Morgunblaðið - 22.10.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2006 B 15
Gullklúbbur
Grand Hótels Reykjavíkur
Sölumenn
Vegna árlegs markaðsátaks óskum við eftir
sölumönnum til starfa í nóvember.
Um er að ræða spennandi sölu- og
kynningarstörf.
Upplýsingar gefur Salvör, umsjónarmaður
Gullklúbbsins, á staðnum 23.—25. október frá
kl. 9-14.
Grand Hótel Reykjavík er fjögurra stjörnu ráð-
stefnuhótel með 6 sali, 108 herbergi og veit-
ingastaðinn Brasserí Grand.
www.grand.is
Ert þú að leita að
nýjum, ferskum
starfsframa?
Ert þú 18-26 ára? Metnaðargjörn og áköf með
alvöru fjárhagsleg framtíðarplön?
Okkur vantar 12 manneskjur núna!! Til þjálfun-
ar í einstakt sölustarf í nýju íslensku fyrirtæki.
Hlunnindi m.a.: Góð grunnlaun. Laun eftir að
takmarki er náð geta orðið 340.000.- kr. á mán.
Bíll og aðrir bónusar, t.d. stöðuhækkun upp
í sölustjóra.
Vinsamlegast sendið inn náms- og starfsferil.
Mynd verður að fylgja.
Umsækjendur sendi umsóknir til augl.deildar
Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „F-19188“.
Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að ráða í eftirtalin störf:
Söluráðgjafi
Starfssvið:
Sala og samningagerð
Viðhald og öflun viðskiptatengsla
Kynning á vörum fyrirtækisins
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
Þekking og reynsla á sviði byggingar-
iðnaðarins er nauðsynleg
Iðnmenntun æskileg
Enskukunnátta
Tölvufærni
Sjálfstæði í starfi og skipulögð
vinnubrögð
Færni í mannlegum samskiptum
Metnaður til að ná árangri
Í boði eru:
Samkeppnishæf laun
Góður starfsandi
Góð vinnuaðstaða
Traustur vinnuveitandi
Lagerstarfsmaður
Starfssvið:
Móttaka á vörum frá birgjum og við-
skiptavinum
Tiltekt á pöntunum viðskiptavina
Afgreiðsla og önnur tilfallandi lagerstörf
Hæfniskröfur:
Þjónustulipurð, samskiptahæfni og
stundvísi
Reynsla af lagerstörfum er kostur sem
og þekking á byggingavörum
Bílpróf er skilyrði
Lyftararéttindi eru æskileg
Í boði eru:
Samkeppnishæf laun
Góður starfsandi
Góð vinnuaðstaða
Traustur vinnuveitandi
Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga. Um framtíðarstörf er að ræða.
Umsóknarfrestur er til 30. október 2006.
Formaco ehf. var stofnað í október 1997 með það að markmiði að þjónusta byggingariðnaðinn með gæðavöru á hagkvæmu verði. Á
árinu 2004 keypti Formaco allan rekstur fyrirtækjanna Idex ehf. Reykjavík og Idex A/S Danmörku, með það að markmiði að auka vöruúrval
og veita viðskiptavinum enn betri þjónustu. Idex hefur boðið upp á breitt úrval byggingavara og sérhæft sig í sölu á gluggum og hurðum.
Í mars 2004 flutti Formaco í nýtt og glæsilegt húsnæði við Fossaleyni 8 í Reykjavík.
Umsóknir fást á skrifstofu Formaco ehf. og á heimasíðu www.formaco.is.
Einnig er hægt að senda umsóknir og ferilskrár á hanna@formaco.is.
Suðurgata 12 • 400 Ísaf jörður
Verkefnastjóri
Háskólasetur Vestfjarða leitar að skipulögðum
verkefnastjóra í hálft starf (50%). Starfið er
tímabundið til 30. september 2007. Miðað er
við að verkefnastjórinn hefji störf í síðasta lagi
1. janúar 2007.
Verkefnastjórinn hefur umsjón með fjölda
verkefna á vegum Háskólasetursins, þar á meðal
eru vaxtarsamningsverkefni og sumarháskólar.
Viðkomandi mun vinna í litlum starfshópi og þarf
að geta unnið sjálfstætt.
Starfssvið
Umsjón með vaxtarsamningsverkefnum
Skipulagning sumarháskóla í samstarfi við aðra
starfsmenn Háskólaseturs
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Háskólamenntun æskileg
Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum
Háskólasetur Vestfjarða er ung stofnun á
háskólastigi. Hún hefur það að markmiði að
veita fjarnemum á Vestfjörðum fyrirtaks þjónustu,
hasla sér völl sem rannsóknarstofnun og bjóða
í framtíðinni upp á eigin kennslu. Háskólasetur
Vestfjarða er staðsett á Ísafirði.
Upplýsingar um starfið
veitir Peter Weiss, forstöðumaður í síma 450 3045.
Umsóknarfrestur
er til og með 1. nóvember 2006.