Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 36
36 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sýndi bæði með íSlenSku og enSku tali KviKmyndir.is meSta ofurmenni heimS hefur Snúið aftur. ofurmögnuð Stórmynd og SúperSkemmtun fyrir alla. DIGITal Bíó SaMBÍÓIN KRINGlUNNI S.U.S. XFM 91,9 „...einhver besta afþreying sumarsins...“ Tommi kvikmyndir.is súperman er sannarlega kominn aftur. m.m.J. kvikmyndir.Com eeee superman returns skapar sér sess meðal bestu myndasögu-kvikmyndum sem gerðar hafa verið V.J.V. Topp5.is h.J. mbl. eee Vince Vaughn jennifer anisTon Sýndi bæði með íSlenSku og enSku tali þau ætla að ná aftur hverfinu... ....einn bita í einu ! þau ætla að ná aftur hverfinu... ....einn bita í einu ! SAmbíó AKUREYRI SAmbíó KEFLAVíK eeee v.J.v, Topp5.is Fersk, hugljúF og rómantísk þar sem stórstjörnurnar keanu reeves og sandra Bullock Fara á kostum.ekki missa aF þessari perlu. algjört augnakonFekt. SaMBÍÓIN KRINGlUNNI ER EINa over the hedge Ísl tal kl. 6 - 8 the break up kl. 10.10 superman kl. 6 - 9 over the hedge Ísl tal kl. 8 superman kl. 7 - 10 B.i. 10.á the omen kl. 10 B.i. 16.á superman kl. 5:30 - 8:40 - 10:30 B.i. 10.ára. over the hedge M/- ensku tal. kl. 6 - 8 - 10:10 the break up kl. 6 - 8:15 - 10:40 the lake house kl. 6 - 8:15 bílar M/- Ísl tal. kl. 5:50 cars M/- ensku tal. kl. 8:15 keeping mum kl. 10:30 B.i. 12.ára. eee L.I.B.Topp5.is eee L.I.B.Topp5.is S uperman er þekktasta ofurhetja sög- unnar. Kennimerki hans, rautt „S“ á gulum demantslaga grunni, er meðal þekktustu vörumerkja heims og nafnið, Superman, er samnefnari fyrir ofurhetjugeirann. Hann er sterkastur, hugrakkastur, drengilegastur og glæsileg- astur, hvernig sem á það er litið. Superman var einnig fyrsta ofurhetjan sem kom fram á sjón- arsviðið og þó að margt hafi breyst síðan þá hafa útgefendur hans séð til þess að ofurhetjan áalltaf samleið með samtímanum; og endur- skoða í því tilliti uppruna hans, krafta og per- sónuleika með reglulegu millibili. Gullöldin Gullöld ofurhetjunnar hófst með útgáfu fyrsta tölublaðs Action Comics árið 1938. Á for- síðunni má sjá mann í bláum búningi með rauða skikkju, yfir höfði sínu heldur hann á bíl og glæpamenn flýja af vettvangi í ofvæni. Þetta var í fyrsta skipti sem Superman kom fyrir sjónir almennings. Höfundar hans, þeir Jerry Siegel og Joe Shuster, höfðu þá leitað að útgef- anda í fjögur ár án árangurs enda var eft- irspurnin eftir sögum af þessu tagi lítil til að byrja með. Action Comics sló hins vegar í gegn að lokum og flóðgáttirnar opnuðust. Þeir sem hafa áhuga geta slegið inn slóðina í rammanum hér að neðan og lesið fyrsta tölublaðið af Action Comics. Ofurhetjur urðu í kjölfar Supermans að vinsælasta myndasöguefninu í Bandaríkj- unum og hafa haldið þeirri stöðu sinni þótt oft hafi vissulega harðnað á dalnum. Superman kemur frá plánetunni Krypton þar sem allir íbúarnir voru kröftum hlaðnir. Foreldrar hans ná að senda hann frá sér barn- ungan í geimflaug rétt áður en Krypton ferst í miklum hamförum og aðrir Kryptverjar farast. Geimflaugin lendir á akri í Bandaríkjunum þar sem góðhjörtuð, barnlaus hjón taka hann að sér og ala upp. Snemma fer að bera á miklum kröftum stráksins sem nefndur hefur verið Clark Kent en fjölskyldan ákveður að halda því leyndu fyrri umheiminum til að vekja ekki at- hygli misindismanna. Superman þróar hins vegar krafta sína og síðar þegar foreldrar hans falla frá fer hann til Metropolis til að berjast gegn glæpum samhliða því að starfa sem blaða- maður. Í upphafi voru kraftar Superman mun hófstilltari en þeir eru í dag. Hann gat reyndar lyft bílum, stöðvað lestar á fullu stími og stokk- ið nokkur hundruð metra en miðað við seinni tíma krafta mátti hann heita frekar máttlaus. Superman var á hinn bóginn töluvert harð- hentari í sinni upprunalegu mynd og lét bófana sem flestir voru þá ofurkraftalausir, finna fyrir því. Annað einkenni var að sögurnar stóðu oft- ast stakar og lítil framþróun var á milli tölu- blaða. Þegar lengra dró á söguna sáu höfundar Su- perman sig knúna til að breyta ýmsu í fari hans til að halda í lesendur sem kröfðust sífellt mergjaðri átaka. Til að byrja með var stöðugt meir áhersla lögð á baráttu Superman við hættur utan úr geimnum ásamt því að auka krafta hans allverulega. Einnig var æskuárum hans breytt og sögur af honum sem Superboy fóru að birtast. Gósentíð gullaldarinnar fór dvínandi eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk. Glæpa- og hryll- ingssögur náðu þá sterkari markaðshlutdeild sem fór mikið fyrir brjóstið á siðavöndum Bandaríkjamönnum. Glæpa-, hryllings- og of- urhetjusögur voru sagðar siðlausar og hættu- legar óhörðnuðum ungmennum. Í upphafi sjötta áratugarins voru svo sett lög um rit- skoðun sem settu umfjöllunarefni myndasagna miklar hömlur og dró það enn frekar úr áhuga lesenda. Silfuröldin Undir lok sjötta áratugarins fór hagur of- urhetjusagna hins vegar að vænkast að nýju og naut Superman góðs af því eins og aðrir. Nýjar áherslur í sögugerð og inn- reið höfunda og teiknara á borð við Stan Lee og Jack Kirby juku áhugann til muna auk þess sem margar af stærstu hetjum myndasagnanna litu þá fyrst dagsins ljós. Á sama tíma fóru höf- undar Superman og aðrir í ofur- hetjugeiranum virkilega að beita fyr- ir sig fantasíunni í skrifum sínum. Sömuleiðis þótti við hæfi að breyta sögunni afturvirkt og útskýra það sem áður hafði farið með (mynda- sögu)vísindalegum hætti. Kraftar Supermans voru nú sagðir komnir til vegna áhrifa hinnar gulu sólar okkar sólkerfis en á Krypton þar sem rauða sól var að finna var Superman ósköp eðlilegur. Einnig kom þar upp úr kafinu að Kent-hjónin voru ekki látin og að fjöldinn allur af Kryptverjum hafði sömuleiðis lifað hörmungarnar af. Eldri útgáfur sögunnar voru sagðar til komnar vegna áhrifa margra hliðarveruleika (e: paralell universes) þar sem allt gat gerst án þess að eiga sér raunverulegan stað á okkar jörð sem kallaðist nú einfaldlega „Jörð eitt“. Superman varð stöðugt öflugri sem jók möguleikana á stórbrotnum bardagalýs- ingum en hamlaði um leið sveigjanleika per- sónunnar. Hvað átti maður sem var nánast al- máttugur svo sem að óttast? Hann gat flogið á hraða ljóssins, lyft heilu stjörnukerfunum og þar fram eftir götunum. Að lokum sáu menn að stöðugt flóknara samhengi innan Superman- sagnanna var farið að gera lesendum gramt í geði og var þá ákveðið að endurskoða söguna í hinsta sinn í „Crisis on Infinite Earths“ þar sem allir hliðarraunveruleikarnir runnu saman í eitt og svo var byrjað upp á nýtt. urhetjum DC-útgáfuheimsins sem staðfesti sess hans í víðara samhengi og gerðu sögurnar margslungnari en áður. Þetta blómaskeið var þó skammvinnt. Sölu- tölurnar tóku aftur dýfu við upphaf 10. áratug- arins. Superman þótti afdankaður og óspenn- andi og tóku menn þá til óspilltara málanna og létu hann deyja í bardaga við hið ógurlega skrímsli Doomsday. Að sjálfsögðu vakti þetta mikla athygli og þegar hann var vakinn upp frá dauðum fáum árum síðar eins og við mátti bú- ast, virtust honum allir vegir færir. Nú er svo komið að Superman kemur fyrir í fjölmörgum blöðum í hverjum mánuði innan DC-útgaf- unnar og virðist halda sínu striki nokkuð vel. Nýlega tóku svo Grant Morrison og teikn- arinn Frank Quitely að segja sögu hans í All Star Superman þar sem þeir líta til silfurald- arsagna um Superman sér til innblásturs. Þeir leifa græskulausri fantasíunni og furðulegheit- unum að njóta sín á kostnað raunverulegri áherslna sem hafa verið móðins undanfarna tvo áratugi. Svo virðist því sem Superman sé aftur kominn á nýjan og betrumbættan upphafsreit. Svona rétt í lokin vil ég svo benda þeim á sem luma á eintaki af fyrsta tölublaði Action Comis að drífa sig til næsta myndasöguupp- boðshaldara og koma því í sölu. Samkvæmt nýjustu tölum fer slíkt blað í ágætis ásigkomu- lagi á 30–40 milljónir króna. Einungis 100 ein- tök af AC númer eitt eru í umferð í heiminum í dag. Blað í fullkomnu standi, þ.e.a.s. engar rif- ur, krumpur og blettir, er enn verðmætara. Slíkt blað hefur þó ekki fundist, enn sem komið er. Hin mörgu andlit Ofurmannsins Kvikmyndin Superman Returns sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum hefur endurvakið athygli margra á ofurhetjunni. Heimir Snorrason rekur flókna sögu Ofurmennisins sem spannar hátt í 70 ár Superman skimar yfir stórborgina af Chrys- lerbyggingu þeirra Metropolisbúa. Erfitt er að greina þrjótinn frá hetjunni á for- síðu síðasta tölublaðsins um Ofurmanninn. Og bíllinn er enn yfir hausamótum hans. ForsíðafyrstaSuperm-anblaðs-ins semkom úthjá Ac-tion Co-mics. Hér má finna fyrsta tölublað Action Comics: http://xroads.virginia.edu/~UG02/yeung/ actioncomics/cover.html heimirsnorrason@yahoo.com Nútíminn Til að hefja þetta nýjasta skeið í sögu Su- perman var hinn margreyndi höfundur John Byrne fenginn til verksins. Það var árið 1986 og hann hóf með því að segja söguna frá upp- hafi með frábærum árangri. Persónuleiki Su- perman var gerður skýrari og maneskjulegri og sögusviðið var einfaldað til muna til að gera lesendum kleift að halda þræðinum. Meiri áhersla var lögð á dagleg samskipti Clark Kent við fjölskyldu sína og vini og færðist sagan þá nær hinni nútímalegu ofurhetjusápuóperu sem m.a. hefur gert X-men og Spiderman jafn- vinsæla og raun ber vitni. Einnig tók hann stöðugt meiri þátt í ævintýrum með öðrum of-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.