Morgunblaðið - 29.10.2006, Side 16

Morgunblaðið - 29.10.2006, Side 16
16 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir starf framkvæmdastjóra tækni- og umhverfis- sviðs laust til umsóknar. Áhersla er lögð á vel menntaðan og duglegan einstakling með lipurð í mannlegum samskiptum. Hann þarf að búa yfir ákveðinni festu, hafa góða skipulags- og stjórnunarhæfileika og góða þjónustulund. Háskólamenntun og reynsla á sviði byggingarverkfræði og/eða byggingartæknifræði er nauðsynleg. Á sviðinu starfa, auk viðkomandi, bygging- arfulltrúi, deildarstjóri umhverfisdeildar, eldvarnarfulltrúi og eftirlitsmaður fast- eigna. Ábyrgðar- og starfssvið:  Framkvæmdastjóri sviðsins ber ábyrgð á rekstri þess.  Yfirumsjón með framkvæmdum og við- haldi á vegum sveitarfélagsins.  Yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlunar sviðsins.  Yfirumsjón með veitum í eigum sveitar- félagsins.  Vinna við stefnumótun innan málaflokks- ins.  Ráðgjöf og áætlanir um verklegar fram- kvæmdir sveitarfélagsins.  Starfsmaður byggingar- og skipulags- nefndar, umhverfisnefndar og hafnar- nefndar. Til sviðsins heyrir m.a:  Framkvæmdaáætlanir.  Viðhaldsáætlanir.  Brunamál og almannavarnir.  Sorphreinsun og -urðun.  Skipulags- og byggingarmál.  Götur, fráveita, vatnsveita og umferðar- mál.  Hafnarmannvirki. Laun og starfskjör taka mið af samningum Launanefndar Sveitarfélaga og samningum viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember nk. Skriflegar umsóknir, ásamt ferilskrá, berist til Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra, Hafnarbraut 27, 780 Höfn, og veitir hann frekari upplýsingar í símum 470 8000 og 822 7950. Einnig verður fyrirspurnum svarað á hjaltivi@hornafjordur.is. Rafeindavirki/ rafiðnaðarmaður Rafeindatækni Keflavík óskar eftir rafeinda- virkja eða rafiðnaðarmanni. Mörg spennandi verkefni framundan. Upplýsingar í símum 699 6869 og 662 6989. Spyrlar óskast PSN-samskipti ehf. óska eftir að ráða sölufólk í dag- og kvöldvinnu. Einnig spyrla til starfa við framkvæmd á skoðanakönnunum. Vinnu- tími á kvöldin er frá kl. 18:00–22:00 virka daga og sunnudaga en laugardaga frá kl. 11:00– 15:00 og á daginn. Mikil vinna framundan, mjög góð vinnuaðstaða og skemmtilegur starfsandi. Áhugsamir sendi tölvupóst á psn@psn.is eða hringi í síma 552 1800. Öllum fyrirspurnum verður svarað. PSN-samskipti ehf., Nóatúni 17, sími 552 1800. Afleysingar Læknablaðið óskar eftir starfskrafti til afleys- inga. Um er að ræða 50% starf og viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. nóvember næst- komandi og starfi allt fram til 1. júlí í sumar. Starfið felst í auglýsingaöflun, vefumsýslu blaðsins og almennum verkefnum ritara. Vinsamlegast sendið umsóknir um starfið til blaðsins ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf fyrir 1. nóvember nk. rafrænt: vedis@lis.is eða í pósti: Læknablaðið, v/ starfs- umsóknar, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi. Atvinnuauglýsingar augl@mbl.is Starfshópur um uppbyggingu þekking- arseturs á Egilsstöðum Verkefnastjóri þekkingarseturs á Egilsstöðum Starfshópur um uppbyggingu þekkingarseturs á Egilsstöðum og Þekkingarnet Austurlands auglýsa eftir verkefnastjóra í 100% starf. Ráðning er til eins árs, í upphafi, frá 1. janúar 2007. Helstu verkefni:  Meginstarfið felst í uppbyggingu þekkingar- seturs á Egilsstöðum.  Þátttaka í uppbyggingu rannsóknarstarfsemi í fjórðungnum. Menntunar- og hæfniskröfur:  Reynsla af verkefnastjórnun.  Víðtæk reynsla af rannsóknarstarfi.  Framhaldsmenntun á háskólastigi æskileg.  Áhugi á uppbyggingar- og þróunarstarfi.  Góðir samskiptahæfileikar.  Sjálfstæði og frumkvæði. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda til Þekkingarnets Austurlands, Tjarnarbraut 39e, 700 Egilsstöðum eða á netfangið gudrun@fna.is fyrir 17. nóvember. Nánari upplýsingar veita Óðinn Gunnar í síma 860 2905 og Guðrún Reykdal í síma 471 2938. KÓPAVOGSBÆR Leikskólinn Álfatún • Deildarstjóri óskast á deild 12 – 24ra mánaða barna. Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun áskilin. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 564 6266 og 863 9111. Álfatún er 5 deilda leikskóli með 80 börn. Á deild yngstu barna eru 12 börn. Vinnutími eftir samkomulagi. Þarf að geta byrjað fljótlega. Laun samkv. kjarasamningi Launanefndar sveitar- félaga og viðkomandi stéttarfélags. Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. www.kopavogur.is - www.job.is • á Egilsstaði Vinsamlegast hafið samband við Sigurð í síma 847 8221.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.