Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 19
UMRÆÐAN
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll
Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160 karl@kirkjuhvoll.com
VANTAR ÞIG
ATVINNUHÚSNÆÐI?
Til leigu og afhendingar nú þegar
2.000 fm nýtt, glæsilegt skrifstofuhúsnæði á einum besta stað við Borgartún.
Fallegt útsýni til sjávar.
1.400 fm skrifstofubygging á þremur hæðum á horni Fellsmúla og Grensásvegar.
Sterkt auglýsingalegt gildi. Lyfta. 33 bílastæði.
4.000 fm verslunar-, þjónustu-, iðnaðar- eða lagerhúsnæði í Garðabæ. Þar af skrifstofu- og
starfsmannaaðstaða um 800 fm. Leigist í heilu lagi eða hlutum. Stór malbikuð athafnalóð.
UNDANFARIN ár hefur ungt
listrænt fólki með frumlegar hug-
myndir um verkefni tengd menningu
eða listum fengið tækifæri til að
starfa hjá Hinu húsinu,
menningar- og upplýs-
ingamiðstöð ungs fólks
í Reykjavíkurborg, í
sex til átta vikur yfir
sumartímann að fram-
kvæmd hugmynda
sinna. Markmið slíkra
verkefna hefur fyrst og
fremst verið að styrkja
ungt listafólk, efla
menningarlíf borg-
arinnar yfir sumartím-
ann og auka fjölbreytni
í sumarvinnu skóla-
fólks. Þetta fyr-
irkomulag er til komið að frumkvæði
unga fólksins, sem allt frá árinu 1994
hefur leitað til Hins hússins til að fá
aðstoð við útfærslu á hinum ýmsu
hugmyndum að listrænum og menn-
ingartengdum verkefnum.
Til að faglega sé staðið að úthlutun
þeirra stöðugilda sem eru til ráðstöf-
unar er auglýst eftir hugmyndum að
verkefnum og 5 manna fagnefnd fer
yfir þær hugmyndir sem berast.
Nefndin hefur eftirtalda þætti til við-
miðunar við úthlutun starfanna:
Markmið verkefnis, útfærsla verk-
og framkvæmdaáætlunar, frumleiki
hugmyndarinnar, samfélagsleg vídd,
reynsla umsækjenda og fjárhags-
legur bakgrunnur verkefnisins.
Einnig er hugað að fjölbreytni í verk-
efnavali og vægi á milli listgreina eða
málaflokka og hugað að kynjahlut-
falli umsækjenda og almennum gæð-
um umsóknanna.
Hóparnir hafa almennt notið hylli
borgarbúa, jafnt ungra sem aldinna,
og fellur starf þeirra vel að menning-
arstefnu Reykjavíkurborgar en í
„Leiðarljósi í menningarmálum“ seg-
ir að stefnt skuli að því að Reykjavík
eflist sem höfuðborg mennta og
menningar í landinu svo hún verði al-
þjóðleg borg með frjóu, metn-
aðarfullu listalífi og fjölbreyttu
mannlífi. Menningarbragur borg-
arinnar á að styrkja sjálfsvirðingu og
treysta samkennd allra landsmanna.
Stuðningur Reykjavíkurborgar
hefur verið ómetanlegur fyrir unga
listafólkið sem hefur eflst og dafnað í
listsköpun sinni. Starfið í sumarhóp-
unum hefur oft á tíðum verið þeirra
fyrsta reynsla í því að starfa sem
listamenn en yfirleitt
stunda þau listnám yfir
vetrartímann. Reynsl-
an hefur sýnt að þetta
unga listafólk skilar sér
síðan inn í menningar-
lífið sem fullgildir lista-
menn á hinum ýmsu
sviðum menningar og
verða virkir þátttak-
endur þar. Á síðustu
Edduverðlaunahátíð
voru tveir af Skapandi
sumarhópum Hins
hússins tilnefndir, hóp-
urinn Samferða fyrir
myndina „Þröng sýn“, í flokknum
besta stuttmynd ársins en sá hópur
var Skapandi sumarhópur 2004 og
starf hans hvati að tilurð mynd-
arinnar. Hópurinn Afmyndað af-
kvæmi hugarfóstur var tilnefndur til
Hvatningaverðlaunanna á sömu há-
tíð en þau voru Skapandi sum-
arhópur 2005. Á Íslensku tónlist-
arverðlaununum var Benni Hemm
Hemm valinn Bjartasta vonin en
hann var meðlimur í Tónaflokknum,
Skapandi sumarhóp 2002. Of langt
mál er að telja upp alla þá starfandi
listamenn þjóðarinnar af yngri kyn-
slóðinni innan allra listgreina sem
hafa fengið tækifæri til að starfa í
Skapandi sumarhóp á þessu mik-
ilvæga skeiði í lífi sínu.
Starf í Skapandi sumarhóp gefur
ungu fólki tækifæri til að fram-
kvæma hugmyndir sínar. Það gefur
því tækifæri til að sýna og sanna að
þau eru þátttakendur í lýðræðislegu
og lifandi borgarsamfélagi þar sem
rödd þeirra hefur ákveðið gildi. Sum-
arhóparnir styðja og efla menningar-
líf borgarinnar yfir sumartímann og
gera Reykjavík að lifandi og
skemmtilegum stað þar sem stefnu-
mót borgaranna, ferðamannanna og
ungu listamannanna verður suðu-
pottur menningar og uppspretta um-
ræðna. Starf hópanna veitir borg-
arbúum á öllum aldri aðgang að
listum, óháð efnahag og aðstæðum;
listin kemur til fólksins. Fjölmargir
hópar hafa í gegnum árin farið með
list sína á leikskóla, öldrunarheimili
og á opinber svæði í borgarlandinu.
Reykjavíkurborg greiðir einungis
launakostnað verkefnanna. þ.e.a.s.
dagvinnulaun en aðstandendur verk-
efnanna leggja yfirleitt sjálfir til
aukavinnuframlag (ólaunað). Auk
þess koma oft aðrir áhugasamir ein-
staklingar að verkefnunum í sjálf-
boðavinnu. Hóparnir fjármagna al-
farið verkefnin og leita styrkja t.d
hjá Ungu fólki í Evrópu, Nýsköp-
unarsjóði og hjá fyrirtækjum og öðr-
um stofnunum sem hafa veitt verk-
efnunum brautargengi í formi
aðstöðu eða annars stuðnings.
Hver er hagkvæmni þess að veita
Skapandi sumarhóp brautargengi?
Er hægt að réttlæta það fyrir vinnu-
samri þjóð að almannafé sé veitt til
þess að ungt fólk fái að iðka list sína
eða stunda aðra menningar-
starfsemi? Mannauð er erfitt að
verðleggja en þeir sem læra að virkja
sköpunarkraft sinn öðlast færni og
þroska hæfileika, sem eru eftirsókn-
arverðir í nútíma samfélagi t.d. sam-
vinnufærni, félagsþroska, frum-
kvæði, gagnrýna hugsun og
hugmyndaauðgi ásamt því að styrkja
eigin sjálfsímynd. Þeir eru því vel
undir það búnir að takast á við
óráðna framtíð. Er það ekki góð fjár-
festing? Og ef vel til tekst erum við
þá ekki öll ríkari fyrir bragðið?
Skapandi sumarstörf
Hins hússins
Ása Hauksdóttir skrifar
um fjölbreytni í sumarvinnu
skólafólks ’Of langt mál er að teljaupp alla þá starfandi
listamenn þjóðarinnar af
yngri kynslóðinni innan
allra listgreina sem hafa
fengið tækifæri til að
starfa í Skapandi sum-
arhóp á þessu mikilvæga
skeiði í lífi sínu.‘
Ása Hauksdóttir
Höfundur er deildarstjóri
menningarmála Hins hússins.
Á DÖGUNUM kynnti ríkisstjórn
Geirs Haarde nýjar áherslur og
stefnubreytingu í málefnum eldri
borgara. Auka skal framlög til mála-
flokksins um u.þ.b. 10
milljarða króna árlega
á fjárlögum.
Helstu breytingar
Í fyrsta lagi verður
stóraukin heima-
hjúkrun og þjónusta
til eldri borgara. Í
annan stað verða
tekjuskerðingar
skornar niður um tæp
20% eða frá 45% niður
í 38,5% og innan 3 ára
verður 30.000 króna
frítekjumark tekið
upp. Er hér kveðið á
um að ellilífeyrisþegar
geti haft 30.000 króna
tekjur án þess að elli-
lífeyrir muni skerðast.
Í þriðja lagi munu
greiðslur almanna-
trygginga hækka til
muna eða í hlutfalli við
almennar hækkanir á
launamarkaði. Einnig
verða greiðslur vasa-
peninga til fólks á
stofnunum hækkaðar
um 25% og tekju-
skerðingar vegna
tekna maka verða
einnig mildaðar. Hér
er skynsamlega að
verki staðið og ekki
annað hægt en að hrósa forsætisráð-
herra, Geir Haarde, og hans fólki í
ríkisstjórninni fyrir kjarkmikla og
myndarlega ákvörðun. Ennfremur
ber að þakka ótrúlegri elju og vinnu-
semi þeirra sem borið hafa um-
ræðuna uppi fyrir hönd eldri borg-
ara. Fyrir þeim flokki hafa farið
forsvarsmenn úr félögum eldri borg-
ara sem hafa af dugnaði og ósérhlífni
staðið frammi fyrir umræðu, sem
hefur verið flókin, eins og almanna-
tryggingarkerfið er, svo ekki sé
minnst á erfiðan vanda þegar kemur
að vistunarúrræðum fyrir eldri
borgara sem þurfa á daglegri
umönnun og hjúkrunarþjónustu að
halda.
Vandinn hefur verið þríþættur
Það er auðvelt að gagnrýna en um
leið öllu flóknara að finna úrlausnir á
þeim vanda sem steðjað hefur að
málaflokknum. Vand-
inn hefur í raun verið
þríþættur. Í fyrsta lagi
hafa vistunarúrræði
verið ófullnægjandi en
tekið er á þeim vanda
með stóraukinni heima-
þjónustu. Eldri borg-
arar vilja öllu fremur
eiga þann möguleika að
vera sem lengst í
heimahúsi og mun stór-
aukin heimaþjónusta
aðstoða eldri borgara
við að búa lengur heima
á sínu ævikveldi. Hér er
mannvæn stefna fetuð
að mínu mati.
Í annan stað munu
greiðslur almanna-
trygginga hækka og
vera meira í takt við al-
menna launaþróun en
áður hefur verið. Er
þar vel að verki staðið. Í
þriðja lagi verða tekju-
skerðingar mildaðar.
Hér er verkinu ekki
lokið þó stigið sé skref í
rétta átt. Markmið til
framtíðar ættu að vera
langtum drýgri, þá
hugsanlega með sól-
arlagsákvæði, enda
munu miklar breyt-
ingar eiga sér stað á
næstu árum á almennum kjörum
ellilífeyrisþega.
Góð niðurstaða
Íslendingar mega vel við una.
Breytingarnar eru góðar og virðing-
arverðar. Öflugt átak er framundan,
átak þar sem ríki, sveitarfélög og
eldri borgarar standa sameiginlega
að því markmiði að gera ævikvöld
hins almenna Íslendings að tilhlökk-
unarefni. Okkar ríka þjóð hefur efni
á því að ná slíku markmiði fram.
Þakkir til þeirra sem lásu.
Tímamót í málefn-
um eldri borgara
Gunnar Örn Örlygsson fagnar
bótum á kjörum ellilífeyrisþega
Gunnar Örn Örlygsson
’Hér er skyn-samlega að verki
staðið og ekki
annað hægt en
að hrósa for-
sætisráðherra,
Geir Haarde, og
hans fólki í rík-
isstjórninni fyrir
kjarkmikla og
myndarlega
ákvörðun. ‘
Höfundur er alþingismaður.