Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 10

Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF Þ etta er fyrsta dýrið sem stoppað er upp í heilu lagi hér á Íslandi. Og vissulega eru ekki margir sem eru með uppstoppað sauðnaut í kjall- aranum heima hjá sér,“ segir mál- arameistarinn Páll Jónatan Pálsson á Akranesi en hann fór í eftirminnilega veiðiferð til Græn- lands á síðasta ári ásamt fjórum öðrum íslensk- um veiðimönnum á Ewood-svæðinu á vest- urströnd Grænlands. „Við lentum í Narsarsuaq og sigldum síðan á hraðbát í sex tíma á veiði- svæðið. Veðrið var yndislegt og gerist vart betra á þessum slóðum.“ Páll Jónatan heyrði af því að íslenskir aðilar væru farnir að skipuleggja slíkar veiðiferðir til Grænlands og upphaflega ætlaði hann sér að fara einn í þessa ferð en síðan bættust við fjórir veiðimenn í ferðina. „Ég held að ég geti sagt að þetta sé eftir- minnilegasta ferðalag sem ég hef farið í. Sauð- nautið sem ég skaut er tarfur, líklega um 10 ára gamall, og danski eftirlitsmaðurinn sá til þess að aðeins tarfarnir væru skotnir. Enda er verið að grisja í stofninum á þessu svæði. Það er hægt að sjá hve gamall tarfurinn er með því að skoða bilið á milli hornanna. Eftir því sem hann verður eldri minnkar bilið á milli hornanna og að lokum grær þetta bil alveg saman.“ Sauðnaut eða moskusuxar (Ovibos moschat- us) eru klaufdýr af undirætt geitfjár. Þau nær- ast einkum á grasi, mosa og skófum og lifa í hjörðum á freðmýrum N-Ameríku og á Græn- landi. Tarfurinn sem Páll Jónatan skaut var lík- lega um 300 kg að þyngd. Hann skaut dýrið beint í hjartastað af um 70 metra færi. Kýrnar drekka sjó „Þessi dýr eru grasætur og kýrnar þurfa að drekka sjó á meðan þær eru með kálfa. Ég veit ekki af hverju kýrnar þurfa að drekka sjó. Dýr- in eru flest skotin í morgunsárið þegar kýrnar fara niður að sjónum og það er alltaf tarfur með í hjörðinni. Eftir því sem lengra líður á daginn leita hjarðirnar hærra og hærra upp í fjöllin. Líklega til þess að forðast fluguna. Tarfarnir eru með í það minnsta fjórar kýr í hjörðinni og oft eru kýrnar fleiri. Það var reynt að koma þessum dýrum á legg hér á Íslandi í kringum 1930 en sú tilraun gafst ekki vel. Þau drápust öll en ég held að þessi dýr gætu alveg lifað hér líkt og hrein- dýrið á Austurlandi.“ Páll Jónatan lýsir veiðideginum með þessum hætti: „Við fórum snemma dags út með leið- sögumanninum, sem var íslenskur, og eftirlits- manninum frá danska hernum. Þeir fundu svæði fyrir okkur þar sem von var á hjörðum sauðnauta. Þeir velja dýrin sem má fella og það þarf að ganga úr skugga um að allt sé gert rétt. Sauðnautið er með þá eðlishvöt að það leggur ekki á flótta þegar það telur að því sé ógnað. Ég vildi ekki lenda í því að fá slíkt dýr á móti mér á fullri ferð. Af þeim sökum fá veiðimenn ekki að fara mjög nálægt dýrinu. Þegar ég fékk grænt ljós frá eftirlitsmanninum að fella tarfinn þurfti ég að koma mér fyrir með riffilinn á góðum stað. Nauðsynlegt er að skjóta tarfinn í hjartað þar sem hann fellur ekki niður svo auðveldlega ef skotið er í skrokkinn á dýrinu. Ég þurfti því að bíða í 10–15 mínútur eftir því að tarfurinn væri í réttri stöðu og ég gæti skotið hann í hjartað. Kraftmikið dýr Sauðnautið er mjög kraftmikið dýr ef það gerir árás og danski eftirlitsmaðurinn sagði frá því hvernig dýrið hegðaði sér þegar það ætlaði að gera árás. Kálfar og kýr standa þá fyrir aftan tarfinn, sem slefar ógurlega, nuddar síðan nef- inu í aðra löppina og gerir síðan árás. Líkt og hrútur.“ Að sögn Páls Jónatans fóru kýrnar strax að tarfinum eftir að hann hafði fellt dýrið. „Þær komu strax að tarfinum, mynduðu hring í kring- um hann og ætluðu greinilega að hjálpa dýrinu með einhverjum hætti. Kýrnar voru ekkert á förum þegar við nálguðumst hjörðina til þess að ná í tarfinn. Við þurfum að reka þær með látum í burtu en í þessari hjörð var tarfurinn, kálfur og fjórar kýr.“ Veiðimenn sem fara í slíkar ferðir fá leyfi til þess að skjóta eitt dýr og segir Jónatan að vel sé haldið utan um allar reglur og leyfi hjá dönsk- um yfirvöldum. „Við þurftum að fylla út margar skýrslur áð- ur en lagt var af stað í veiðina. Við eigum dýrið sem við skjótum og megum hirða allt af því nema vömbina, en þar sem við fáum ekki að taka með okkur kjöt til landsins gáfum við skip- stjóranum á bátnum sem flutti okkur á milli staða á Grænlandi allt kjötið. Ég fékk leyfi hjá landbúnaðarráðuneytinu á Íslandi til þess að flá dýrið og taka feldinn með til Íslands til þess að stoppa dýrið upp. Það var heilmikið verk að koma því þannig fyrir að flytja mætti feldinn til Íslands. Að endingu setti ég feldinn og höfuðið í tunnu úr plasti þannig að ekkert læki úr feldinum. Uppstoppun Manuels sá síðan um að koma dýrinu í það form sem það er núna. Ég er mjög ánægður með útkomuna.“ Ævintýraferð Páls Jónatans var að hans sögn ekki svo ýkja kostnaðarsöm. „Ferðin kostaði um 220.000 kr.; veiðileyfi, ferðir til og frá Græn- landi, gisting og leiðsögn. Maturinn var ekki innifalinn í þessu verði. Við gistum í gömlum námubæ sem er í eyði og þetta eru mjög frum- stæðar aðstæður sem boðið er upp á. Enda vill maður hafa það þannig.“ Skaut rjúpur 10 ára gamall Skotvopnið sem Páll Jónatan notar er athygl- isvert en riffillinn er bandarískur og var smíð- aður árið 1917. „Vopnið er af Edy Stone-gerð og það hefur reynst mér vel. Það eina sem ég hef bætt við hann er sjónaukinn sem ég nota til þess að miða. Það er þrífótur á rifflinum og það er örugglega hægt að skjóta í mark af um 700 metra færi með þessum grip. Mér finnst skemmtilegast við vopnið að það er nær óslitið eftir öll þessi ár. Ef maður horfir inn í hlaupið á rifflinum er hann eins og nýr. Það hefur í för með sér að nákvæmnin er mikil þegar maður skýtur af þessum riffli.“ Páll Jónatan var aðeins 10 ára gamall er hann fór að skjóta af riffli á heimili sínu í Húnavatns- sýslu. „Ég fæddist árið 1941 á Bakka í Austur- Húnavatnssýslu og fór snemma að skjóta rjúpu og mest hef ég notað riffil. Þær skipta þús- undum rjúpurnar sem ég hef skotið og einnig hef ég skotið ref og tófu. Átta sinnum hef ég fellt hreindýr hér á landi en ég fer aldrei til þess að skjóta gæs. Mér finnst gæs ekki góður mat- ur,“ sagði Páll Jónatan Pálsson, málarameistari á Akranesi og veiðimaður. Ekki margir með uppstoppað sauð- naut í kjallaranum Morgunblaðið/Sigurður Elvar Uppstoppaður Sauðnautið, sem var tarfur, er Páll Jónatan Pálsson skaut á Grænlandi var um 300 kg að þyngd. Hann skaut dýrið beint í hjartastað af um 70 metra færi. »Það er hægt að sjá hve gamall tarf-urinn er með því að skoða bilið á milli hornanna. Eftir því sem hann verður eldri þá minnkar bilið á milli þeirra og að lokum grær bilið alveg saman. »Það var reynt að koma þessum dýrumá legg hér á Íslandi í kringum 1930. Sú tilraun gafst ekki vel. »Nauðsynlegt er að skjóta tarfinn íhjartað þar sem hann fellur ekki nið- ur svo auðveldlega ef skotið er í skrokk- inn. »Skotvopnið sem Páll Jónatan notaðier smíðað árið 1917 en hann byrjaði að skjóta rjúpu 10 ára gamall í Húna- vatnssýslu. Í HNOTSKURN Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is VESTURLAND ● VERÐ á hráolíu lækkaði alla síð- ustu viku og hefur ekki verið lægra frá því í byrjun apríl. Hæst fór verðið í 78 dali tunnan á þessu ári en er nú komið niður undir 66 dali tunnan. Verðlækkunin er til komin vegna birgðasöfnunar í Bandaríkjunum að undanförnu auk þess sem BP ætlar að hefja aftur olíuvinnslu í Prudhoe- flóa í Alaska í næsta mánuði. Olíuverð ekki lægra frá í apríl SAMTAL hafa 130 íslensk félög heimild til að færa bókhald sitt í er- lendri mynt. Flest þeirra hafa heimild til að gera upp í Bandaríkjadölum, eða 84, og næstflest í evrum, eða 31. Félögum sem hafa heimild til að færa bókhald sitt í erlendri mynt hefur fjölgað um 29 frá árinu 2004. Þetta kemur fram í Vefriti fjármálaráðu- neytisins. Samkvæmt breytingu á lögum um ársreikninga frá árinu 2002 geta félög sótt um það til ársreikningaskrár að þeim verði heimilað að færa bókhald sitt og semja ársreikninga í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum ef þau telja hann starfrækslugjaldmiðil félagsins. Starfrækslugjaldmiðillinn skal vera skráður hjá Seðlabanka eða viðskiptabanka félagsins hér á landi. Skilyrði sem félag verður að upp- fylla til að fá heimild til að færa bók- hald sitt í erlendri mynt er að það sé með meginstarfsemi sína erlendis eða sé hluti erlendrar samstæðu eða eigi erlent dótturfélag sem það hefur meginviðskipti við. Ef meginstarf- semin er hér á landi verður það að hafa verulegan hluta tekna sinna frá erlendum aðilum og er þá litið til við- skipta félagsins og tengsla þeirra við- skipta við erlent viðskiptaumhverfi. Þá geta félög sem fara fram úr til- greindum stærðarmörkum laganna til að kallast stór félög fengið þessa heimild ef erlendar skuldir þeirra eru tengdar fjárfestingu þeirra í erlend- um fjárfestingarvörum. Níu skráð í Kauphöllinni Af félögum með erlendan starf- rækslugjaldmiðil eru níu skráð í Kauphöll Íslands og skiptast starf- rækslugjaldmiðlar þeirra þannig að fimm félög nota evru, tvö félög Bandaríkjadal og tvö félög pund. Uppgjörum í er- lendri mynt fjölgar Eftir Gréar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is Morgunblaðið/Arnaldur Fjölgun Samtals hafa 130 félög heimild til að færa bókhald sitt í erlendum gjaldmiðli. SALAN hjá dönsku stórversl- uninni Magasin du Nord, sem er í eigu Baugs Group og fleiri fjár- festa, jókst um 9,5% á fyrri helm- ingi reikningsárs þess, frá mars og til og með ágústlokum. Jón Björnsson, framkvæmdastjóri Magasin, gerir ráð fyrir að fyr- irtækið verði komið réttum megin við strikið í ár þótt tap verði af rekstrinum á reikningsárinu öllu, væntanlega í kringum 600 millj- ónir íslenskra króna. Margra ára taprekstur Í frétt á vef Berlingske Tidende kemur fram stjórnendur Magasin geri ráð fyrir 480–600 milljóna króna hagnaði af rekstrinum á næsta ár og gangi það eftir verð- ur það í fyrsta skipti frá árinu 2000 að Magasin skilar hagnaði. Baugur og meðfjárfestar keyptu Magasin í nóvember árið 2004 og hafa lagt um 1,5 millj- arða íslenskra króna í end- urbætur á vöruhúsum Magasin. Tapið í fyrra nam um 1,1 millj- arði króna en í samtali við Berl- ingske segir Jón reksturinn nú vera umfram væntingar og hann reikni með hagnaði í ár þótt hann treysti sér ekki til að segja hversu mikill hann verði. Hillir undir hagnað af rekstri Magasin du Nord Scanpix Danmark Viðsnúningur Stjórnendur Magas- in reikna með hagnaði á næsta ári. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● NÆSTSTÆRSTA brugghús í Skandinavíu, Royal Unibrew, þar sem FL Group er stærsti hluthafinn með 17% hlut, er sagt íhuga yfirtöku á pólska drykkjarvörufyrirtækinu Hoop SA að því er fram kemur í frétt Direkt-fréttastofunnar. Markaðsvirði Hoop er talið vera nálægt sjö millj- örðum íslenskra króna. Royal Unibrew rekur fyrir tvö brugg- hús í Póllandi og á 48% hlut í því þriðja. Unibrew orðað við yfirtöku í Póllandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.