau eldri til föðurforeldra sinna að Borg í Skötufirði en Jóhönnu Maríu litlu var komið í fóstur í Kálfavík sem er þar í næsta nágrenni. Sjálfsagt hef- ur atlæti ömmu verið hvað best þeirra systkina. Ari fór fljótlega í vinnumennsku á aðra bæi í Djúpinu og Jóhanna María ólst upp hjá vandalausum. Voru æskuslóðir ömmu á Borg henni ætíð mjög kærar og þegar henni gafst kostur á að koma þangað seinna á ævinni hljóp hún um holt og móa eins hún væri enn á unglingsaldri að smala fé Þorsteins afa síns. Um fermingu flyst amma aftur til Ísafjarðar og fer í vist til frænku sinnar Berg- þóru Árnadóttur og manns hennar Matthíasar Sveinssonar. Þegar hún var átján ára gömul haga örlögin því þannig að hún fer vestur í Ön- undarfjörð þar sem hún átti eftir að búa megnið af ævinni, fyrst á Þor- finnsstöðum þar sem hún er í kaupavinnu hjá Gísla föðurbróður sínum. Þar eignast hún soninn Ei- rík með Ásgeiri syni bóndans á hinni hálflendunni á Þorfinnstöðum. Þeim var ekki ætlað að rugla frek- ar saman reytum og amma fer í kaupavinnu á næsta bæ innan við Dalsófæruna, Ytri-Hjarðardal, með litla drenginn sinn tveggja ára gamlan. Í Ytri-Hjarðardal, sem var stórbýli á þeirra ára mælikvarða, bjuggu þá bræðurnir Kristján og Sæmundur Jóhannessynir og þar var til heimilis sonur Kristjáns, Jó- hannes, nýkominn úr búfræðinámi á Hvanneyri. Hann átti eftir að verða lífsförunautur ömmu og hófu þau búskap sinn á Vöðlum í Önund- arfirði og búa þar í nokkur ár eða þar til Sæmundur bregður búi í Ytri-Hjarðardal og þau taka við hans hluta jarðarinnar. Afa og ömmu varð þriggja barna auðið sem náðu fullorðins aldri, en einn son misstu þau tæplega fimm mán- aða gamlan. Árið 1990 flytur amma svo enn til Ísafjarðar þegar hún og afi brugðu búi í Hjarðardal og fluttu í nýbyggða íbúð á Hlíf 2. Þarna kynntist amma aftur göml- um vinum og kunningjum frá yngri árum sem stopult samband hafði verið við meðan Breiðadalsheiðin skildi að og var mjög virk í öllu fé- lagsstarfi á Hlíf. Hún annaðist afa af einstakri trúmennsku síðustu ár- in sem hann lifði en hann lést á að- fangadag árið 2002. Síðan þá átti amma gott og áhyggjulítið ævi- kvöld, hún ræktaði samband við vini og afkomendur og var áfram virk í öllu sem hún átti kost á að taka þátt í með nágrönnum sínum á Hlíf. Heilsufar hennar var gott. Andlega hélt hún sér einstaklega vel, var alltaf vel með á nótunum og varla að finna að hún gleymdi nokkru. Líkamleg heilsa hennar var einnig góð, fyrir utan umgangs- pestir, þar til bara síðustu tvær vikurnar er hún fékk ristil í andlitið sem hún náði sér ekki af og að lok- um dró hana til dauða. Eitt stærsta lán mitt í lífinu var að fá að alast upp í nábýli við ömmu og afa því að foreldrar mínir bjuggu á móti þeim í Ytri-Hjarð- ardal á uppvaxtarárum mínum. Það var alltaf gott að geta leitað til þeirra ef eitthvað bjátaði á. Frá- sagnir þeirra af lífinu eins og það var á uppvaxtarárum þeirra voru ómetanlegar og kenndu mér að meta þær aðstæður sem ég hef bú- ið við og ugglaust átt þátt í að vekja áhuga minn á sögu okkar. Alltaf hugsaði amma um að eiga eitthvað gott í gogginn á „aumingj- unum“ sínum eins og hún kallaði okkur systkinin, síður en svo í niðr- andi merkingu og óteljandi eru sokkaplöggin sem hún sá mér fyrir og seinna börnum mínum er þau komu til. Ég hitti ömmu síðast í febrúar síðastliðnum er við fjöl- skyldan fórum í eftirminnilega helgarferð vestur á firði. Þá fórum við með ömmu í bílferð í Önund- arfjörðinn, komum m.a. að leiði afa í kirkjugarðinum í Holti þar sem hún verður nú lögð til hinstu hvílu við hlið hans. Vona ég að endur- fundir þeirra á þeim stað sem þau eru á núna, og við endum öll á að lokinni þessari jarðvist, hafi verið gleðilegir. Ég vil að lokum láta í ljós þakklæti mitt til ömmu fyrir að fá að vera henni samferða þetta stóran hluta ævi minnar og fyrir að fá njóta leiðsagnar hennar. Ætt- ingjum og vinum bið ég Guðs bless- unar sem og starfsfólki á Hlíf og Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar og öðrum þeim sem önnuðust ömmu og léttu henni lífið síðustu árin. Jóhannes Kristjánsson. Elsku amma. Þakka þér fyrir all- ar stundirnar sem við áttum saman. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig að eilífu. Þinn Bjartmar. INGIBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.