Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 56

Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 56
Skelltu sér saman í hvalaskoðun ÞAÐ var spenna í lofti þegar hvalaskoðunarbát- arnir lögðu af stað úr Reykjavíkurhöfn í gær- kvöldi. Alþjóðahúsið stóð fyrir siglingu út á sund- in, en gestir voru nærri 350 innflytjendur, sem búið hafa hér á landi um skemmri og lengri tíma, auk annarra Íslendinga. Helga Ólafsdóttir, hjá Alþjóðahúsinu, sagði að mikill áhugi hefði verið á ferðinni og færri komist en vildu. Meðal gesta hefðu verið um 100 Pólverjar sem starfa hjá Ís- taki, en ferðalangarnir voru frá 30–40 löndum. Helga sagði að tilgangur með ferðinni hefði verið að gefa innflytjendum tækifæri til að blanda geði við annað fólk. Reynsla Alþjóðahúss sýndi að það væri full þörf á að ýta undir aukin samskipti inn- flytjenda sem hér búa og Íslendinga. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is JONATHAN Motzfeldt, formanni grænlenska landsþingsins, er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu Landspítala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut. Samkvæmt upplýsing- um frá vakthafandi lækni á deildinni er Motzfeldt mikið veikur en ekki er alveg vitað um ástæður veikindanna. Motzfeld var lagður inn á LSH á sjöunda tímanum í gærkvöldi en hann fékk alvarlegt nýrnakast á mið- vikudag er hann var staddur í heimabæ sínum, Qaqortoq. Motz- feldt var í skyndi fluttur með þyrlu til Narsarsuaq og síðan með flugvél til Nuuk þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús. Í kjölfarið var ákveðið að flytja hann til Reykjavíkur. Í frétt grænlenska útvarpsins í gærdag kom fram að talið væri að Motzfeldt hefði orðið fyrir eitrun þegar hann borðaði kæst selspik en að sögn læknis á gjörgæsludeild LSH hefur verið útilokað að um matareitrun af nokkurri tegund sé að ræða. Motzfeldt, sem er 67 ára, er kunn- asti stjórnmálamaður á Grænlandi. Hann var fyrsti formaður lands- stjórnarinnar eftir að Grænland fékk heimastjórn árið 1979 og hefur setið á þinginu frá stofnun þess. Motzfeldt haldið sofandi á gjörgæslu BEIN fjármunaeign erlendra aðila á Íslandi, sem miðast við 10% eða stærri hlut í félögum, nær tvöfaldað- ist milli áranna 2004 og 2005 og fór úr 127,5 milljörðum í 252 millj. kr. Allar líkur eru á að stór eða hugs- anlega langstærsti hluti þessara eigna sé í reynd í höndum íslenskra ríkisborgara þar sem flokkun á inn- lendum og erlendum aðilum miðast við lögheimili félaga en ekki ríkis- borgararétt eigenda þeirra. Félög eða einstaklingar sem skráð eru í Belgíu/Lúxemborg eiga nú um 90 milljarða (53,7 milljarða 2004) hér- lendis samkvæmt nýjum tölum Seðlabanka Íslands. Á móti eiga Ís- lendingar eignir upp á 39,5 milljarða í Belgíu/Lúxemborg. Eiga ekkert á Guernsey Félög eða einstaklingar sem skráð eru á Ermarsundseyjunni Guernsey eiga 41 milljarð króna (12,7 milljarða 2004) á Íslandi en Íslendingar eru aftur á móti ekki skráðir fyrir nein- um eignum á Guernsey samkvæmt tölum Seðlabankans. Af beinni erlendri fjármunaeign hér á landi eru um 76% í höndum ein- staklinga og félaga sem skráð eru í Belgíu/Lúxemborg, Hollandi og Guernsey en Bandaríkin eru í fjórða sæti með 24,8 milljarða króna en önnur lönd eru þar langt fyrir neðan. Indriði H. Þorláksson ríkisskatt- stjóri segir skattundandrátt eða skattsvik af þessum toga hafa farið mjög vaxandi að undanförnu. „Ég held að það leiki enginn vafi á því að mörg af þessum félögum sem þarna er um að ræða staðsetji sig þarna til þess að komast undan skatti. Raunar er alveg óvíst hvað af þessum eign- um er talið fram. Við sjáum það í ýmsum málum sem hafa komið upp að þar vantar mikið á. Í mörgum til- vikum eru þetta bein skattsvik þar sem margir af þeim aðilum sem við höfum náð til hafa ekki gert grein fyrir þessum eignum og tekjum.“ Indriði segir embætti ríkisskatt- stjóra eiga erfitt um vik þar sem ekki sé í gildi hér á landi löggjöf í þessum efnum, þ.e. svokölluð CFC-löggjöf sem myndi veita skattyfirvöldum heimild til þess að skattleggja tekjur einstaklings eða félags sem íslenskir ríkisborgarar ættu erlendis í sk. skattaparadísum eins og þær hefðu myndast hér á landi. Indriði segir að öll Norðurlöndin hafi þessa löggjöf og flest lönd í V-Evrópu auk Banda- ríkjanna. „Við erum að verða sér á parti í þessu og þetta er það sem fyrst og fremst vantar til þess að taka á þessum feluleik.“ Skráðir aðilar á Guernsey eiga 41 milljarð á Íslandi Vaxandi skattundanskot eða skattsvik af þessum toga, segir ríkisskattstjóri Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is  Fjármunaeign | 14 Búsetuskil- yrði LÍN fyrir EFTA- dómstólinn ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra segir að látið verði reyna á fyrir EFTA-dómstóln- um hvort búsetuskilyrði í lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna feli í sér mismunun í skilningi EES- samningsins. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tel- ur að svo sé og hefur sent íslenskum stjórnvöldum rökstutt álit þess efnis. Í lögum um LÍN segir að til þess að fá námslán verði umsækjandi að hafa búið hér á landi í tvö ár, eða samtals þrjú ár af síðustu tíu. Reglan tekur jafnt til Íslendinga sem útlendinga og segir Þorgerður erfitt að sjá hvernig slíkt ákvæði geti falið í sér mismunun. Í áliti ESA segir að þrátt fyrir að búsetuskilyrðin taki einnig til Ís- lendinga feli þau engu að síður í sér mismunun enda eigi Íslendingar auðveldara með að uppfylla skilyrðin en aðrir á EES-svæðinu. | 11 Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is SIGURJÓN JÓNSSON, fyrrverandi útgerðarmaður og eigandi skipa- smíðastöðvarinnar Skipavíkur í Stykkishólmi, stendur nú fyrir smíði 16,6 metra langs víkingaskips sem ætlað er til sölu. Að sögn Sigurðar verður skipið það eina sinnar teg- undar í heiminum og munu kaup- endur væntanlega þurfa að snara fram um 100 milljónum króna fyrir gripinn. Auk Sigurjóns hafa skipaverkfræð- ingarnir Karl Lúðvíksson og Paul Spooner komið að hönnun skipsins, sem hefur fengið vinnuheitið „Rerr“. Rerr hefur nokkra eiginleika sem nú- tímaskútur hafa ekki. Skipið er grunnskreitt þannig að hægt er að sigla því um ár og skipaskurði. Verði kaupandi skipsins norrænn væringi ætti hann því að geta siglt skipinu frá Norður-Evrópu til Miklagarðs um ár og skurði. „Ég mun koma þessu skipi í sölu í útlöndum,“ segir Sigurjón er hann er spurður um hverjir gætu hugsað sér að kaupa þetta sérstæða skip sem er yfirbyggt eins og snekkja en lítur út eins og víkingaskip. „Skipið er eftirlíking Gauk- staðaskipsins sem fannst í Noregi og svipar því einnig til Íslendings sem Gunnar Marel [Eggertsson] smíðaði. Mitt skip er þó ívið styttra eða um 16,6 metrar en þau eru yfir 20 metra löng,“ segir Sigurjón um útlit skips- ins. Víkingaskip með nútímatækni Á skipinu verður hátæknilegt segl og er mastrið gert úr koltrefjum og smíðað af fyrirtækinu Formula Star sem smíðar möstur fyrir America Cup-siglingakeppnina. Skrokkur skipsins er svo úr mahóní-viði. Auk seglsins verða tvær vélar í skipinu, sem verður með hitun og loftkælingu. „Þetta er allt saman samþykkt af flokkunarfyrirtækinu Germanischer Lloyds og uppfyllir mjög strangar al- þjóðlegar siglingakröfur,“ segir Sig- urjón. „Það kom maður frá Lloyds til að skoða skipið og honum leist svo vel á að hann sagði að Lloyds myndi halda partí þegar það yrði tilbúið,“ bætir hann svo við en áætlað er að smíðinni ljúki í maí á næsta ári. Smíðar skemmtisnekkju í víkingastíl ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.