Morgunblaðið - 22.10.2006, Side 6
6 B SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Hjúkrunarheimilið Skógarbær,
Árskógum 2, 109 Reykjavík
óskar eftir
starfsmanni í eldhús
Um er að ræða dagvinnu. Starfshlutfall sam-
komulag.
Hæfniskröfur: Þjónustund og góð samkipta-
hæfni.
Tungumálakunnátta: ef ekki íslenska þá enska.
Upplýsingar veitir Olga Gunnarsdóttir for-
stöðumaður eldhúss í síma 510 2145, netfang
olga@skogar.is eftir kl. 10:00 virka daga.
Í Skógarbæ er rekið móttöku-/framleiðslu-
eldhús og matsalur.
Fjölhæfur
ungur maður (rétt skriðinn yfir þrítugt)
óskar eftir áhugaverðu starfi. Hefur gegnt
margvíslegum störfum, m.a. blaðamenn-
sku (frétta-, greina- og pistlaskrif), mynd-
listarstörfum, hugmyndavinnu fyrir aug-
lýsingar o.fl.
Áhugasamir sendi tölvupóst
á box@mbl.is merkt: „F — 19187“.
Verkefnastjóri
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hf. óskar eftir
til starfa verkefnastjóra í 50% stöðu vegna
vinnu að byggðaþróunarverkefnum.
Leitað er að einstaklingi með framhaldsmennt-
un á sviði samfélagsfræða og eða á sviði
rekstrar og stjórnunar. Æskileg er þekking og
reynsla af störfum innan stjórnkerfis ríkis og
sveitarfélaga. Viðkomandi þarf að geta unnið
sjálfstætt, hafa góða framkomu, eiga auðvelt
með að starfa með öðrum og geta tjáð sig í
töluðu og rituðu máli. Tungumálakunnátta í
ensku og Norðurlandamáli æskileg. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Óskars-
son, framkvæmdastjóri, sími 450 3000 eða
862 6092.
Umsóknum skal skilað fyrir 30. október til At-
vinnuþróunarfélags Vestfjarða hf., Árnagötu 2-4,
Ísafirði, eða á netfang adalsteinn@atvest.is.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á deild 33A, geðsvið. Starfshlutfall samkomulag.
Deildin er móttökudeild fyrir einstaklinga með vímu-
efnavanda. Viðkomandi fær tækifæri til að taka þátt í
og hafa áhrif á faglega þróun og uppbyggingu á innra
starfi deildarinnar. Mikið framboð er á fræðslu og
möguleiki til að öðlast dýrmæta reynslu í samskiptum
og varðandi mannlega hegðun. Fyrir áhugasama er um
að ræða áhugavert og þroskandi starfsumhverfi.
Umsóknir skulu berast fyrir 6. nóv. nk. til skrifstofu
sviðsstjóra hjúkrunar á geðsviði, geðdeildarbyggingu
við Hringbraut, netfang hrafnhkn@landspitali.is.
Upplýsingar veita Ragnheiður A. Narfadóttir, deildar-
stjóri 33A, sími 543 4044, netfang ragnhnar@land-
spitali.is og Kristín Þorbjörnsdóttir, verkefnastjóri starfs-
mannamála á geðsviði, sími 543 4717, netfang
kristorb@landspitali.is.
Hjúkrunarfræðingur
óskast til starfa við heimahlynningu. Starfshlutfall
80-100%, vaktavinna. Starfsemin hefur aðsetur í
húsnæði líknardeildar LSH í Kópavogi. Heimahlynning
er sérhæfð hjúkrunar- og læknisþjónusta sem veitir
einkenna- og líknandi meðferð í heimahúsum. Kjörið
tækifæri til að kynnast heillandi hjúkrun, en starfið er
fjölbreytt og krefjandi. Í boði er einstaklingshæfð
aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Umsækjendur skulu hafa a.m.k. 3 ára starfsreynslu í
hjúkrun og tilbúnir að taka þátt í uppbyggingu og
þróun starfseminnar.
Umsóknir berist fyrir 6. nóv. nk. til Kristínar A.
Sophusdóttur, sviðsstjóra hjúkrunar, skrifstofu hjúkrunar
við Hringbraut, og veitir hún upplýsingar í síma 543
6472, netfang kristsop@landspitali.is, ásamt Sigrúnu L.
Magnúsdóttur hjúkrunarfræðingi, sími 543 6303,
netfang sigrunli@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármála-
ráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut,
skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5 og á heimasíðu www.landspitali.is.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali - háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
Íslensk ættleiðing óskar eftir
félagsráðgjafa
Félagið Íslensk ættleiðing óskar eftir að ráða
félagsráðgjafa með starfsréttindi í 50% starf.
Starfið felst meðal annars í ráðgjöf og stuðn-
ingi við væntanlega kjörforeldra, skýrslugerð
og skyldum verkefnum. Umsjón með nám-
skeiðahaldi þegar heim er komið og frekari
ráðgjöf í samráði við skrifstofustjóra. Reynsla
í starfi með fjölskyldum og lipurð í mannlegum
samskiptum æskileg. Laun samkvæmt kjara-
samningi SÍF.
Fyrirspurnir sendist til stjorn@isadopt.is.
Umsóknum skal skila til Íslenskrar ættleiðing-
ar, pósthólf 8334, 128 Reykjavík eða senda á
netfangið stjorn@isadopt.is fyrir
1. nóvember nk.
FLUGMENN
Icelandair er fyrirtæki í forystu á alþjóðamarkaði í ferðaþjónustu.
Við erum í öflugri sókn og sækjumst eftir einstaklingum til að taka
þátt í uppbyggingu okkar á komandi árum.
Icelandair er kraftmikið ferðaþjónustu-
fyrirtæki sem tekur þátt í harðri samkeppni
á alþjóðamarkaði.
Icelandair er framsækið fyrirtæki, leiðandi í
ferðaþjónustu á Íslandi, leiðandi markaðs-
setningu á Internetinu og í fremstu röð í
þróun upplýsingatækni.
Starfsmenn Icelandair eru lykillinn að
velgengni félagsins. Hjá Icelandair starfa
um þúsund manns af mörgum þjóðernum
í tíu löndum.
Icelandair leggur áherslu á að starfsmenn
félagsins séu þjónustusinnaðir og tilbúnir
að takast á við krefjandi og spennandi
verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi.
Icelandair leggur áherslu á þjálfun
starfsmanna og símenntun, hvetur
starfsmenn til heilsuræktar og styður
við félagsstarf starfsmanna.
Icelandair er reyklaust fyrirtæki.
Við erum ein áhöfn með sameiginlegt,
skýrt markmið, berum virðingu fyrir
viðskiptavinum og samstarfsmönnum
og höfum gaman að því sem við gerum.
VILT ÞÚ MÓTA FRAMTÍÐINA MEÐ OKKUR?
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu
Icelandair www.icelandair.is/umsokn
eigi síðar en 31. október. Nauðsynlegt
er að netfang umsækjanda komi fram
á umsóknareyðublaði. Eldri starfs-
umsóknir óskast endurnýjaðar.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
IC
E
3
4
6
8
7
1
0
/2
0
0
6
Icelandair áformar að ráða flugmenn til starfa á næstunni.
Félagið býður þeim sem hug hafa á þessum nýju stöðum og uppfylla
tilgreind skilyrði að senda inn umsóknir til félagsins. Vegna fyrirsjáanlegrar
árstíðarsveiflu í umsvifum Icelandair er gert ráð fyrir að nýir flugmenn
hefji störf næsta vor og starfi til hausts.
Umsækjendur skulu hafa gilt atvinnuflugmannsskírteini með blindflugsáritun
fyrir tveggja hreyfla flugvél, hafa lokið bóklegu námi til réttinda
atvinnuflugmanns I. flokks og hafa lokið námskeiði í áhafnarsamstarfi (MCC).
Atvinnuflugmannsskírteini umsækjenda skal gefið út af Flugmálastjórn
Íslands, eða gefið út í öðru aðildarríki Flugöryggissamtaka Evrópu (JAA)
í samræmi við kröfur þeirrar stofnunar. Lágmarksreynsla er 500 fartímar
og/eða tegundarréttindi á fjölstjórnarflugvél (MPA). Að lágmarki 100 fartíma
reynslu sem flugstjóri er krafist.
Umsækjendur skulu hafa lokið fullgildu stúdentsprófi eða öðru námi sem
félagið metur sambærilegt.
Umsækjendur þurfa að geta gengist undir inntökupróf á næstu vikum.
Umsóknum þurfa að fylgja eftirfarandi gögn sem viðhengi
(í rafrænu formi):
• Afrit af flugmannsskírteini ásamt áritunum og heilbrigðisvottorði
• Afrit af prófskírteinum ásamt einkunnum fyrir allt bóklegt flugnám
• Afrit af stúdentsskírteini eða öðrum sambærilegum prófskírteinum
ásamt einkunnum
• Afrit af síðustu 100 fartímum í flugdagbók
• Nýtt sakavottorð
Fylla þarf út á umsóknareyðublaði sundurliðun flugtíma sem hér segir:
• Heildarfartími
• Fartími sem kennari
• Fartími í blindflugi
• Fartími sem flugstjóri
• Fartími á fjölhreyfla flugvél
• Fartími á fjölstjórnarflugvél (MPA)
• Fartími á þotu
„Au-pair“ í Noregi
Norsk/íslensk fjölskylda í Vestur-Noregi með
3 börn, 9, 3 og ½ árs, óskar eftir „au-pair“ til
að hjálpa til við pössun og heimilisstörf frá jan-
úar 2007. Áhugi á hestamennsku er æskilegur
þar sem við störfum með íslenska hesta. Ef
þú ert minnst 18 ára og hefur bílpróf, ert barn-
góð, reyklaus, róleg og sjálfstæð er þetta kann-
ski eitthvað fyrir þig. Ef þú hefur áhuga sendu
okkur þá tölvupóst eða hringdu í okkur.
Agnes Helgad./Stian Pedersen.
Símar 0047-71229683 og 0047-95813408.
Tölvupóstur: stigur@online.is.