Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 51
-bara lúxus
Sýnd kl. 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára
Sýnd kl. 10 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 4 og 6
-bara lúxus
Adam Sandler, Kate
Beckinsale og Christopher
Walken í fyndnustu
gamanmynd ársins!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 ENSKT TAL
Sýnd kl. 4, 6 og 8 ÍSLENSKT TAL
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
Þau ætla að ná aftur hverfinu...
...einn bita í einu!
Sími - 551 9000
ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKA-
FYLLSTA OG SKEMMTI-
LEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS
FRÁ HÖFUNDI
BRING IT ON
Ultraviolet kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 12 ára
The Benchwarmers kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 51
„ÞETTA er hljómsveitin sem hef-
ur spilað með mér undanfarið,“
segir Birgir Örn Steinarsson, bet-
ur þekktur sem Biggi í Maus,
þegar Morgunblaðið náði tali af
honum nýlentum frá Bretlandi.
„Þetta eru ungir krakkar úr
skóla sem heitir Trinity School of
Music, en það er mjög virtur tón-
listarskóli í London. Ég kynntist
þeim fyrir algjöra tilviljun á bar
og þau eru öll afbragðshljóðfæra-
leikarar.“ Biggi útskýrir í fram-
haldi að þessir „krakkar“ séu all-
ir rúmlega tvítugir.
Hljómsveitin með hann í far-
arbroddi hefur reglulega komið
fram upp á síðkastið í London
auk þess sem „krakkarnir“ hafa
verið að spila inn á fyrstu sóló-
skífu hans sem kemur út í sept-
ember á vegum 12 tóna og ber
heitið id. „Þetta eru mjög mikið
klassísk hljóðfæri, óbó, harm-
onikka, flauta og fiðla, djass-
trommur og glockenspiel og svo
blöndum við þetta með elektró-
ník. Þetta eru kannski ekki ósvip-
aðar lagasmíðar og ég hef gert
en bara allt öðruvísi útsett,“ segir
Biggi um tónlistina sem hljóm-
sveitin mun spila en hann segir
að erfitt sé að skilgreina hana í
einhverja eina stefnu. „Þetta er
rokk, „drum ’n bass“, „moody“
elektróník, það fer bara allt eftir
lögunum.“ Biggi lofar góðum tón-
leikum en hljómsveitin kemur
fram í 12 tónum á Skólavörðustíg
15 kl. 17 í dag og verður þar boð-
ið upp á léttar veitingar. Fyrr um
daginn mun The Bigital Orc-
hestra svo taka lagið fyrir utan
Útvarpshúsið í Efstaleiti kl. 15 en
þar ætla einnig Stuðmennirnir
Valgeir, Jakob, Ingvar og Gylfi
að koma fram. Hljómsveitin held-
ur í framhaldi á listahátíð ungs
fólks á Austurlandi, LungA, þar
sem hún mun spila á stór-
tónleikum annað kvöld.
Tónlist | The Bigital Orchestra spilar í 12 tónum og fyrir utan Útvarpshúsið
Alls kyns tónlist
Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi í Maus eins og hann er oft nefndur, kynnt-
ist „krökkum“ á bar í London og úr varð The Bigital Orchestra.
ÞAÐ var Magni sem þremenningarnir í Supernova völdu til
að syngja aftur á útsláttarkvöldi Rock Star: Supernova að-
faranótt fimmtudags. Í fyrri þættinum söng Magni lagið
„Plush“ sem hljómsveitin Stone Temple Pilots gerði frægt á
sínum tíma og strax eftir þáttinn var það mál manna að Magni
hefði staðið sig einna best af keppendunum þessa vikuna.
Og Magni sló heldur ekki slöku við þegar hann endurflutti
lagið í fyrradag og augljóst var á viðbrögðum þeirra Clarke,
Newstead og Lee að Magni er í miklu uppáhaldi hjá þeim.
En það eru ekki bara leðurfésin í Supernova sem kunna
gott að meta þessa dagana því á síðunni www.supernova-
fans.com er Magni hlutskarpastur í netkosningu um hver
muni hreppa söngvarasæti hljómsveitarinnar. Það skal hins
vegar tekið fram að afar mjótt er á munum og þegar þetta er
skrifað leiðir Magni kosninguna með 34,94% atkvæða, örfáum
hundraðshlutum á undan Dilönu sem hefur hlotið 34,67% at-
kvæða. Þau tvö mega samt vel við una því næsti keppandi þar
á eftir er enginn annar en hrokagikkurinn Lukas Rossi með
einungis 15% kosningu.
Tónlist | Magni leiðir netkosningu
um næsta söngvara Supernova
Á fínu rauli
Ljósmynd/Jeff Bottari
Magni skartaði forláta stjörnuskyggnum.
www.supernovafans.com
Lögreglan í Los Angeles hefurstaðfest að leikarinn Daniel
Baldwin, bróðir Alecs og Williams
Baldwin,
hafi verið
lagður inn á
spítala síð-
asta mið-
vikudag eftir
að hafa keyrt
á fleygiferð á
tvo kyrr-
stæða bíla.
Leikarinn
kvartaði í
kjölfarið undan eymslum í baki og
hálsi og var því lagður inn. Lög-
reglan upplýsti þó að hvorki Baldwin
né ónafngreindur kvenkyns farþegi
hans hefði meiðst alvarlega.
Sjónarvottar segja Baldwin hafa
verið langt fyrir ofan hraðamörk
þegar slysið varð og að ökulag hans
hafi verið heldur glannalegt, hann
hafi m.a. farið tvisvar sinnum yfir á
rauðu ljósi. Þá staðfesti lögreglan að
ökuleyfi leikarans væri útrunnið.
Sakamálahöfundurinn MickeySpillane er látinn 88 ára að
aldri. Spillane er hvað þekktastur
fyrir að vera maðurinn á bak við
harðjaxl-
inn og
einka-
spæj-
arann
Mike
Hammer.
Hann
þótti
skraut-
legur
karakter
en eftir honum er haft: „Ég skrifa
þegar ég finn fyrir ómótstæðilegri
þörf fyrir peninga.“ Þá lét hann
gagnrýnendur og starfsbræður oftar
en ekki fá til tevatnsins, en þeir voru
flestir lítt hrifnir af verkum hans
sem þeir sögðu vera ófáguð. Um slík
sjónarmið sagði hann: „Þessir stór-
laxarithöfundar fatta aldrei að meira
er neytt af salthnetum en kavíar.“
Fólk folk@mbl.is