Morgunblaðið - 09.10.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.10.2006, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND S amtök áhugafólks um áfengisvanda- málið, SÁÁ, er ein af bestu meðferð- arstofnunum í heiminum og er sam- keppnishæf við hvaða meðferðar- stofnun sem er í Bandaríkjunum,“ segir Terence T. Gorski, bandarískur áfengis- ráðgjafi sem er viðurkenndur meðferðarfulltrúi á alþjóðavísu. Hann telur mikil tækifæri felast í því að stunda rannsóknir á sviði áfengis- og vímuvarna hér á landi enda séu aðstæður vel til þess fallnar. „Ólíkt flestum meðferðarstofnunum eru stundaðar rannsóknir hjá SÁÁ og það hefur yfir að ráða einum stærsta gagnabanka í heimi sem hefur að geyma upplýsingar um fólk sem farið hefur í meðferð. Þannig er mögulegt að greina hverjum gengur vel og hverjum illa. Þá er hægt að skoða forsendur þess hvernig fólki gengur að lokinni meðferð. Það eina sem stend- ur í raun í vegi fyrir því að aukinnar þekkingar sé aflað með þessum hætti er skortur á fjár- magni.“ Gorski segir Þórarin Tyrfingsson, yfirlækni SÁÁ, hafa sýnt mikla framsýni þegar hann hóf að safna upplýsingum um meðferðarsjúklinga fyrir um tuttugu árum og sé óragur við að kalla eftir ráðgjöf færustu sérfræðinga heims á þessu sviði. Þeir hafi unnið náið saman og skipst á upplýsingum en Gorski hafi komið nokkrum sinnum hingað til lands á vegum SÁÁ. „Mitt hlutverk fyrir SÁÁ hefur nær ein- göngu falist í þjálfun starfsfólks og samvinnu við Þórarin Tyrfingsson en markmiðið er að bæta meðferðarúrræði svo ná megi betri ár- angri í framtíðinni.“ CENAPS-stofnun hugsanlega komið á fót hér á landi í samvinnu við SÁÁ Árið 1982 kom Gorski á fót meðferðarheimili sem ber heitið CENAPS (e. Center for Applied Sciences) í Bandaríkjunum en stofnunin hefur verið öðrum meðferðarstofnunum innan hand- ar með rannsóknir, kennslu og ráðgjöf. Þar er meðal annars lögð áhersla á aðferðir Gorskis varðandi fallþróun. Slíkri stofnun hefur verið komið á fót í Danmörku og starfar hún í góðri samvinnu við CENAPS-stofnunina í Banda- ríkjunum. „Markmiðið með stofnun CENAPS í Dan- mörku er að laga þá tækni sem ég hef verið að þróa síðastliðin 35 ár að danskri menningu þannig að stofnunin geti staðið á eigin fótum án þess að þurfa að treysta á fólk frá Bandaríkj- unum. SÁÁ mun jafnvel gera svipaða hluti hér en CENAPS-kerfið hefur verið notað á Íslandi í langan tíma.“ Gorski segist vona að CENAPS-stofnun verði komið á fót hér á landi en hann hafi rætt um útfærslur á þessari hugmynd við Þórarin Tyrfingsson. „Ég trúi því að þetta verði að veruleika en get ekki sagt til um það hvenær það verður. Það mun örugglega verða áframhaldandi sam- vinna okkar á milli en hvort það verður hér CENAPS-stofnun kemur í ljós eftir nokkra mánuði.“ Aðspurður segist Gorski ekki telja að drykkjumenning Íslendinga sé mjög frábrugð- in því sem þekkist annars staðar í heiminum. „Áfengisneysla er nokkurn veginn með sama hætti víðast hvar í heiminum. Ég held hins veg- ar að vandamál tengd áfengi hafi aukist hér á landi í kjölfar þess að bjór var lögleiddur árið 1989. Þá varð vöxtur í rekstri staða sem hafa þann eina tilgang að selja áfengi og drykkja varð viðurkennd í samfélaginu. Fólk virðist ekki vilja trúa því að bjór sé fíkniefni og sá hann ekki í sama ljósinu og sterkt áfengi en hann getur að sjálfsögðu verið jafn skaðlegur. Ekki er óalgengt, að litið sé á bjór líkt og gosdrykk en hann er til þess fallinn að fólk byrji að neyta áfengis fyrr á lífsleiðinni. Lögleiðing bjórsins skapaði því mikið af vanda- málum.“ Bjórinn jók við vandann Gorski segir að áfengis- og vímuefnavandinn sé svo útbreiddur að hann eigi erfitt með að trúa því eftir 35 ára starf á þessu sviði hversu slæm staðan sé í raun og veru. Nánast allir þekki einhvern sem hafi átt við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða og um sé að ræða mik- ið heilbrigðisvandamál. Það beri því að taka á því sem slíku en ekki eigi að líta á fíkla sem glæpamenn, heldur meðhöndla þá sem sjúk- linga. „Menn eru almennt sammála um það, að besta leiðin til að hjálpa þeim sem eru háðir áfengi eða vímuefnum sé sú að veita þeim með- ferð. Ísland hefur ekki fylgt fordæmi Banda- ríkjamanna sem líta á fíkla sem glæpamenn og senda þá í fangelsi. Gríðarlegum fjármunum hefur verið varið í byggingu fangelsa víðs vegar um landið en fíkl- ar eru ekki betur settir bak við lás og slá, held- ur á að veita þeim viðeigandi aðstoð. Menn eru farnir að gera sér grein fyrir því í Bandaríkj- unum að þetta sé ekki rétta leiðin en það tekur ávallt inn tíma að breyta viðbrögðum kerfis- ins.“ SÁÁ meðal þeirra bestu Morgunblaðið/Kristinn Vímuvandinn Terence T. Gorski segir áfeng- isneysluna með líku sniði alls staðar. Bandaríski áfengisráðgjafinn Terence T. Gorski segir mikil tækifæri felast í því að stunda rannsóknir á sviði áfengis- og vímuvarna hér á landi. Í HNOTSKURN »Terence T. Gorski hefur aflað sérmikillar menntunar á sínu sviði og setti fram hugmyndir um svokallaða fallþróunin, um þá sem byrja á ný að nota vímuefni þrátt fyrir meðferð. »Hann var einn af helstu hugmynda-smiðum endurkomumeðferðar SÁÁ eða svokallaðrar víkingameðferðar eins og hún er nefnd í daglegu tali og hófst árið 1987. Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is ERNIR Freyr Sigurðsson, formað- ur Vélhjólaklúbbs Akraness, segir að mikil tilhlökkun sé hjá áhuga- mönnum um íþróttina og viðburð- urinn sé einstakur í sinni röð. Um 15 manna hópur stundar vélhjóla- akstur (mótorkross) reglulega á æfingasvæði sem verið er að koma upp á gömlu sorphaugunum á Akranesi en þar fyrir utan er fjöldi manna og kvenna sem ekur sér til ánægju á þar til gerðum svæðum. „Ætli það séu ekki 40–50 aðilar sem eru að „hjóla“ og hópurinn fer alltaf stækkandi,“ segir Ernir. Formaðurinn og félagi hans, Jó- hann Sigurjónsson, fengu leyfi hjá lögreglunni á Akranesi til þess að taka forskot á sæluna í gær í rign- ingasuddanum og var greinilegt að þeir kunnu vel að meta eggsléttan sandinn. „Maður er búinn að horfa á þetta svæði í 15 ár og alltaf haft áhuga á að prófa. Ég er því eins og belja að vori í sveitinni, og þetta er mun skemmtilegra en ég átti von á,“ segir Ernir eftir fyrstu rispuna í vesturátt eftir Langasandi. Hjólið er af Honda-gerð, 250 cc, og gríðarlega kraftmikið. Ernir og Jóhann félagi hans fóru hratt yfir og léku sér að því að lyfta fram- hjólinu og „prjóna“ dágóðan spöl. Ernir segir að mikill áhugi sé á mótorkrossi á Íslandi og stór hóp- ur stundi íþróttina reglulega. „Það hefur orðið sprenging í þessu undanfarin ár. Ég held að flestir sem stundi þetta séu á aldur við mig, 30 ára og eldri. Stór hópur á aldrinum 40–50 ára hefur keypt sér hjól á undanförnum misserum og fær útrás á hjólunum. Einnig er að koma upp kynslóð af ungu fólki sem hefur ekið á vélhjólum frá því að það var kannski 6 ára gamalt. Þessir aðilar eru langt, langt á undan okkur sem byrjuðum kannski 16 ára gamlir að aka á skellinöðrum. Við verðum aldrei eins góðir og þessir ungu krakk- ar.“ Ernir er spurður að því hvort utanvegaakstur sé ekki ljóður á starfi félaga borð við vélhjóla- klúbbinn á Akranesi. Fara eftir leikreglum „Það eru vissulega aðilar sem fara ekki eftir leikreglunum sem við viljum að farið sé eftir. Skortur á svæðum til þess að keyra á er stór hluti af vandamálinu. Við hér á Akranesi erum bjartsýnir á fram- haldið með nýju svæði sem við höf- um fengið til umráða við Akrafjall- ið – á gömlu sorphaugunum. Þar mun verða prýðisaðstaða fyrir okkur og það er ekki langt að fara á önnur svæði hér í nágrenni við okkur ef menn vilja fá tilbreytingu í aksturinn. Utanvegaakstur er allavega ekki það sem við viljum.“ Eins og áður segir er keppni á dagskrá hinn 21. okt. á Langasandi og segir Ernir að flestir vélhjóla- menn hafi hug á því að vera á svæðinu þegar sú keppni fer fram. „Við búumst við 60–70 keppendum og eflaust verður fjöldi fólks að horfa á. Enda er aðstaðan til þess ljómandi góð á þessu svæði. Þetta er í raun einstakt tækifæri og ég hlakka til að taka þátt,“ segir Ern- ir. Það er Skagamaðurinn Ólafur Þór Gíslason sem er hugmynda- smiðurinn að keppninni en hann hefur gengið með þessa hugmynd í kollinum í rúm tvö ár. „Ég hef verið í sambandi við bæjaryfirvöld á Akranesi í nokkur misseri og fékk strax góð viðbrögð frá bænum. Það var rétti tíminn til þess að gera þetta núna að mínu mati og er þetta liður í því að efla vélhjólaklúbbinn á Akranesi. Keppnin hefur vakið mikla at- hygli í röðum vélhjólamanna og ég á von á allt að 70 keppendum. Svæðið sem við fáum að nota er einstakt, náttúruperla, en við get- um ekki skemmt neitt á sandinum sem verður eins og hann var áður eftir eitt flóð. Sjórinn sér um að laga ummerkin eftir okkur,“ segir Ólafur. Á afturdekkinu alla leið Á Langasandi verða settar upp ýmsar hindranir sem vélhjólakapp- arnir þurfa að glíma við. „Það verða vörubíladekk, símastaurar, vörubretti og ýmislegt annað sem að keppendur þurfa að sneiða fram hjá eða fara yfir. Einnig verður keppt í því að aka á afturhjólinu og ég get vel ímyndað mér að það séu einhverjir kappar sem geta ekið á afturdekkinu eftir endilöngum sandinum. Ég held að það séu um 1,6 km. Ég á ekki von á öðru en þetta verði skemmtilegur dagur og aðstaða fyrir áhorfendur er góð. Ég hvet því alla sem hafa áhuga á að sjá góð tilþrif að kíkja við á Langasandi en keppnin hefst rétt fyrir hádegi,“ segir Ólafur en hann hefur legið yfir flóðatöflum undan- farnar vikur og að sjálfsögðu verð- ur háfjara þegar keppnin fer fram. Vélfákar fá að spóla upp Langasand með góðfúslegu leyfi bæjaryfirvalda Vélhjólamenn – og -konur – verða í sviðs- ljósinu á Langasandi á Akranesi laugardaginn 21. okt. nk. en þá fer fram aksturskeppni á útivistarperlu Skaga- manna. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Kraftur Vélhjólamennirnir Ernir Freyr Sigurðsson og Jóhann Sigurjónsson kunnu vel að meta að aka á aftur- dekkinu á Langasandi á Akranesi en þar fer fram stórmót vélhjólamanna síðar í þessum mánuði. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.