Morgunblaðið - 22.10.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 22.10.2006, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Temporary Officer Competition & State Aid Economist Competition & State Aid Directorate The EFTA Surveillance Authority is an international organisation, located in central Brussels, employing about 60 persons of 16 nationalities. The Authority offers net salary and employment conditions com- parable to those of other international organisations. The main task of the Authority is to ensure the fulfilment by the EFTA States, Iceland, Liechtenstein and Norway, of their obligations under the Agreement on the European Economic Area (EEA), as well as the application of the rules of the EEA Agreement concerning undertakings. The Authority shall recruit an economist for a position as Temporary Officer in its Competition and State Aid Directorate. The successful ap- plicant will provide economic advice in relation to the Authority's as- sessment of cases under the EEA competition and state aid rules. Other tasks may include the provision of economics training to the Directorate's staff as well as regular case work. Further information and application form for vacancy 8/06 are available from: www.eftasurv.int The Authority will only accept applications sent by e-mail, to the following address: application@eftasurv.int Deadline for application: 17 November 2006. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Starfsmannasvið Barónsstíg 47, 101 Reykjavík www.heilsugaeslan.is Sálfræðingar Miðstöð heilsuverndar barna Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða tvo sálfræðinga í nýjar 100% stöður innan stofnunarinnar. Um er að ræða störf á Miðstöð hei lsuverndar barna (MHB) í tengs lum við aukna geðhei lbr igðisþ jónustu fyr ir börn. Starfið felst einkum í þverfaglegri teymisvinnu á Þroska- og hegðunarsviði MHB við greiningu, ráðgjöf, meðferð og fræðslu vegna barna á leikskólaaldri og í yngstu bekkjum grunnskóla sem glíma við erfiðleika í hegðun og/eða líðan. MHB er sérhæfð starfseining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og skiptist starfsemin á þrjú meginsvið. Eitt þeirra er Þroska- og hegðunarsvið. Fagteymi þess vinnur í nánu samstarfi við heilsu- gæslustöðvar, önnur fagsvið MHB auk tengsla við ýmsar aðrar stofnanir og sérfræðinga sem sinna málefnum barna og fjölskyldna. Sérstakur samstarfssamningur er í gildi á milli MHB og Barna- og unglingageðdeildar LSH um ráðgjöf og handleiðslu vegna þjónustu við börn með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérþekkingu og reynslu af vinnu við greiningu og meðferð barna með frávik, og þá sérstaklega hegðunar- og geðvanda, eða sem stefna að sérhæfingu á því sviði. Einnig er æskileg þekking og reynsla af atferlisgreiningu og hugrænni atferlismeðferð. Mikilvægt skilyrði er lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sálfræðingafélags Íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Nánari upplýsingar um störfin veitir Gyða Haraldsdóttir, sviðsstjóri Þroska- og hegðunarsviðs MHB, í síma 585 1350 eða á net fang inu: gydah@hr. is Skólahjúkrunarfræðingur Miðstöð heilsuverndar barna og Heilsugæslan Hlíðum Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða skólahjúkrunarfræðing í nýja 100% stöðu innan stofnunarinnar. Um er að ræða starf hjúkrunarfræðings til að sinna hjúkrunarþjónustu við börn í sérskólum á svæði stofnunarinnar og vera bakhjarl annarra skólahjúkrunarfræðinga í faglegri hjúkrunarþjónustu við börn með geðraskanir og annan langvinnan heilsuvanda. Aðsetur skólahjúkrunarfræðingsins er á skólasviði Miðstöðvar heilsuverndar barna (MHB) og á Heilsugæslunni Hlíðum. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í geðhjúkrun. Reynsla af hjúkrun barna með geðraskanir og langvinnan heilsuvanda er æskileg sem og reynsla af skólahjúkrun. Umsækjandi þarf að búa yfir samskiptafærni, sveigjanleika og frumkvæði. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Nánari upplýsingar gefur Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, sviðsstjóri Skólasviðs MHB, í síma 585 1350 eða á netfanginu: ragnheidur.erlendsdottir@hr.is og Þórunn Benediktsdóttir, hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunnar Hlíðum, síma 585-2300 eða netfanginu thorunn.benediktsdottir@hlid.hr.is Umsóknir um ofangreind stö rf , ásamt upplýs ingum um nám og fyrr i störf , sendist til Starfsmannasviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Barónsstíg 47, 101 Reykjavík, fyrir 5. nóvember n.k. Innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru heilsugæslustöðvarnar í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjavík og á Seltjarnarnesi, alls 15 heilsugæslustöðvar, auk Miðstöðvar heilsuverndar barna, Miðstöðvar mæðraverndar, Lungna- og berklavarnadeildar og Deildar atvinnu- og ónæmisvarna á Heilsuverndarstöðinni, Miðstöðvar heimahjúkrunar í Reykjavík og Geðheilsu-eftirfylgd/iðjuþjálfun. Starfsmenn stofnunarinnar eru alls um 700. Reykjavík 22. október 2006 STARFSMENNTARÁÐ og Mennt standa að afhendingu starfsmenntaverðlaunanna, og eru þau hugsuð sem hvatning fyrir aðila sem þykja vera að vinna fram- úrskarandi starf á sviði starfsmenntunar. Mennt er samstarfsvett- vangur aðila vinnumarkaðar- ins, skóla á framhalds- og há- skólastigi og sveitarfélaga. Starfsmenntun er ein af undirstöðum framþróunar í atvinnulífi þjóða þar sem hún byggir upp hæfni og þekk- ingu einstaklinga til að stunda ákveðin störf á vinnu- markaði. Með því að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi er hægt að bæta verkkunnáttu og auka hæfni starfsmanna til að mæta nýjum kröfum og breyttum aðstæðum markað- arins. Markmið verðlaunanna er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi ásamt því að vekja athygli á málefninu, segir á heimasíðu Menntar. Verð- launin eru verðlaunahöfum hvatning til áframhaldandi starfa og öðrum til fyrir- myndar á sviði starfsmennta- mála. Starfsmenntaverðlaun- in eru veitt í þremur flokkum; flokki fræðsluaðila, flokki fyrirtækja og flokki einstaklinga. Verðlaunagripur Verðlaunagripurinn er unninn út frá merki Starfs- menntaverðlaunanna. Lista- maðurinn Jón Haukur Ed- wald gerði verðlaunagripinn, en hann er steyptur í brons og stendur á íslenskum blá- grýtissteini. Tillögur um verðlaunahafa þurfa að hafa borist fyrir 31. október. Morgunblaðið/Sverrir Hátíðlegt Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaunin 2005. Starfsmennta- verðlaunin 2006 ÁRLEGA tekur Vinnueft- irlitið þátt í samevrópsku átaksverkefni sem kallast Evrópska vinnuvernd- arvikan. Nú í ár er vinnuvernd- arvikan helguð ungu fólki og er yfirskrift hennar Örugg frá upphafi. Markmið vinnu- verndarvikunnar eru að auka þekkingu ungmenna á vinnu- vernd og stuðla að því að þau séu „örugg“ frá upphafi starfsævinnar, segir á vefsíðu Vinnueftirlitsins. Viðurkenning Hugtakið „öryggi“ vísar í þessu samhengi til öryggis- mála en einnig sjálfsöryggis og vellíðunar í vinnu. Jafn- framt er markmið vikunnar að auka meðvitund fólks al- mennt í þjóðfélaginu um rétt- indi, skyldur og sérstöðu ungs fólks á vinnumarkaði Í tengslum við vinnuvernd- arvikuna 2006 er fyrirhugað að veita vinnustöðum við- urkenningu sem standa sig vel í að skapa ungu fólki gott vinnuumhverfi og stuðla að því að þau séu örugg frá upp- hafi starfs. Fræðsla og upplýsing Í vikunni 23. – 27. október mun fræðslu- og upplýsinga- starf í tengslum við vinnu- verndarvikuna 2006 ná há- marki. Þá munu eftirlitsmenn Vinnueftirlitsins heimsækja vinnustaði víða um land og dreifa ýmsu fræðsluefni. Vinnueftirlitið hvetur skóla, vinnustaði, fé- lagasamtök og stofnanir til að taka þátt í vinnuvernd- arvikunni 2006 og stuðla að því að ungt fólk sé öruggt frá upphafi starfsævinnar. Vinnustaðir og skólar gætu- staðið fyrir eigin vinnuvernd- arviku 23. - 27. okt. og haldið vinnuverndinni og málefnum ungra starfsmanna á lofti svo sem á heimasíðum, með fræðslu, skrifum og í um- ræðu, segir á heimasíðu Vinnueftirlitsins. Morgunblaðið/Þorkell Öryggi Vinnuvikan beinist að ungu fólki í vinnu. Örugg frá upphafi Rangt var farið með föð- urnafn Elíasar Víðissonar í grein um starfsemi fyrirtæk- isins Múr og mál og hann nefndur Davíðsson. Greinin, sem birtist í Atvinnu 1. októ- ber, fjallaði meðal annars um endurnýjun og viðhald eldri múrhúsa, en Múr og mál hef- ur sérhæft sig á þessu sviði. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Leiðrétt ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.