Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Benidorm
17. eða 24. ágúst
frá kr. 39.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi /
stúdíó / íbúð í viku. Flug, gisting, skattar
og íslensk fararstjórn.
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, gisting,
skattar og íslensk fararstjórn.
Síðustu sætin
Nú bjóðum við frábært tilboð til
Benidorm. Njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað í viku.
Þú bókar og tryggir þér síðustu
sætin og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
BRYNHILDUR Hjör-
dís Jóhannsdóttir, eig-
inkona Alberts heitins
Guðmundssonar, fv.
ráðherra, þingmanns
og sendiherra, lést
laugardaginn 22. júlí
síðastliðinn, 79 ára að
aldri. Hún fæddist á
Siglufirði 22. ágúst árið
1926 og var dóttir Jó-
hanns F. Guðmunds-
sonar og Þóru Jóns-
dóttur frá Kirkjubæ.
Brynhildur fluttist
ung með fjölskyldu
sinni til Seyðisfjarðar,
þar sem hún ólst upp, en 14 ára göm-
ul kom hún til Reykjavíkur og gekk í
Verslunarskólann, þaðan sem hún
lauk verslunarskólaprófi.
Brynhildur kynntist Albert fyrst
árið 1943 á dansæfingu sem hann
stóð fyrir í Samvinnuskólanum, hún
var þá við nám í Verslunarskólanum.
Þremur árum síðar, þann 13. júlí árið
1946, gengu þau í hjónaband og stóð
Brynhildur þétt við hlið eiginmanns
síns í gegnum viðburðaríka og
stormasama ævi, hvort sem það var
atvinnumennska í knattspyrnu,
stjórnmál, framboð til embættis for-
seta Íslands, sendiherrastörf eða
annað sem þau hjón
fóru saman í gegnum.
Brynhildur var mikil
húsmóðir og fjöl-
skyldukona og fylgdist
vel með öllu sem henn-
ar afkomendur tóku
sér fyrir hendur. Hún
var mjög hagmælt en í
bók Gunnars Gunnars-
sonar um ævi Alberts,
sem kom út árið 1982,
er birtur langur bragur
sem Brynhildur orti í
þingveislu. Síðan segir
í bókinni: „Þessi brag-
ur er því miður eina
framlag Brynhildar til bókarinnar,
því henni fannst óþarfi og ekki rétt
að vera áberandi í bók sem fjallar um
Albert og fannst jafnvel að þetta
væri of mikið. „Það þýðir ekki að
mér finnist ég standa í skugganum af
manninum mínum,“ sagði Brynhild-
ur, „heldur þvert á móti; ég stend í
ljómanum sem af honum stafar og
það nægir mér.““
Eftirlifandi börn Brynhildar og
Alberts eru Helena, Ingi Björn og
Jóhann Halldór. Barnabörnin eru 16
og barnabarnabörnin 18 talsins. Út-
för Brynhildar fer fram frá Dóm-
kirkjunni næstkomandi föstudag.
BRYNHILDUR
JÓHANNSDÓTTIR
Andlát
„ÞETTA eru gríðarleg vonbrigði og mér finnst með
öllu siðlaust að koma svona fram við gamalt fólk,“
segir Guðrún Jóhannsdóttir, formaður Félags eldri
borgara á Álftanesi, um ákvörðun bæjaryfirvalda
að slíta samningum við hjúkrunarheimilið Eir um
fyrirhugaða uppbyggingu á miðsvæði sveitarfé-
lagsins, þar sem gert var ráð fyrir 100 þjónustuí-
búðum og miðstöð fyrir eldri borgara. Bæjarstjóri
Álftaness segir að þarfir aldraðra verði settar í for-
gang og orð um annað séu innistæðulaus.
Guðrún segir að félag eldri borgara hafi tekið
virkan þátt í vinnunni við þjónustumiðstöðina, tveir
fulltrúar hafi verið í vinnuhópnum frá félaginu og
hugmyndir þeirra vel teknar til greina. Því sé
ákvörðun bæjaryfirvalda mjög sár en ekki síður þar
sem nú á að skipa nýjan stýrihóp til að skipuleggja
þjónustumiðstöð. „Þetta er þvílík vitleysa og í raun
bara endurtekið efni. Ekki fæ ég skilið hvers vegna
þarf að vinna þetta allt aftur. Það var búið að vinna
þetta og allir mjög ánægðir með afraksturinn,“ seg-
ir Guðrún og bætir við að vart sé hægt að koma með
hugmynd að betri þjónustumiðstöð, né ódýrari.
Um hundrað manns 67 ára og eldri búa í sveitar-
félaginu og um tvö hundruð 60 ára og eldri. Guðrún
segir að greinilegt sé að bæjaryfirvöld beri hag
þessa fólks ekki fyrir brjósti. Hún gefur auk þess
lítið fyrir fyrirhugaða samkeppni um nýtt deili-
skipulag miðbæjarsvæðisins. „Ef maður horfir
raunsætt á málin er ekki gefið mál að í svona sam-
keppni komi fram tillaga sem sátt náist um. Ljóst er
að þessi samkeppni er sett fram til að koma Eir út
úr verkefninu. Þetta er bara af því að Álftaneslist-
inn vill geta hælt sér af því að hafa byggt þetta,“
segir Guðrún sem finnst lágkúrulegt að ekki hafi
verið hægt að koma á sátt um Eirarverkefnið.
Landsamband eldri borgara hefur boðað fulltrúa
bæjarstjórnar á fund þar sem rætt verður um mál-
efni eldri borgara á Álftanesi og slit samningsins við
Eir. Auk þess hefur Guðrún pantað viðtal hjá fé-
lagsmálaráðuneytinu þar sem hún mun koma skoð-
unum sínum á framfæri.
Misskilningur, segir bæjarstjóri
Sigurður Magnússon bæjarstjóri segir misskiln-
ings gæta í málinu og að bæjarstjórninni sé alveg
ljóst hvaða skyldum hún hafi að gegna varðandi
eldra fólk. „Við ætlum að efla hér heimaþjónustu,
byggja þjónustumiðstöð og gefa þeim [eldri borg-
urum] valkost á litlum íbúðum. En aðalmálið er að
við ætlum að sníða þetta að okkar samfélagi og
þörfum.“
Sigurður áréttar einnig að það hafi verið sam-
komulag um að slíta samningunum, það hafi ekki
verið gert einhliða. „Deilan um skipulagið spilar
einnig inn í þetta. Um það var kosið í vor og íbúar
vilja að það verði farið aftur ofan í skipulagsmálin.
Eir getur ekki beðið eftir niðurstöðu úr því.“
Félag eldri borgara á Álftanesi ósátt með að samningum við Eir sé slitið
Telur hag eldra fólksins
ekki borinn fyrir brjósti
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Mikið um dýrðir á Skálholtshátíð
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dor-
rit Mousaieff heilsuðu dr. Sigurbirni Einarssyni bisk-
up með virktum eftir predikun hins síðarnefnda á
Skálholtshátíðinni í gærdag. Fjöldi fólks var saman
kominn í blíðskaparveðri í Skálholti til að minnast
þess að 950 ár eru liðin frá biskupsvígslu Ísleifs Giss-
urarsonar, fyrsta íslenska biskupsins, og mikið var
um dýrðir.
Allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi á dagskrá
hátíðarinnar og t.a.m. las Gunnar Eyjólfsson leikari
Ísleifsþátt og farin var hópreið heim á staðinn með
fánaborg, sem myndlistamaðurinn Halldór Ásgeirs-
son bjó til.
Þá lauk pílagrímsgöngunni í gær, sem lagði upp
frá Þingvöllum að morgni laugardags, og þreyttir en
sælir göngugarpar komu tímanlega til Skálholts í
gær, áður en kirkjuklukkurnar hringdu til messu-
halds.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Vitjað um netin á Mývatni
Þeir Halldór Árnason, bóndi í Garði, og Einar Friðbertsson gestur hans vitjuðu um netin í kvöldkuli og ylgju föstu-
dagsins. Hafgolan hafði náð uppeftir um kvöldmatarleytið og dregið með sér þoku. Netin má annars hafa í vatni
frá fimmtudegi til laugardags. Þeir reyta, sem finna sér tíma til þess að leggja.
BJÖRN Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, er staddur í Brussel
þar sem hann mun í dag eiga fund
með starfsbræðrum sínum frá lönd-
um ESB, Noregi og Sviss. Þar verð-
ur farið yfir þær breytingar sem fyr-
irhugaðar eru á upplýsingakerfi
Schengen og eiga að taka gildi í apríl
á næsta ári.
Upplýsingakerfið per hluti af
Schengen samningnum og er sam-
eiginlegur gagnagrunnur sem að-
ildaríkin öll hafa aðgang að. Hann
geymir m.a. upplýsingar um eftir-
lýsta einstaklinga og þá sem vísað
hefur verið út af Schengen-landa-
mærasvæðinu. Kerfið er talið nauð-
synlegt til að tryggja almannaöryggi
og allsherjarreglu þegar eftirlit er
ekki lengur á innri landamærum og
eru breytingarnar tilkomnar vegna
stækkunar Evrópusambandins.
Upplýsingakerfið greinist annars
vegar í staðbundinn hluta sem starf-
ræktur er í hverju aðildaríki Schen-
gen og hins vegar miðlægan hluta
sem staðsettur er í Strassborg í
Frakklandi.
Fundað um
Schengen