Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 45

Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 45 DAGBÓK Montana-tjaldvagnar á sérstöku sumartilboði Tjaldvagnar á tilboði – NÚNA! Montana Compact m. fortjaldi 10" dekk Stærð 3,25 m Heildarþyngd 395 kg Verð 529.000 Montana Easy Camp 10" dekk Stærð 3,30 m Heildarþyngd 395 kg Verð 479.000 Montana Easy Camp 13" dekk/höggdeyfar Stærð 3,25 m Heildarþyngd 645 kg Verð 529.000 H im in n o g h a f/ S ÍA Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is Gleðin verður við völd á Húsavík dagana24. til 30. júlí en þá er haldin í bænumsannkölluð Húsavíkurhátíð: Sænskirdagar og Mærudagar. Þórunn Harðardóttir er verkefnisstjóri hjá Garðarsstofu, sem skipuleggur Sænska daga: „Á Sænskum dögum minnumst við þess þegar Garðar Svavarsson kom til Íslands árið 870 og átti vet- ursetu hér í Húsavík, fyrstur til að nema landið. Við minnumst einnig Náttfara sem í framhaldinu varð fyrsti landnámsmaðurinn,“ segir Þórunn. „Við héldum fyrst hátíðlegan dag Garðars Svav- arssonar árið 1998 að frumkvæði hvalaskoð- unarfyrirtækisins Norðursiglingar. Dagskráin sem þá var var í mýflugumynd samanborið við hátíða- höldin eins og þau eru orðin í dag.“ Garðarsstofa er nýlega stofnað félag um opnun menningarmiðstöðvar á Húsavík og sýningar um Garðar Svavarsson og landnámið sem hófst í fram- haldi af komu hans til landsins: „Við stefnum að því að efla menningartengsl Íslands og Svíþjóðar, fjalla um skipasmíðar og siglingatækni víkinganna, en einnig um samspil náttúru og manns eftir land- nám,“ segir Þórunn. „Við viljum að Húsavík verði „sænski bærinn“ á Íslandi, og um leið auka og efla menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu.“ Sem fyrr segir hefjast Sænskir dagar 24. júlí, og setur Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hátíðina. Meðal viðburða á hátíðardagskránni er opnun sænskrar glerlistarsýningar sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti opnar. Haldin verða ýmis námskeið og sýningar: Cirkus Cirkör verður með námskeið fyrir börn og unglinga og sýnir listir sín- ar, sænsk listakona kennir gestum að föndra úr steypu og haldnir eru fyrirlestrar, m.a. um Dag Hammarskjöld, sænska víkingaskipið Vittfarne, og sænskan samtímaarkitektúr og hönnun. „Hápunkt- ur Sænskra daga er þegar sigld verður „landnáms- sigling“ í boði Norðursiglingar, yfir til Nátt- faravíkur og þar tekið land líkt og Náttfari gerði forðum og haldin grillveisla.“ Mærudagar er árleg uppskeruhátíð og fjöl- skylduskemmtun Húsvíkinga nær og fjær: „Það verður margt um að vera alla hátíðarvikuna, m.a. siglinganámskeið fyrir börn sem siglingaklúbb- urinn Nökkvi stendur fyrir, tónlistaratriði eru á hverju kvöldi, húsvíski leikhópurinn Kláus heldur leiksýningar og Ferðaklúbburinn 4x4 og Bifhjóla- samtök Þingeyinga halda bíla- og mótorhjólasýn- ingu,“ segir Þórunn. „Tívolí verður á svæðinu föstu- dag og laugardag, boðið upp á siglingar um flóann á skonnortunni Hauki, útimarkaður, hraðfiskimót og margt, margt fleira. Dagskrá Mærudaga nær svo hámarki með tveimur dansleikjum sem haldnir verða með pomp og prakt á laugardagskvöld þar sem koma fram diskóhljómsveitin the Heffners annars vegar og húsvíska Idiol-stjarnan Ína ásamt hljómsveit hins vegar.“ Dagskrá Húsavíkurhátíðar má sjá í heild sinni á slóðinni www.Skarpur.is. Hátíð | Fjölbreytt dagskrá á Sænskum dögum og Mærudögum á Húsavík 24. til 30. júlí Húsvíkingar bjóða til veislu  Þórunn Harðardóttir fæddist á Húsavík 1978. Hún lauk stúd- entsprófi frá Fram- haldsskólanum á Húsa- vík 1998 og lauk bakkalárnámi í Við- skiptafræði á ferða- málasviði frá Háskól- anum á Akureyri 2003. Þórunn starfaði með námi hjá fjölskyldufyr- irtækinu Norðursiglingu, en hefur verið þar í fullu starfi frá 2003, bæði sem leiðsögumað- ur, vélstjóri, skipstjóri og verkefnisstjóri hjá Garðarsstofu. Sambýlismaður Þórunnar er Jón Gunnar Stefánsson pípulagningamaður. Árnaðheilla ritstjorn@mbl.is 60 ÁRA afmæli. Í tilefni af 60 áraafmæli Elísar Hansen 25. júlí ætlar hann og Lissý eiginkona hans að taka á móti vinum og ættingjum í Raf- veituheimilinu í Elliðaárdal, í dag, föstudaginn 21. júlí milli kl. 18 og 21. Vonandi að sem flestir sjái sér fært að mæta og gleðjast með honum. Eins og sveitarómagi á stofnun GÓÐAN dag, hamingjusamasta þjóð í heimi og sú best stæða af öll- um í veröldinni! Ég er fædd 1935 og komin vel við aldur og ég komst að raunalegum staðreyndum, sem mig hryllir við að bíði mín og minnar kynslóðar, er ég heimsótti mág minn, sem búinn er að starfa sem farmaður allt sitt líf, en var nú að leggjast inn á stofnun fyrir aldraða. Hann liggur þarna í rúmi eins og sveitarómagi á stofu með öðrum manni og sá liggur við glugga með góðu útsýni en mágur minn liggur út í horni og hefur enga dagsbirtu. Það er dregið röndótt klæði á milli þeirra og það eina sem mágur minn sér er þessi röndótta drusla og þess- ir 3 fm sem hann hefur til umráða. Unga fólk og okkar stjórn- málamenn! Er þetta það sem við óskum okkur í ellinni því að öll eld- umst við. Er þetta það sem við vilj- um? Það er búið betur að föngum hér á landi, bæði á Litla-Hrauni og ég tala nú ekki um á Kvíabryggju, sem mér skilst að sé algjör lúxus. Þarna eru greifarnir með einkaherbergi, með tækjasali, lúxus mat og fara í svelti ef þeir fá ekki öllu sínu fram- gengt. Ég er bara að hugsa um að brjóta eitthvað af mér þegar að því kemur að ég þarf að fara á elliheim- ili því þetta er ólíkt huggulegra. Svo get ég farið í framhaldsnám þarna, fengið fría tannlæknaþjónustu o.fl. o.fl. Eitt finnst mér hrikalegt og ég neita bara að taka þátt í að halda þessum mönnum uppi, og það er þessir útlensku fangar sem við er- um að taka hér fyrir fíkniefni og aðra glæpi. Af hverju höldumvið þessum mönnum uppi í okkar lúx- usfangelsum? Hvað haldið þið að þetta kosti okkur skattborgara? Ég hef heyrt 5000 kr. á dag. Þetta eru menn sem koma frá ríkjum þar sem þeir hafa ekki ofan í sig að éta og þeir lifa hér lúxuslífi í okkar fang- elsum við miklu betra atlæti heldur en í sínum heimalöndum. Er ekki mál að linni þessu dekri? Guðbjörg Jóhannsdóttir. Fyrirspurn – eldun í örbylgjuofni ÉG hef töluvert notað örbylgjuofn- inn minn í þessum mánuði en var sagt að gera það ekki því allt nær- ingargildi færi úr matnum við eld- unina. Er það rétt að næringar- gildið fari úr matnum við að setja hann í örbygjuofninn? Er einhver sem getur svarað þessu? 310839-4509. Kettlingur fæst gefins 8 vikna kettlingur fæst gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 567 0410. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 50 ÁRA afmæli. Garðyrkjubónd-inn Áslaug Sveinbjarnardóttir verður 50 ára 25. júlí nk. Af því tilefni vill hún og fjölskylda hennar bjóða ætt- ingjum og vinum að fagna þessum tímamótunum með þeim heima á Espi- flöt laugardagskvöldið 22. júlí kl. 20. Slagur á batta. Norður ♠Á1064 ♥KG5 N/NS ♦ÁG92 ♣G7 Vestur Austur ♠7 ♠KD983 ♥10973 ♥8 ♦74 ♦D863 ♣ÁKD963 ♣842 Suður ♠G52 ♥ÁD642 ♦K104 ♣105 Vestur Norður Austur Suður – 1 tígull 1 spaði 2 hjörtu 3 lauf 4 hjörtu Allir pass Vestur tekur tvo slagi á lauf (austur sýnir þrílit) og skiptir svo yfir í einspilið í spaða. Hvernig á suður að spila? Spaðastaðan er ekkert leyndarmál, sem þýðir að sagnhafi verður að drepa á ásinn og treysta á fjóra tígulslagi. Hann tekur næst KG í hjarta og þegar legan þar kemur í ljós er næstum öruggt að tígullinn er 4-2 og fjórliturinn í austur. Tíguldrottningin er líklegri til að vera í hópi fjögurra spila en tveggja og út frá því sjónarmiði er eðlilegt að svína fyrir drottninguna í austur. En hvernig á að fá slag á fjórða tígulinn? Á batta, eins og í biljarð. Sagnhafi svínar tígultíu, tekur ÖLL trompin og neyðir austur til að fara niður á einn háspaða. Í lokastöðunni eru tvær vinn- ingsleiðir – hægt er að fría spaðaslag, eða taka tígulkóng og endaspila austur í spaða. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 60 ÁRA afmæli. Þorvaldur Böðv-arsson rekstrarstjóri á Hvammstanga verður 60 ára mánu- daginn 24. júlí nk. Í tilefni af afmælinu munu hann og kona hans, Hólmfríður Skúladóttir, taka á móti gestum í fé- lagsheimilinu á Hvammstanga laug- ardaginn 22. júlí frá kl. 18. Hlutavelta | Þessir duglegu drengir, Björn Þórsson, Daniel Hannes Pálsson og Sigurvin Bachmann, söfnuðu 4.590 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands, fyrir fá- tæk börn í Afríku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.