Morgunblaðið - 22.10.2006, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.10.2006, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2006 B 5 Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is Ný og fjölbreytt störf hjá Norðuráli Vegna vaxtar fyrirtækisins óskar Norðurál að ráða fólk til almennra starfa, iðnaðarstarfa, skrifstofustarfa og verkfræðistarfa. Norðurál Hjá okkur starfa nú um 360 manns að margvíslegum verkefnum og gert er ráð fyrir að starfsmenn verði orðnir um 410 talsins árið 2007. Framleiðslugeta álversins er 220.000 tonn á ári og unnið er að stækkun sem felur í sér að framleiðslugetan eykst í 260.000 tonn á næsta ári. Almenn störf á framleiðslusviði (starf nr. 5990) Ný framtíðarstörf eru að skapast fyrir tugi manna í kerskála, steypuskála og skautsmiðju. Störfin eru fjölbreytt og tækifæri gefast til að öðlast mikilvæga starfsþekkingu. Verk- eða tæknifræðingur á tækni- og umhverfissviði (starf nr. 5991) Þörf er á að ráða tæknimenntaðan einstakling á sviði véla eða framleiðslu. Starfið er einkum fólgið í umsjón með rekstrartengdum verkefnum varðandi viðhald og endurbætur á vélbúnaði og framleiðslukerfum álversins. Jafnframt snýst starfið um verkefnastjórnun stærri nýverka, gerð framkvæmda- og fjárhagsáætlana auk samskipta við verktaka og framleiðendur búnaðar. Verkfræðingur á framleiðslusviði (starf nr. 5992) Viðkomandi vinnur náið með framkvæmdastjóra sviðsins, öðrum sérfræðingum og vaktstjórum. Starfið felst í greiningu og stýringu kera, umsjón með stoðkerfum framleiðslunnar, þátttöku í stefnumótun framleiðslusviðs og sameiginlegum verkefnum milli deilda. Hér gefst færi á að taka þátt í spennandi uppbyggingar- og þróunarstarfi. Rafvirkjar, vélvirkjar, rafeindavirkjar (starf nr. 5993) Í boði eru áhugaverð störf fyrir rafvirkja, vélvirkja og rafeindavirkja. Farið er fram á sveinspróf í viðkomandi fagi eða að umsækjandi stefni á sveinspróf innan árs. Starf við bókhald (starf nr. 5994) Um er að ræða tímabundið starf til 1. september 2007 sem felst í umsjón með aðföngum skrifstofu, almennum skrifstofustörfum og bókhaldi. Góð enskukunnátta er áskilin. Til hvers ætlumst við? Við leitum að áhugasömu fólki sem vill vinna að krefjandi verkefnum og vaxa í starfi. Lipurð í samskiptum, metnaður til að ná árangri og vilji til að axla nýja ábyrgð eru skilyrði. Hvað veitum við? Við bjóðum þér gefandi starf hjá nútímalegu fyrirtæki í miklum vexti. Þú vinnur mikilvæg verk með góðu samstarfsfólki og við tökum vel á móti þér. Atvinnuöryggi er mikið, tekjur traustar og laun þín eru að hluta árangurstengd. Ennfremur greiðir fyrirtækið þér aukið framlag í séreignasjóð. Jafnrétti Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna til starfa hjá Norðuráli. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg og Guðný Sævinsdóttir hjá Hagvangi í síma 520 4700. Farið verður með umsókn þína og allar persónulegar upplýsingar sem trúnaðarmál. Hvernig sækir þú um? Vinsamlega fylltu út umsókn þína á www.hagvangur.is fyrir 6. nóvember næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.