Morgunblaðið - 24.07.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 21
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn hefur
undanfarin fjögur ár, í samvinnu við
fjölmarga aðila úr öllum áttum, unnið
ötullega að landnámi skáklistarinnar á
Grænlandi. Jafnframt vinnur Hrók-
urinn að auknum samskiptum grann-
þjóðanna á sem flestum sviðum.
Þegar Hrókurinn nam fyrst land á
Grænlandi, vorið 2003, var skák að
heita má óþekkt meðal Grænlendinga.
Vísi að skákklúbbum mátti finna í örfá-
um þorpum en enga skipulagða starf-
semi. Skáksamband var ekki til á
Grænlandi og þar hafði aldrei verið
haldið skákmót.
Hrókurinn efndi til mjög veglegrar
skákhátíðar í Qaqortoq, höfuðstað Suð-
ur-Grænlands, sumarið 2003. Um 70
manna sendinefnd kom frá Íslandi,
skipuð stórmeisturum frá mörgum
löndum, íslenskum áhugamönnum,
skólafólki, fulltrúum fyrirtækja og fjöl-
miðla, auk einstaklinga úr öllum áttum.
Hátíðin í Qaqortoq 2003 heppnaðist
stórvel. Haldin voru námskeið í aðdrag-
anda mótsins, nokkur smærri þorp
heimsótt, og fjöldi Grænlendinga tók
þátt í mótinu. Enski stórmeistarinn
Luke McShane fór með glæsilegan sig-
ur af hólmi og ritaði þannig nafn sitt í
sögubækur, sem sigurvegari á fyrsta
skákmótinu í sögu Grænlands. Af öðr-
um keppendum má nefna þingforseta
Íslands og Grænlands, Halldór Blöndal
og Jonatan Motzfeldt, Friðrik Ólafsson
stórmeistara, Guðfríði Lilju Grét-
arsdóttur, forseta Skáksambands Ís-
lands. Í stórmeistaraliði Hróksins voru
að auki Ivan Sokolov, Predrag Nikolic,
Tomas Oral, Regína Pokorna og Nick
de Firmian.
Í mótslok var, að frumkvæði Hróks-
ins, stofnað Skáksamband Grænlands
og var Steffen Lynge kjörinn fyrsti for-
seti sambandsins. Hrókurinn og Edda
útgáfa færðu hinu nýja skáksambandi
mjög veglega gjöf af þessu tilefni, m.a.
þau 25 eðalskáksett sem notuð voru á
mótinu, skákklukkur og nokkur hundr-
uð taflsett til gjafa í skólum og til nýrra
skákfélaga.
Hátíðin 2003 var haldin með mynd-
arlegum stuðningi Flugfélags Íslands,
ríkisstjórnar Íslands, Eddu útgáfu,
prentsmiðjunnar Odda og fleiri aðila.
Framkvæmdastjóri og þúsundþjala-
smiður hátíðarinnar var Benedikta
Thorsteinsson, fv. ráðherra á Græn-
landi, sem manna mest hefur unnið að
auknum samskiptum Grænlands og Ís-
lands á liðnum árum.
Austur-Grænlendingar:
Næstu nágrannar Íslendinga
Árangurinn af landnámsferðunum til
Suður-Grænlands 2003 lofaði vissulega
góðu og því var ákveðið að halda áfram.
Árið 2004 lá leiðin til Austur-Græn-
lands, en þar búa næstu nágrannar Ís-
lendinga.
Efnt var til veglegrar hátíðar í Tasiil-
aq, stærsta bæ Austur-Grænlands. Í
föruneyti Hróksins voru sem fyrr
fulltrúar úr öllum áttum: Listamenn,
fréttamenn, stjórnmálamenn og skóla-
fólk, auk skákmeistara og umsjón-
armanna. Börn úr Hróknum reyndust
frábærir sendiherrar og löðuðu græn-
lenska jafnaldra að skákborðinu. Tugir
Grænlendinga tóku þátt í mótinu, II.
Alþjóðlega Grænlandsmótinu 2004. Sig-
urvegari varð Jóhann Hjartarson stór-
meistari.
Ferðin til Grænlands 2004 var sann-
kallað ævintýri og ákveðið var að ein-
beita kröftunum á næstu árum að starfi
á Austur-Grænlandi. Það er rökrétt
ákvörðun, ekki bara vegna þess að
Austur-Grænlendingar eru okkar
næstu grannar heldur vegna þess að
þar um slóðir er félagslegt ástand einna
verst á Grænlandi.
Á síðustu tveimur árum hefur starfið
orðið sífellt markvissara og fleiri og
fleiri leggja hönd á plóg. Árið 2005 var
III. Alþjóðlega Grænlandsmótið haldið í
Tasiilaq og lauk með yfirburðasigri Ró-
berts Harðarsonar skákmeistara. Skák-
skóli Hróksins, undir stjórn Henriks
Danielsen stórmeistara, laðaði til sín
tugi barna og í hátíðarlok var stofnað
Skákfélag Tasiilaq. Tugir barna og full-
orðinna tóku þátt í stofnun félagsins,
sem síðan hefur starfað af krafti. Auk
alþjóðlega skákmótsins var
efnt til margra viðburða, allt
frá listsýningum til knatt-
spyrnuleikja. Þá voru smá-
þorp í nágrenni Tasiilaq
heimsótt og fræjum skák-
listarinnar sáð.
Auk Hróksins tóku Kalak
– vinafélag Íslands og
Grænlands, Barnaheill á Ís-
landi og Rauði krossinn þátt
í skipulagningu og fram-
kvæmd mótsins. Sem fyrr
voru íslensk börn í fram-
varðasveit hátíðarinnar og
stóðu sig frábærlega.
560 grænlensk börn
fá taflsett að gjöf
Segja má að útbreiðslu-
starfið á Grænlandi hafi náð
nýjum hæðum í desember
2005, þegar sex manna sveit
fór í vikuleiðangur um fimm
þorp á Austur-Grænlandi.
Megintilgangur ferðarinnar
var að færa öllum grunn-
skólabörnum, 8 til 12 ára,
taflsett að gjöf. Alls fengu
560 börn kærkomna gjöf,
mörg hundruð hlutu tilsögn
í skáklistinni og á annað
hundrað börn tóku þátt í
meistaramóti grunnskólans
í Tasiilaq. Það er fjölmennasta mót sem
Hrókurinn hefur efnt til á Grænlandi og
sýnir vel áhuga barnanna og hve auð-
velt það er, með réttum aðferðum, að
kynna og útbreiða skáklistina.
Sem fyrr áttu Kalak, Barnaheill og
Rauði krossinn aðild að verkefninu og
leiðangursstjóri í hinni vel heppnuðu
desemberferð var Stefán Þór Herberts-
son, formaður Kalak. Flugfélag Íslands
stóð sem fyrr sem klettur með Hróks-
mönnum, en fjölmörg fyrirtæki, félög
og einstaklingar lögðu sitt af mörkum.
Þar má nefna Bónus, Lionshreyfinguna,
Glitni, Íslenskt grænmeti, Pennann o.fl.
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar
Grímsson, kvaddi leiðangursmenn á
Reykjarvíkurflugvelli og þv. forsætis-
ráðherra, Halldór Ásgrímsson, tók á
móti þeim viku síðar.
Í mars 2006 héldu þeir Stefán Þór
Herbertsson og Róbert Harðarson í 10
daga ferð um Austur-Grænland og
efndu til námskeiða og skákmóta í fimm
þorpum. Þeir félagar ferðuðust með
bátum, vélsleðum, þyrlum og hunda-
sleðum til að komast milli þorpa, og má
segja að vart sé til sá farkostur sem
ekki hefur verið nýttur í þágu skákgyðj-
unnar.
IV. alþjóðlega Grænlandsmótið –
IV. FÍ mótið 2006
Framundan er IV. Alþjóðlega Græn-
landsmótið í Tasiilaq, 31. júlí til 7. ágúst
og þriðja hátíðin í Tasiilaq. Fimm þorp
verða heimsótt og verður Sigurður Pét-
ursson, sem hefur viðurnefnið Ísmað-
urinn, verið fenginn til að annast flutn-
ing leiðangursmanna á báti sínum.
Sigurður hefur á liðnum árum verið
ómissandi hjálparhella Hróksmanna á
Austur-Grænlandi, en hann býr í smá-
þorpinu Kuummiit og er löggiltur veiði-
maður á grænlenska vísu.
Hátíðin í Tasiilaq 2006 markar viss
þáttaskil í starfi Hróksins á Grænlandi.
Þetta er þriðja árið sem leiðin liggur til
Austur-Grænlands og árangurinn af
starfinu er byrjaður að koma í ljós.
Hundruð barna hafa fengið tilsögn í
skáklistinni og taflsett að gjöf, auk þess
sem búið er að virkja fjölmarga hinna
fullorðnu – skólafólk,
sveitarstjórnarmenn
og fleiri. Efnilegir
skákmenn eru komnir
fram á sjónarsviðið
meðal ungu kynslóð-
arinnar á Grænlandi,
auk þess sem heil kyn-
slóð hefur fengið að
kynnast töfraheimi
skáklistarinnar.
Hundruð Íslendinga úr
öllum áttum og á öllum
aldri, auk skákmeist-
ara frá mörgum lönd-
um, hafa kynnst
undraveröld Græn-
lands og bundist órjúf-
andi vináttuböndum
við land og þjóð.
Ísland og Græn-
land: vinir í norðri
Fjölmörg rök hníga
að auknum sam-
skiptum Íslendinga og
Grænlendinga. Engin
þjóð stendur okkur
nær, í bókstaflegum
skilningi, en samt höf-
um við sýnt nágrönn-
um okkur furðulegt
tómlæti. Hagsmunir
þjóðanna fara saman í
ótal málum, en hingað til hefur einkum
verið unnið að samvinnu á pólitískum
forsendum. Hrókurinn er þeirrar skoð-
unar að efla beri samskipti á öllum svið-
um – allt frá menningu til viðskipta – en
með sérstakri áherslu á ungu kynslóð-
ina í löndunum tveimur. Þannig er best
lagður varanlegur grundvöllur að sam-
vinnu, skilningi og vináttu þjóðanna.
Saga landanna í norðri er um margt
samofin, allt frá því að Íslendingar urðu
fyrstir manna til að nema land á Græn-
landi kringum árið 1000. Það er
skemmtileg staðreynd að í hinum fjöl-
mörgu norrænu bæjarrústum á Græn-
landi hafa víða fundist fornir taflmenn,
svo segja má að Hrókurinn sé að taka
upp þráðinn eftir 500 ára hlé á tafl-
mennsku á Grænlandi.
Við erum ein
fjölskylda
Með starfinu á Grænlandi er Hrók-
urinn að vinna eftir einkunnarorðum fé-
lagsins og FIDE, alþjóðaskák-
sambandsins: Við erum ein fjölskylda.
Skáklistin er alþjóðlegt tungumál sem
allir geta tileinkað sér, burtséð frá aldri
eða kyni, þjóðerni eða þroskastigi.
Rannsóknir sýna að skákkunnátta hef-
ur mjög jákvæð áhrif á námsárangur
barna og er til þess fallin að efla með
þeim einbeitingu og sköpunargáfu –
auk þess að vera skemmtileg. Skákin er
því vel til þess fallin að byggja brú milli
nágrannaþjóðanna, enda hafa Græn-
lendingar tekið skákinni tveim höndum.
Það er þeim mun ánægjulegra að
geta látið gott af sér leiða á Grænlandi,
að þar er ástand um margt slæmt, eink-
um í málefnum ungmenna. Nágrannar
okkar glíma við félagsleg vandamál af
stærðargráðu sem er okkur Íslend-
ingum framandi. Það er beinlínis skylda
okkar, sem nágranna og ábyrgrar þjóð-
ar, að rétta hjálparhönd og leggja okk-
ar af mörkum til að bæta mannlífið og
stuðla þannig að bjartari framtíð á
Grænlandi.
Skákgyðjan nemur
land á Grænlandi
Eftir Hrafn Jökulsson
’Rannsóknir sýnaað skákkunnátta
hefur mjög jákvæð
áhrif á náms-
árangur barna og
er til þess fallin að
efla með þeim ein-
beitingu og sköp-
unargáfu – auk
þess að vera
skemmtileg.‘
Hrafn Jökulsson
Höfundur er liðsmaður Hróksins og
áhugamaður um aukin samskipti Græn-
lendinga og Íslendinga.
Morgunblaðið/Ómar
Henrik Danielsen skólastjóri skákskólans kenndi börnum í Tasiilaq skáklistina.
amót, EFSA-mót. Slík mót
fá sem flestar tegundir af
i sem flest kíló,“ bætti hann
i enn inn vænum þorski.
ð flestar tegundir í gær,
u, ufsa, keilu, karfa og stein-
ar munaði um keiluna. Í
g kola, en klikkaði á rauð-
marhnútnum, eins og þú
kki hvort átta tegundir
þurft að ná löngu eða skötu-
gi og skar niður síld í beitu
ð tegundametið væri í Vest-
11 tegundir.
sjá til þín, Þiðrik, notarðu
eða sporðana í beitu?“ spurði
honum varð litið yfir til félaga
að er nammidagur í dag,
ækninn,“ var svarað um hæl.
mig, Magga mín!
ur út á að veiða flest kíló,
star tegundir, þyngstu fiska í
en síðan er sveitakeppni með
klingum karla og kvenna, þar
a bestu ræður úrslitum.
færa mig út í kantinn,“ kall-
num fannst þetta vera orðið
gt hjá veiðimönnunum og
á Augabrúnina. Bleyða á
rots og Ólsarabrots en Örvar
ringu á nafngiftinni. Hann er
palinn fyrir vestan og hefur
fsvík nægilega lengi til að
n í sjó eða á landi upp á sína
og innfæddur.
kýringu á skemmtilegri nafn-
irði,“ sagði Þiðrik. „Hér á ár-
til nafnið Möggubleyða í höf-
handfærakarli sem fiskaði
m blett eða skulum við segja í
unni hans. Annað sem var
nn var, að talstöðv-
við Sigló var þarna einna
best. Hann notaði því tækifærið að fá sím-
tal heim við konuna sína, hana Möggu. Oft
voru þau ósammála og þá heyrðist yfir í
næstu báta, oft og iðulega: „Magga, mín.
Hlustaðu nú á mig, Magga, mín!“
Félagarnir sögðu brandara og nörtuðu í
nestið sem mótstjórinn, hann Sigurður
Arnfjörð, bjó mannskapinn út með og senn
voru færin komin í sjóinn aftur með let-
ingjum eða Júdasi, hvað sem menn vilja
kalla það þegar veiðimaður setur krók á
enda niður fyrir sökkuna. Hér var engu
minna tilstand í veiðiskapnum en í laxveiði-
ánum. Skammt austan við okkur var bát-
urinn með Hollendingana en vestan við
okkur kom bátur á fleygiferð og reyndist
það Friðrik Bergmann SF með toppfisk-
arana í mótinu frá fyrsta degi, þá Jón Sæv-
ar Sigurðsson og Þorstein Jóhannesson,
báðir félagar í Sjósigl. Þá voru með þeim
Kristín Þorgeirsdóttir, Sjósigl, næstefsta
konan og Guðni Gíslason, Sjósnæ, ritstjóri
úr Hafnarfirði, sem náð hafði stærsta
skötuselnum.
Selt á markaði
Klukkan var komin fram yfir hádegi en
klukkan tvö skyldu menn draga inn og
hætta keppni. Áður áttu bátarnir að vera
komnir inn fyrir hafnargarð fyrir klukkan
tvö en því var svo breytt þar sem gang-
hraði báta var misjafn og skapaði óréttláta
mismunun á milli veiðimanna.
Stefnan var tekin í land þar sem flókin
vigtarvinna og skráning beið mótshaldara.
Fiskurinn sem veiddur er í dagakerfinu
gamla er síðan seldur hjá fiskmarkaði stað-
arins og nýtist ágóðinn fyrir mótshaldið því
reynt er að halda þátttökugjöldum í lág-
marki á keppendurna sjálfa. Lokahóf og
verðlaunaafhending beið svo hópsins inn í
Grundarfirði um kvöldið með tilheyrandi
húllumhæi því á Snæfellsnesi skipta þeir
mótinu niður á staðina eftir bestu getu.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
móts en þeir unnu allir til verðlauna. F.v. eru það Ari, sem fékk stærsta
a kolann, Þiðrik, sem var í sigursveitinni, og loks Örvar skipstjóri.
gan stal
num
ætin en mátti varla vera að því að líta upp er ljósmyndari sigldi hjá. Til
á Kristín Þorgeirsdóttir, sem varð önnur í kvennakeppninni, þá Jón
hannesson, sem varð annar. Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir, sem landaði
gri er Helgi búinn að fá stærsta kolann, ánægður með árangurinn.