Morgunblaðið - 09.10.2006, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 09.10.2006, Qupperneq 40
40 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ vík ættu að huga sér- staklega að því að erlendir ferðamenn geti aflað sér upplýs- inga um vöru og þjón- ustu á öðrum málum. Annað efni þessu tengt er skortur á sér- stöku kvikmyndahúsi í miðborginni er sýndi aðeins íslenskar kvik- myndir. Það rignir ósjaldan í Reykjavík og þegar grálegt er um að litast í miðborginni væri fátt meira tilvalið fyrir erlenda ferða- menn en að bregða sér inn í hlýjan bíósal og kynnast broti af íslenskri menningu. Jafnframt mætti nota þennan miðil til að bjóða ferðamönnum upp á kynningu á íslenskri myndlist. Á erlendum listasöfnum er gjarnan boðið upp á hljóðræna leiðsögn um safnkostinn og hvers vegna ættu Ís- lendingar ekki að útfæra sömu hugs- un í myndrænni kynningu á mynd- list í bíósal? Það sama má segja um bókmenntirnar. Þar liggja ýmis tækifæri ónýtt sem þarf að huga að. Með því að kynna íslenska rithöf- unda með viðtalsbrotum í bíósal væri hægt að höfða til ungra ferða- manna sem ella færu á mis við þá. Fyrir helgi stað-festu tölur frá Ferðamálastofu, að er- lendum ferðamönnum til landsins hefði fjölg- að umtalsvert á árinu. Á sama tíma bárust fréttir af því, að fjöldi gesta í Upplýsinga- miðstöðinni í Ingólfs- nausti við Aðalstræti í ár væri þegar orðinn töluvert meiri en allt árið í fyrra. Víkverji tekur þess- um tíðindnum fagn- andi, enda hefur hann löngum litið svo á, að ferðamannaiðnaðurinn geti haft jákvæð áhrif á miðborgina, eflt þar verslun og mannlíf og skap- að ný og spennandi tækifæri. Eins og Víkverji hefur áður bent á er hins vegar víða pottur brotinn í þjónustu við erlenda ferðamenn. Víkverji brá sér þannig austur á Gullfoss fyrr í sumar og komst að því, að nýlegur upplýsingaskáli ofan við fossinn var hannaður eingöngu með Íslendinga í huga, þar var ekki að finna neinar upplýsingar á öðrum tungumálum, ekki einu sinni á al- þjóðamálinu ensku. Víkverji telur þetta víti til varn- aðar og að borgaryfirvöld í Reykja-      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins : Ef von vor til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum vér aumkvunarverðastir allra manna. (1. Korintubréf 15, 19.) Í dag er mánudagur 9. október, 282. dagur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Nátttröllið TR ÞAÐ er flókið mál að leita til Trygg- ingastofnunar ríkisins. Ég þurfti að leita til hjartasérfræðings fyrir til- stuðlan sérfræðings sem hefur sprautað mig í axlirnar og taldi hann þörf á hjartarannsókn. Þegar ég fór á Tryggingastofnun til að fá end- urgreiddar tæpar 6 þús. krónur sem ég hafði greitt hjá hjartasérfræð- ingnum þá neitaði Tryggingastofnun að tala það gilt af því að tilvísun átti að koma frá heimilislækni. Er ekki aðalmálið að það komi til- vísun frá lækni, þarf það endilega að vera frá heimilislækni? Er endalaust hægt að leggja svona á veikt fólk. Ég vorkenni starfsfólki trygg- ingastofnunar að þrufa að standa frammi fyrir sjúklingum og bera fram ákvarðanir sem finnast engin rök fyrir. Skal nokkurn undra þá miklu traffík sem er á götum Reykjavíkur m.a. af leigubílum sem eru að ferja sjúklinga á milli lækna og tryggingastofnunar. Það eru einu kynni mín af Trygg- ingastofnun en sem starfandi hjúkr- unarfræðingur í hálfa öld fylgdist ég með baráttu sjúklinga við þessa stofnun. Finnst mér sorglegt að sjá að ekkert á þeim bæ hefur færst til batnaðar. Tillaga mín er að Trygg- ingastofnun verði lögð niður hið bráðasta og fyrri tíma sjúkrasamlag tekið í notkun. Nokkur ár eru síðan Ingólfur Sveinsson, geðlæknir, kom með þá tillögu í nokkrum blaða- greinum. Hrönn Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á eftirlaunum. Pólitík í umferðarmálum NÚ undanfara daga hefur þjóðin verið að tala um umferðarmál. Mér er ofboðið hvað ráðherrar hafa kom- ið inn í þessa umræðu, og lofað öllu fögru. En ekkert hefur komist áleið- ist nema fagurgali frá þeim. Hvernig má það vera að ráðamenn Íslands séu alveg blindir gagnvart þessum málaflokki, þar sem við borgum mörg gjöld til vegamála og umferð- aröryggis. Háttvirtur samgönguráðherra hefur lofað mörgu til að bæta þenn- an málaflokk en ekki staðið við sín orð, best má sjá á því að Óli H. Þórð- ar hefur sagt af sér störfum vegna þess að hann fær ekki hljómgrunn frá ríkinu. Á sama tíma og verið er að ræða um umferðaröryggi og að fjarlægja hraðaakstur af götum bæjarins þá virðist mér að Guðni Águstsson hafi meira um málið að segja þar sem hann gat úthlutað 300 miljónum til hestamanna Ekki það að mér sé illa við hesta- menn, heldur snýst málið um for- gangsröðun. Þá er mér spurn hver ræður meira. Geir H. Haarde sagði í morgun að það væri 15,5 miljarðar í tekju- afgang fyrir næsta ár, (væntanlega snýr sér úr því), hann gæti sett inn í þetta frumvarp ca 300 millj. til L.Í.A eins og til hestamanna. Mér þætti gaman að hitta hann til að ræða þessi mál og að hann gæti svarað mér hvort það væri betra að leggja fé til hesta eða mannfólks. Ég held að hann hafi ekki mörg svör. Að lokum: Viljum við hafa um- ferðaröryggi í ólestri eða eigum við að hlusta á samgönguráðherra mik- ið lengur. Kjósum þann sem er tilbúinn að taka þetta verkefni að sér. Anna María Þorláksdóttir. Morgunblaðið/Árni Torfason árnað heilla ritstjorn@mbl.is 60 ára afmæli. Ídag, 9. októ- ber, er sextugur Ólafur Víðir Björns- son, deildarstjóri í íslensku við Verzl- unarskóla Íslands. Hann er að heiman. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE. STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN. www.haskolabio.is • Miðasalan opnar kl. 17HAGATORGI • S. 530 1919 BJÓLFSKVIÐA eee H.J. - MBL eeee blaðið LOKASÝNINGARTILBOÐ 400 KR. ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku tali ! GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM NICOLAS CAGE SÝNIR STÓRLEIK Í MYNDINNI. NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE. STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN. eee BBC eee ROLLING STONE eeee EMPIRE eeee TOPP5.IS SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG. WORLD TRADE CENTER kl. 6 - 8:30 - 10:10 B.i.12.ára THE ROAD TO GUANTANAMO ÁN TEXTA kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.16.ára THE QUEEN kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ BJÓLFSKVIÐA kl. 8 B.i.16.ára PIRATES OF THE CARIBBEAN 2 kl. 9 Tilboð 400kr. B.i.12.ára eeee SV, MBL Einn óvæntasti gleðigjafi ársins FRÁBÆR MYND FRÁ VERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM STEPHEN FREARS SEM VAR VALIN OPNUNARMYNDIN Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í FENEYJUM OG REYKJAVIK. HELEN MIRREN HLAUT VERÐLAUN SEM BESTA LEIKKONAN Í AÐALHLUTVERKI Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í FENEYJUM ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM Ekki missa af fyndnustu Walt Disney teiknimynd haustins. eeee VJV eeee Roger EbertÞEGAR FRÉTTIR AF DAUÐA DÍÖNU PRINSESSU SKÓKU HEIMS- BYGGÐINA, DRÓ HENNAR HÁTIGN ELÍSABET II DROTTNING SIG TIL HLÉS INNAN VEGGJA BALMORE KASTALA. eee MMJ, KVIKMYNDIR.COM "LEIKURINN EINSTAKUR OG UMFJÖLLUNAREFNIÐ ÁHUGAVERT." NICOLAS CAGE SÝNIR STÓRLEIK Í MYNDINNI. eee BBC eeee EMPIRE / KRINGLAN BEERFEST kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i.12.ára. HARSH TIMES kl. 8 - 10:20 B.i. 16.ára. BÖRN kl. 8 - 10:10 B.i.12.ára. ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl tali kl. 6 LEYFÐ UNITED 93 kl. 5:45 B.i.14.ára. eee LIB, TOPP5.IS eee ROLLING STONE UNDURFÖGUR tónlist Schumanns svífur yfir andstæðunni, kuldalegum fangelsismúr- unum í Fjórum mínútum, grimmu drama um tvo konsertpíanista með raunasögur að baki. Hin áttræða frú Krueger (Bleibtreu) hef- ur kennt föngum klassískan píanóleik við ríkisfangelsi í Þýskalandi, lengur en elstu menn muna. Hún fær að vita að nýkominn fangi, dæmdur morðingi, búi yfir ótvíræðum hæfileikum og líður ekki á lönngu uns stúlk- an, Jenny Von Loeben (Herzsprung), vekur áhuga hennar. Þannig hefjast samskipti kvennanna tveggja sem eiga tónlistarhæfileikana sam- eiginlega, annað ekki, við fyrstu sýn. Þegar gamla konan er við það að gefast upp fyrir Jenny, heltekinni af sjálfseyðingarhvöt, opn- ar hún sig og segir stúlkunni sorglega sögu af æsku sinni og ástum og svikum sem hafa ekki vikið frá henni í 60 ár. Hún er tilbúin að gera allt, jafnvel hreinskilnin virðist ekki ætla að duga til að koma vitinu fyrir hina ungu og beisku Jenny. Frú Krueger berst fyrir því að hæfileikar fái að njóta sín en Jenny er hrikalega illa farin eftir sitt stutta en ömurlega veraldar- volk sem er í algjörri andstæðu við tónlist- argáfuna. Samskipti kvennanna minna oftar en ekki á keppni í hnefaleikahring. Frú Krueger reynir að þjálfa og laða fram snilli- gáfur Jennyar, en ekki líður á löngu uns keppandinn hefur klúðrað og eyðilagt þann árangur sem náðst hefur. Lotunum lýkur með ósköpum, og þær eru margar í mynd- inni. Tónlistin og leikur kvennana beggja, er þess virði að sjá Fjórar mínútur, en áhorf- andinn verður einnig að vera þolinmóður á löngum stundum þegar handritshöfundurinn kann sér ekki hóf en hellir yfir hann offlæði hádramatískra augnablika. Byggt upp og brotið niður KVIKMYNDIR RIFF 2006: Háskólabíó Leikstjóri: Chris Kraus. Aðalleikarar: Monica Bleibt- reu, Hannah Herzsprung, Sven Pippig, Richy Muell- er. 114 mín. Þýskaland. 2006. Fjórar mínútur – Vier Minuten  Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.