Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 41

Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 41 MINNINGAR unar. Til þess voru einfaldlega ekki efni. Hann fékk þó að fara einn vet- ur í eldri deild Héraðsskólans á Laugum í Reykjadal sem hann nýtti sér vel og þótti vænt um þá stofnun upp frá því. Þegar hann síðan eign- aðist sín börn þá lögðu hann og mamma mikla áherslu á það að við börnin skyldum mennta okkur eins og hugur stæði til og þau myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að styðja okkur til þess fjár- hagslega. „Vinnan göfgar manninn“ segir máltækið. Það sannaðist á pabba. Honum féll nánast aldrei verk úr hendi. Þó gáfust stundir yfir vetr- artímann til að grípa í bók, en hann átti töluvert af bókum og var vel les- inn. Eins voru hádegis- og kvöld- fréttatímar útvarpsins ásamt veður- fréttum og veðurspám heilagur tími sem við börnin lærðum snemma að virða. Pabbi var ekki skaplaus maður. En hann hafði nokkuð góða stjórn á því og var glaðsinna allajafna. Það var helst ef hann varð vitni að órétt- læti eða hann varð þess var að verið var að segja honum ósatt sem bönd- in brustu. Slík var réttlætiskenndin. Reyndar held ég að faðir minn hafi ekki átt neina óvildarmenn í sínu lífi, í mesta lagi nokkra öfundarmenn, sem truflaði hann ekki mikið. Útgerðin þar sem hann stundaði sjóinn ásamt því að útbúa öll veið- arfæri og reka útgerðina og síðan fiskverkun síðustu árin var hans helsta lífsstarf. Hann naut þess mjög og laðaði að sér gott sam- starfsfólk. Þar áttu líka margir skjól sem minna máttu sín í lífinu og reyndist pabbi þeim mörgum betri en enginn. Það var snemma leitað til pabba til trúnaðarstarfa. Hann sat í sveit- arstjórn eða hreppsnefnd eins og það hét áður fyrr í samtals 16 ár, þar af í átta ár sem oddviti. Hann var mikill samvinnu- og félagshyggju- maður og skipaði sér í forystusveit framsóknarmanna í héraðinu. Hann átti stóran þátt í endurreisn at- vinnulífs á Raufarhöfn eftir síldar- hrunið 1968 með því að beita sér ásamt öðru góðu fólki fyrir stofnun útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækis- ins Jökuls hf. Frystihúsið var end- urbyggt eftir bruna og togskipið Jökull keypt og fjórum árum síðar skuttogarinn Rauðinúpur. Pabbi sat í stjórn Jökuls um langt árabil, ým- ist sem formaður stjórnar eða vara- formaður. Þetta fyrirtæki var burð- arásinn í atvinnulífi Raufarhafnar næstu áratugi og alltént seinkaði þeirri þróun sem virðist nánast óumflýjanleg, þ.e.a.s. fækkun íbúa og hnignun hinna smærri og af- skekktari byggða. Pabbi var mikill gæfumaður í sínu einkalífi. Hann kynntist Ósk sinni þegar hann var á vertíð fyrir sunn- an. Þau giftu sig 1. janúar 1952, fluttu til Raufarhafnar og byggðu sitt Setberg þar sem börnin sex ól- ust upp í nánu samneyti við ömmu og afa, kindur, kýr, hænsni, síldar- söltun, sjósókn og fiskverkun. Þeirra hjónaband var bæði traust og hamingjuríkt enda oftast nefnd í sömu setningunni. Pabbi var nokkuð strangur uppalandi í fyrstu en mýktist mjög með aldrinum og trú- lega hefur hann aldrei hastað á barnabörnin. Þau eru orðin 18, allt efnisfólk og stolt afa síns og ömmu. Fyrir rúmum áratug fór að bera á einkennum þess hræðilega sjúk- dóms sem Alzheimer er. Pabbi átt- aði sig á því sem verða vildi og tók því af ótrúlegu æðruleysi. Mamma hugsaði um hann heima á meðan stætt var en haustið 2002 fluttu þau til Reykjavíkur þar sem pabbi fékk fljótlega dagvistun og síðar vist á Hjúkrunarheimilinu Grund. Þar var vel um hann hugsað og vil ég fyrir hönd fjölskyldunnar senda starfs- fólki þar okkar bestu kveðjur með þakklæti fyrir hans umönnun. Einn- ig þökkum við því góða fólki sem heimsótti hann síðustu misserin. Þar kom þó enginn oftar en móðir mín. Minning um einstakan öðling og heilsteypta manneskju mun ylja okkur í fjölskyldunni um ókomna tíð. Blessuð sé minning föður míns. Pétur Björnsson. Við fráfall tengdaföður míns rifj- ast upp minningar frá miðjum átt- unda áratugi síðustu aldar er ég fór að venja komur mínar til Raufar- hafnar. Sú fyrsta er reyndar svolítið skondin þegar litið er til baka. Við Pétur, eldri sonurinn, vorum farin að draga okkur saman og þáði ég far með honum frá Akureyri til að hitta foreldra mína sem stödd voru í úti- legu í Öxarfirði. Hvergi fundum við þau, svo ekki var annað að gera en að fara með drengnum alla leið til Raufarhafnar og þiggja gistingu í Setbergi. Ekki var laust við að koma mín vekti nokkra furðu þar sem fólk þar á bæ hafði ekki hugmynd um til- vist mína. Daginn eftir hélt ég heim á leið aftur. Þetta var sumarið ’73. Ári seinna var ég aftur á ferð, end- aði sumar á fjöllum með dvöl á Rauf- arhöfn. Þá held ég að heimilisfólkið hafi verið farið að venjast minni til- vist. Heimilislífið í Setbergi var á margan hátt ólíkt því sem ég hafði áður vanist. Allt snerist um sjó- mennsku, aflabrögð báta og fisk- vinnsluna. Karlmennirnir á sjó og kvenfólkið í frystihúsinu. Björn, heimilisfaðirinn, ásamt því að stunda sjómennsku og útgerð sinnti sveitarstjórnarmálum af miklu kappi eins og faðir hans á undan honum og mætti e.t.v. segja að saga þeirra feðga og saga Raufarhafnar tvinnist saman frá árdögum byggð- ar á Raufarhöfn. Oft var mikið spjallað á síðkvöldum í Setbergi og var þá, þegar undan er skilin pólitík- in, ættfræði og þar með sögur af fólki oftast það umræðuefni sem bar helst á góma. Þar var ekki komið að tómum kofanum hjá Birni, enda ætt- stór maður, frændfólk hans bjó eða átti ættir að rekja til nánast hvers einasta bæjar á Sléttu. Seinna meir þegar barnabörnin fóru að koma í heiminn kom í ljós hversu þau hændust að afa sínum sem spjallaði við þau um heima og geima og ekki var nú sjaldan gripið í spilastokkinn sem aldrei var langt undan og spilaður Veiðimaður eða Ólsen, ólsen. Þá var amma Ósk ekki síður viljug að spila við krakkahóp- inn. Um leið og elstu barnabörnin höfðu „aldur til“ var þeim leyft að vinna í saltfiskverkuninni sem Björn rak um skeið að Borgum og mátti þá eitt sinn sjá til elsta sonarsonarins telja á fingrum sér hvað kaupið yrði í vikulokin, er hann gekk upp Ásgöt- una við hlið afa síns á leið heim í mat. Á meðan við Pétur bjuggum í Englandi komu Ósk og Björn oft í heimsókn og mátti sjá að Björn hafði brennandi áhuga á störfum Péturs þar sem fólust í að þjónusta íslensk fiskiskip og selja afla þeirra. Eitt sinn man ég eftir að við fórum í göngutúr sem endaði á nýgerðum leikvelli í heimabæ okkar. Fór ég mörgum orðum um hvað mér þættu leiktækin flott og vel smíðuð, öll bú- in til úr trjádrumbum. Þegar við komum heim í sumarfrí í sumarbú- stað okkar í Öxarfirði nokkrum vik- um seinna hafði Björn reist þar upp rólur að fyrirmynd þeirra sem voru í Swanland. Rólurnar þurfti að taka niður í síðasta mánuði eftir u.þ.b. ár- tugarlanga notkun, undirstöðurnar voru farnar að gefa sig og ekki óhætt að nota þær lengur. Björn kom í sína síðustu heim- sókn á heimili okkar jólin 2002. Þá var heilsan farin að bresta og átti hann ekki afturkvæmt. Dvalarheim- ilið Grund varð heimili hans síðustu árin þar sem hann naut góðrar umönnunar starfsfólks, og ekki síð- ur eiginkonu sinnar sem heimsótti hann flesta daga og sýndi honum þá ást og umhyggju sem aðdáun vakti allt til síðasta dags. Að leiðarlokum vil ég þakka góð- um tengdaföður samfylgdina. Blessuð sé minning hans. Margrét Þorvaldsdóttir. Í dag kveðjum við Bjössa afa, mikinn öðlingsmann og stórgóðan afa. Hann átti alltaf stund aflögu fyrir öll sín fjöldamörgu barnabörn og átti stóran hluta í því að koma okkur til manns. Hann réð okkur flestöll í vinnu á okkar yngri árum. Við verkuðum fyrir hann saltfisk og skreið, löguðum net og hnýttum öngla á línur. Afi keypti líka af okk- ur aflann þegar við höfðum verið að dorga af bryggjunni. Þetta varð til þess að okkur fannst við öll vera lyk- ilmenn í íslenskum sjávarútvegi og vorum stolt af framlagi okkar í þjóð- arbúið. Afi var líka lykilmaður þegar kom að frítíma. Hann ,,átti“ nefnilega baðströnd. Baðströndin hans afa var á bökkum lítils stöðuvatns skammt utan við Raufarhöfn. Þar syntum við og óðum, sleiktum sólina og veidd- um hornsíli. Stundum lögðumst við afi líka í smávægilega glæpastarf- semi og ,,fengum lánaðan“ árabát sem þar lá við festar. Við slík tæki- færi var lagst í ævintýralegar sigl- ingar, báturinn drekkhlaðinn barna- börnum og afi við stjórnvölinn. Stórmennsku afa reyndum við að launa í svipaðri mynt. Sérlega minn- isstætt er þegar afi fjárfesti í jeppa og foreldrum okkar var falið að koma með hann að sunnan. Eftir ægilangan bíltúr var loks komið til Raufarhafnar. Hulda, sem þá var þriggja ára, þusti í hús og stökk í fangið á afa sínum. Hún rétti honum lyklana og benti stolt í bragði á bíl- inn og mælti hin fleygu orð: ,,Hann heitir Jappi, þú mátt eiga’ann.“ Afi virtist Huldu sinni afar þakklátur fyrir þessa veglegu gjöf enda ekki á hverjum degi sem honum var færð- ur Landcruiser. Á síðustu árum tóku veikindi afa margt frá honum en húmorinn var þó ávallt á sínum stað. Hann tók okkur alltaf opnum örmum þegar við kíktum til hans í heimsókn og þó að ekki væri alltaf á hreinu hvað það var sem honum þótti svo fyndið og skemmtilegt þá var það alltaf jafn- dýrmætt að sjá brosið fallega og heyra kunnuglegan hláturinn. Bjössi afi var höfuð fjölskyldu sem einkennist fyrst og fremst af mikilli lífsgleði og óbilandi sam- stöðu. Þeir eiginleikar eru einkar mikilvægir á raunastundu sem þess- ari. Við getum stutt hvert annað í gegn um sorgina og glaðst saman yf- ir góðum minningum. Hvíl í friði, elsku afi, og takk fyrir allar ómetanlegu stundirnar sem við höfum átt með þér. Þú ert bestur. Ásta og Hulda Ásbjörnsdætur. Mig langar í nokkrum orðum að minnast elskulegs frænda sem nú er horfinn á vit feðra sinna. Bjössi frændi var ákaflega góður maður og mínar sterkustu minningar um hann tengjast því að mín fyrsta „alvöru“ vinna var að vinna fyrir hann og Ósk konu hans í saltfiskverkuninni á Borgum. Ég er í dag ákaflega þakk- lát fyrir að hafa fengið að vinna þarna hjá þeim. Það hefur örugg- lega ekki verið auðvelt fyrir þau hjónin að hafa þessa unglinga í vinnu sem við vorum, og aðra mis- jafnlega gáfulega sem þarna stopp- uðu við. En þeim fórst þetta vel úr hendi og ég man sérstaklega hvað við Rúna sóttum sterkt í félagsskap Bjössa vegna þess hve gott var að vera í kringum hann og hvað það var stutt í húmor og mildan hlátur hans. Það var líka klassískt gamanefni hve utangátta hann var oft á tíðum, ef það voru ekki hanskar sem hann fann ekki þá var það bíllinn. Því mið- ur hafa þessi litlu atriði trúlega ver- ið byrjun á alvarlegum veikindum hans sem manni finnst hafa rænt hann alltof miklu, undir það síðasta var gamli góði Bjössi löngu horfinn okkur. Góðar minningar um mætan mann munu þó lifa. Pabbi hefur allt- af litið mikið upp til stóra bróður og ég hef fundið í gegnum árin hve hann hefur saknað þessa duglega og skarpa manns. Í gærkvöldi nú síðast sagði hann mér með stolti frá því hve duglegur og eftirsóttur sjómað- ur Bjössi hefði verið áður en hann sneri sér að landvinnslunni. Í einn tíma starfaði hann meira að segja bæði sem vélstjóri og kokkur á sama tíma, sem er fátítt. „Svo var hann líka góður kokkur,“ bætti hann við, og sagði mér frá því hvernig hann átti til að snara fugli sem kom í net og skella inn í ofn þannig að skips- manna beið ilmandi steik í matinn. Hjá mér situr eftir hvernig hann heilsaði alltaf ljúflega „sæl elskan“ og þegar heimsóknir norður fóru að verða stopulli var kveðjan kannski meira svona: „Nei, sæl, elskan!“ og manni fannst alltaf vera svo hrein gleði á bak við kveðjuna. Hann var nefnilega svo hjartahlýr maður hann Bjössi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir. Engilbert, eða hann Berti okkar á Bakka, er allur. Það eru nú að- eins þrír möguleikar í stöðunni fyrir okkur mannfólkið, að fæðast, að lifa og að deyja. Þetta er óumflýjanlegt form fyrir okkur sem fæðumst, síðan er alltaf spurningin hvernig okkur nýtist annar hlutinn. Það má hann Berti minn eiga, að hann ENGILBERT HANNESSON ✝ Engilbert Hann-esson fæddist á Bakka í Ölfusi 11. desember 1917. Hann lést á hjarta- deild Landspítala við Hringbraut 20. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hveragerðis- kirkju 29. júní. naut lífsins. Hann var sannur töffari til síð- asta dags. Ég var ung- ur þegar Berti kom inn í líf mitt, já ég segi kom inn í líf mitt. Hann kom í heimsókn til foreldra minna eftir að þau hófu búskap í Ölfusi. Þessi sterki karakter er mér ógleymanlegur frá fyrsta degi. Þegar árin liðu var mér enn betur ljóst það góða vinarþel sem þessi góði maður átti. Sem unglingur vissi ég að persónuleg kynni hans og mín yrðu náin og það rættist. Ég held ekki hér áfram nema að viðurkenna þá staðreynd að við kallarnir erum ekkert án góðrar konu. Sú gæfa hlotnaðist Berta, hann átti Eddu sína. Þau lifðu og hrærðust saman í lífinu og nutu virðingar hvort annars. Það gengur ekki að kveðja Berta nema að minnast þeirra góðu stunda sem við áttum saman við bústörf, heyskap og önnur störf í sveitinni. Og er hann gerði mig að einkabílstjóra sínum á fulltrúafund MBF á Selfossi þá ungan mann, kemst ráðherrabílstjórastarf ekki í hálfkvisti við þann heiður sem mér hlotnaðist að annast þetta emb- ættisverk. Því þar sem við fórum um og þar sem við komum þar voru höfð- ingjar á ferð. Það var ekki slæmt veganesti út í lífið að ferðast með ein- staklingi sem kunni sig. Okkar síð- ustu samskipti eftir miklar breyting- ar í mínu lífi og sem margir ekki skildu, kom Berti til dyranna eins og honum einum var lagið og óskaði mér og mínum velfarnaðar í framtíðinni. Þau orð verma hjarta mitt. Nú ertu kominn, kæri vinur, til Eddu þinnar og góðra vina, en þú skildir eftir sár sem við græðum með góðum minningum. Samúðarkveðjur frá okkur Friðriku. Þorvaldur. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR, Árskógum 8. Elísabet Jónsdóttir, Jón Guðmundsson, Marta Kjartansdóttir, Björg Guðmundsdóttir, Gunnar Kr. Guðmundsson, Anna Guðný Björnsdóttir, Örn Guðmundsson, Ragnhildur Sigurðardóttir, barnabörn og langafabarn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Nesi á Rangárvöllum, sem andaðist laugardaginn 15. júlí, verður jarðsungin frá Oddakirkju laugardaginn 22. júlí kl. 14.00. Jóhann Gunnarsson, Edda Þorkelsdóttir, Jón Bragi Gunnarsson, Stefanía Unnur Þórðardóttir, Kristinn Gunnarsson, Unnur Einarsdóttir, barnabörn, langömmu- og langalangömmubörn. Okkar ástkæri RAGNAR MARNÓ BJARNASON rafvirkjameistari, Háagerði 31, sem lést fimmtudaginn 13. júlí, verður jarðsung- inn frá Fossvogskapellu mánudaginn 24. júlí kl. 13.00. Diana Ragnarsdóttir, Þorsteinn Kárason, Sigurbjörg Laufey Þorsteinsdóttir, Ragna Huldrún Þorsteinsdóttir, Jeffrey Sokolov.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.