Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslyndaflokksins, sendi Bryggjuspjallara tóninn ígrein í Morgunblaðinu í síðustu viku. Þaðgleður Bryggjuspjallara að fá viðbrögð við skrifum sínum og að það er haldið uppi umræðu um sjávarútveg á Íslandi. Sigurjón er ekki sam- mála Bryggjuspjallara og það kemur ekkert á óvart. Það er skoðanafrelsi í landinu. Til að byrja með er rétt að leiðrétta ákveðinn misskilning hjá Sigurjóni: Skoðanir Bryggjuspjall- ara eru skoðanir hans sjálfs en ekki Morgunblaðsins, enda er Bryggju- spjallið skrifað undir nafni. Bryggjuspjallari hefur skrifað um sjávar- útveg í Morgunblaðið í á þriðja áratug. Á þeim tíma hefur oft komið fram að skoðanir hans og Morg- unblaðsins fara ekki alltaf saman. Að öðru leyti kannast Bryggju- spjallari ekki við að beita blekkingum og hálfsannleik. Hann stendur við það sem hann hefur skrifað um tilurð kvótakerfisins og leyfir sér að halda því fram að hana þekki hann mun betur en alþingismaðurinn. Bryggju- spjallari hefur aldrei réttlætt eyðingu sjávarbyggða, ekki heldur sjálfs- eyðingarhvöt þeirra, sem felst í því að selja frá sér lífsbjörgina. Það virð- ist alltaf gleymast í umræðunni um framsalið, að það kaupa engir ef ekkert er falt. Glatist aflaheimildir úr heimabyggð er það vegna þess að þær hafa verið seldar af heimamönnum. Í þeim tilfellum hafa heima- menn séð hag sínum betur borgið með því að selja heimildirnar en nýta þær. Við hvern er að sakast? Þann sem selur eða þann sem kaupir? Brottkast hefur alla tíð átt sér stað. Lélegum og verðlausum fiski var hent fyrir daga kvótakerfisins. Fiski verður alltaf hent í einhverjum mæli, en fátt bendir til þess að meiru sé hent nú en fyrir daga kvótakerf- isins. Bryggjuspjallari hefur aldrei skilið kvótaleigumarkaðinn. Hann skilur ekki hvernig mönnum dettur í hug og hvernig þeir geta greitt leiguverð, sem svarar helmingi af fiskverði upp úr sjó eða meiru. Samkvæmt heim- ildum hans miðast leiga á veiðiheimildum við Nýja-Sjáland við 10 til 20% af fiskverði eftir því hve hátt það er. Við það virðist auðvelt að lifa, en ekki leiguverðið hér heima. Ef einhver selur veiðirétt og skip og fer með þá peninga í annan rekst- ur, hlýtur einhver annar að kaupa og koma með peninga, hugsanlega úr öðrum rekstri, inn í útveginn. Það hlýtur alltaf að koma jafnmikið inn og fer út. Er eitthvað af því? Morgunblaðið hefur fyrir löngu dregið það fram, fyrst fjölmiðla, að engir kjarasamningar gilda á smábátunum, meðal annars spurt Arthur Bogason formann LS, um skýringar á því í viðtali 28.9. 2005 eftir að hafa vakið athygli á þessari einkennilegu stöðu í fréttum. Bryggjuspjallari hefur aldrei dregið dul á þá skoðun sína að sjávar- útvegur eigi að vera arðbær og að þeir sem geri bezt eigi að njóta þess. Honum finnst nauðsynlegt að öflug fyrirtæki séu innan greinarinnar og finnst 12% hámarkið í góðu lagi. Bryggjuspjallari hefur aldrei dregið dul á þá skoðun sína að sjávar- útveg eigi ekki að nota til að halda uppi byggð í landinu. Við sjáum skýr dæmi þess að fara þá leið innan ESB. Meira og minna allt rekið með tapi og haldið uppi með gífurlegum styrkjum. Eigum við að eyða milljörðum króna í slíka vitleysu? Og hvaðan eiga þeir peningar að koma? Útveg- urinn verður að standa undir sér og skila tekjum í þjóðarbúið. Útveg sem ekki stendur undir sér á ekki að styrkja. Honum á að hætta. Sigurjóni ætti að vera það kunnugt að Morgunblaðið mótar sínar eigin skoðanir í mikilvægum málum og gætir þar hvorki hagsmuna Sjálfstæðisflokksins, né annarra stjórnmálaflokka. Bryggjuspjallari fer einnig eftir eigin sannfæringu byggðri á langri reynslu af umfjöllun um sjávarútveg. Afstaða hans litast ekki af pólitík, en svo virðist sem afstaða margra annarra geri það. BRYGGJUSPJALL HJÖRTUR GÍSLASON Sjávarútvegur á að vera arðbær Skoðanir Bryggju- spjallara eru skoðanir hans sjálfs, ekki Morgunblaðsins hjgi@mbl.is Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins samanborið við 26 milljarða á sama tímabili 2005, sam- kvæmt útreikningum Hagstofunn- ar. Aflaverðmæti hefur dregist saman um einn milljarð eða 3,8%. Aflaverðmæti aprílmánaðar nam 6,1 milljarði króna en aflaverðmæti aprílmánaðar 2005 nam 5,7 millj- örðum. Aflaverðmæti botnfisks var í lok aprílmánaðar tæpir 20 milljarðar króna eða rúmlega milljarði meira en á sama tíma í fyrra. Aflaverð- mæti þorsks er nánast óbreytt frá fyrra ári, nam 10,9 milljörðum króna. Verðmæti ýsuafla nam 3,7 milljörðum sem er 5,8% aukning milli ára. Verðmæti ufsaaflans nam 1.200 milljónum og jókst um 38% og aflaverðmæti karfa var 2,8 millj- arðar króna sem er 21% meira en 2005. Verðmæti flatfiskaflans jókst um 18% milli ára, nam 1,7 millj- örðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins. Verðmæti uppsjávarafla nam 3,4 milljörðum króna í ár sam- anborið við 5,6 milljarða í fyrra og nemur samdrátturinn 39%. Mest verðmæti á höfuðborg- arsvæðinu og Suðurnesjum Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum fyrstu fjóra mánuð- ina nam 4,6 milljörðum og jókst um 12% frá árinu 2005. Verðmæti óunnins afla í gáma til útflutnings nam 2,4 milljörðum sem er nánast sama og árið 2005. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 7,7 milljörðum sem er 7,7% aukning frá fyrra ári. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu var 10,2 milljarðar króna og dróst sam- an um 17% frá fyrra ári. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru aflaverðmæti mest á höfuðborgar- svæðinu og Suðurnesjum, um 4,8 milljarðar króna. Minnst voru afla- verðmætin á Vesturlandi og Vest- fjörðum, um 1,4 milljarðar króna. Þrátt fyrir það jukust verðmæti aflans mest á Vesturlandi, eða um 24,4%. Verðmætin á höfuðborgar- svæðinu jukust um 13,8% og á Vestfjörðum um 12,3%. Mestur varð samdrátturinn á Austurlandi, 22,6% og á Norðurlandi eystra, 19,8%, en það skýrist að mestu leyti af minni afla af uppsjávarfiski, einkum loðnu. Aflaverðmæti milljarði minna Verðmæti afla af ýsu, ufsa, karfa og flatfisks jókst mikið                           !   "    # $$ %   &     ' ()*  +()*) , +* (* ((,* +*+ ',+* * * ++*' ,-,* *,   ,*  +*( )*' '(* )(+* +-*+ '*- * * '(*+ ,,*, *,     . #  . #  ,- (--*) , )'*+ + '* -(*,  +,(* , ,(*) , ',* -*) ' ('*+ +,*+ (-* ,*(  ,) -+*) , -*' + ('*) , )*'  -(* , )* , *- ,(*  ,+'* )+-*) ,(*- *'                Fiskmarkaður Íslands hf. (FMÍS) seldi mest fyrstu 6 mánuði ársins. Hann seldi 29.173 tonn sem er rúm 48% af seldu magni í gegnum Íslandsmarkað hf. Fiskmarkaður Suðurnesja hf. (FMS) seldi 12.893 tonn sem er tæpt 21%, en aðrir minna. Af verðmætum seldi FMÍS 49,5% eða fyrir 3.948 milljónir. FMS seldi fyrir 1.688 milljónir (20,9%). Ef skipt er eftir lönd- unarstöðum er FMÍS á Snæfells- nesi með mesta sölu 19.647 tonn (Ólafsvík 7.602 tonn, Rif 7.183 tonn, Arnarstapi 1.042 tonn, Grundarfjörður 2.209 tonn og Stykkishólmur 1.511 tonn). FMÍS Reykjavík er í 2. sæti með 4.821 tonn og síðan er það FMS Sand- gerði með 4.648 tonn. Fiskmarkaður Íslands seldi mest fyrri hluta ársins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.