Morgunblaðið - 22.10.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.10.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2006 B 13 Verlferðarsvið Droplaugarstaðir hjúkrunarheimili Aðstoðarmaður iðjuþjálfa Aðstoðarmaður iðjuþjálfa óskast til starfa frá og með 1. desember 2006, í hlutastarf. Þekking og áhugi á sviði iðjuþjálfunar og tómstundaiðju æskileg, einnig reynsla af starfi með öldruðum. Tölvukunnátta nauðsynleg. Á Droplaugarstöðum er í gangi mikil uppbygging og mótun iðjuþjálfunar, bæði faglega og í tengslum við stækkun heimilisins. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar um starfið veita: Ester Halldórsdóttir, yfiriðjuþjálfi. Netfang: ester.halldorsdottir@reykjvik.is eða í síma 414 9509. Ingibjörg Þórisdóttir deildarstjóri starfsmanna og gæðamála. Netfang: ingiborg.halla.thorisdottir@reykjavik.is eða í síma 414 9503. Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á heimasíðu Droplaugarstaða www.droplaugarstadir.is. Einnig fæst eyðublað á skrifstofu á 1. hæð á Droplaugarstöðum og ber að skila því þangað. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Iðjuþjálfi óskast til starfa sem fyrst í hlutastarf. Iðjuþjálfar á öldrunarsviði vinna fyrst og fremst að viðhaldi og aðlögun á getu og færni einstaklinga. Ýmist á einstaklingsgrundvelli eða í hópastarfi. Íbúar Drop- laugarstaða eru 82. Starfið krefst sjálfstæðra vinnu- bragða, frumkvæðis og góðra samstarfshæfileika. Á Droplaugarstöðum er í gangi mikil uppbygging og mótun iðjuþjálfunar, bæði faglega og í tengslum við stækkun heimilisins. Starfskjör samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Reykjavíkurborgar. Störf í apóteki Lyfjaval í Mjódd óskar eftir að ráða lyfjatækni eða afgreiðslufólk með reynslu af apóteksstörf- um. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar- mál. Umsóknarfrestur er til 27. október. Senda skal umsóknir í pósti á Lyfjaval, Þönglabakka 6, 109 Reykjavík. Einnig má senda umsóknir á póstfangið lyfjaval@lyfjaval.is. Uppl. í síma 894 5252, Þorvaldur. Lyfjaval er ört vaxandi apótek sem leggur mikið upp úr persónulegri þjónustu og samkeppnishæfu verði. Lyfjaval er apótekið þar sem viðskiptavinir fá góða og trausta þjónustu. Lyfjaval veitir faglega og persónulega ráðgjöf með besta og hæfasta starfsfólkinu sem völ er á. Lyfjaval tryggir starfsfólki sínu fjölskylduvæna starfsmanna- stefnu og notalegt starfsumhverfi. Hjúkrunarfræðingar – Ljósmæður Lausar eru til umsóknar stöður hjúkrunarfræð- inga og ljósmæðra við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Um er að ræða 100% stöður, einnig er möguleiki á hlutavinnu. Hæfniskröfur eru próf frá viðurkenndri stofnun hjúkrunar- og ljósmæðramenntunar. Starfs- reynsla er æskileg. Lögð er áhersla á frum- kvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu. Næsti yfirmaður er hjúkrunardeildarstjóri. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðherra. Stöðurnar eru lausar nú þegar. Nánari upplýsingar gefur Þóra Ákadóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar, í síma 463 0273 og eða netfang: thora@fsa.is. Umsóknarfrestur er til 6. nóvember nk. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar til Þóru Ákadóttur, starfsmannastjóra hjúkrunar, í síma 463 0273 og eða netfang: thora@fsa.is. Öllum umsókn- um verður svarað. Kirkjuorganisti Sóknarnefnd Hafnarfjarðarkirkju auglýsir hér með laust til umsóknar starf kirkjuorganista. Við- komandi þarf að geta hafið störf 1. janúar nk. Verksvið organista skal vera sem hér segir: 1. Að leiða söng safnaðarins í helgihaldinu. 2. Leika á hljóðfæri við guðsþjónustur og aðrar athafnir. 3. Sjá um forsöng, hljóðfæraleik og kórstjórn við kirkjulegar athafnir. 4. Sjá um þjálfum kirkjukórs og annarra kóra við kirkjuna í samráði við sóknarprest og sóknarnefnd. 5. Veita leiðsögn og fræðslu, til dæmis ferm- ingarbörnum, um tónlist í helgihaldi í sam- ráði við sóknarprest. 6. Taka þátt í samstarfi organista og kirkjukóra innan prófastsdæmisins. 7. Gera starfsáætlun fyrir hvert starfsár. 8. Taka þátt í gerð starfs- og rekstraráætlunar sóknar og sóknarprests. 9. Önnur verkefni á sviði tónlistar sem áskilið er af sóknarnefnd. Ráðningarkjör taka mið af kjarasamningi FÍO. Umsóknir, þar sem óskað er nafnleyndar, skulu ekki teknar gildar sbr. starfsreglur um organista nr. 823/1999. Í umsókn sinni skal umsækjandi gera grein fyrir menntun og fyrri störfum. Umsóknarfrestur er 4 vikur og skal skriflegum umsóknum skilað til sóknarnefndar Hafnar- fjarðarkirkju, v/Strandgötu, pósthólf 395, 220 Hafnarfjörður, eigi síðar en 27. nóvember 2006.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.