Morgunblaðið - 11.09.2006, Side 14
Strax við þriggja mánaða aldur
geta ungbörn skilið stuttar setn-
ingar og þekkt þær þegar þær
eru endurteknar fyrir þau. » 17
börn
Í STÍGVÉLATÍSKU undanfarinna ára eru þær ófáar
konurnar sem hafa átt í basli með að finna sér upphátt
skótau sem er nægilega vítt til að ná utan um leggi
þeirra. Venjuleg leðurstígvél virðast ekki vera hönn-
uð fyrir kálfa sem eru stærri en prýðir meðal-Jónuna
þrátt fyrir að fjöldi kvenna sé með fótleggi af stæði-
legri sortinni. Nú eru dagar sprunginna rennilása hins
vegar liðnir því danska tískuvörumerkið Dominique
hefur fengið ítalskan skóframleiðanda til að framleiða
fyrir sig leðurstígvél sem eru sérstaklega víð yfir kálf-
ana en þau eru í stærðunum 37 – 43. Það sem gerir
þennan fótabúnað óvenjulegan er að hann fæst í þremur
mismunandi kálfavíddum, þ.e. 44, 48 og 52 cm.
Hér á landi fást hin misvíðu stígvél í versluninni Fem-
inin Fashion í Kópavogi. Að sögn Kristínar Kvaran
eiganda verslunarinnar hafa þau fengið frábærar
viðtökur enda fjöldi kvenna sem eygir nú
möguleika á að eignast upphá leður-
stígvél í fyrsta sinn.
|mánudagur|11. 9. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Um fjörutíu börn og
unglingar voru um
helgina á námskeiði í
að sýna hunda. » 17
Bíbílína er tveggja ára gamall
regnbogagári, afar mannelskur
og félagslyndur. Hann lætur líka
gamminn geisa. » 15
gæludýr
Kannski verður verk Gerðar
Gunnars myndlistarmanns eitt
af táknum Ólympíuleikanna í
Kína árið 2008. » 16
myndlist
skór
Nægilega víð yfir kálfana
Morgunblaðið/Ásdís
Lausn Stígvélin fást
í þremur mismun-
andi kálfavíddum.
Vesen Margar konur hafa
átt í basli með að finna á
sig stígvél sem passa.
Hugmyndin er að kynnabörnunum enska tungu,venja þau við að hlusta ámálið og kenna þeim al-
geng orð. Með þessu viljum við þróa
jákvætt viðhorf nemenda til ensk-
unnar og búa þau undir „alvöru lífs-
ins“ þegar þau fara í eldri bekki og
hefja námið af krafti,“ segir Alda
Sverrisdóttir, kennari við Ingunn-
arskóla í Grafarholti, en þar er nú
byrjað að kenna börnum ensku allt
niður í fyrsta bekk.
Alda sinnir enskukennslunni við
Ingunnarskóla ásamt Vöku Rögn-
valdsdóttur, en að sögn skólastjór-
ans Guðlaugar Sturlaugsdóttur
báru þær stöllur fram þessa hug-
mynd í fyrra og var henni vel tekið
af foreldraráðinu. „Okkur leist strax
mjög vel á að prófa þetta með litlu
börnin enda má segja að þau þekki
orðið ensku úr tölvuleikjunum og
víðar úr umhverfinu. Ég tel að þetta
sé bara jákvætt og muni ekki hamla
íslenskukennslunni, eins og sumir
myndu vilja halda,“ segir Guðlaug.
Nemendur í 1.–4. bekk fá einn
enskutíma í hverri viku.
„Það má segja að þetta sé til-
raunaverkefni hjá okkur, en nokkrir
skólar hafa verið að reyna fyrir sér
með enskukennslu yngri barna á
síðustu árum. Samkvæmt aðalnáms-
skrá grunnskóla á enskukennsla að
hefjast í fimmta bekk, en í nýjum
drögum er hún færð niður í 4. bekk.
Við viljum byrja með krakkana í
ensku mun fyrr enda finnum við það
á okkar krökkum að þau kunna heil-
mikið af orðum. Talað og ritað mál á
ensku er alls staðar í samfélaginu
og krakkar á þessum aldri eru ótrú-
lega lunkin við að læra ný orð og
þýðingu þeirra. Með því að hitta
þau í enskutímum fá þau tækifæri
til að láta ljós sitt skína og við fáum
tækifæri til að kynna þeim mál-
notkun.
Kennslan hjá okkur fer aðallega
fram með söng, leikjum og spjalli,
en við erum tvær saman ásamt
stuðningsfulltrúa með hóp nemenda
sem rúllar á milli stöðva. Við notum
fjölbreytta kennsluhætti til að
reyna að ná til sem flestra nemenda
og til að allir fái eitthvað við sitt
hæfi. Tilgangurinn er ekki sá að þau
tali reiprennandi ensku við lok
fyrsta bekkjar heldur að þau átti sig
á því hvað tungumál er og hafi já-
kvætt viðhorf til áframhaldandi
náms. Framtakið hefur mælst vel
fyrir hjá nemendum, foreldrum og
samkennurum,“ segir Alda.
menntun
Fyrstubekkingar fá enskukennslu
Morgunblaðið/Eyþór
Enskukennslan Fer aðallega fram með söng, leikjum og spjalli.
Enskukennarar Alda Sverrisdóttir og Vaka Rögnvaldsdóttir.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Leikir Ýmsar skemmtilegar
kennsluaðferðir eru notaðar við
enskukennslu yngstu nemenda.
ÞÚSUNDUM farsíma er stolið í
heiminum í hverjum mánuði og nú
hefur fyrirtækið Synchronica fund-
ið leið til að gera símaþjófum erfitt
fyrir.
Símaforrit sem fyrirtækið kynnti
nýlega til sögunnar læsir símanum
og strokar allar upplýsingar úr
honum um leið og eigandinn verður
var við að farsíminn er horfinn. Ef
símanum hefur verið stolið þá er
einnig hægt að kveikja á afar há-
væru væli eða öskri sem síminn gef-
ur látlaust frá sér.
Fyrirtækið Synchronica fullyrðir
að yfirleitt taki það um hálfa mín-
útu fyrir eigandann að uppgötva að
síminn sé horfinn á meðan það taki
að meðaltali klukkustund að upp-
götva að veskinu hefur verið stolið.
daglegt
Stolni farsím-
inn sem öskrar
tómstundir