Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 35
Fræ er samstarfsverkefni Páls
Ragnars Pálssonar sem var í sveit-
inni Maus, og meðlima sveitarinnar
Skytturnar,
Heimis Björns-
sonar og Sigurðar
Kristins Sig-
tryggssonar.
Platan Eyði-
leggðu þig smá
hefst á stuttu inn-
gangslagi sem jafnframt er titillag,
en annað lagið, „Ekki hleypa draug-
unum inn“, er mjög áhrifaríkt. Þar fá
báðar aðalraddir plötunnar að njóta
sín vel, bæði saman og í sitt hvoru
lagi. Söngkonan Silla stendur sig
sérstaklega vel í þessu lagi, og hér er
tvímælalaust komin söngkona sem
ber að hafa auga með í framtíðinni.
Hún er þó aðeins mistæk í þeim lög-
um sem hún syngur á þessari plötu,
og e.t.v. er hún enn að finna sér þann
ramma sem hentar henni best. Í lag-
inu „Tilgangurinn“ er hún til dæmis
bara nokkuð góð, á meðan á öðrum
stöðum fær maður gæsahúð um leið
og hún byrjar að syngja. Persónu-
lega finnst mér henni takast best upp
í laginu „Dramatísk rómantík“ en
þar er hennar framlag til lagsins það
sem hreinlega „gerir lagið“.
Söngur og raddir eru almennt
prýðilegar á plötunni allri, en þó
finnst mér söngur söngkonunnar
Önnu Katrínar ekki standast fylli-
lega samanburð við söng Sillu. Betra
hefði e.t.v. verið að fá Sillu til að
syngja allar kvenraddir á plötunni,
og það hefði skilað sér í áferð-
arfallegri grip. Í laginu „Húsið“ er til
dæmis viðlagið ekki að komast á eins
mikið flug og möguleiki væri á, og
þar er m.a. söngnum ábótavant.
Gítarspil er áberandi heilsteypt í
gegnum alla plötuna, bæði þeir gít-
arar sem eru í aðalhlutverkum og
bera uppi lög, og svo þeir sem ætl-
aðir eru til skreytinga og eru því
minna áberandi. Við síendurtekna
hlustun í heyrnartólum fer maður að
taka eftir hinum og þessum gít-
arlínum sem eru vel faldar í mixinu
og gera heilmikið fyrir tónlistina, og
þetta finnst mér koma einkar
skemmtilega út, því fyrir vikið vinn-
ur platan aðeins á.
Lögin eru því vel spiluð, vel unnin
og ágætlega samin, en sums staðar
eru textar fulleinhæfir og eldast
hreint ekki vel. Sumir þeirra eru þó
meira í líkingu við ljóð en popptexta,
og formið því frjálsara, en samt er of
mikið verið að tala um sömu hluti og
orð eins og opna og loka, og inn og út
eru töluvert áberandi.
Lagasmíðarnar sem slíkar eru fín-
ar, og sumar hverjar framúrskarandi
(eins og fyrrnefnt „Dramatísk róm-
antík“), en þó vantar herslumuninn í
einhverjum þeirra. Við margar
hlustanir fær maður á tilfinninguna
að sum lög séu meira til uppfyllingar
en önnur, og því verður platan aldrei
frábær, heldur bara nokkuð góð, og
með nokkrum frábærum lögum. Fræ
er því ekki að senda frá sér hinn full-
komna geisladisk hér, en bandið er
líka ungt og á framtíðina fyrir sér.
Sem fyrsta verk er sveitin svo sann-
arlega að vekja verðskuldaða eft-
irtekt og heilmikið er spunnið í það
efni sem vel hefur til tekist.
Framhaldið hlýtur að vera undir
því komið hvernig Fræ vinnur úr sín-
um málum. Það þarf að vanda texta-
gerðina og hlutur söngkonunnar
Sillu ætti jafnframt að vera miklu
stærri, en þar er mikil söngkona á
ferð. Sá sem kemur líklega best út úr
þessari plötu er Palli gítarleikari, en
hann hefur augsýnilega legið yfir
sinni vinnu og má una glaður við sitt.
Í hlutarins eðli liggur að Fræ er
eitthvað sem á eftir að springa út og
verða að blómi og vona ég að sá vöxt-
ur sé um það bil að hefjast hjá hljóm-
sveitinni.
Fræ sem verður að blómi
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur Fræ, sem heitir Eyðileggðu
þig smá. 10 lög, heildartími 37.39 mín-
útur. Fræ eru: Heimir, raddir og textar,
Palli, gítar, bassi, syntar, píanó, strengja-
útsetningar, Sadjei, sömpl, forritun, upp-
tökur, Silla, söngur. Anna Katrín Guð-
brandsdóttir syngur í „Húsið“ og
„Endirinn“. Ragnar Kjartansson syngur í
„Freðinn fáviti“. Strengjakvintett í „Til-
gangurinn“ og „Tónlist svo þú lifir“: Gróa
Margrét Valdimarsdóttir, fiðla, Geir-
þrúður Ása Guðjónsdóttir, fiðla, Auður
Agla Óladóttir, víóla, Þorbjörg Daphne
Hall, selló, Ernir Óskar Pálsson, selló.
Kór úr Ártúnsskóla syngur í „Hlauptu af
stað“
Upptökur fóru fram á ýmsum stöðum:
Tíma, hjá Gísla Galdri og Steintryggi í
Klink og Bank, Stúdíó Mokkasía, heima
hjá Sigga, Palla og Önnu Katrínu á tíma-
bilinu maí til október 2005. Masterað í
Heita pottinum af Styrmi Haukssyni.
„Húsið“ og „Að eilífu ég lofa“ innihalda
hljóðbút úr laginu „Raindrops“ eftir Jó-
hann Helgason, notað með leyfi höf-
undar. Hönnun og umbrot: Kjartan Sig-
tryggsson. Útgefandi ælovjú 2006,
dreifing 12 tónar.
Fræ – Eyðileggðu þig smá
Morgunblaðið/Ómar
Fræ er skipuð tónlistarmönnum með ólíkan bakgrunn.
Heiða Eiríksdóttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 35
-bara lúxus
Sýnd kl. 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára Sýnd kl. 4 og 6Sýnd kl. 10 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 ENSKT TAL
Sýnd kl. 4, 6 og 8 ÍSLENSKT TAL
-bara lúxus
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
Þau ætla að ná
aftur hverfinu...
...einn bita
í einu!
Sími - 551 9000
Ultraviolet kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 12 ára
The Benchwarmers kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Adam
Sandler,
Kate
Beckinsale og
Christopher
Walken í
fyndnustu
gamanmynd
ársins!
eee
L.I.B.Topp5.is
INNKÖLLUN
Stofnfjárbréfa
Stjórn SPV gerir kunnugt að hún hefur ákveðið að stofnfjárbréf í
sparisjóðnum verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi
Verðbréfaskráningar Íslands hf. Rafræn skráning tekur gildi
mánudaginn 31. júlí 2006 kl. 9.00 árdegis.
Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu stofnfjárbréf í
sparisjóðnum í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II
í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr.
6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum vegna
tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum og reglugerð
nr. 397/2000, um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfa-
miðstöð.
Stofnfjárhlutir í SPV eru 3205 og eru allir gefnir út á pappírsformi.
Nafnverð hvers hlutar er 25.000 kr. og allir stofnfjárhlutir
eru í sama flokki. Stofnfjárbréfin ógildast er rafræn skráning
tekur gildi skv. framansögðu.
Við rafræna útgáfu stofnfjárbréfanna verður nafnverð þeirra
skráð með sama hætti og áður, þ.e. hver stofnfjárhlutur er
25.000 kr. að nafnverði.
Reykjavík, 24. júlí 2006.
F.h. stjórnar SPV,
Ragnar Z. Guðjónsson,
Sparisjóðsstjóri.
Verðlaunagripir og treyjur voru meðal þess sem inn-brotsþjófar höfðu á brott með sér í fyrrakvöld þeg-
ar þeir brutust inn á heimili foreldra knattspyrnumanns-
ins Wayne Rooney í Liverpool. Meðal þess sem tekið var
voru húfur sem leikmenn fá fyrir leiki fyrir enska lands-
liðið, leikmannstreyja frá heimsmeistaramótinu í Þýska-
landi í sumar og verðlaunagripur sem hann hlaut sem
besti ungi íþróttamaður ársins árið 2002, frá BBC,
breska ríkisútvarpinu.
Einnig höfðu þjófarnir á brott með sér skartgripi og
fleiri minjar um knattspyrnuferil leikmannsins. Þjóf-
arnir hafa ekki náðst en lögregla hefur beðið Breta um
að tilkynna um það ef þeim bjóðast gripir tengdir Roo-
ney á krám eða um vefsíður.
Fólk folk@mbl.is
Írski tónlistarmaðurinn Bob Gel-dof aflýsti tónleikum sem hann
ætlaði að halda á Ítalíu um
helgina, en Ítalir reyndust hafa
lítinn áhuga á að hlusta á Geldof.
Til stóð að hann héldi tónleika á
Arena Civica í Mílanó, sem tekur
um 12.000 manns, en aðeins 45
keyptu miða. Þá ætlaði Geldof að
halda tónleika í Róm í fyrrakvöld
en þeim var einnig aflýst þar sem
aðeins um 300 miðar seldust.
Talsmaður Geldofs sagði að
ákveðið hefði verið að aflýsa tón-
leikunum þar sem tilgangslaust
væri að halda slíka tónleika fyrir
færri en 400 manns. Boðað var að
Geldof myndi halda ókeypis tón-
leika á Ítalíu í september.
Geldof er kunnur fyrir baráttu
sína gegn fátækt í Afríku og hann
hefur skipulagt umfangsmikla
fjáröflunartónleika, svo sem Live
Aid-tónleikana árið 1985 og Live
8-tónleikana í fyrra. Á sínum
yngri árum söng Geldof með
hljómsveitinni Boomtown Rats,
sem m.a. sendi frá sér plötuna The
Fine Art of Surfacing, en þar er
að finna smellinn „I Don’t Like
Mondays“.
Fólk folk@mbl.is