Morgunblaðið - 24.07.2006, Side 2
2 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BANASLYS Í UMFERÐINNI
Karlmaður á þrítugsaldri lét lífið í
vélhjólaslysi á Suðurlandsvegi við
Eystri-Rangá síðdegis í gær. Mað-
urinn missti stjórn á vélhjóli sínu
með þeim afleiðingum að hann féll af
því og hafnaði á árbakkanum. Talið
er að hann hafi látist samstundis.
Þetta er ellefta banaslysið í umferð-
inni það sem af er ári.
Sáttur við friðargæslu
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, sagðist í gær sætta sig við að
friðargæsluliðar frá löndum Evrópu-
sambandsins yrðu sendir til Líb-
anons.
Veiðiþjófnaður eykst
Á undanförnum þremur árum hef-
ur veiðiþjófnaður í Elliðaánum auk-
ist til muna. Að sögn veiðivarða er
vandamálið ekki að börn stelist í
árnar heldur er aðallega um stálp-
aða menn að ræða, og þá fyrst og
fremst menn af erlendu bergi
brotna. Bera þeir oftar en ekki fyrir
sig vanþekkingu og misskilning.
Bjargað úr holu
Hermenn á Indlandi björguðu í
gær fimm ára dreng upp úr 18 metra
djúpri borholu sem hann hafði dúsað
í síðan á föstudag, eða samtals í 50
klukkustundir. Hann hafði fallið í
holuna þegar hann var að leika sér.
Forðuðu sér upp á þak
Pallbifreið með fimm farþega inn-
anborðs festist í Krossá í Þórsmörk
og fór á kaf í gærdag. Tókst farþeg-
um að forða sér úr bifreiðinni og of-
an á þak áður en hún fór á kaf og
þurftu að synda í þaðan land. Að
sögn skálavarðar í Húsadal hefur
verið nokkuð um að menn festi bíla
sína í ánni að undanförnu.
Neyddur til að borða
Saddam Hussein, fyrrverandi ein-
ræðisherra í Írak, var fluttur á
sjúkrahús í gær en hann hann var
orðinn veikburða eftir sextán daga
hungurverkfall. Á spítalanum fékk
hann næringu í gegnum slöngu.
Deilt um samningsslit
Formaður félags eldri borgara á
Álftanesi segir ákvörðun bæjaryf-
irvalda um að slíta samningum við
hjúkrunarheimilið Eir um uppbygg-
ingu á miðsvæði sveitarfélagsins
gríðarleg vonbrigði og með öllu sið-
lausa í garð eldri borgara. Bæjar-
stjóri segir þjónustu við eldri borg-
ara verða eflda og misskilnings gæta
í málinu.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 26/28
Vesturland 11 Dagbók 30
Úr verinu 12 Víkverji 30
Viðskipti 13 Velvakandi 31
Erlent 14/15 Staður og stund 32
Daglegt líf 16/17 Menning 34/37
Listir 18 Bíó 34/37
Umræðan 19/24 Ljósvakamiðlar 38
Forystugrein 20 Veður 39
Bréf 24 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í NÝRRI skýrslu alþjóðlega fjárfestingarbankans
Merrill Lynch er því haldið fram að ástæða þess að
bankarnir hafi tekið að breyta viðskiptaháttum og
m.a. losa um krosseignatengsl hafi ekki verið sú að
íslensk yfirvöld hafi gert athugasemdir, heldur
hitt, að hinn alþjóðlegi lánsfjármagnsmarkaður
hafi krafist þess. Þá töldu sérfræðingar Merrill
Lynch einnig að Fjármálaeftirlitið (FME) hefði
brugðist seint við ítrekuðum ábendingum Seðla-
bankans um útlánavöxt á vegum bankanna til
hlutabréfakaupa.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins,
segir að skýrsluhöfundar Merrill Lynch hafi ekki
haft samband við Fjármálaeftirlitið vegna hennar
enda beri hún þess merki.
Jónas nefnir í þessu sambandi að Fjármálaeft-
irlitið hafi á fundum með fjármálafyrirtækjum rætt
eigna- og hagsmunatengsl og fyrirgreiðslur til
venslaðra aðila. Fjármálaeftirlitið hafi því vissu-
lega látið þessi atriði sig varða
og áþreifanleg ummerki um at-
hafnir eftirlitsins megi t.d. sjá í
frétt frá Fjármálaeftirlitinu frá
3. júlí um umræðuskjal vegna
endurskoðunar á leiðbeinandi
starfsreglum stjórna fjármála-
fyrirtækja, sem hafi umsagnar-
frest til 21. ágúst. Tilgangur
þeirra sé m.a. að tryggja skýr-
leika í málsmeðferð ásamt því
að styrkja umgjörð um viðskipti
stjórnarmanna og félaga þeim tengdum við fjár-
málafyrirtæki og mæla fyrir um aðgang stjórnar-
manna að upplýsingum um viðskiptamenn.
Ytri endurskoðandi fari yfir
fyrirgreiðslu til venslaðra aðila
Jónas bendir á að ein veigamesta breytingin sem
gerð sé varði eftirlit með fyrirgreiðslu til venslaðra
aðila. Fjármálaeftirlitið hafi lagt til að fjármálafyr-
irtæki leggi fyrir ytri endurskoðanda að fara yfir
fyrirgreiðslur til venslaðra aðila og bera saman við
sambærileg viðskipti annarra viðskiptavina.
Reglum af þessu tagi sé ætlað að efla traust ís-
lensks fjármálamarkaðar, m.a. með því að stað-
reyna á formbundinn hátt að eðlilegir og heilbrigð-
ir viðskiptahættir séu viðhafðir í viðskiptum
venslaðra aðila við fjármálafyrirtæki.
Að því er varðar ábendingar Seðlabankans um
útlánavöxt á vegum bankanna til hlutabréfakaupa
segir forstjóri Fjármálaeftirlitsins að FME hafi
fylgst með útlánum banka vegna hlutabréfakaupa
og tekið slíkt upp við þá.
„Hér skiptir hins vegar máli hversu trygg lánin
eru og hvernig lánveitandinn myndi standa af sér
verðfall á bréfum sem sett eru að veði. Trygginga-
þekja (tryggingar umfram lánsfjárhæð) vegna
þessara lána virðist almennt vera í góðu horfi.
Þessu til viðbótar er rétt að minna á að Fjármála-
eftirlitið hefur jafnframt hert álagspróf sín til að
meta áhrif lækkandi hlutabréfaverðs, gengis krón-
unnar og hættu á auknum afskriftum útlána á eigin
fé bankanna,“ segir Jónas.
Sérfræðingar Merrill Lynch
leituðu ekki til Fjármálaeftirlits
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Jónas Fr.
Jónsson
GANGA á Esjuna heillar nú þegar veðurguðirnir hafa
sýnt sínar bestu hliðar á suðvesturhorni landsins. Fyrir
helgina var fjöldi fólks á ferðinni og umferðin upp fjall-
ið líkt og á Laugaveginum í miðborginni á góðviðr-
isdegi. Mæðgurnar Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir og
Nína María Reynisdóttir voru á meðal þeirra fjölmörgu
sem gengu á Esjuna og áður en lagt var í hann var viss-
ara að vökva sig vel. Til þess arna er ískalt vatnið besti
kosturinn. Með í för voru hundarnir Kata og Ben, sem
gátu vætt kverkarnar í hvaða sprænu sem var.
Lagt af stað í Esjugöngu
Morgunblaðið/Ingó
RÚMAR 400 hundruð milljónir
króna þarf á næsta ári til að klára
endurbyggingu Akureyrarfangelsis
og til að hefja hönnunar- og teikni-
vinnu við Litla-Hraun, segir Valtýr
Sigurðsson fangelsismálastjóri.
Valtýr segist leggja mikla áherslu
á að haldið verði áfram með hönn-
unar- og teiknivinnu þó svo að til
þess komi að framkvæmdum verði
frestað. „Það verður að nýta þann
tíma þar til á að byggja í þessa vinnu
þannig að það sé gert í rólegheitum
og byggingarnar verði hannaðar
eins og við viljum hafa þær,“ segir
Valtýr sem er ósáttur með fyrir-
komulag fangelsanna á Íslandi um
þessar mundir. Hann segir dóms-
málaráðuneytið standa vel með sér í
þessari baráttu og allar tillögur hafa
verið unnar í samvinnu við ráðuneyt-
ið. „Þeir hafa verið þeim sammála og
það er dómsmála-
ráðuneytið sem
hefur óskað eftir
fjárveitingu mið-
að við allar áætl-
anir.“, segir Val-
týr sem telur
mikilvægt að
koma byggingu
fangelsiskerfisins
í þannig horf að
hægt sé að vinna eftir markmiðum
og áætlunum fangelsismálayfirvalda
en eins og staðan sé núna sé t.d. ekki
hægt að verða við öllum þeim kröf-
um sem gerðar eru til fangelsa.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra vildi lítið tjá sig um fram-
kvæmdir við fangelsin á þessari
stundu en sagði þó að honum þætti
æskilegt að ekki yrði gert hlé á hönn-
unarvinnunni.
Fangelsismála-
stjóri ósáttur
Hönnunarvinnu verði haldið áfram
Valtýr Sigurðsson
EKIÐ var á karlmann á níræð-
isaldri á Strandavegi í nágrenni
Hólmavíkur um miðjan dag á laug-
ardaginn. Maðurinn var fluttur
mikið slasaður með flugvél til
Reykjavíkur þar sem hann lést af
sárum sínum. Að sögn lögreglu
gekk maðurinn milli tveggja kyrr-
stæða bifreiða og hugðist fara yfir
veginn þegar bifreið kom aðvífandi
og ók á hann. Ökumaður bifreið-
arinnar er ekki grunaður um að
hafa ekið of hratt eða um aðra gá-
leysislega hegðun.
Ekki er hægt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
Banaslys við
Hólmavík
JARÐSKJÁLFTA varð vart í
Grímsey rétt eftir miðnætti aðfara-
nótt sunnudagsins. Skjálftinn mæld-
ist þrír á Richter-kvarða og voru
upptök hans 300 metrum norður af
eynni. Smærri skjálfti fylgdi strax í
kjölfarið. Í gærmorgun urðu svo
nokkrir smáskjálftar og mældist sá
stærsti 2,7 á Richter-kvarða.
Jarðskjálfti
norður af
Grímsey
ELDUR kom upp í gærmorgun í
geymsluhúsnæði undir apóteki á
Sogavegi. Í fyrstu var talið að um
talsverðan eld væri að ræða og
sendi slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins mikinn mannskap á vett-
vang. Flestum bílunum var hins
vegar snúið við eftir að fyrstu
bílar komu á Sogaveg, enda eld-
urinn mun minni en talið var í
fyrstu.
Glæður og nokkur reykur voru í
geymslunni og gekk greiðlega að
ráða niðurlögum eldsins. Skemmd-
ir af völdum brunans eru taldar
óverulegar.
Ljósmynd/Steinar Örn Sturluson
Slökkviliðsmenn að störfum við apótekið á Sogavegi í gærmorgun.
Eldur í geymslu á Sogavegi
♦♦♦