Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 53
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
TAKTU AFSTÖÐU.
GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND
SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER
ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR
HREINLEGA Á KOSTUM.
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU
S.U.S. XFM 91,9„SANNKALLAÐ AUGNAYNDI OG ÞRUSUGÓÐ SKEMMTUN Í
ÞOKKABÓT, EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
H.J. MBL.
eee
FRÁBÆR SUMARMYND HLAÐIN SPENNU
OG MÖGNUÐUM ATRIÐUM.
Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
OVER THE HEDGE M/- ÍSL TAL. kl. 12 - 2 - 4 - 6
OVER THE HEDGE M/- ENSKU TAL. kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10
SUPERMAN kl. 12:30 - 3:50 - 4:50 - 7 - 8 - 10:10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
SUPERMAN LUXUS VIP kl. 3:20 - 8 - 11:10
THE BREAK UP kl. 8 - 8:15 - 10:20
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 12 - 2 - 3 - 5:30
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 10:30 B.I. 12.ÁRA.0 ÁRA
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
OVER THE HEDGE M/- ÍSL TAL. kl. 1 - 3 - 4:50 - 6:40 DIGITAL SÝN.
OVER THE HEDGE M/- ENSKU TAL. kl. 1 - 3 - 5 - 7 - 9:15 - 11:15 DIGITAL SÝN.
SUPERMAN kl. 2:40 - 5:50 - 9:15 - 11:30 B.I. 10.ÁRA. DIGITAL SÝN.
...ljósmyndasamkeppni
HansPetersenogmbl.is
Verðlaun fyrir mynd vikunnar eru:
50 fríar 10 x 15 myndir
<<
1. verðlaun:
Kodak EasyShare P850
Ljósmyndari: Sigurður Guðbrandsson
Nafn myndar: Hvítur flötur
Tækniupplýsingar: ef einhverjar?
3. verðlaun:
Samsung Digimax i6 PMP
2. verðlaun:
Kodak EasyShare V570
Myndvikunnar í...
Ljósmyndari: Björn Guðjónsson
Nafn myndar: Skýjum ofar
Á NÆSTU dögum hefst tónleika-
ferð Sigur Rósar um landið, en alls
er fyrirhugað að hljómsveitin leiki á
sjö tónleikum víða um land á næstu
tveim vikum.
Tónleikarnir eru allir ókeypis en
að sögn Kára Sturlusonar, sem
skipulagt hefur ferðina í samvinnu
við hljómsveitina, er tilgangur ferð-
arinnar að spila fyrir land og þjóð og
taka upp heimildarmynd um hljóm-
sveitina, náttúru landsins og mann-
líf.
Kári segir að tónleikarnir í hverj-
um landshluta séu aðallega ætlaðir
íbúum á svæðinu og því verði þeir
aðeins auglýstir á viðkomandi stað
með skömmum fyrirvara. Þetta seg-
ir hann gert til að sem flestir íbúar
staðarins og nærsveitamenn eigi
kost á að sjá hljómsveitina, enda sé
húsrými jafnan takmarkað.
Að þessu sögðu hefur verið til-
kynnt um tíma- og staðsetningu
tvennra tónleika. Föstudaginn 28.
júlí leikur hljómsveitin þannig á úti-
tónleikum við bæinn Háls í Öxnadal,
en um hálftíma akstur er þangað frá
Akureyri. Á Hálsi er rekinn veit-
ingastaðurinn Halastjarnan og Kári
segir að Guðveig og Vigfús á Hálsi,
sem reki Halastjörnuna, hafi verið
ómetanleg í skipulagningu tón-
leikanna ásamt Helga Þór Helgasyni
á Bakka sem á túnið sem tónleikarn-
ir munu fara fram á. „Þetta verða
ekki bara tónleikar heldur verður
líka grænmetismarkaður á staðnum
og fleira í boði fyrir gesti og gang-
andi. Það er rétt að ítreka að frítt
verður á tónleikana og við hvetjum
sem flesta í nærliggjandi byggðum
og sveitarfélögum til þess að koma
og eiga saman notalega kvöldstund,“
segir Kári en tónleikarnir hefjast kl.
22:00 og lýkur rétt fyrir miðnætti.
Sunnudaginn 30. júlí leikur Sigur
Rós síðan á útitónleikum á Klambra-
túni í Reykjavík, en á þeim tón-
leikum hitar hljómsveitin Amiina
upp. Mikið verður lagt í þá tónleika,
að sögn Kára, enda sé ætlunin að
umgjörð þeirra verði svo glæsileg að
ekki hafi annað eins sést í Reykjavík.
Þeir tónleikar, sem eru einnig
ókeypis, hefjast kl. 20.45. Þeim verð-
ur einnig sjónvarpað beint í Sjón-
varpinu og sendir beint út á Rás 2 og
einnig verða þeir sendi um gervi-
hnött í kvikmyndahúsið National
Film Theater í Lundúnum til að
áhugasamir geti einnig fylgst með
tónleikunum þar í borg. „Sigur Rós
hvetur fólk sérstaklega til þess að
sækja tónleikana á Hálsi og
Klambratúni með því hugarfari að
verið sé að fara í lautarferð og við
hvetjum fjölskyldufólk og eldri
borgara sérstaklega til að mæta,“
segir Kári og bætir við að til hægð-
arauka fyrir gesti á Klambratúni
verði til afnota fyrir tónleikagesti
bílastæði við Kringluna, Perluna,
Austurbæjarskóla, Iðnskólann, Há-
teigskirkju, Sjómannaskólann, Ís-
aksskóla og Valsheimilið.
True North framleiðir kvikmynd-
ina með styrk frá Kvikmynda-
miðstöð Íslands. Icelandair styrkir
verkefnið í heild og Reykjavík-
urborg býður upp á tónleikana á
Klambratúni í samvinnu við Sigur
Rós og ofantalda aðila.
Tónlist | Sigur Rós heldur í tónleikaferð
Sjö tónleikar víða um land