Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 15
ERLENT
ÞINGV.
A
K
R.
MOS.
RV
K
.
bý l i s l óð i r í boð i
N á N a r i u p p l ý s i N g a r E r a ð f i N N a á w w w . l e i r v o g s t u n g a . i s
· falleg byggð lágreistra sérbýla
· stórkostlegt útsýni
· leik- og grunnskóli í hjarta hverfisins
· Þægindi þéttbýlisins, kyrrð og fegurð sveitarinnar
HESTVAGNI er ekið niður götu
sem flætt hefur yfir í borginni La-
hore í Pakistan. Miklar rigningar
hafa verið í landinu síðustu daga og
ár flætt yfir bakka sína. Þá hafa að
minnsta kosti fjórir látist í miklum
rigningum í Japan undanfarna
daga sem hrundið hafa af stað
skriðum og flóðum. Hundrað þús-
und manns hefur verið ráðlagt að
yfirgefa heimili sín. Mest hefur
rignt á eyjunni Kyushu, um 1.000
km suðaustan við Tókýó. Veð-
urfræðingar vara við áframhald-
andi rigningum í Japan.
AP
Ekið í gegnum vatnselginn
Grunaðir um
að hafa misnotað
innflytjendur
Madrid. AFP. | Þrír spænskir lög-
reglumenn hafa verið handteknir
grunaðir um að hafa misnotað kyn-
ferðislega ólöglega innflytjendur í
búðum innflytjenda nálægt borg-
inni Malaga á Suður-Spáni.
Athæfið mun hafa átt sér stað í
mannfögnuði hjá innflytjendunum
sem biðu þess að verða fluttir úr
landi. Fjórar konur frá Úkraínu,
ein frá Brasilíu og önnur frá Mar-
okkó kærðu mennina en glæpirnir
eru sagðir hafa náðst á myndir sem
teknar voru með myndavélarsíma.
Þrír lögreglumenn til viðbótar sæta
einnig rannsókn vegna málsins fyr-
ir að hafa orðið vitni að athæfinu en
ekki komið í veg fyrir það eða sagt
frá því.
Eggjum og saur
hent í samkyn-
hneigða
Ríga. AFP. | Andstæðingar samkyn-
hneigðra hentu eggjum og saur í
fólk sem tekið hafði þátt í guðþjón-
ustu samkynhneigðra í borginni
Ríga á Lettlandi á laugardag. Sam-
kynhneigðum var bannað að halda
þar gleðigöngu, Gay Pride, en þeir
skipulögðu aðra viðburði í stað
hennar.
Fjórtán voru handteknir vegna
mótmælanna og verður einn kærð-
ur. Juris Calitis, presturinn sem
hélt messu samkynhneigðra, sagði
stjórnvöldum um að kenna og sak-
aði þau um að hvetja til haturs. Yf-
irvöld í Ríga hafa verið gagnrýnd
fyrir að banna gönguna af öryggis-
ástæðum og er því haldið fram að
forsendurnar fyrir banninu séu illa
falið yfirskin.
Hver íbúi Kúveit fær 50 þúsund
Kúveitborg. AFP. | Emírinn í Kúveit
hefur ákveðið að gefa hverjum íbúa
landsins 200 dínara eða jafnvirði 51
þúsund króna, vegna góðrar stöðu
ríkissjóðs. Ríkisstjórn landsins stað-
festi þetta í gær.
Um ein milljón manna býr í Kúveit
og þar starfa einnig um 2 milljónir er-
lendra verkamanna við olíuiðnaðinn.
Þeir fá hins vegar enga peninga frá
ríkinu. Afgangur hefur verið á rekstri
ríkissjóðs Kúveits undanfarin sjö ár,
samtals jafnvirði 3700 milljarða
króna. Útlit er einnig fyrir metafgang
á þessu ári.
Ríkisstjórn Kúveits veitti íbúum
landsins svipaðan styrk árið 2004 og á
síðasta ári voru laun ríkisstarfsmanna
hækkuð um jafnvirði 12.500 króna á
mánuði. Þingmenn hafa hvatt til svip-
aðrar launahækkunar í ár.
Öflugt velferðarkerfi er í Kúveit
þrátt fyrir að íbúar þar greiði ekki
tekjuskatt. Um 92% þeirra sem eru á
vinnumarkaði í Kúveit vinna hjá rík-
inu og hafa góð laun og vinnuálag er
frekar lítið.
VIVIENNE Michael, forstjóri fyr-
irækis í Bretlandi sem sérhæfir sig
í rannsóknum á heyrnarleysi, varar
við því að iPod-kynslóðin eigi á
hættu að verða heyrnarlaus, breyti
hún ekki lífsmynstri sínu. Þetta
kemur fram á
fréttavefnum
vnunet.com.
Rannsókn sem
fyrirtækið gerði
leiðir í ljós að
þriðjungur fólks
sem á svokallaða
mp3-spilara not-
ar tækin í allt að
28 klukkustund-
ir á viku, og
mikill fjöldi
þeirra veit ekki
að hávær tónlist skaðar heyrn.
Tæplega 40% þeirra sem tóku
þátt í rannsókninni vissu ekki um
skaðsemi háværrar tónlistar, en
tæki á borð við iPod hafa verið
gagnrýnd fyrir að leyfa notendum
að stilla tónlist svo hátt að skaði
geti hlotist af. Þá hefur verið varað
við heyrnartólum sem stungið er
inn í eyrun vegna áreitis á hljóð-
himnuna, en slík tól fylgja flestum
mp3-spilurum í stað heyrnartóla
sem leggjast yfir eyru.
Mp3-spilarar eru þó aðeins hluti
vandans því ungt fólk eyðir æ meiri
tíma á skemmtistöðum þar sem há-
vær tónlist er mikið leikin, auk þess
sem hljómtæki á heimilum eru
betri og kraftmeiri en áður var.
Michael segir þetta eiga eftir að
leiða til stóraukningar á heyrn-
arskertum í náinni framtíð og var-
ar við því að heyrnarleysi geti ver-
ið nær óbærilegt þar sem það leiði
til einangrunar og vandræða í sam-
skiptum.
Varað við
heyrnarskaða
Hávær tónlist getur
skaðað heyrnina.
Reuters