Morgunblaðið - 09.10.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.10.2006, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag fasteignirmánudagur 9. 10. 2006 fasteignir mbl.is FASTEIGNALÁN Í MYNTKÖRFU Nánari upplýsingar hjá lánafulltrúum Frjálsa og á www.frjalsi.is, þar sem einnig er hægt að reikna greiðslubyrði. 3,4% Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006 Lánstímialltað40ár Stjórnstöðvar fyrir hitakerfi Tveir sterkir sparnaðarreikningar á netinu Þú færð nánari upplýsingar og getur stofnað reikning á spron.isA RG US /0 6- 05 47 SPRON Vaxtabót – allt að 13,50% vextir* SPRON Viðbót – allt að 4,80% vextir* * Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. október 2006 Torfveggir, algengasta vegghleðsla okkar fram á 20. öld » 9 BORGIN SELUR 45,000 FM LÓÐ REYKJAVÍKURBORG ÆTLAR AÐ SELJA STÓRA LÓÐ Á ÞÓRÐARHÖFÐA, SEGIR ÓSKAR BERGSSON HJÁ FRAMKVÆMDASVIÐI BORGARINNAR VERSLUNIN Tekk Company sel- ur bæði húsgögn og fylgihluti til heimilisins. Við gefum við- skiptavinunum líka góð ráð, segir Telma Birgisdóttir. » 2 Skraut- legt og flott KANADÍSKA byggingarfyrirtækið NLBIC hyggst hefja samstarf við ís- lenska byggingaraðila um byggingu timburhúsa á Íslandi. Fulltrúar fyr- irtækisins eru hérlendis um þessar mundir. » 29 Kanadísk timburhús Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 24/26 Staksteinar 8 Bréf 26 Veður 8 Minningar 27/30 Vesturland 10 Dagbók 36/41 Viðskipti 11 Myndasögur 36 Úr verinu 12 Staður og stund 38 Erlent 14 Víkverji 40 Menning 16, 32/35 Leikhús 34 Daglegt líf 18/21 Bíó 38/41 Forystugrein 22 Ljósvakar 42 * * * Innlent  Önnur tveggja björgunarþyrlna sem Landhelgisgæslan hefur tekið á leigu kom til landsins á laugardag- inn. Er þyrlan að mörgu leyti sam- bærileg stærri þyrlu Landhelgis- gæslunnar, TF-LÍF, þótt hún sé ekki að öllu leyti löguð að íslenskum aðstæðum. Þyrlan er af gerðinni Pouma og er leigð til eins árs frá norska fyrirtækinu Air Lift. Leigu- þyrla af Dauphin-gerð er væntanleg snemma í næsta mánuði. »4  Íbúðarhús á bænum á Búlandi í Arnarneshreppi við Eyjafjörð skemmdist mikið í eldsvoða í gær- morgun. Hjónum, sem gistu í hús- inu, tókst að koma sér út og tilkynna um brunann eftir að reykskynjari fór í gang. Fengu þau væga reyk- eitrun en sluppu ósködduð að öðru leyti. »6  Skaðabætur vegna ærumeiðinga verða reiknaðar út frá fjárhag tjón- valds ef frumvarp sem nokkrir þing- menn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks hyggjast leggja fram á þessu þingi verður samþykkt sem lög. Einnig myndi réttarvernd al- mennra hegningarlaga vegna æru- meiðinga ná til fjölskyldna þeirra sem verða fyrir slíkri háttsemi. »6 Erlent  Stjórnvöld í Peking segja heim- sókn nýs forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, til borgarinnar marka tímamót í samskiptum ríkjanna. Þannig hefur mikillar spennu gætt í samskiptum þeirra og sögðust báðir aðilar vona, að viðræður Shinzo og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, yrðu til að liðka fyrir samvinnu þeirra á ýmsum sviðum, þ.m.t. á sviði viðskipta. »14  Rússneska þjóðin syrgir nú frá- fall blaðamannsins Önnu Polit- kovskaya sem var skotin til bana við heimili sitt í Moskvu á laugardag. Anna, sem var 48 ára tveggja barna móðir, þótti einn öflugasti rannsókn- arblaðamaður Rússlands, en hún var þekkt fyrir harða gagnrýni á stefnu stjórnarinnar í Tétsníu. »14  Bandarískar og íraskar hersveit- ir felldu 30 skæruliða úr röðum sjíta í hörðum átökum í bænum Diwaniya um helgina, að sögn talsmanna Bandaríkjahers. Þá sagði dagblaðið Washington Post 776 bandaríska hermenn hafa særst í sept- embermánuði. »14  Aigars Kalvitis, forsætisráðherra Lettlands, lýsti því yfir í gær, að hann væri reiðubúinn að mynda nýja samsteypustjórn. Er þetta í fyrsta sinn sem stjórnin heldur velli frá því landið öðlaðist sjálfstæði frá Sov- étríkjunum árið 1991. »14 Viðskipti  Icelandair Cargo hefur reglu- bundið áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða nú í byrjun októ- ber, til Charlotte í Bandaríkjunum og Jönköping og Málmeyjar í Sví- þjóð. Flogið verður einu sinni í viku til allra staða nema Jönköping, þar sem viðkomur verða tvær. Þá verður bætt við sjöttu ferðinni milli Kefla- víkur og New York. »11 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LEIKSKÓLARÁÐ Reykjavíkur ætlar að kalla eftir viðvistarskrán- ingu barna frá leikskólunum til að fá upplýsingar um raunverulegan dval- artíma þeirra, að sögn Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns leik- skólaráðs Reykjavíkurborgar. Hún segir vísbendingar um að með lækk- andi leikskólagjöldum hafi færst í vöxt að foreldrar geri samninga um langa dvöl barnanna. „Við viljum vita hvort margir for- eldrar eru að kaupa sér „öryggis- ventil“ með löngum samningi til að sækja barnið örugglega innan tíma- marka. Margir foreldrar sækja börnin fyrr en gæslunni lýkur sam- kvæmt dvalarsamningi.“ Þorbjörg Helga bendir á að fyrir t.d. um 20 árum hafi hálfsdagspláss á leikskólum verið algengust. Mörg börn hafi farið í aðra vistun þegar leikskólanum lauk og foreldrar því verið á spani allan daginn með börn- in. Vistunin hafi ekki endilega verið miklu styttri, þegar allt er tekið til greina. Engu að síður sé þörf á að ræða þessi mál í víðu samhengi. „Mér finnst við þurfa að ræða um siðferðisleg mörk milli vinnuveit- anda, stjórnvalda sem veita leik- skólaþjónustuna og foreldranna. Í því sambandi er ég mjög áhugasöm um þátt fræðslu til foreldra og skóla svo við séum upplýstari um þroska- ferli barnsins. Jafnvel þurfum við að ræða betur hvaða þroskaferli börnin taka út á þessum mótunarárum, aga- stjórnun og fleira sem tengist leik- skólanum. Fræðimenn vinna í leik- skólunum en foreldrarnir þurfa að vera betur upplýstir um þá fasa sem börnin fara í gegnum. Ég treysti skólanum mjög vel til að vita þetta og tel að börnunum líði mjög vel í leikskólanum.“ Þorbjörg Helga kvaðst hafa áhuga á að fá þessa umræðu tekna upp í fjölskyldustefnunefnd sem nýlega hefur verið skipuð hjá Reykjavíkur- borg. „Það er ákveðin hreyfing í þá átt að ræða þetta allt í samhengi, allt frá því að fæðingarorlofi sleppir og að framhaldsskóla,“ sagði Þorbjörg Helga. Dvalartími barna á leikskólum kannaður Í HNOTSKURN »Fyrir um 20 árum voruhálfsdagspláss á leik- skólum algengust. »Vísbendingar eru um aðmeð lækkandi leikskóla- gjöldum hafi færst í vöxt að foreldrar geri samninga um langa dvöl barna til að kaupa sér „öryggisventil“. RÓSA Blöndal Gísladóttir er hundrað ára í dag en hún fæddist 9. október árið 1906 á Álftamýri í Arnar- firði. Rósa er vistmaður í Seljahlíð í Reykjavík og munu aðrir vistmenn og gestir fagna þessum áfanga hennar í dag, milli klukkan 16 og 18, í Seljahlíð. Á meðfylgjandi mynd má sjá Rósu ásamt tveimur frænkum sínum, þeim Guðrúnu Maríu Svavarsdóttur og Brynju Svane, systurdóttur hennar, en þær voru í heimsókn í gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit inn hjá Rósu. Þótt áratugirnir séu orðnir tíu er Rósa stálslegin. Morgunblaðið/Kristinn Hundrað ára í dag DRÖG að umhverfismati samgöngu- áætlunar verða nú kynnt í fyrsta sinn í tengslum við gerð samgöngu- áætlunar 2007–2018. Samkvæmt nýjum lögum sem Alþingi samþykkti 2. júní sl. skal umhverfismat hér eftir fylgja skipulagsáætlunum og tiltekn- um framkvæmdaáætlunum, þar með talið samgönguáætlun. Helstu umhverfisáhrif samgöngu- áætlunarinnar eru talin stafa af greiðari samgöngum með styttingu leiða, breikkun vega, stækkun flug- valla, uppbyggingu grunnnetsins, auknu öryggi, aukinni umferð og ný- framkvæmdum. Helstu umhverfis- þættirnir eru samfélag, heilsa, ör- yggi, loftslag, náttúrufar, hafið og landslag og var reynt að meta hvaða áhrif áætlunin hefði á þessa þætti. Í niðurstöðu umhverfismatsdrag- anna kemur m.a. fram að samgöngu- áætlun sé líkleg til að valda talsverð- um jákvæðum samfélagslegum áhrifum, en ekki verulegum nei- kvæðum umhverfisáhrifum. Mikil- vægt sé þó að fjalla um mismunandi nýtingu hálendisins við ákvörðun um gerð og legu hálendisvega. Umhverfismatið liggur frammi til kynningar í höfuðstöðvum Flug- málastjórnar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar, auk þess sem hægt er að nálgast það á heimasíðum þessara stofnana og samgönguráðu- neytisins. Frestur til að gera athuga- semdir við umhverfismatið er til og með 20. nóvember næstkomandi. Umhverfismat samgangna MÁLEFNI les- blindra nemenda í 2. hluta sam- ræmds prófs í ís- lensku í 7. bekk, þar sem lesskiln- ingur er mældur, verða tekin fyrir í menntamálanefnd Alþingis. Þetta er gert að beiðni Björgvins G. Sig- urðssonar, þingmanns Samfylkingar. Björgvin segir á heimasíðu sinni, www.bjorgvin.is, að lesblindum 7. bekkjar börnum sé ekki veittur neinn stuðningur í umræddu prófi. Það sé ótrúleg staðreynd. Furðulegt sé að mæla lesskilning hjá lesblindu barni þegar ljóst megi vera að það geri ekki annað en niðurlægja barnið og valda því sársauka og vanlíðan. Björgvin G. Sigurðsson Skoða mál lesblindra mánudagur 9. 10. 2006 íþróttir mbl.isíþróttir Svíar mæta fullir sjálfstrausts á Laugardalsvöll >> 2 HAUKAR ÁFRAM Í BLÁLOKIN HAUKAR SKORUÐU TVÖ SÍÐUSTU MÖRKIN Á ÁSVÖLLUM Í GÆR OG TRYGGÐU SÉR TVEGGJA MARKA SIGUR >> 4 Eftir Skúla Unnar Sveinsson í Riga skuli@mbl.is „Það er kanski samt jákvætt að eftir þennan slæma kafla héldum við áfram að skapa okkur færi þó svo við næðum því miður ekki að nýta okkur það í kvöld. En við reyndum eins og við gátum fyrir hlé að skora eitt mark því það hefði verið miklu þægi- legra að geta byrjað síðari hálfleik- inn af fullum krafti og með þá von að rétta okkar hlut. Við byrjuðum síðari hálfeikinn raunar vel og sköpuðum okkur færi en náðum ekki að nýta þau og ég verð að segja það að þó svo við vær- um alltaf í sénsunum þá var þetta bara einn af þeim furðulegustu leikj- um sem ég hef tekið þátt í. Þetta var var alveg með ólíkindum,“ sagði Eyjólfur og bætti við: „Ég held að í kvöld hefðum við getað leikið í tvo klukkutíma í viðbót án þess að ná að skora – við hefðum fengið fullt af færum en þetta átti bara ekki fyrir okkur að liggja. Misstum einbeitinguna eftir að þeir skouðu Hann sagði svekkjandi að vera með leikinn í jafnvægi en síðan fá á sig tvö mörk á stuttum tíma. „Leik- urinn var í jafnvægi og þeir voru ekkert að skapa sér nein færi en við fengum hins vegar tvö í upphafi leiks. Eftir að þeir skoruðu markið misstum við einbeitinguna og þetta leystist dálítið upp hjá okkur. Það kom ein löng sending og Ívar ætlaði að skalla til Árna Gauts með skelfi- legum afleiðingum. Svona gerast hlutirnir og ég ætla ekki að benda neinn sérstakan. Við töpum allir saman og við vinnum allir saman. Ég veit í rauninni ekki hvað það var sem gerðist hjá okkur og hvers vegna þetta einbeitingarleysi kom upp en vð verðum að fara yfir leikinn betur til að vita hvort við sjáum eitthvað út úr því en svona strax eftir leik get ég ekki sagt hvers vegna þetta gerðist. Maður gerir alltaf ráð fyrir að menn geri mistök en þegar það ger- ist nær næsti maður að bjarga náunganum fyrir horn. Það var bara því miður ekki málið í dag. Einbeitingin datt niður hjá okkur í einhverjar tuttugu mínútur og þá má segja að leikurinn hafi klárast fyrir okkur,“ sagði Eyjólfur. – Fannst þér liðið leika illa í dag? „Nei, mér fannst það í rauninni ekki. Hins vegar er alveg ljóst að það er nóg að leika illa og óagað í tuttugu mínútur til að tapa leik í al- þjóðlegri keppni. Það var það sem gerðist hjá okkur í kvöld,“ sagði Eyjólfur. Hann sagðist eins og áður kemur fram ekki vilja benda á einhverja sérstaka en sagði þó að ákveðnir menn í liðinu hefðu ekki leikið eins og þeir eiga að geta best, en vildi ekki nefna neinn sérstakan í því til- viki. Spurður um hvort Árni Gautur hefði hugsanlega átt að ná að verja þegar Lettar skoruðu síðasta mark- ið sagði hann: „Ég veit það ekki ná- kvæmlega en mér sýndist svona í fyrstu atrennu að þettta væri svo gott sem óverjandi skot. Árni Gaut- ur verður held ég ekki sakaður um þessi mörk.“ Mörkin koma í fyrri hálfleik í leikjum Íslands Í þeim þremur leikjum sem Ísland hefur leikið í EM í ár hafa mörkin komið í fyrri hálfleik. Staðan var vænleg í leikhléi á móti Norður-Ír- um, liðið var 2:0 undir á móti Dönum í hálfleik og 3:0 undir núna gegn Lettum. Hefur landsliðsþjálfarinn einhverjar skýringar á takteinum hvernig þettan megi vera. „Nei í rauninni ekki,“ segir hann. Um leik Lettanna sagði Eyjólfur hann ekki hafa komið sér á óvart. „Við gerðum okkur grein fyrir því að þeir væru sterkir og baráttuglaðir og það kom á daginn. Þeir fengu nokkur fín færi á móti Svíum um daginn en náðu þá ekki að skora, núna skora þeir hins vegar fjögur mörk á meðan við fáum fín færi en náum ekki að skora,“ sagði Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari AP Barátta Gretar Rafn Steinsson á hér í höggi við Lettann Aleksejs Visnja- kovs í Evrópuleiknum í Riga á laugardaginn. Hefðum getað leikið í tvo tíma í viðbót án þess að ná að skora Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari sagði að liðið hafi misst einbeitingu gegn Lettum „VIÐ byrjuðum vel, fengum tvö góð færi og þá var eins og menn héldu að þetta kæmi af sjálfu sér, sagði Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálf- ari heldur niðurlútur eftir 4:0 tap fyrir Lettum í Riga á laugardaginn. „Við gerðum í kjölfarið tvenn alvar- leg mistök sem þeir nýttu sér strax. Við það kom mikið fát á liðið hjá okkur og menn voru óöruggir og hlupu út úr stöðum. Við reyndum samt að rétta okkar leik en fengum þá þriðja markið á okkur, hálfgert klafsmark og eftir það var róðurinn virkilega erfiður,“ sagði Eyjólfur. SVÍAR verða að gera breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Íslend- ingum í undankeppni EM sem fram fer á Laugardalsvellinum á miðviku- daginn. Fyrirliðinn Fredrik Ljungberg haltraði meiddur af velli í byrjun síð- ari hálfleiks gegn Spánverjum á laugardagskvöldið og er tæpur fyrir leikinn gegn Íslendingum. Anders Svensson nældi sér í ann- að gult spjald í leiknum á móti Spán- verjum og er kominn í leikbann og þá ríkir óvissa um þátttöku Tobiasar Linderoth en eiginkona hans á von á þeirra fyrsta barni á næstu dögum. Ljungberg, Svensson og Linde- rorth voru allir í byrjunarliðinu í leiknum við Spánverja – léku á miðj- unni svo Lars Lagerbäck landsliðs- þjálfari Svía þarf að tefla fram ,,nýrri miðju“ í leiknum við Íslend- inga ef að líkum lætur. Ljungberg tæpur og Svensson í banni „ÉG vonast til að Sverre verði klár í síðari hluta desember svo hann geti verið með landsliðinu á HM,“ sagði Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari og þjálfari þýska liðsins Gummers- bach um Sverre Jakobsson, leik- manna sinn, sem gengst undir skurðagerð í dag þar sem liðband sem gengur frá ökkla og upp í legg verður lagað, en það er rifið. Sverre hefur ekkert getað leikið með Gummersbach í mánuði vegna meiðslana og var af þeim ástæðum í gifsi. Þannig var vonast til að lið- bandið myndi gróa á þeim tíma en sú hefur ekki orðið raunin. „Læknar segja að þá sé ekkert ann- að að gera en skera,“ segir Alfreð sem er nú án fjögurra leikmanna og hópurinn orðin fámennur hjá Gum- mersbach. „Þegar við stillum upp í sóknarkerfi á æfingum þá verð ég að vera með. Við megum ekki við fleiri afföllum,“ segir Alfreð. Sverre úr leik út árið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.