Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 40

Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björn StefánHólmsteinsson fæddist á Grjótnesi á Melrakkasléttu í Norður-Þingeyjar- sýslu 21. janúar 1926. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Grund hinn 11. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Hólmsteinn Helga- son, f. 5. maí 1893, d. 29. apríl 1988, fyrr- verandi oddviti og útgerðarmaður á Raufarhöfn, og kona hans Jóhanna Björnsdóttir, f. 3. júlí 1901, d. 5. jan- úar 1994. Systkini Björns eru: Aðal- björg Jakobína Hólmsteindóttir, f. 26.1. 1926, fv. hússtjórnarkennari í Reykjavík; Helgi Sigurður Hólm- steinsson, f. 3.5. 1928, sjómaður, býr á Raufarhöfn; Arndís Sigur- björg Hólmsteinsdóttir, f. 12.2. 1931, ljósmóðir. Eiginmaður henn- ar er Karl Jónsson og búa þau í Reykjavík.; Jónas Maríus Hólm- steinsson, f. 8.7. 1934, fv. kaup- félagsstjóri og yfirbókari. Eigin- kona hans er Edda Kjartansdóttir og búa þau í Reykjavík; Gunnar Þór Hólmsteinsson, f. 6.3. 1936, við- skiptafræðingur og fv. skrifstofu- stjóri. Eiginkona hans er Guðrún Gunnarsdóttir og búa þau í Hafn- arfirði; Baldur Hólmsteinsson. f.24.8. 1937, útgerðar- og sjómaður. Eiginkona hans er Sigrún Guðna- dóttir og búa þau á Raufarhöfn. Eftirlifandi eiginkona Björns er Jónína Ósk Pétursdóttir, fædd í Vestmannaeyjum 12. nóvember 1926. Þau gengu í hjónaband 1. jan- isson skipstjóri og eiga þau þrjú börn; Brynjar Þór, Karítas og Dag- nýju. Björn ólst upp fyrstu árin á Grjótnesi þar til foreldrar hans fluttu til Raufarhafnar. Hann nam við Barnaskólann á Raufarhöfn og fór síðar einn vetur í eldri deild Laugaskóla í Reykjadal þar sem hann lauk námi vorið 1943. Þá fór hann á mótornámskeið hjá Fiskifélagi Íslands haustið 1943. Björn stundaði vertíðir á sínum yngri árum þar til hann flutti alfar- ið til Raufarhafnar með eiginkonu sinni 1952, þau byggðu þar húsið Setberg og bjuggu þar alla tíð síðan þar til haustið 2002 þegar veikindi ágerðust og þau hjónin fluttu til Reykjavíkur. Björn stundaði sjó- mennsku bæði sem formaður og vélstjóri auk þess sem hann rak út- gerð um áratuga skeið og fiskverk- un síðustu ár starfsævinnar ásamt því að sjá um allan reksturinn. Hann stundaði vörubílarekstur um hríð, rak lítið fjárbú um árabil í tómstundum og tók virkan þátt í margvíslegum félagsstörfum. Hann sat í sveitarstjórn Raufarhafnar á árunum 1962–1970 og síðan aftur frá 1974 til 1982 þá sem oddviti. Hann sat í hafnarnefnd til 1986. Á síldarárunum 1953–1968 var hann verkstjóri á síldarplönum flest sum- ur, fyrst á plani föður síns en 1964– 1968 á söltunarstöðinni Borgum hf. Eftir síldarhrunið 1968 blasti við mjög alvarlegt ástand í atvinnumál- um Raufarhafnar. Þá beitti hann sér ásamt öðrum góðum mönnum fyrir stofnun útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækisins Jökuls hf. sem eftir það var burðarásinn í atvinnu- lífi Raufarhafnar. Þar sat hann í stjórn um langt árabil, ýmist sem formaður eða varaformaður. Útför Björns verður gerð frá Raufarhafnarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. úar 1952. Foreldrar hennar voru Pétur Guðjónsson, f. 12. júlí 1902, d. 21. ágúst 1982, bóndi og sjó- maður í Kirkjubæ í Vestmannaeyjum, og Guðrún Rannveig Guðjónsdóttir, f. 17. apríl 1905, d. 18. okt. 1938, frá Tóaseli í Breiðdal. Börn Björns og Óskar eru: 1) Jó- hanna Björnsdóttir, f. 18.3. 1953, læknir. Eiginmaður hennar var Ásbjörn Sigfússon, læknir, en hann lést af slysförum 8.9. 2001. Þau eiga tvær dætur, Ástu og Huldu. 2) Pétur Björnsson, f. 11.8. 1955, framkvæmdastjóri. Kona hans er Margrét Þorvaldsdóttir verslunarmaður og eiga þau fjögur börn, Kristínu, Ósk, Sunnu Guð- rúnu og Bryndísi. 3) Hólmsteinn Björnsson, f. 16.5. 1959, fram- kvæmdastjóri. Kona hans er Þor- gerður Ása Tryggvadóttir útstill- ingahönnuður og eiga þau þrjá syni, Björn, Hauk og Hjörvar. 4) Guðrún Rannveig Björnsdóttir, f. 16.5. 1959, verslunarmaður. Fyrr- verandi maður hennar er Bergur Júlíusson sjómaður og eiga þau þrjú börn, Júlíus Pétur, Gyðu Ósk og Helgu. 5) Lilja Valgerður Björnsdóttir. f. 19.10. 1960, skrif- stofumaður. Eiginmaður hennar er Jón Ómar Finnsson húsasmíða- meistari og eiga þau þrjú börn; Við- ar, Önnu og Unni. 6) Birna Björns- dóttir, f. 31.10. 1968, skrifstofumaður og kennari. Eigin- maður hennar er Ríkharður Reyn- Af mönnunum í lífi mínu var pabbi þar lengst; frá því ég fæddist fyrir rúmlega hálfri öld og meðan bæði lifðu. Lengst af var hann mjög virk- ur þátttakandi í lífi mínu og minnar fjölskyldu, allt þar til fyrir nokkrum árum að grimmur og ágengur sjúk- dómur rændi hann bæði andlegu og líkamlegu atgervi. Ránsfengurinn var töluverður. Pabbi fékk að vísu mænuveiki á unglingsárum og sá þess æ síðan merki, aðallega á göngulagi hans, en var að upplagi hraustur og jafnan frískur. Fékk smávægileg kransæðaþrengsli sem voru lagfærð snarlega á skurðstofu Landspítalans, en annað var það nú ekki. Hitt var ekki veigaminna að pabbi var afar greindur maður sem hafði margt til brunns að bera. Hann var skapgóður, hafði jafnaðar- geð, en gat verið skapstór ef því var að skipta, réttsýnn og lét alla njóta sannmælis. Hann hafði ríka réttlæt- iskennd og góðan félagsþroska. Pabbi var mikill Raufarhafnarmað- ur og vildi helst hvergi annars stað- ar vera en norður á Sléttu. Var ætíð reiðubúinn til að leggja sitt af mörk- um fyrir samfélagið heima, starfaði lengi að sveitarstjórnarmálum auk annars. Hann var bjartsýnn á fram- tíð samfélagsins á Raufarhöfn, áhugasamur um uppbyggingu at- vinnulífsins og tók þar virkan þátt. Þegar við eldri systkinin vorum ung var pabbi ekki mikið heima. Það þurfti að koma upp húsi og vinna fyrir fjölskyldu sem fór hratt stækk- andi. Það var sameiginlegt áhuga- mál foreldra okkar að við börnin fengjum þá menntun sem hugur okkar stæði til. Við vorum því óspart hvött og studd til þess, jafnt fjár- hagslega sem á annan hátt. Bestu stundir okkar pabba voru annars vegar í fjárhúsinu þegar ég var krakki og hins vegar þegar ég kom heim í skólafríum á mennta- og há- skólaárunum. Þá settumst við inn í stofu, fengum okkur kaffi með smá viskíslettu út í og fórum yfir stöð- una. Hann yfirheyrði mig um skól- ann, hvað ég hefði verið að fást við þá önnina og sagði mér af því sem markverðast hafði gerst heima, að hans mati. Þær samverustundir sem pabbi missti af með okkur á árum áður voru svo sannarlega unnar upp þegar barnabörnin komu, þeirra samskipti hafa verið hreint yndisleg. Síðustu árin hafa verið erfið, fyrir pabba framan af, meðan hann gerði sér grein fyrir hvers var að vænta, og fyrir mömmu, okkur börnin og fjölskyldur okkar jafnframt og til þessa dags. Við höfum saknað og syrgt þann mann, sem var eiginmað- ur, faðir, tengdafaðir og afi, í langan tíma. Dagurinn í dag, er hann er lagður til hinstu hvílu heima á Rauf- arhöfn, finnst mér vera gleðidagur fremur en sorgardagur. Pabbi er kominn heim, laus úr viðjum mis- kunnarlauss sjúkdóms. Við erum búin að endurheimta hann eins og hann var. Bjössi Hólmsteins, sjó- maðurinn, bóndinn, fiskverkandinn, útgerðarmaðurinn, sveitarstjórnar- maðurinn og svo margt fleira. En þó fyrst og fremst maðurinn hennar Óskar, pabbi okkar krakkanna í Set- bergi, tengdapabbi og afi. Ég vil þakka systrum mínum Gunnu og Birnu sem ásamt fjöl- skyldum sínum gerðu foreldrum okkar kleift að dvelja heima eins lengi og raun varð á. Það var staðið eins lengi og stætt var. Vinum og nágrönnum heima á Raufarhöfn þakka ég fyrir skilninginn, þolin- mæðina og virðinguna sem honum var ávallt sýnd, Villu frænku og Óskari fyrir ómetanlega tryggð og ræktarsemi og starfsfólkinu á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir umönnunina. Föður mínum þakka ég samfylgd- ina og fyrir að gera mig að þeirri manneskju sem ég er. Jóhanna. Það er alltaf sárt að sjá á bak sín- um nánustu, sérstaklega þegar mikil virðing og væntumþykja liggja að baki, en jafnframt vitum við að það er óumflýjanlegt. Pabbi hefur verið að hverfa frá okkur síðustu árin þannig að hvíldin var kærkomin. Pabbi var fæddur í gamla torf- bænum á Grjótnesi á Melrakka- sléttu ásamt tvíburasystur sinni 21. janúar 1926. Þau voru fyrst af sjö börnum foreldra sinna, Hólmsteins Helgasonar og Jóhönnu Björnsdótt- ur, og ólust þau upp á Grjótnesi fyrstu árin eða þar til þau fluttu til Raufarhafnar þar sem pabbi bjó alla tíð síðan ef undan eru skilin sumrin á unglingsárunum í Grjótnesi og síð- ustu fjögur árin í Reykjavík. Pabbi var bráðþroska og vel í meðallagi greindur með afskaplega sterka ábyrgðar- og réttlætistilfinn- ingu. Hann var eftirsóttur í skips- rúm sem og önnur störf sökum dugnaðar, geðslags og verklagni. Skipsfélagar hans frá hans yngri ár- um minnast hans helst fyrir ofan- greinda eiginleika og ekki síst vegna þess að hann tók undir sinn vernd- arvæng þá sem minnst máttu sín. Þannig er pabba rétt lýst. Ég var ekki gamall þegar ég fylgdi pabba hvert fótmál þegar hann var í landi. Hann var mikill kennari í sér og hjá honum lærði ég að vinna. Það var margt undir. Pabbi var tómstundabóndi og hafði 40 til 50 kindur á fóðrum en aðal- starfið var samt útgerðin og sjó- mennskan ásamt síldinni yfir sum- artímann á meðan hennar naut við. Vetrartíminn var notaður til þess að fella net og bæta, setja upp línur, steypa netasteina, splæsa hanka bæði í steinana og kúlurnar og síðan flothringina og svo mætti áfram telja. Á sumrin var borið á túnin og síðan var heyskapur, fyrst á Grjót- nesi en seinni árin heima á Rauf- arhöfn. Pabbi treysti okkur unga fólkinu mjög snemma fyrir ábyrgð- arstörfum. Ég var farinn að aka gamla Ferguson mjög ungur og for- eldrarnir lágu undir ámæli frá barnaverndarnefnd fyrir vikið. Pabbi kippti sér ekki mjög upp við það. Þegar ég var á 19. ári fengu pabbi og Helgi bróðir hans afhentan nýjan 20 tonna fiskibát, Viðar ÞH 17. Fyr- ir áttu þeir gamlan 12 tonna bát sem afi hafði keypt til Raufarhafnar 1949, þá 20 ára gamlan. Báturinn hét Kristinn ÞH 163 og hafði borið það nafn frá upphafi. Báturinn var orðinn gamall og nokkuð úr sér genginn og nánast tækjalaus og því ekki mikils virði í sölu. Pabbi stakk því upp á því við mig að ég tæki pungaprófið svokallaða á Akureyri um veturinn og síðan myndi ég spreyta mig með bátinn um sumarið ásamt Steina bróður og einum til. Þetta þótti nokkuð ungæðisleg áhöfn og af sumum nokkur fífl- dirfska en allt gekk þetta vel. Hann var alltaf reiðubúinn að gefa unga fólkinu tækifæri ef það sýndi áhuga og dugnað. Pabbi naut ekki mikillar mennt- BJÖRN ST. HÓLMSTEINSSON Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR, áður Barðavogi 24, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-3 Hrafnistu, Reykjavík. Erlingur Dagsson, Þór Ingi Erlingsson, Margrét Sigurðardóttir, Vigdís Erlingsdóttir, Steinar Geirdal, Kristrún Erlingsdóttir Romano, John C. Romano, Jón Sverrir Erlingsson, Kristín Stefánsdóttir, Kjartan Ragnar Erlingsson, Kolbrún Hákonardóttir, Grétar Örn Erlingsson, Guðrún Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug við fráfall ÞÓRIS MÁS JÓNSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaða fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur. Þóra Karítas Árnadóttir, Jón Árni Þórisson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Guðbjörg Þórisdóttir, Sverrir Þórisson, Helena Pálsdóttir, Guðný Þórisdóttir, Åke Lindell, Gylfi Þór Þórisson, Sigurbjörg Sverrisdóttir, barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og dóttir, GUÐRÍÐUR GÍSLADÓTTIR frá Seldal í Norðfirði, Hvammsdal 9, Vogum, verður jarðsungin frá Kálfatjarnarkirkju laugar- daginn 22. júlí kl. 13.30. Ingólfur Sigurjónsson, Ingileif Ingólfsdóttir, Guðmundur Franz Jónasson, Iðunn Ingólfsdóttir, Lúðvík Rúnarsson, barnabörn og Sigrún Dagbjartsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát elsku mömmu okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, VALGERÐAR MAGNÚSDÓTTUR, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Hildur Eiðsdóttir, Jóhann Tryggvason, Svala Eiðsdóttir, Rudolf Kristinsson, Sif Eiðsdóttir, Rúnar Pálsson, Eiður Eiðsson, Jónbjörg Sigurjónsdóttir, Páll Arnar Árnason, Anna Margrét Árnadóttir, Jóhann Einarsson, Sigríður Árnadóttir, Skjöldur Stefánsson, Ingólfur Hansen, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Kjarrhólma 10, Kópavogi, lést aðfaranótt miðvikudagsins 19. júlí á Hrafnistu í Hafnarfirði. Helgi Hauksson, Guðmundur Hauksson, Rannveig Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.