Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 17
Þegar ég var lítill var égalltaf að smíða flugdrekaog einhvern tímannreyndi ég að búa til vængi úr steyputeinum og plasti, þeir flugu auðvitað ekki neitt en það mátti reyna. Í mörg ár á eftir var ég kallaður Bjössi vængja- smiður,“ segir Björn Ragnarsson svifflugsáhugamaður og hlær að ungdómsvitleysunni í sér. Flug- áhuginn byrjaði því snemma hjá Birni en það var ekki fyrr en fyrir nokkrum árum sem hann fann sína aðferð til að fljúga. „Ég hef mikið ferðast um landið á mótorhjóli og stundum hugsaði ég á ferðum mín- um hvað það yrði frábært að geta flogið og séð hvað væri framundan. Þá fór ég að leita að væng til að ferðast með á hjólinu og fann einn byrjendavæng sem ég kallaði síðan hraphlífina. Þetta var stýranleg fallhlíf og þó ég hafi lítið vitað hvað ég var að gera á henni þá kenndi hún mér margt.“ Flýgur á paramótor Í staðinn fyrir að taka þá áhættu að fljúga án þess að kunna það nógu vel ákvað Björn að fara á svifvængjanámskeið hjá Fisfélagi Reykjavíkur. Síðasta vetur keypti hann sér svo mótor og flýgur nú um á svokölluðum paramótor en það er svifvængur með áföstum mótor við sætið sem knýr loft- skrúfu aftan við bak flugmannsins. „Sætið er sett á mann eins og bak- poki og mótorinn er aftan á. Bönd- in á sætinu eru fest í vænginn og þegar hann lyftist upp situr maður í loftinu, inngjöfin og stýringin á mótornum er í hendinni. Með venjulegum svifvæng ertu alveg háður uppstreymi en með mót- orinn ertu kominn með kraftinn sem þarf til að ýta þér af stað án þess að hafa vind.“ Björn segir að ekki þurfi endilega að vera með mótorinn í gangi allan tímann í fluginu heldur sé hægt að drepa á honum í háloftunum og svífa niður. „Ég er yfirleitt um hálftíma til klukkutíma í lofti, flugþolið á mót- ornum mínum er um 1½ tími. Hann er með rafmagnsstartara svo ég get drepið á honum í lofti og startað aftur en margir hinna þurfa að toga mótorinn í gang eins og sláttuvél. Minn mótor er svolít- ið þyngri en hinir en þeir hafa flugþol í u.þ.b 2 tíma.“ Björn flýgur aðallega í nágrenni höfuðborgarsvæðisins þar sem eru slétt tún og gott veður. „Það sem maður athugar fyrst er veðrið og velur landsvæði eftir því. Ólíkt því sem margir halda þá er best að vera í engum eða litlum vindi að fljúga á mótorvæng.“ Brotlenti í keppni Björn segir að það sé ekki meiri áhætta í svifflugi en hverju öðru ef varlega sé farið. Hann lenti samt nýlega í óhappi. „Um daginn var keppni sem er kölluð Hafragraut- urinn en þá keppa alls konar svif- drekar í að lenda á einum ákveðnum punkti. Ég gleymdi mér í hita leiksins og brotlenti sem leiddi til þess að ég handleggs- brotnaði, marðist og innyfli losn- uðu.“ Björn er ekki einn í þessu áhugamáli því að konan hans hefur einnig farið á námskeið og keypt sér væng. „Við fórum saman til Rúmeníu um páskana að fljúga. Vindurinn í Rúmeníu er allt öðru- vísi en á Íslandi, hann tekur á móti manni á mýkri hátt. Vindurinn hér er svo harður og öfgafullur.“ Áður en Björn byrjaði að fljúga hafði hann mikinn áhuga á mót- orhjólum en í dag segist hann ekki nenna að hjóla lengur og allur frí- tíminn fari í paramótorinn. „Fyrst þegar ég byrjaði á þessu greip þetta mig alveg, ég gat ekki hugs- að um neitt annað. Þetta er líka svo mikið meira en að fljúga, mað- ur gengur á fjöll, fylgist með veðr- inu og sér náttúruna allt öðrum augum en áður og svo er maður í samneyti við frábært fólk.“ Spurður hvernig tilfinning það hafi verið að fljúga í fyrsta skipti á svifvæng segir Björn að það hafi fyrst verið mikil spenna en núna slaki hann frekar á í lofti. „Ég flýg núorðið öllum stundum. Eftir mið- nætti er oftast besti tíminn á Ís- landi því þá dettur vindurinn niður og veðrið verður kyrrt og bjart á sumrin.“ Björn segir að stefnan sé að læra meira og fljúga á fleiri stöðum í framtíðinni því að þetta sé áhugamál sem hann hafi fundið sig í.  JAÐARÍÞRÓTTIR | Björn Ragnarsson hefur alltaf haft áhuga á að fljúga Flýgur um með mótor á bakinu Þegar á loft er komið situr Björn eins og í sæti og hefur því gott útsýni yfir jörðina. Björn Ragnarsson kominn með paramótorinn á bakið. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 17 DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ lækkar kólesteról Rannsóknir sýna að dagleg neysla Benecols stuðlar að lækkun kólesteróls um allt að 15%. Inniheldur plöntustanólester sem FYRSTU merki vitglapa kann í framtíðinni að vera hægt að mæla með einföldu augnprófi, ekki ólíku því sem notað er til að mæla blóð- þrýsting og sykursýki, að því er greint var frá í netmiðli BBC um helgina. Prófunin, sem teymi vísinda- manna undir stjórn dr. Lee Gold- stein við Brigham og kvenna- sjúkrahúsið í Boston vinnur að, felur í sér að leysigeisli er notaður til að rannsaka augnlinsuna og kanna hvort þar sé að finna leifar próteins sem finnst í heila Alz- heimer-sjúklinga. Rannsóknir á músum lofa góðu og telja vís- indamennirnir að tæknina verði í framtíðinni hægt að nota til að greina sjúkdóminn á fyrstu stig- um, sem og til að fylgjast með þróun hans og mæla þannig hvernig sjúklingarnir bregðist við meðferðarúrræðum.  LÆKNAVÍSINDI Alzheimer- greining með augnprófi Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.