Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þetta hefst upp úr því að vera að drolla svona á leiðinni upp í himnaríki Sigga mín, við verðum að fara niður aftur, það er kominn á nýr skattur. Við lokun markaða íKauphöll Íslandsfyrir helgi stóð úr- valsvísitala hlutabréfa í 5.459 stigum, sem er 1,36% lægra en um síðustu ára- mót. Viðskipti með hluta- bréf frá áramótum eru komin í nærri 1.110 millj- arða króna og velta með skuldabréf er um 1.164 milljarðar. Þegar þróunin fyrstu sex mánuði ársins er skoð- uð kemur í ljós að töluverð veltuaukning varð í Kaup- höllinni, bæði með hluta- bréf og skuldabréf. Á tímabilinu nam veltan 2.158 milljörðum króna, sem er 121% aukning frá fyrstu sex mánuðunum ársins 2005 er veltan nam 978 milljörðum króna. Velta með hlutabréf ein- göngu var um eitt þúsund milljarð- ar, ein billjón króna, sem er um 260% aukning. Aðhaldið hert Nú á miðju sumri er rólegt yfir hlutabréfamarkaðnum, líkt og oft áður á þessum árstíma, og varla að vænta meiri umsvifa fyrr en í haust. Þegar reynt er að horfa fram á við ber sérfræðingum sam- an um að vænta megi verðhækk- unar á síðustu mánuðum ársins, allt frá 8% til 20%. Haft er eftir Þórði Friðjónssyni, forstjóra Kauphallar Íslands, í ný- legu markaðsyfirliti að erfitt sé að henda reiður á því sem sé að gerast á hlutabréfamörkuðum í heimin- um. Þórður telur líklegt að veðra- brigðin hér og annars staðar megi rekja til þess að peningayfirvöld í flestum löndum hafi smám saman verið að herða aðhaldið að efna- hagslífinu með hækkun vaxta. Að- haldstímar virðist því vera að taka við af þenslutímum. Greiningardeildir bankanna rýna reglulega í horfur á hluta- bréfamarkaði. Hjá KB banka eiga menn ekki von á miklum sveiflum á markaðnum í sumar. Uppgjör úr takti við væntingar, sem nú eru að byrja að koma fram fyrir fyrstu sex mánuðina, geti þó haft áhrif á verðþróun einstakra félaga. Spáir deildin því að úrvalsvísitalan í lok ársins verði komin í um 6.500 stig, sem er 19% hækkun frá því sem nú er og um 17% hækkun frá áramót- um, en er engu að síður minni hækkun en KB banki spáði í upp- hafi ársins. Spá um hlutabréfaverð hjá KB banka er öllu bjartsýnni en hjá greiningardeild Glitnis, sem í nýj- ustu skýrslu sinni spáði 8% hækk- un úrvalsvísitölunnar á árinu. Sama deild spáði í vor að hluta- bréfaverð myndi á árinu hækka um 20%. Glitnismenn segja að grunnrekstur flestra fyrirtækja í Kauphöllinni sé með ágætum. Þrátt fyrir horfur um stöðnun í hagkerfinu á næstu fjórðungum muni það ekki hafa teljandi áhrif á afkomu fyrirtækjanna. Stór hluti tekjumyndunar þeirra sé á erlend- um mörkuðum og lækkun á gengi krónunnar hafi almennt séð já- kvæð áhrif á rekstur þeirra. Á hinn bóginn hafi lækkun hlutabréfa- verðs hérlendis sem erlendis nei- kvæð áhrif á afkomu banka og fjár- festingafélaga. Bent er á að góð áhættulaus ávöxtun fáist á skuldabréfamark- aði um þessar mundir, sem hafi letjandi áhrif á spurn eftir hluta- bréfum. Þá ríki svartsýni meðal stórs hluta fjárfesta á markaðnum eftir lækkun hlutabréfaverðs að undanförnu. Þrátt fyrir að góð kauptækifæri séu til staðar fyrir fjárfesta sem horfa lengra fram á veginn, þá verði að teljast líklegra að fyrrnefndir þættir hamli hækk- un hlutabréfaverðs til skemmri tíma litið. Góðar horfur fyrir næsta ár Greiningardeild Glitnis birti í síðasta spáriti sínu horfur fyrir næsta ár. Þar er reiknað með góð- um vexti hagnaðar á milli áranna 2006 og 2007. Grunnreksturinn sé sem fyrr góður og það muni skila sér, í flestum tilvikum, í vexti tekna, framlegðar og hagnaðar. Einnig komi til áhrif ytri vaxtar og þeirra fyrirtækjakaupa sem séu í höfn. Greiningardeild Landsbankans gerir 12% ávöxtunarkröfu til hluta- bréfamarkaðarins en segir að verðmat helstu fyrirtækja gefi til- efni til að ætla að markaðurinn geti hækkað um 8,5% umfram það. Bent er á að ró hafi færst yfir viðskiptin og ekki sé lengur eins sterk tilhneiging til að túlka allar fréttir neikvætt. Þó sé líklegt að við séum að sigla inn í ákveðna lá- deyðu sem geti varað í nokkra mánuði. Það sem styðji þessa skoð- un sé dýrara lánsfjármagn, óvissa um innlenda efnahagsframvindu og sú staðreynd að vextir á banka- reikningum séu í sögulegu há- marki. „Við teljum þó að aðeins sé um tímabundið ástand að ræða og að langtímahorfur á hlutabréf- markaðinum séu góðar enda mörg fyrirtækjanna hag- stætt verðlögð í dag,“ sögðu Landsbankamenn í nýjasta spáriti sínu. Á síðari hluta þessa árs skýrist hvort sérfræðingar á hlutabréfa- markaðnum hafi rétt fyrir sér um allt að 20% hækkun á bréfunum. Svo mikil hækkun verður þó að teljast ólíkleg í stöðunni eins og hún er núna. Fréttaskýring | Horfur á hlutabréfmarkaði Spáð allt að 20% hækkun Aðhaldstímar að taka við af þenslunni, segir forstjóri Kauphallar Íslands Hækkunum er spáð í Kauphöllinni á árinu. Markaðsvirði skráðra fé- laga um 2.000 milljarðar  Skráð félög í Kauphöll Íslands eru 24 en kauphallaraðilar í lok júní sl. voru 25, þar af fimm er- lendir aðilar. Markaðsvirði skráðra félaga var 1.905 millj- arðar króna í lok júní en mark- aðsvirði þeirra 442 skuldabréfa sem skráð voru í Kauphölllinni var 1.200 milljarðar króna. Sex félög hafa verið skráð af mark- aði á árinu, en tvö þeirra, HB Grandi og Hampiðjan, ætla á nýja iSEC-hlutabréfamarkaðinn. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Það er vissara að vera með réttu græjurnar í veið- ina strax í upphafi, líkt og þessi ungi maður á Siglu- firði sem er sestur á gamlan bryggjupolla í björg- unarvesti og með tilheyrandi búnað. Litlum sögum fer af veiðinni, enda var hún ekki aðalatriðið að þessu sinni. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Með réttu veiðigræjurnar BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag tillögu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra um að stofna verk- efnisstjórn sem vinni eða láti vinna áhættugreiningu og áhættumat vegna núverandi staðsetningar olíubirgðastöðvar- innar í Örfirisey. Verkefnis- stjórnin á að skila tillögum um verklag og tímaáætlun til borg- arráðs eigi síðar en 15. septem- ber nk. Verkefnisstjórninni verður auk þess falið að vinna áhættu- greiningu, áhættumat og kostn- aðargreiningu fyrir nýja stað- setningu olíubirgðastöðvar og eru tveir staðir nefndir sem koma til greina, Hvalfjörður og Grund- artangi. Tillagan er beint framhald af niðurstöðu starfshóps um olíu- birgðastöðina sem skilaði niður- stöðum sínum á vormánuðum. Starfshópurinn, sem skipaður var í lok árs 2004, tók m.a. fyrir hvort fyrir hendi væru heppilegir staðir til olíubirgðahalds utan höfuðborgarinnar. Tilfærsla stöðvarinnar er afar viðamikið verkefni og verður verkefnisstjórnin skipuð fulltrú- um tilnefndum af Faxaflóahöfn- um, olíufélögunum, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og einum fulltrúa tilnefndum af borgar- stjóra. Olíubirgðastöðin fari úr ÖrfiriseySVO GÆTI farið að bandaríski fjárfest-ingabankinn Goldman Sachs leggi fram tilboð í bresku verslunarkeðjuna House of Fraser en Baugur Group á sem kunn- ugt er í viðræðum um kaup á félaginu. Þetta kom fram í frétt Sunday Express í gær en í henni segir að Goldman Sachs muni jafnvel standa að baki tilboði upp á 160 pens á hlut, sem er nokkru hærra en tilboð Baugs Group sem hljóðar upp á 148 pens á hlut, en miðað við það tilboð væri kaupverð House of Fraser um 350 milljónir sterlingspunda. Blaðið hefur eftir fjárfestum að tilboð í House of Fra- ser verði jafnvel lagt fram þegar í þess- ari viku. Þá hafði blaðið einnig eftir heimildarmönnum, sem standa nálægt John Coleman, forstjóra House of Fra- ser, að hann sé óánægður með að Baug- ur hafi ekki greint honum frá því hvort hann verði áfram við stjórnvölinn eða ekki. Boðið á móti Baugi í House of Fraser

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.