Morgunblaðið - 24.07.2006, Page 11

Morgunblaðið - 24.07.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 11 MINNSTAÐUR Akranes | „Ég veit ekki hvað ferðamennirnir sem voru staddir við Ægisgarð hafa hugsað þegar þeir sáu hóp íslenskra ungmenna stinga sér til sunds í Reykjavíkurhöfn. Þeir voru mjög undrandi og tóku myndir af okkur í gríð og erg. Sjórinn var ekki nema 12 gráður og það var því ansi kalt fyrir krakkana að stinga sér en upphafið á Faxaflóasundinu í ár var mjög sérstakt enda heppnaðist ferðin afar vel,“ sagði Trausti Gylfason, talsmaður Sund- félags Akraness, en 14 manna hópur sund- manna synti boðsund frá Reykjavíkurhöfn og upp á Akranes á laugardaginn. Markmið Faxaflóasundsins er að safna fé fyrir æfingaferð félagsins sem farin verður sumarið 2008, en yngsta sundfólkið í ferðinni fermdist í vor og er því á 14. aldursári. „Það eru aldurstakmörkin í þetta sund og þeir sem synda í fyrsta skiptið eru ekki nema 2–4 mínútur ofaní í sjónum í einu,“ segir Trausti en sundfólkið er vel varið fyrir kuld- anum. „Þau eru í þurrbúningi, með sundhettu og hanska. Að auki eru þau með sundfit á fót- unum til þess að geta synt hraðar. Þetta er boðsund, þar sem einn syndir í einu og þeir sem eldri eru geta verið allt að hálftíma í sjón- um á meðan aðrir synda styttri vegalengdir. Þurrbúningurinn er nauðsynlegur og þá sér- staklega hanskarnir því án þeirra væri þeim gríðarlega kalt á höndunum.“ Koppalogn og eggsléttur sjór Veðrið var mjög gott á laugardaginn þegar lagt var af stað í ferðina rétt fyrir kl. 9:30 frá Reykjavík. „Það var koppalogn og sjórinn eggsléttur. Þrátt fyrir það voru nokkrir sjóveikir um borð í bátnum og á sundinu. Það var drjúg undir- alda sem gerði okkur aðeins erfiðara um vik.“ Tveir bátar voru með sundfólkinu í för, hafnsögubátur frá Faxaflóahöfnum, og að auki var hraðskreiður björgunarbátur við hlið sundmanna alla leiðina – enda er öryggið mik- ilvægt í aðgerð sem þessari. Sundfólkið og for- svarsmenn sundsins voru með aðstöðu í hafn- sögubátnum og þar gátu krakkarnir hvílt sig og fengið sér eitthvað að borða. Smáhvalirnir létu ekki sjá sig Sundfólkið hefur oftar en ekki rekist á smá- hvali og sel á leið sinni yfir Faxaflóann á und- anförnum árum en í ár varð hópurinn ekki var við neina „fylgifiska“. „Ég man eftir því að fyrir tveimur árum sáum við fjölda smáhvala á leiðinni og selurinn er mjög forvitinn þegar hann sér einhvern á sundi. Krakkarnir gefa alltaf í þegar þau sjá að selurinn er að synda við hlið þeirra. Þau eru ekkert smeyk við að eitthvað óþekkt fyr- irbrigði komi aftan að þeim og bíti þau í tærn- ar. Jú, kannski þau sem eru að synda í fyrsta sinn, en þau sem eldri eru kippa sér ekki upp við neitt.“ Eins og áður segir er Faxaflóasundið stór þáttur í fjáröflunarstarfi Sundfélagsins og hafa krakkarnir séð að mestu um að safna fé fyrir þær ferðir sem þau fara í. „Sundfélagið er afar vel rekið og ég man ekki eftir að það hafi verið halli á rekstrinum. Enda eru konur í meirihluta í stjórninni og þær eru vel skipulagðar og halda vel utan um reksturinn.“ Ferðin upp á Akranes tók ekki nema rétt rúma sex tíma en hópurinn fór allur í land á sama tíma við Langasand þar sem fjölmenni tók á móti þeim. Vegalengdin sem sundfólkið synti er um 11 sjómílur eða um 17 kílómetrar. Til samanburðar fór farþegaferjan Akraborg þessa leið á 60 mínútum. „Það er kraftur í þessum krökkum. Það var boðið í flatbökuveislu eftir sundið og þegar þau höfðu lokið við matinn fór megnið af þeim sam- an í fótbolta langt fram á kvöld. Það var því ekki mikil þreyta í hópnum,“ sagði Trausti. Synt í ísköldum sjónum frá Reykjavík og upp á Akranes Á sundi Einn sundgarpanna frá Akranesi á góðri siglingu í sjónum, sem var 12 gráðu heitur. Morgunblaðið/Guðgeir Guðmundssson Stokkið Krakkarnir í Sundfélagi Akraness stökkva til sunds frá gömlu Akraborgarbryggjunni í Reykjavík. Síðan synti einn í einu yfir Faxaflóann þar til að komið var á land á Langasandi. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.