Morgunblaðið - 11.09.2006, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.09.2006, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Suðurlandsbraut 22 Glerárgötu 24-26 Sími 540 1500 Fax 540 1505 www.lysing.is Er þak á þinni starfsemi? Allir flurfa flak yfir höfu›i› - líka flitt fyrirtæki! "Hefur flú kynnt flér kosti eignaleigu vi› fjármögnun atvinnuhúsnæ›is? Me› sérsni›inni rá›gjöf í bland vi› persónulega fljónustu, höfum vi› hjá L‡singu hjálpa› fyrirtækjum af öllum stær›um og ger›um a› koma flaki yfir sína starfsemi." Sigurbjörg Leifsdóttir Rá›gjafi, fyrirtækjasvi› AFGANSKIR hermenn og hermenn úr liði Atlantshafsbandalagsins, NAO, alls felldu 94 uppreisnarmenn úr röðum talibana í hörðum bardög- um í suðurhluta Afganistan aðfara- nótt sunnudags. Beitt var flugvélum í sókninni gegn uppreisnarmönnum. Sóknin í suðurhéruðunum, einkum í Kandahar-héraði, hefur nú staðið yf- ir í rösklega viku og segja talsmenn NATO að um 450 uppreisnarmenn hafi fallið. Kanadamaður í erlenda herliðinu féll í bardögum á föstudag. Abdul Hakim Taniwal, héraðs- stjóri í Paktia í austanverðu landinu, féll í gær ásamt tveim mönnum öðr- um þegar gerð var sjálfsvígsárás þá.Talíbanar hafa þegar lýst ábyrgð á hendur sér. Taniwal var fyrrver- andi prófessor í félagsfræði og var lengi í útlegð í Ástralíu. Sprengju- maðurinn beið við hliðið að skrif- stofu héraðsstjórans í borginni Gardez og sprengdi sig þegar menn- irnir gengu fram hjá. Bandaríski herinn skýrði frá því í gær að lítill hópur sjálfsvígsprengjumanna hafi komið sér fyrir í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Um 8.000 NATO-hermenn, aðal- lega Bretar, Kanadamenn og Hol- lendingar og álíka fjölmennur liðs- afli Bandaríkjamanna taka þátt í aðgerðunum gegn uppreisnarmönn- um í suðri og njóta til þess aðstoðar afganskra stjórnarhermanna. Oft er um að ræða bardaga við vopnaða fíkniefnasmyglara en framleiðsla á ópíumi hefur stóraukist í landinu að undanförnu. Vilja efla herliðið Yfirmenn herja aðildarríkja NATO luku tveggja daga fundi í Varsjá á laugardag og ræddu óskir bandalagsins um að sent yrði aukið herlið, allt að 2.500 manns, til Afgan- istans vegna óvæntrar mótspyrnu talíbana síðustu vikurnar. Einnig þurfi að senda meira af hergögnum. Yfirmennirnir voru sammála um að brýnt væri að efla erlenda herliðið en ekki er ljóst hvernig ríkisstjórnir NATO-landanna munu bregðast við áskorun fundarins. Talsmenn breska hersins segja að bardagarnir í suðurhéruðunum séu mjög harðir. Höfuðsmaður í breska hernum, Leo Docherty, hefur sagt sig úr honum til að mótmæla því sem hann kallar „hræðilega klaufa- legar“ baráttuaðferðir sem notaðar séu gegn talíbönum. Docherty var háttsettur í breska liðinu í Helm- and-héraði í Suður-Afganistan en hætti í sl. mánuði. Segir hann að beitt sé aðferðum sem séu eins og „handbók“ í að klúðra baráttu gegn uppreisn. Heimili almennings séu eyðilögð og óbreyttir borgarar falli, niðurstaðan verði að fólk á bardaga- svæðunum snúist á sveif með talíbönum. „Við höfum sagt að við munum haga okkur öðruvísi en Bandaríkja- menn sem gerðu sprengjuárásir á þorp en höfum hagað okkur alveg eins,“ sagði hann í viðtali við blaðið The Sunday Times. Fullyrðir Doch- erty að menn hafi vegna þrýstings frá héraðsstjóra Helmand ekki fylgt upprunalegum áætlunum um að- ferðir sem beita skyldi á svæðinu. Talíbanar áttu sín sterkustu vígi í sunnanverðu Afganistan. Sjálfsvígssprengju- maður verður héraðsstjóra að bana í Afganistan AP Á verði Bandarískir hermenn í Korengal-dal í austanverðu Afganistan. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Felldu nær 100 talíbana BLOGGMYNDSKEIÐ á vefsíðunni YouTube, sem sýndu líf 16 ára stúlku í smáborg einhvers staðar í Bandaríkjunum, hafa slegið í gegn vestra. Stúlkan var sýnd í svefn- herbergi sínu og sagði þar skoðanir sínar á lífinu og tilverunni, einnig ástarsamböndum, reikistjörnum, smákökum og trúmálum, að sögn breska blaðsins The Guardian. Bloggsíðan nefnist lonelygirl15. Milljónir áhorfenda hafa fylgst með henni undanfarnar vikur og fjöl- margir hafa notað sér gagnvirkn- ina til að tjá sig um stúlkuna. En „hönnuðir“ stúlkunnar, sem ekki hafa gefið upp nöfn sín, viður- kenndu opinberlega á laugardag að um fölsun væri að ræða og sögðust himinlifandi yfir viðbrögðunum. Um væri að ræða upphafið á nýju formi listsköpunar. Sendingarnar voru raktar til öflugs fyrirtækis, Creative Agents Agency, í Hollywood og mun vörumerkið lonelygirl15 hafa verið skráð fyrir tveim vikum. Hver verða viðbrögðin? The Guardian bendir á að málið geti dregið úr vinsældum gagnvirks efnis af þessu tagi á netinu. Not- endur gætu ákveðið að þeir vildu ekki lengur láta hafa sig að fíflum. Fyrstu viðbrögðin frá miklum aðdáanda bloggsíðunnar, Alissu Brooke, bentu til þess. „Jæja það er ekkert gaman að þessu lengur,“ sagði hún í skeyti sínu. Því miður hannað í Hollywood »Yfir fjórar milljónir flótta-manna hafa snúið heim til Afganistan eftir að stjórn talíbana hrundi 2001. »Enn er þó mikið um of-beldi og framleiðsla á fíkniefnum er mun meiri en í tíð talíbana. »Nær 20.000 erlendir her-menn aðstoða afganska stjórnarhermenn í baráttunni við talíbana. HNOTSKURN Vín. AP, AFP. | Fulltrúar Írana og Evrópusambandsins, ESB, segja að árangur hafi orðið af viðræðum þeirra um helgina í Vín í Austurríki um kjarnorkudeilurnar. Náist ekki málamiðlun gæti öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna hafið umræður um refsiaðgerðir gagnvart Írönum sem hafa neitað að hætta tilraunum sín- um með auðgun úrans, eins og kraf- ist er af hálfu öryggisráðsins. Diplómatar sem ekki vildu láta nafns síns getið sögðu í gær að Ír- anar hefðu viðrað þá hugmynd í gær að fresta, a.m.k. í bili, auðgun úrans og koma þannig til móts við alþjóða- samfélagið meðan leitað væri lausna. Skilyrðið væri að þeir virtust ekki vera að láta undan þrýstingi. Íranar hafa fram til þessa harð- neitað að til greina kæmi að hætta við auðgunina eða fresta henni. Margir óttast að markmiðið með til- raunum þeirra sé að smíða kjarn- orkuvopn undir yfirskini friðsam- legra rannsókna. Javier Solana, sem fer með utan- ríkismál í framkvæmdastjórn ESB, og Ali Larjiani, aðalsamningamaður Írana í kjarnorkumálunum, sögðu báðir að fundurinn hefði verið „upp- byggilegur“ eins og það var orðað. „Við höfum leyst hluta af þeim misskilningi sem verið hefur í gangi. Okkur hefur orðið ágengt og við vilj- um halda áfram,“ sagði Solana. Slakar klerkastjórnin til? München. AFP, AP. | Benedikt 16. páfi varaði í gær við því í predikun sinni í Þýskalandi að nútímamenn væru að verða „heyrnarlausir“ gagnvart orði Guðs, svo margt yrði til að glepja hugann, svo mörg tíðnisvið stöðugt í gangi. Fyrsta útimessa Benedikts páfa af þremur var sungin í gær en hann er staddur í sex daga píla- grímsför um gamlar heimaslóðir sín- ar í Bæjaralandi í Þýskalandi. Hann sagði við komu sína til landsins í fyrradag að hjarta sitt slægi „í bæverskum takti“. Um 250.000 manns tóku þátt í messunni í gær. „Auk þessara heyrnarörðugleika eða hreint út sagt heyrnarleysis hvað Guð varðar, þá glötum við að sjálfsögðu eig- inleikanum til þess að tala við hann,“ sagði páfi. Um helmingur Þjóðverja er talinn tilheyra kaþólsku kirkjunni en tök hennar verða þó æ veikari, um 100.000 manns eru sagðir ganga úr henni í landinu ár hvert. Benedikt 16., sem er 79 ára gamall, hrósaði að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC, þjóðum Asíu og Afríku fyrir að hafna „kaldlyndinu sem telur að fólk sem hæðist að helgi- dómum sé að tjá frelsi sitt og lítur á gagnsemi sem æðsta siðferðislega viðmiðið“. Hann sagði að með ferð sinni til heimalandsins vildi hann reyna að koma í veg fyrir hnignun trúariðk- unar í landinu. Páfi gagnrýndi kirkjudeildina í Þýskalandi fyrir að gera of lítið af því að boða trú í land- inu sjálfu þótt hún væri reiðubúin að aðstoða við að reisa kirkjur í Afríku eða Austur-Evrópu. Varar við minni trú Benedikt XVI páfi. London. AFP. | Valdabaráttan í breska Verkamannaflokknum harðnar með degi hverjum og er sótt hart að Gord- on Brown fjármálaráðherra sem tal- inn er líklegasti eftirmaður Tony Blairs forsætisráðherra. Mesta at- hygli vekja fregnir um að Blair, sem hefur sagt að hann muni hætta innan árs, muni ekki lýsa stuðningi við Brown. Blaðið The Guardian hefur eftir heimildarmönnum sínum að Blair saki Brown um að taka á laun þátt í andófi gegn sér til að hreppa völdin. Blaðið Observer segir að 10 hátt- settir ráðherrar ræði nú hvernig hægt sé að hindra Brown í að taka við. Þeir telji hann óhæfan til að leiða flokkinn og ríkisstjórnina, meðal annars vegna skorts á samstarfs- hæfileikum. Brown segist ekkert hafa á móti því að efnt verði til mót- framboðs. „Það veldur mér engum vanda og ég hef sannarlega ekki neitt á móti því persónulega að menn fari gegn mér,“ sagði hann í viðtali við breska útvarpið, BBC. Brown vísar því sem fyrr eindregið á bug að hann reyni að bola Blair út, segir að það sé algerlega ákvörðun leiðtogans sjálfs hvenær hann hætti. Tom Watson, einn af ráðherrum Verkamannaflokksins, undirritaði nýlega ásamt 16 öðrum liðsmönnum þingflokksins bréf þar sem Blair er hvattur til að hætta strax. Watson sagði síðan af sér ráðherradómi en Blair tók málið óstinnt upp og sakaði Watson um sviksemi. Komið hefur í ljós að daginn áður en bréfið var sent forsætisráðherran- um fór Watson í heimsókn til Brown sem þá dvaldist í húsi sínu í Skot- landi. Þeir segja báðir að Watson hafi aðeins verið að færa barni Browns gjöf en heimsóknin hefur aukið grun- semdir um að Brown hafi vitað af bréfinu og jafnvel stutt hugmyndina. Brown sakaður um óheilindi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.