Morgunblaðið - 24.07.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 24.07.2006, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT E i t t hundrað sé r a 4 H Ö N N u N a r s T O f a · B Æ J a r Ú T g E r ð iN Bagdad. AFP. | Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra í Írak, var fluttur á sjúkrahús í gær en hann var sagður við slæma heilsu eftir sextán daga hungurverkfall. Þar var honum gefin næring í gegnum slöngu. Hann var orðinn of veikburða til að mæta við réttarhöldin sem nú standa yfir gegn honum, að sögn Jaafar al-Musawi, aðalsaksóknara í málinu. Saddam, sem er 68 ára, átti að mæta fyrir rétt í dag þar sem hann, ásamt sjö öðrum, er ákærður fyrir morð á fjölda sjíta í bænum Dujail eftir að reynt var að ráða hann af dögum árið 1982. Hann á yfir höfði sér líflátsdóm verði hann fundinn sekur. Þrír verjendur myrtir Saddam hefur ásamt þremur öðrum sakborningum í málinu neit- að að borða síðan 7. júlí til að mót- mæla því að öryggi verjenda þeirra skuli ekki vera tryggt. Þrír verj- endanna hafa verið myrtir síðan réttarhöldin hófust í október og var einn þeirra, Khamis al-Obeidi, drepinn 21. júní. Aðrir verjendur segja að glæpamenn úr hópi sjíta hafi framið morðið. Þá hafa Sadd- am og hinir sakborningarnir einnig mótmælt því hvernig réttarhöldin hafa farið fram og krefjast þeir þess sem þeir kalla sanngjarnrar málsmeðferðar. Í síðustu viku höfðu verjendur Saddams varað við því að heilsu hans væri að hraka. Bandarískur talsmaður í stjórn fangelsisins sagði hins vegar 13. júlí að sak- borningarnir hefðu eingöngu neit- að nokkrum máltíðum og væru allir við góða heilsu eftir að hafa fengið læknisaðstoð. Saddam flutt- ur á sjúkrahús Of veikburða til að mæta fyrir rétt eftir sextán daga hungurverkfall Reuters Saddam Hussein fyrir rétti í mars. Nýju Delí. AFP. | Indverskir her- menn björguðu í gær fimm ára gömlum dreng sem dúsað hafði í fimmtíu klukkustundir ofan í átján metra djúpri holu í litlu þorpi ná- lægt bænum Kurukeshetra í Ha- ryana-ríki á norðanverðu Indlandi. Hann hafði verið að leika sér ná- lægt brunninum á föstudag þegar hann féll ofan í hann. Þorpsbúar uppgötvuðu fyrst að eitthvað amaði að þegar þeir heyrðu grát upp úr holunni á föstudag. Byggingarverkamenn sem voru að vinna á svæðinu höfðu farið þaðan án þess að loka holunni nægilega vel en holan var aðeins um 30 cm í þvermál og því of þröng til að fullorðinn maður gæti farið ofan í hana. Myndavélar sem voru látnar síga ofan í holuna sýndu að drengurinn, sem heitir Prince, virtist ómeiddur. Súrefni dælt í holuna Myndin þar sem hann sást dúsa í holunni var sýnd í sjónvarpi og fylgdist öll þjóðin með málinu um helgina í beinni útsendingu. For- sætisráðherra landsins, Manmoh- an Singh, lofaði því að hann fengi bestu læknisaðstoð sem völ væri á þegar honum hefði verið bjargað. Súrefni var dælt inn í holuna auk þess sem mjólk, súkkulaði og kex var látið síga niður til drengsins. Grófu göng úr brunni yfir í holuna Til að bjarga drengnum grófu verkfræðingar úr hernum leðju og aur upp úr gömlum brunni sem var um þrjá metra frá holunni sem drengurinn var í. Með því að grafa þaðan göng yfir til hans tókst þeim að bjarga honum. Þúsundir manna höfðu safnast saman á staðnum og fögnuðu þeir ákaft þegar björg- unarmaður var hífður upp úr hol- unni með drenginn í fanginu, vaf- inn inn í hvítt lak. Drengurinn var strax fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús en virtist ekki hafa slas- ast við fallið þótt hann virtist hræddur og þrekaður eftir þraut- irnar. Bjargað úr holu eftir fimmtíu klukkutíma Fimm ára dreng- ur ómeiddur eftir átján metra fall AP Hermenn halda á drengnum eftir að honum var bjargað úr holunni. Óttuðust flóð- bylgju eftir jarðskjálfta Jakarta. AFP. | Jarðskjálfti upp á 6,6 á Richter varð við eyjuna Sulawesi í Indónesíu í gær og flúðu íbúar strandsvæði eyjunnar af ótta við flóð- bylgju. Í fyrstu vöruðu stjórnvöld við því að hætta væri á flóðbylgju en eng- in flóðbylgja varð og var íbúum fljót- lega sagt að snúa til síns heima. Síðasta mánudag létu 650 manns lífið í flóðbylgju sem varð eftir jarð- skjálfta upp á 7,7 á Richter undan ströndum eyjunnar Jövu í Indónesíu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.