Morgunblaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EÐ
A
LD
A
G
A
R
Laugavegur
VW Passat Highline 2,0 Turbo
skráður 11/05 ek. 7.000
verð 3.650.000 kr.
*M.v. SP-bílasamninga
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 20/21
Veður 8 Bréf 20
Staksteinar 8 Minningar 22/23
Vesturland 10 Leikhús 27
Viðskipti 10/11 Myndasögur 28
Úr verinu 11 Staðurstund 29/33
Erlent 12 Dagbók 29/33
Menning 13, 26/28 Bíó 30/33
Daglegt líf 14/17 Víkverji 32
Forystugrein 18 Ljósvakar 34
* * *
Innlent
Börn ungra mæðra eru líklegri
til að verða ofvirk, sem og fyr-
irburar og börn sem tekin eru með
keisaraskurði eða töngum. Benda
niðurstöður rannsókna til þess að
börn mæðra sem eru undir 20 ára
aldri við fæðingu barns séu 2,5
sinnum líklegri til að greinast með
ofvirkni en börn mæðra eldri en 20
ára. »1
Ný leið hefur opnast fyrir fíkni-
efnasmygl til landsins eftir að varn-
arliðið hætti að fylgjast með
óþekktum flugvélum í íslenskri loft-
helgi. Litlar flugvélar sem geta lent
á afskekktum stöðum með smygl-
varning sjást ekki á ratsjá flug-
málastjórnar. »36
Brotið er á réttindum blindra
nemenda í grunnskólum ef ekki
verður komið til móts við þessa
nemendur. Þjónusta við sjónskerta
á grunnskólaaldri er nær engin hér
á landi; blindrakennarar sárafáir og
ráðgjafarþjónustu fyrir almenna
kennara ábótavant. »4
Einn risaboranna á Kára-
hnjúkum sló í gegn á laugardag,
þegar hann boraði sig í gegnum síð-
asta berghaftið á leið sinni í að-
rennslisgöngum Kárahnjúkavirkj-
unar. Á tveimur árum hefur hann
borað um 15 km. Bormenn og aðrir
fögnuðu áfanganum að sjálfsögðu
vel og skáluðu í kampavíni eftir að
borinn braut síðasta haftið. » 18
Efasemdir eru uppi um að mark-
aður sé fyrir hvalkjöt ef Íslendingar
hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Al-
mennt virðist talsverð andstaða við
hvalveiðar, þótt eitthvað kunni að
hafa dregið úr henni, og þau viðhorf
geta haft áhrif á ferðamannaiðn-
aðinn hér á landi. »6
Erlent
Fimm ár eru liðin frá því að
hryðjuverkamenn rændu fjórum
farþegaþotum og flugu þremur
þeirra á turna World Trade Center
og byggingu varnarmálaráðuneyt-
isins í Washington. Alls létu um
3.000 manns lífið í árásunum. »1
Afganskir hermenn og hermenn
NATO felldu 94 uppreisnarmenn úr
röðum talíbana um helgina. Héraðs-
stjóri í austanverðu landinu var
felldur í sjálfsmorðsárás í gær og
hafa talíbanar þegar lýst ábyrgðinni
á hendur sér. » 12
Stjórnvöld á Sri Lanka segja
tugi uppreisnarmanna úr röðum
Tamíla-Tígra hafa verið fellda í
hörðum bardögum á Jaffnaskaga
um helgina. Talið er að 8.000
óbreyttir borgarar séu í sjálfheldu á
skaganum vegna átaka stjórnarliða
og Tígranna, sem kostað hafa meira
en 60.000 mannslíf síðustu áratugi.
»1
Viðskipti
Alls hafa 130 íslensk félög heim-
ild til að færa bókhald sitt í erlendri
mynt, og hefur þeim fjölgað um 29
frá árinu 2004. Fyrirtækin þurfa að
vera með meginstarfsemi sína er-
lendis, vera hluti erlendrar sam-
stæðu eða eiga erlent dótturfélag
sem það hefur meginviðskipti við til
að fá að færa bókhald í erlendri
mynt. »10
AFGREIÐSLUMAÐUR og örygg-
isvörður á bensínstöð Skeljungs í
Fellahverfinu í Breiðholti lentu í
átökum við þrjá unga karlmenn
sem höfðu í frammi ólæti á bens-
ínstöðinni í fyrrinótt. Lyktaði átök-
unum með því að öryggisvörðurinn
var stunginn í síðuna með egg-
vopni en mennirnir þrír létu sig
hverfa í kjölfarið.
Það var skömmu fyrir klukkan
þrjú í fyrrinótt sem mennirnir,
sem taldir eru vera um tvítugt,
komu inn á bensínstöðina og létu
mikið fyrir sér fara. Brugðust
mennirnir illa við þegar afgreiðslu-
maður neitaði að afgreiða þá um
tóbak og hafði öryggisvörður bens-
ínstöðvarinnar þá afskipti af mönn-
unum.
Nokkur átök hófust í kjölfarið
milli mannanna þriggja og örygg-
isvarðar og starfsmanns bensín-
stöðvarinnar sem bárust út á plan
bensínstöðvarinnar.
Enduðu átökin með því að einn
árásarmannanna dró upp hníf og
stakk öryggisvörðinn ofarlega í
bakið en afgreiðslumaðurinn hlaut
einnig skurð á enni.
Þegar lögregla kom á vettvang
voru mennirnir þrír flúnir en ör-
yggisverðinum og afgreiðslumann-
inum var komið á slysadeild. Voru
áverkar þeirra minniháttar en
hnífsblaðið stöðvaðist í einu rif-
beini öryggisvarðarins. Var hann
útskrifaður af slysadeild Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi
í gærmorgun.
Telur svæðið vera öruggt
Stefán Karl Segatta, fram-
kvæmdastjóri neytendasviðs Skelj-
ungs, segir að starfsmönnum hafi
verið boðin áfallahjálp í kjölfar at-
viksins og farið verði yfir atburða-
rás næturinnar og athugað hvort
ástæða sé til að grípa til sérstakra
ráðstafana eða breyta verklagi á
bensínstöðvum Skeljungs. Ekki
liggi þó beint við að þörf sé á nein-
um breytingum.
Á bensínstöðinni í Fellahverfinu
eru þrír starfsmenn við störf á
næturnar um helgar auk örygg-
isvarðar og segir Stefán að allir af-
greiðslumenn Skeljungs séu 18 ára
eða eldri. Þeir hafi allir fengið
þjálfun í hvernig bregðast eigi við
atvikum eins og því sem varð í
fyrrinótt. Hann segir atvikið vera
einangrað og almennt séð sé svæð-
ið og starfsfólk bensínstöðvarinnar
öruggt. „Ef svona nokkuð gerðist
um hverja helgi myndum við hugsa
okkar gang,“ segir Stefán.
Öryggisvörður á
bensínstöð stunginn
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
ÍSLENSKAR skáksveitir unnu tvö-
faldan sigur á Norðurlandamótum
um helgina. Sveit Laugalækjarskóla
varð í gær Norðurlandameistari
grunnskóla og sveit Menntaskólans í
Reykjavík varð Norðurlandameist-
ari framhaldsskóla.
Norðurlandamót grunnskóla fór
fram á heimavelli Laugalækjarskóla
um helgina, enda sigraði skólinn á
mótinu á síðasta ári. Það varð því
mikill fögnuður þegar sveit skólans
gerði sér lítið fyrir og sigraði annað
árið í röð. Ekki varð ánægja ís-
lenskra áhorfenda minni þegar
Rimaskóli varð í öðru sæti, en það
land sem heldur keppnina má senda
tvo skóla til keppni.
Sveit Laugalækjarskóla hlaut 13
vinninga, en sveit Rimaskóla 121⁄2
vinning. Í þriðja sæti var sveit Finn-
lands með 111⁄2 vinning og norska
sveitin hreppti fjórða sætið með 11
vinninga. Danmörk varð í fimmta
sæti með 71⁄2 vinning og Svíþjóð í
neðsta sætinu með 41⁄2 vinning.
Matthías Pétursson, 15 ára nem-
andi í Laugalækjarskóla, sagði að
mótið um helgina hefði verið mjög
skemmtilegt. „Við erum góð liðs-
heild,“ sagði hann, spurður hvers
vegna Laugalækjarskóla gengi
svona vel. Skáksveitin æfir að með-
altali 2–3 í viku.
Sigurinn var að segja má talsvert
óvæntur. „Okkur gekk frekar illa í
byrjun mótsins, en í síðustu tveimur
umferðunum gekk okkur rosalega
vel og við unnum,“ segir Matthías.
Hann segir sigurinn enn sætari
vegna þess að Rimaskóli varð í öðru
sætinu, enda skáksveit Rimaskóla
mjög sterk, sem og sveitir Finnlands
og Noregs.
Ekki munaði miklu að íslensk
skáksveit ynni þriðja sigurinn þessa
helgina, en sveit Salaskóla varð í
þriðja sæti á Norðurlandamóti
barnaskóla, sem fram fór í Kaup-
mannahöfn um helgina, aðeins hálf-
um vinningi á eftir sigurvegur-
unum.
Morgunblaðið/Ómar
Sigurreifir Sveit Laugalækjarskóla (f.v.): Jón Páll Haraldsson, starfsmaður
Laugalækjarskóla, Aron Ellert Þorsteinsson, Matthías Pétursson, Einar Sig-
urðsson, Vilhjálmur Pálmason, Daði Ómarsson og Torfi Leósson þjálfari.
Tvöfaldur skáksigur
íslensku sveitanna
SJÖ voru fluttir á sjúkrahús eftir
fjögurra bíla árekstur á Miklubraut í
fyrrinótt. Enginn þeirra var alvar-
lega slasaður en beita þurfti klippum
til að ná einum ökumannanna úr bif-
reið sinni. Ökumaður á austurleið
missti stjórn á bifreið sinni með þeim
afleiðingum að hún fór upp á umferð-
areyju og reif niður vegrið á 25
metra kafla. Fór bifreiðin yfir á öf-
ugan vegarhelming og rakst þar á
aðra bifreið sem kom úr gagnstæðri
átt. Stykki úr vegriðinu lenti svo á
þriðju bifreiðinni sem rakst loks á þá
fjórðu. Sjö voru fluttir á slysadeild til
aðhlynningar en enginn reyndist
vera alvarlega slasaður.
Áttu fótum fjör að launa
Á meðan lögreglu- og slökkviliðs-
menn störfuðu á vettvangi var lokað
fyrir umferð á svæðinu en ökumaður
sportbifreiðar lét það ekki stöðva sig
og ók inn á slysavettvanginn. Sinnti
hann ekki merkjum lögreglu og áttu
slökkviliðs- og lögreglumenn fótum
sínum fjör að launa þegar hann ók
afar glæfralega framhjá. Lögreglan
náði að hafa uppi á manninum en lög-
reglumenn höfðu náð skráningar-
númeri bílsins. Reyndist hann vera
ölvaður og var vistaður í fanga-
geymslu. Var hann einn af tíu öku-
mönnum sem teknir voru ölvaðir í
fyrrinótt.
Sjö bíla
árekstur á
Miklubraut
»Einn þriggja manna semreynt var að vísa frá bens-
ínstöð Skeljungs í Fellahverfi
beitti eggvopni gegn örygg-
isverði.
» Öryggisvörðurinn varstunginn í bakið en slapp
með minniháttar meiðsli.
» Lögreglan í Reykjavík leitar mannanna en þeir
eru allir taldir vera um tvítugt.
Í HNOTSKURN
TÖLUVERT var um slagsmál á
Hafnargötu í Keflavík í fyrrinótt.
Lögreglan í Keflavík þurfti í fimm
tilfellum að hafa afskipti af fólki
vegna slagsmála í götunni en tveir
slagsmálahundanna leituðu sér að-
stoðar á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja. Þá kom leigubifreiðastjóri
með ölvaðan mann á lögreglustöðina
en maðurinn gat ekki greitt fyrir
aksturinn. Maðurinn æstist verulega
á lögreglustöðinni og þurfti að vista
hann í fangageymslu.
Slegist í
Keflavík
♦♦♦