Morgunblaðið - 22.10.2006, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Forritari
Orkustofnun leitar að forritara til starfa hjá Vatnamælingum stofnunarinnar. Við-
komandi getur hafið störf strax. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf við hugbún-
aðarverkefni sem snúa að náttúrufarsgögnum. Viðkomandi mun taka þátt í að
móta stefnu í upplýsingatækni og vinna með sérfræðingum á ýmsum sviðum
rannsókna, bæði sjálfstætt og í hópum. Starfinu getur fylgt útivinna við mælingar
og gagnaöflun.
Starfið felur m.a. í sér:
• Vefforritun vegna framsetningar náttúrufarsgagna.
• Hönnun og forritun í innri kerfum.
• Forritun í landfræðilegum upplýsingakerfum.
• Gagnagrunnsforritun.
• Viðhald eldri forrita.
Hæfniskröfur:
• Tölvunarfræðingur, kerfisfræðingur eða sambærileg menntun.
• Þekking og reynsla af .NET og C#.
• Þekking á venslagagnagrunnum.
• Fagleg vinnubrögð og metnaður.
Við val á umsækjendum verður reynsla af UNIX/Linux talin kostur.
Vatnamælingar Orkustofnunar eru sjálfstæð rekstrareining innan
Orkustofnunar, sem gegna því hlutverki að fullnægja þörfum almennings,
fyrirtækja og hins opinbera fyrir áreiðanlegar upplýsingar um vatnafar og
vatnsbúskap.
Orkustofnun stefnir að því að hækka hlutfall kvenna og yngra fólks í
starfsliði sínu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir starfsmannastjóri Orkustofnunar,
sími 569 6000.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist
starfsmannastjóra Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík, netfang
gd@os.is, eigi síðar en 6. nóvember 2006. Öllum umsóknum verður svarað.
Orkumálastjóri
MARKMIÐIÐ með skrifum fer-
ilskrár er að kynna þig sjálfa/n,
skýra í stuttu máli frá menntun,
reynslu og áhugamálum þinni og
gera vinnuveitandanum kleyft að
skapa sér hugmynd um hver þú ert.
Vandaðu ferilskrána
Góð ferilskrá á að vera afrakstur
ítarlegrar heimavinnu þar sem vand-
að er til verka hvað varðar efnis-
innihald, uppsetningu og málfar.
Ferilskráin gefur viðtakanda hennar
hugmynd um hvernig þú nálgast við-
fangsefni og kemur þeim frá þér.
Oft getur góð ferilskrá skipt sköp-
um um möguleika umsækjenda.
Mörg fyrirtæki hafa úr tugum eða
hundruðum umsókna að velja. Þess
vegna er mikilvægt að vanda vel til
gerðar hennar.
Sérhver ferilskrá er persónubund-
in og tilgangurinn er að draga fram
sem skýrasta mynd af þeim sem hef-
ur skrifað hana. Hún er þannig kynn-
ing á þeim sem sendir hana ásamt
vinnuumsókninni.
Dæmigert innihald
Dæmigert innihald ferilskrár er
persónuupplýsingar, svo sem nafn,
kennitala, heimilisfang, netfang og
símar. Sumir setja einnig upplýs-
ingar um hjúskaparstöðu og fjölda
barna.
Upplýsingar um námsferil. Mik-
ilvægt er að hafa nafn skóla, gráðu,
grein og ártal,og einnig er hægt að
hafa stutta lýsingu á náminu eða
helstu verkefnum. Einnig getur verið
gott að tilgreina námskeið. Mælt er
með að haga tímaröðun þannig að
byrjað sé á að tilgreina þá menntun
sem síðast var lokið.
Upplýsingar um starfsferil
Helstu upplýsingar sem þar koma
fram eru vinnustaður, hversu lang-
an tíma þú hefur unnið á hverjum
stað og hvert stöðuheitið var. Marg-
ir fara líka nokkrum orðum um
helstu verkefni og ábyrgð í því starfi
eða þeim störfum, sem þeir hafa
gegnt. Mælt er með að byrja á því
að tilgreina síðasta starf eða það
starf sem viðkomandi starfar við í
dag.
Upplýsingar um tungumál, tölvu-
kunnáttu og annað er gæti nýst í
starfinu. Persónulýsing og lýsing á
markmiði. Hér einnig hægt að láta
fylgja með lýsingu á helstu áhuga-
málum þínum.
Trúnaðarstörf. Ef þú hefur gegnt
trúnaðarstörfum eða verið í forystu
félagasamtaka getur þú líka látið
þess getið.
Upplýsingar um meðmælendur
Gott er að nefna að minnsta kosti
tvo meðmælendur, sem geta stað-
fest upplýsingar ferilskrárinnar eða
komið með umsögn um hæfileika
þína, kunnáttu og störf. Hérna
þarftu að gefa upp nöfn, starfsheiti
og símanúmer þeirra sem tilgreind
eru.
Full þörf er að gera ferilskrá
Fyrsta skrefið þegar þú ert að undirbúa starf-
sviðtal eða ert að leita að vinnu er að útbúa starfs-
ferilskrá. Engar sérstakar reglur gilda um fer-
ilskrár eða hvað skuli koma fram í þeim. Venjur í
sambandi við ferilskrár geta verið mismunandi í
mismunandi löndum.
Morgunblaðið/Kristinn
Ferilskrá Mikilvægt er að huga vel að gerð ferilskrár áður en haldið er í atvinnuleit.
kristjang@mbl.is