Morgunblaðið - 09.10.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.10.2006, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200 MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17 W.LEIKFELAWW G.IS ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS Kortasala enn í fullum gangi! Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu Lau 14. okt kl. 14 UPPSELT Lau 14. okt kl. 14 Aukasýning - Örfá sæti Lau 14. okt kl. 15 Aukasýning - í sölu núna! Sun 15. okt kl. 14 UPPSELT Sun 15. okt kl. 15 UPPSELT Sun 15. okt kl. 16 UPPSELT Sun 22. okt kl. 14 UPPSELT Sun 22. okt kl. 15 UPPSELT Sun 22. okt kl. 16 Næstu sýn: 29/10, 5/11, 12/11 Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu Fim 15. okt kl. 20 5. kortasýn Fös 13. okt kl. 20 6. kortasýn Herra Kolbert – sala hafin! Lau 28. okt kl. 20 Frumsýning UPPSELT Næstu sýn.: 29/10, 2/11, 3/11, 4/11, 5/11, 9/11, 10/11, 12/11, 16/11 Sun 15/10 kl. 14 Sun 22/10 kl. 20 Lau 28/10 kl. 14 Sun 29/10 kl. 20 Fim 12/10 kl. 20 Lau 14/10 kl. 20 Sun 22/10 kl. 20 Fös 27/10 kl. 20 Fim 12/10 kl. 20 Fös 13/10 kl. 20 Lau 14/10 kl. 20 Lau 21/10 kl. 20 Fös 27/10 kl. 20 Lau 28/10 kl. 20 Lau 4/11 kl. 20 Fyrirsætan Kate Moss og kærastihennar Pete Doherty huga að barneignum að því er götublaðið Sunday Mirror heldur fram. Moss er sögð trúa því að það geti bjargað Do- herty frá eit- urlyfjaneysl- unni, en fjölmiðlar hafa veitt eit- urlyfjaneyslu þeirra mikla athygli und- anfarna mán- uði. Moss á eina dóttur fyrir, stúlk- una Lilu. Dagblaðið hefur það eftir vini Moss að hún vilji eignast barn með honum en fyrst verði hann að losa sig við fíkn- ina og hætta neyslu eiturlyfja. Do- herty á son fyrir. Hljómsveit hans Babyshambles hefur þurft að aflýsa síðustu fimm tónleikum sínum vegna Doherty. Hann lét ekki sjá sig þegar halda átti tónleika í Liverpool föstudaginn sl. Sagan segir að Moss hafi sett Do- herty afarkosti: Að hann velja milli hennar eða hljómsveitarinnar. Sky segir frá þessu. Fólk folk@mbl.is Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is EYJÓLFUR Eyjólfsson söngvari er þessa dagana staddur í Fær- eyjum. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hann tekur þátt í upp- færslu á fyrstu færeysku óperunni. Óperan nefnist Í Óðamansgarði (The Madmans’s Garden) og er byggð á smásögu eftir rithöfund- inn William Heinesen. Tónskáldið Sunleif Rasmussen á svo heiðurinn af uppfærslunni. Morgunblaðið náði tali af Eyjólfi í gærkvöldi en æfingar eru nú í fullum gangi. „Þetta er erfitt verk og því höf- um við verið á löngum og ströng- um æfingum með hljómsveitinni,“ sagði Eyjólfur og segir erfiðleika verksins felast meðal annars í því að þetta sé „nútímaverk og því ekki alltaf lógískt“. Ekkert óperuhús „Óperan endurspeglar að mínu mati stemninguna í Færeyjum en Rasmussen er mikið náttúrubarn. Sagan gerist í nútímanum og er uppvaxtarsaga karls og konu sem ná saman á endanum,“ segir Eyj- ólfur. „Það er gaman að taka þátt í þessu en það er ekki mikil óp- eruhefð í Færeyjum. Hér er ekki einu sinni óperuhús. Verkið verður sýnt í Norræna húsinu hér í Þórs- höfn,“ segir Eyjólfur og bætir við að hann hafi fundið fyrir áhuga norrænna fjölmiðla á óperunni þar sem þetta sé sú fyrsta í sögu Fær- eyja. Í Óðamansgarði verður frum- sýnd næstkomandi fimmtudag. Fyrsta færeyska óperan Íslenskur söngvari tekur þátt í uppfærslunni Söngvarinn Eyjólfur Eyjólfsson tekur þátt í uppfærslu fyrstu fær- eysku óperunnar. www.themadmansgarden.com YOKO Ono fékk hugmyndina að friðarsúlunni, sem reist verður í Viðey, fyrir meira en 40 árum. Á blaðamannafundi í gær sagði hún frá því að hún hefði skrifað hugmyndina niður á hugmyndalista sinn árið 1965 en listinn var svo sendur 200 ein- staklingum sem fylgdust með list hennar á þeim tíma. Ono sagði frá því að 1967 hefði John Lennon boð- ið henni í kaffi, sagðist hann hafa lesið um hugmynd hennar að friðarsúlunni og bað hana að byggja hana í garðinum sínum. Ono segist hafa hlegið að Lennon og svarað því til að hún væri viss um að einn daginn væri hægt að byggja súluna en sem stæði vissi hún ekki hvernig. Ono sagði að hún dáðist enn þann dag í dag að þeirri staðreynd að Lennon hefði verið snortinn af þessari hugmynd hennar. Í dag mun Ono staðfesta áform sín um IMAG- INE PEACE TOWER, friðarsúluna í Viðey. Frið- arsúlan verður í raun friðarljós, en sterkt ljós mun lýsa upp úr botni súlunnar. „Það tók yfir 40 ár að láta þessa hugmynd ræt- ast, nú hér á Íslandi. Tímasetningin gæti ekki verið meira viðeigandi, ljós er það sem heimurinn þarfnast. Við búum öll í skugga ótta og ring- ulreiðar í hinum mengaða heimi. Þetta ljós á Ís- landi verður aldrei slökkt, það er eilífðargeislinn sem við sendum út til heimsins og geimsins til að gefa von og sannfæringu um að draumar okkar geti ræst. Ísland er fullkomlega staðsett til þess að baða heiminn ljósi og ást,“ sagði Ono. Botn súlunnar verður fylltur með óskum sem Ono hefur safnað með listaverki sínu Wish Tree, eða óskatré, sem farið hefur víða um heim. Þar sem verkið var sett upp gafst fólki tækifæri á að hengja ósk sína á tré Ono og seinna gat fólk sent Ono óskir. „Ég hef geymt allar óskirnar sem fólk hefur sent mér og hengt á verkið mitt Wish Tree í mörgum löndum, þær eru núna yfir 900.000 og þær verða allar settar undir friðarsúluna í Viðey,“ sagði Ono. Enn er hægt að senda óskir og er póstfangið Imagine Peace Tower, PO Box 1009, 121 Reykja- vík, Iceland. Ono sagðist afar glöð að vera stödd á Íslandi á þessum afmælisdegi Lennons, sem er í dag, þeim fyrsta sem hún heldur upp á á Íslandi. „Síðan við byrjuðum á þessu verkefni hef ég lært svo mikið um þetta fallega og töfrandi land. Íslendingar trúa á álfa og huldufólk, sem vernda þetta land. Hringadróttinssaga Tolkien er að miklum hluta byggð á íslenskum þjóðsögum, það vissi ég ekki. Hobbitar urðu til út af álfum. Orku- lindin er vatn, en ekki olía. Þetta er fátt eitt af því sem skapar hið töfrandi Ísland.“ Hugmyndin að friðarsúl- unni yfir 40 ára gömul Morgunblaðið/Kristinn Friðarsinni Yoko Ono ásamt Gunnari Kvaran á blaðamanna- fundinum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.