Morgunblaðið - 24.07.2006, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.07.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 23 UMRÆÐAN -o rð sku lu stan d a! 569 7200 www.isprent.is Gæðin komin á prent Á MIÐJUM níunda áratugnum átti ég leið til Filippseyja. Á hót- elherbergi mínu kveikti ég gjarnan á sjónvarpinu og horfði af sérstakri forvitni á þarlendar sápuóperur, vegna þess hve enskuskotið málið var. Innan um óskiljanlegan orða- flaum komu stök orð og stundum heilar setningar á ensku – og oft var skondið að heyra hverju var slett og sagði það ýmislegt um þjóðarkarakterinn og þá ekki síður um bandarísk áhrif á íbúana. En það sem mér þótti framandi fyrir tuttugu árum ætti ekki að vera það lengur. Íslendingar eru farnir að blanda ensku inn í mál sitt í mun ríkari mæli en áður gerðist. Áður fyrr voru öll blótsyrði tengd trúnni, þ.e.a.s. helvíti og húsbónda þess, en nú er bölvað upp á ensku og ýmist vísað til úrgangsefna mannsins eða kynlífs. Þessa nýung er erfitt að þýða á það ylhýra og því er enskan notuð hrá. Nöfn fyr- irtækja eru hætt að vera íslensk, sömuleiðis bíómyndir og sjónvarps- þættir. Af hverju kallast Ædol og Baddselor þessum ónefnum – í landi þar sem nýyrðasmíð er vin- sæl iðja, raunar svolítil listgrein sem fjölmargir stunda? Hingað til hefur beygingakerfi íslenskunnar hindrað aðgang erlendra orða að henni og neytt menn til að finna upp nýyrði við hæfi, en nú er jafn- vel sú vörn að bresta. Almennt stefnir ástandið í álíka faraldur og dönskusletturnar voru fyrir tveim- ur öldum. Komin þörf á að hóa Fjölnismönnum saman á ný! Áhrifavaldinn má einkum finna í kvikmyndum og sjónvarpsefni. Það heyrir til undantekninga ef kvik- myndir frá öðrum löndum en Bandaríkjunum eru teknar til al- mennra sýninga í kvikmynda- húsum hér, og mikill meirihluti sjónvarpsefnis kemur úr sömu átt. Það eru einmitt sjónvarpsstöðv- arnar sem hafa verið virkastar í þessari óumbeðnu enskukennslu. Sterkasti fjölmiðill- inn bregður oftar fyrir sig amerísk- unni en öðrum tungumálum, og þá er íslenskan ekki undanskilin. Það er meira kanasjónvarp á Íslandi nú en á dögum sjálfs kana- sjónvarpsins. Í Bandaríkjunum er kvikmyndagerð iðn- aður, raunar stór- iðja, og afþreying- arefni er framleitt þar af meiri fagmennsku en annars staðar. Sölutölur ráða öllu. Efnið er gott ef áhorfið er mikið. Frum- leiki er ekkert keppikefli. Metn- aðurinn liggur allur í vinsældunum. Kerfið í heild er magnað og hefur náð heimsyfirráðum. Innan um finnast svo óumdeilanleg listaverk, kvikmyndir sem eru með þeim merkustu í heiminum. Þar með er ekki sagt að ekki eigi að sýna neitt annað Þeir sem dreifa bíómyndum hér sýna evrópskri kvikmyndagerð meira áhugaleysi en hægt er að meðtaka. Ég trúi því einfaldlega ekki að áhorfendur fáist ekki til að sjá eina og eina franska, spænska eða þýska mynd, að ég tali nú ekki um gæðamyndir frá Norðurlönd- unum. Bíógestir flykkjast að þegar haldnar eru hér kvikmyndahátíðir. Lifir sá áhugi bara í hálfan mánuð í senn? Vel má vera að ágóðinn af slíkum sýningum sé minni en af hasarmynd með Tom Cruise. En kvikmyndadreifing er menningar- starf og því fylgja ákveðnar skyld- ur við neytendurna. Það á ekki að þurfa að lögfesta þær skyldur í formi kvótakerfis. En kannski þess fari að þurfa hér? Menning- arkvóta ber oftar á góma þegar rætt er um sjónvarp. Um alla Evr- ópu fá sjónvarpsstöðvar leyfi til útsendinga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þau skilyrði geta varðað framleiðslu á innlendu efni, bæði magn og gæði. Þá næg- ir ekki að telja saman innlenda dagskrá í mín- útum, heldur þarf ákveðinn hluti hennar að vera vandað leikið efni eða heimild- armyndir sem mikið er lagt í. Stundum eru einfaldlega sett mörk á það ameríska efni sem stöðv- unum leyfist að senda út. – Reynd- ar er viljinn til þess greinilega fyr- ir hendi hjá löggjafa vorum. Í útvarpslögum segir: „Sjónvarps- stöðvar skulu kosta kapps um að meiri hluta útsendingartíma sé varið í íslenskt dagskrárefni og annað dagskrárefni frá Evrópu.“ Sjónvarpsrásir eru gæði sem meta má til fjár. Hérlendis hefur gilt sú regla um auðlindir að þær eru gefnar þeim sem fyrstir nýta þær. Í sjávarútvegi hefur þetta fyr- irkomulag sætt nokkurri gagnrýni, og nú er rétt að endurskoða það hvað varðar öldur ljósvakans. Víða í Evrópu er innheimt hátt leyf- isgjald af þeim sjónvarpsstöðvum sem fá að nota rásirnar. Hér í fá- menninu ættum við þó að fara aðra leið. Í stað auðlindagjalds ættum við að gera þá kröfu á hendur sjón- varpsstöðvunum að þær sinni inn- lendri dagskrá svo sómi sé að. Fyrirtæki sem fá útsendingarleyfi frá Útvarpsréttarnefnd eignast ekki rásirnar. Leyfin eru veitt til ákveðins tíma, 5 ára fyrir hljóðvarp og 7 ára fyrir sjónvarp. Það þarf ekki miklu að breyta í Útvarps- lögum til að koma á skilyrðum um innlenda dagskrá. E.t.v. nægir lítil reglugerð. Hugmyndin er einföld: Til að fá að sjónvarpa á Íslandi þarf að sýna innlent efni að ein- hverju marki og kosta til þess ákveðnum fjármunum. Umræðan um fjölmiðlalög hefur einkum verið um eignarhald á fjöl- miðlum. Er ekki kominn tími til að víkka þessa umræðu aðeins og skoða innihaldið um stund, velta því fyrir sér hvort sjónvarps- stöðvar geti stuðlað að bættri ís- lenskri menningu í stað þess að vera helsti skaðvaldur íslenskrar tungu? Enskan í íslenskunni Ágúst Guðmundsson fjallar um dagskrárgerð, íslenska menningu og málvernd ’Er ekki kominn tími tilað víkka þessa umræðu aðeins og skoða innihaldið um stund...‘ Ágúst Guðmundsson Höfundur er forseti Bandalags íslenskra listamanna. FJÓRIR ráðlitlir ráðherrar komu saman í lok júní til að finna út hvað þeir gætu gert til að draga úr efna- hagsþenslunni sem ríkisstjórnin sjálf er þó ábyrg fyrir með mistökum á mistök of- an. Þegar allt virtist komið í óefni, við- skiptahallinn stefndi í heimsmet, krónan orð- in eins og korktappi í iðusvelg sem skoppar upp og niður, og verð- bólgan komin á hættu- stig, þá loks fundu ráðherrarnir fjórir þjóðráð til að bjarga efnahagsmál- unum. Íslandsmet hjá ríkisstjórninni Þjóðráðið fólst í að skera niður framkvæmdir í vegamálum á landsbyggðinni. Allar fyrirhugaðar framkvæmdir sem ekki voru komnar í útboð voru frystar, eða skornar niður úr samþykktum tímaáætlunum. Efnahagsvanda þjóðarinnar var þar með borgið að þeirra áliti. Sérstakur blaðamanna- fundur var boðaður til að kunn- gera hinar miklu efnahagsaðgerðir sem áttu öllu að bjarga. Galdra- lausnin var fundin. En hverjar voru þessar framkvæmdir? Það reyndist óljóst í meira lagi. Þegar Geir H. Haarde forsætis- ráðherra var spurður um þær í fjölmiðlum kom í ljós að sjálfur forsætisráðherrann þekkti þær ekki: „Við erum ekki með sér- stakan lista yfir þær en þetta er almenn aðgerð að því leyti til að allt sem ekki hefur verið boðið út lendir í frestun.“ Fumið og fálmið í viðbrögðum ríkisstjórnarinnar er slíkt að sjálfur forsætisráðherrann gat ekki upplýst, hvaða veg- arspottar ættu að bjarga hags- tjórninni. Í fréttum kom líka fram, að ríkisstjórnin vissi ekki heldur hversu háum upphæðum nið- urskurður í vegamálum átti að nema. Það hlýtur að vera Íslands- met þegar ríkisstjórn tilkynnir efnahagsaðgerðir án þess að vita sjálf í hverju þær felast eða hvað þær kosta. Ráðist gegn landsbyggðinni Fulltrúar Samfylk- ingarinnar kröfðust því fundar í sam- göngunefnd Alþingis til að fá upplýsingar frá Vegagerðinni um hve mikill, og hvar, niðurskurður á vega- framkvæmdum yrði. Þær upplýsingar reyndust fróðleg- ar fyrir íbúa þeirra kjördæma sem liggja fjærst höfuðborginni. Vega- gerðin upplýsti að heildar nið- urskurður á þessu ári til vega- framkvæmda ætti að vera samtals 1.300 milljónir króna. Þar af átti að skera niður vegi um sitt hvorar 100 milljónirnar í Suður- og Suð- vesturkjördæminu. Afganginn – 1,1 milljarður – á að skera samtals í Norðvestur- og Norðaust- urkjördæmunum. Þetta eru kaldar kveðjur til Vestlendinga, Vestfirð- inga, Norðlendinga og Austfirð- inga. Framkvæmdirnar sem rík- isstjórnin kaus að ráðast gegn í norðurkjördæmunum tveimur eru allt brýnar framkvæmdir sem ekki þola bið. Einu gildir hvort horft er til nýrra vega, sem stjórnvöld hafa löngu lofað að byggja í staðinn fyr- ir 60 ára gamla niðurgrafna vegi sem lokast í fyrstu snjóum, eða löngu tímabærar vegaframkvæmda sem munu stytta vegalengdina milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um 40 km. Menn, sem ekki þora að ráðast á gegndarlausa útþenslu á rekstri ríkisins eftir áratugastjórn- un Sjálfstæðisflokksins á ríkisfjár- málum, sjá þá galdralausn eina, að skera niður vegarspotta á lands- byggðinni. Þannig á að kveða nið- ur verðbólgudrauginn sem þeir mögnuðu sjálfir upp. Hvílík enda- leysa! Rigningin í Reykjavík Niðurskurðurinn á landsbyggð- inni átti að sögn ráðherranna að minnka þenslu, og fjötra verðbólg- una sem nú fer eins og eldur um hagkerfi heimilanna. En hver var dómur Seðlabankans? Hann gaf aðgerðum ríkisstjórnarinnar fall- einkunn og greip til harkalegrar vaxtahækkunar í kjölfarið. Krónan hélt áfram að falla, enda hefur að- gerðin engu skilað að mati inn- lendra og erlenda greining- ardeilda. Þessi ónýta efnahagsaðgerð hafði því þau áhrif ein að gera landsbyggðinni enn erfiðara en áður að þrauka af sér hagstjórnarmistök ríkisstjórn- arinnar Í fréttum kom fram að óvenju mikið hefði rignt í Reykjavík, eða allt að 25 daga í júní. Votviðrið leiddi til þess að sumarútsölur byrjuðu fyrr en ella. Júlímæling Hagstofunnar leiddi í ljós að sum- arútsölurnar lækkuðu verð á fötum og skóm um 9,6%, og lækkuðu samtals vísitölu verðlags um 0,46%. Samkvæmt júlímælingu Hagstofunnar hafði rigningin í Reykjavík meiri áhrif – og mun já- kvæðari – á þróun verðlags en að- gerðir ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Það segir sína sögu um gagnsemi aðgerðanna. Lækkun bensíngjalds Það er svo athyglisvert að á sama tíma hækkaði verð á bensíni og olíu um 3,5%, sem leiddi til hækkunar vísitölunnar um 0,24%. Fjármálaráðuneytið áætlar að vegna hækkunar á olíuverði í heiminum muni tekjur ríkissjóðs stóraukast, t.d. hefur komið fram að ríkissjóður er að fá um 1500 mkr. meira í kassann en áætlað var í fjárlögum þessa árs – bara af dísilolíugjaldinu einu. Er það sanngjarnt gagnvart neytendum, að hækkun á heims- markaði langt umfram spár verði til þess að skattar og gjöld á neysluvöru eins og olíu og bensín leiði til mikillar tekjuaukningar ríkissjóðs? Ríkisstjórnin hefur sjálf sagt, að þjóðin sé ekki stödd á verðbólgu- skeiði, heldur sé verðbólguskot að ganga yfir. Um það má að vísu deila. Hitt er ljóst, að sé eingöngu um skot að ræða, þá hefði verið fyllilega verjanlegt að lækka álög- ur ríkissjóðs á bensín og olíur tímabundið, eða sem nemur auka- gróða ríkisstjórnarinnar af hækk- uninni. Þannig hefði mátt draga úr áhrifum verðbólguskotsins. Þetta lögðu þingmenn Samfylking- arinnar til fyrir þingfrestun í vor. Við því skellti ríkisstjórnin skolla- eyrum – enda fylgir hún kreddu frjálshyggjunnar um aðgerðarleysi í efnahagsmálum. Henni hefði ver- ið nær að fylgja tillögu Samfylk- ingarinnar um að lækka skatta sína af bensíni og olíu tímabundið, fremur en skera niður vegarspotta á landsbyggðinni. Það er einfald- lega löngu úrelt, og áhrifalítil að- gerð í stríðinu gegn verðbólgu. Það gera þeir einir, sem lítið geta, ekkert skilja – og engu þora. Kaldar kveðjur til landsbyggðarinnar Kristján L. Möller andmælir niðurskurði framkvæmda í vegamálum á landsbyggðinni ’Menn, sem ekki þoraað ráðast á gegndarlausa útþenslu á rekstri ríkisins eftir áratugastjórnun Sjálfstæðisflokksins á ríkisfjármálum, sjá þá galdralausn eina, að skera niður vegarspotta á landsbyggðinni. ‘ Kristján L. Möller Höfundur er þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.