Morgunblaðið - 29.10.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2006 B 11
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf.
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og
starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Helstu verkefni:
● Símsvörun, upplýsingagjöf og afgreiðsla
viðskiptavina.
● Þjónusta við starfseiningar félagsmiðstöðvanna.
● Tölvuvinna, móttaka og skráning gagna.
● Stuðningur við starfsemi notendaráðs.
● Vinna við framþróun þjónustunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
● Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
● Góð tölvu- og íslenskukunnátta.
● Samskiptahæfni, áhugi og jákvætt viðmót.
● Skipuleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi.
● Sveigjanleiki og hæfni til að vinna undir álagi.
Við bjóðum upp á:
● Lifandi umhverfi og fjölbreytni í starfi.
● Sterka liðsheild og góðan starfsanda.
● Beina aðild að þróunarvinnu.
Um er að ræða 75% stöðu og er vinnutími
sveigjanlegur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir
forstöðumaður í síma 568 6960, netfang:
sigridur.olafsd@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar.
Umsóknum skal skilað á Félagsmiðstöðina Norðurbrún
1 fyrir 3. nóvember nk.
Helstu verkefni:
● Aðstoð við fólk í heimahúsum í samvinnu við
heimahjúkrun ásamt félagslegum stuðningi og
hvatningu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
● Félagsliðamenntun æskileg og reynsla af
umönnunar- eða heimaþjónustustörfum.
● Ökuréttindi.
● Sveigjanleiki og færni í samskiptum.
● Frumkvæði og skipulagshæfileikar.
Um er að ræða vaktavinnu
Nánari upplýsingar veitir Harpa Rún Jóhannsdóttir í
síma 411 1600, netfang:
harpa.run.johannsdottir@reykjavik.is og Kristín
Arnardóttir í síma 535 2760, netfang:
kristin.arnardottir@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og Eflingar stéttarfélags.
Umsóknum skal skilað á Þjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík fyrir
14. nóvember nk.
Þjónustu- og rekstrarsvið
Þjónustufulltrúi Kvöld- og helgarþjónusta
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða óskar
eftir að ráða starfsfólk til að sinna kvöld- og
helgarþjónustu
Nýtt starf þjónustufulltrúa við
Félagsmiðstöðvarnar í Norðurbrún 1 og
Dalbraut 18-20 er laust til umsóknar
Í Norðurbrún eru þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara.
Öflugt félagsstarf fer fram bæði á Dalbraut og
Norðurbrún. Lögð er áhersla á að innleiða
nýjungar og vera í fararbroddi á sviði
stefnumótunar í félagsstarfi.
Þjónustu- og rekstrarsvið fer með þjónustu,
innkaupamál, upplýsingatækni og rekstur.
Nýstofnaðar þjónustumiðstöðvar í hverfum
heyra undir sviðið, innkaupa- og rekstrarskrif-
stofa, skrifstofa þjónustu- og upplýsingatækni,
upplýsingatæknimiðstöð og símaver.
Sérfræðingur á matvælasviði
Umhverfisstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa
Umhverfisstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa. Leitað er eftir líffræðingi eða matvæla-
fræðingi með þekkingu á sameindalíffræði.
Starfið felst m.a. í eftirfarandi:
Verkefnum varðandi erfðabreytt matvæli.
Verkefnum varðandi erfðabreyttar lífverur.
Samskiptum við erlendar stofnanir, einkum á Norðurlöndunum og á Evrópska efnahags-
svæðinu (EES).
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Framhaldsmenntun á sviði líffræði eða matvælafræði.
- Þekking á sviði sameindalíffræði er skilyrði.
- Góð enskukunnátta er skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Færni í a.m.k. einu Norðurlandamáli er æskileg.
- Samstarfshæfni og færni í framkomu.
- Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi.
- Nákvæmni og skipulagshæfileikar.
- Þarf að geta unnið undir álagi.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Æskilegt er að umsækjandi
geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skilað til Umhverfisstofnunar
fyrir 20. nóvember nk. ásamt starfsferilskrá.
Nánari upplýsingar veita Elín Guðmundsdóttir, forstöðumaður matvælasviðs, og Ingólfur
Gissurarson, fagstjóri.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar
í störf við Umhverfisstofnun er tekið mið af jafnræðisstefnu stofnunarinnar.
Umhverfisstofnun,
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Sími 591 2000.
Umhverfisstofnun heyrir undir umhverfisráðuneytið og starfar skv. lögum nr. 90/2002. Stofnunin hefur m.a. það hlutverk að framfylgja
lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, eiturefni og hættuleg efni, matvæli, mengun sjávar, náttúruvernd og veiðistjórnun. Starfsmenn
eru um 85 og starfa á 7 sviðum bæði í dreifbýli og í þéttbýli.
Náms- og
starfsráðgjafi
Vinnumálastofnun á Suðurlandi leitar
eftir náms- og starfsráðgjafa með
starfsstöð á Selfossi
Um er að ræða afleysingu til eins árs.
Starfssvið:
Náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitend-
ur.
Regluleg samskipti við atvinnuleitendur.
Upplýsingagjöf og skipulagning úrræða.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólanám í náms- og starfsráðgjöf, eða
sambærilegt nám og reynsla.
Þekking á vinnumarkaði og menntakerfi.
Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli.
Mikil samskiptahæfni.
Framtakssemi, sjálfstæði og skipulags-
hæfni.
Laun eru greidd samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins. Áhugasamir geta kynnt sér
starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar
www.vinnumalastofnun.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist fyrir 10. nóvember til Sigurð-
ar Jónssonar, forstöðumanns Vinnumálastofn-
unar á Suðurlandi, Austurvegi 56, 800 Selfossi
eða á netfangið: sigurdur.jonsson@svm.is sem
einnig veitir nánari upplýsingar um starfið.
Málningarvinna
Óska eftir að ráða vana menn til málningar-
vinnu í nýbyggingum. Upplýsingar gefur Jón
í síma 894 0020.
J. Björnsson ehf.
málningarþjónusta.