Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 50
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher
Walken í fyndnustu gamanmynd ársins!
Stay Alive kl. 8 og 10 B.i. 16.ára.
Stick It kl. 8 og 10
The Benchwarmers kl. 6 B.i. 10 ára
Click kl. 6 B.i. 10 ára
Over the Hedge m.ensku.tali kl. 3, 5, 7, 9 og 11
Over the Hedge m.ensku.tali LÚXUS kl. 3, 5, 7, 9 og 11
Over the Hedge m.ísl.tali kl. 3, 5 og 7
Ultraviolet kl. 4.50, 8 og 10.10 B.i. 12 ára
Stick It kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
Click kl. 9 og 11.20 B.i. 10 ára
Rauðhetta m.ísl tali kl. 3
Þau ætla að ná aftur hverfinu...
...einn bita í einu!
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALIBLÓÐSTRÍÐIÐ
ER HAFIÐ!
50 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNAR Helgason og Felix Bergsson kynnt-
ust árið 1993 við talsetningu á barnaþættinum
Sesame Street sem sýndur var á Stöð 2. Ári síð-
ar leit dúettinn Gunni og Felix dagsins ljós í
Stundinni okkar og síðan þá hafa þeir sent frá
sér fjölmarga geisladiska, myndbandspólur,
hljóðsnældur og kvikmynd er á teikniborðinu.
Núna hafa þeir sent frá sér nýjan hljómdisk
sem inniheldur fimmtán lög. Gripurinn ber tit-
ilinn Lögin hans Jóns míns og er þessi Jón eng-
inn annar en tónlistarmaðurinn þjóðþekkti Jón
Ólafsson en hann semur öll lög plötunnar.
„Sá mikli snillingur,“ segir Felix Bergsson.
„Við höfum starfað með honum nánast sam-
fleytt frá því að Gunni og Felix urðu til en hann
gerði fyrir okkur tónlist í Stundinni okkar. Við
eigum orðið þrjátíu og eitthvað lög með Jóni og
okkur fannst kominn tími til að við söfnuðum
þessu öllu saman. Við vildum auk þess vekja at-
hygli á þessari tónlist sem Jón hefur verið að
semja fyrir okkur því að þetta ansi fínt popp.
Við völdum þau fimmtán bestu að okkar mati
og gerðum eitt nýtt lag. Útkoman er þessi
plata,“ segir Felix.
„Þannig lagað er þetta „best of“-plata en hún
inniheldur Gunna og Felix-lög sem krakkar
hafa verið að syngja út um allt land, allt frá því
að við byrjuðum með þennan dúett.“
Tónlistin talar
Lög plötunnar hafa ýmist verið gefin út áður
á kassettum eða geisladiskum en mörg þeirra
er að finna í seríunni Traustur og Tryggur sem
Gunni og Felix gáfu út um tveggja ára skeið,
alls tuttugu og einn geisladisk. Flest lögin hafa
verið endurunnin fyrir nýju plötuna.
„Þetta er svona samansafn héðan og þaðan af
því sem við höfum verið að gera og það var orð-
ið tímabært að koma þessu á eina góða plötu.
Það er auk þess nýtt fyrir Gunna og Felix að
gefa út tónlistarplötu en iðulega höfum við ver-
ið að gefa út lítil ævintýri sem byggjast að
mestu leyti á tali. Á nýju plötunni er það aftur á
móti fyrst og fremst tónlistin sem talar.“
Yrkisefni plötunnar er mjög fjölbreytt en þó
vill Felix meina að vináttan sé mjög skýr þráð-
ur í gegnum plötuna og auk þess almenn lífs-
gleði.
„Okkur finnst óskaplega gaman að vera til og
sömuleiðis finnst okkur gaman að vera vinir og
vinna saman. Ég held að fyrst og fremst langi
okkur til að gleðja þá sem hlusta og kalla fram
nokkur bros.“
Felix nefnir einnig að sumir textanna séu
mjög skrýtnir og oft algjört bull. Einn þeirra
fjallar t.d. um strák sem heitir Níl en vill heita
Lars en getur það ekki nema að hann flytji til
Mars.
„Svo er lagið „Brunavörður heimilanna“ eftir
Gunnar Helgason eitt undarlegasta lag sem
samið hefur verið en engu að síður alveg ótrú-
lega skemmtilegt. Þannig að yrkisefnið fer víða
en ég myndi segja að vináttan og gleðin sé það
sem við höldum mjög fast í.“
Fræðsla, skemmtun og virðing
Ýmsir þjóðþekktir tónlistarmenn koma að
lögunum hans Jóns sem tónskáldið sjálft kallaði
til. Þar mætti nefna Jóhann Hjörleifsson, Stef-
án Má Magnússon og Jón Elvar Hafsteinsson.
Þá syngur Ólafía Hrönn Jónsdóttir í nýja lag-
inu á plötunni sem ber heitið „Hver passar mig
í kvöld?“
„Þar fer hún á kostum sem unglings
barnapía,“ segir Felix og hlær.
„Lagið varð til vegna þess að við Gunni
vinnum mikið á kvöldin utan heimilis og fjöl-
skyldur okkar finna ansi mikið fyrir því. Ein-
hvern tíma fékk Gunni til sín pípulagning-
armann og Óli, sonur Gunna, hljóp til dyra og
opnaði fyrir honum. Óli leit þá undrandi á þenn-
an stóra mann og sagði: „Hva?! Átt þú að passa
mig í kvöld?“ Þá hugsaði Gunni að nú væri kom-
inn tími til að bæta börnum sínum á einhvern
hátt fyrir þetta ástand og gaf þeim þetta lag.
Lagið er tileinkað öllum þeim börnum sem búa
við þessar undarlegu heimilisaðstæður þar sem
þau vita aldrei hver kemur til að passa þau.“
Og hver er galdurinn á bak við það að búa til
gott skemmtiefni fyrir börn?
„Ég held að sé einfaldlega hjartans einlægni
sem virkar best. Sömuleiðis er mikilvægt að
tala við börn eins og fólk en ekki fávitar. Við
settum okkur þrjú mottó í upphafi þegar við
byrjuðum með Stundina okkar; fræðsla,
skemmtun og virðing. Ég held að við höfum
haldið mjög fast við þessi mottó allan tímann.
Við viljum skemmta, við viljum fræða og við
viljum sýna áheyrendum og áhorfendum okkar
virðingu. Ég held líka að galdurinn við gott
barnaefni sé sá að fullorðnir geti líka hugsað
sér að hlusta eða horfa á það með börnunum
sínum. Ég og Gunni horfum t.d. mikið til
Prúðuleikaranna sem okkur finnst mjög gott
barnaefni. Húmorinn þar er þannig að for-
eldrar geta hugsað sér að setjast niður með
börnunum sínum og horfa á þættina með þeim.
Það er nefnilega svo mikilvægt að barnaefni
skilji eitthvað eftir hjá fjölskyldum til að ræða
um og velta fyrir sér og það gerist ekki nema
foreldrarnir taki á einhvern hátt þátt í því. Ég
held að þetta efni, sem við Gunni höfum verið að
gera, hafi gengið upp vegna þess að foreldrar
geta hugsað sér að hlusta á það líka.“
Sem áhrifavalda að nýju plötunni nefnir Fel-
ix ýmislegt íslenskt barnefni sem í gegnum árin
hefur náð þeim stalli að geta talist sígilt, t.d.
Dýrin í Hálsaskógi, Kardimommubæinn og
Karíus og Baktus.
„Síðan hafði náttúrlega Eniga Meniga hans
Óla Hauks rosalega mikil áhrif á mann og ekki
má gleyma Ómari Ragnarssyni en hans áhrifa
gætir víða á plötunni. Stuðmenn og Spilverkið
er auðvitað tónlist sem maður hlustaði mikið á
sem barn og sömuleiðis slæðast inn áhrif það-
an.“
Verður Lögin hans Jóns míns með Gunna og
Felix ein af þessum klassísku barnaplötum sem
verða vinsælar um ókomin ár?
„Ég vona það,“ svarar Felix og hlær. „Barna-
efni er svo sérstakt að því leytinu til að það
koma stöðugt inn nýir áheyrendur og þessar
plötur lifa alveg ótrúlega en Dýrin í Hálsaskógi
er með söluhæstu íslensku plötum frá upphafi.
Ég vona að fólk geti hugsað sér að hlusta á
Gunna og Felix eftir hundrað ár. Það kæmi mér
í rauninni ekkert á óvart.“
Tónlist | Gunni og Felix senda frá sér nýjan hljómdisk með lögum eftir Jón Ólafsson
Galdurinn á bak
við gott barnaefni
Morgunblaðið/Golli
„Ég held að þetta efni sem við Gunni höfum verið að gera hafi gengið upp vegna þess að for-
eldrar geta hugsað sér að hlusta á það líka,“ segir Felix Bergsson.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is