Morgunblaðið - 29.10.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2006 B 19
Skútuvogur - Til leigu
Til leigu um 97 fm mjög gott fullinnréttað skrif-
stofuhúsnæði á jarðhæð við hliðina á Bónus
og beint á móti Húsasmiðjunni. Hentar einnig
fyrir verslun. Upplýsingar veitir:
Ásbyrgi fasteignasala,
Suðurlandsbraut 54,
sími 568 2444.
Einbýlishús til leigu
Til leigu stórt og vandað einbýlishús í
104 Rvk með útsýni yfir Laugardalinn.
Uppl. já Baldri í símum 55 12345 og 861 2535.
Fundir/Mannfagnaðir
Vörubílastöðin Þróttur
Sævarhöfða 12, 110 Reykjavík,
sími: 577 5400, fax: 577 5408,
netfang: throttur@throttur.is.
Aðalfundur
Aðalfundur V.b.f. Þróttar verður haldinn í húsi
félagsins, Sævarhöfða 12, þriðjudaginn 7. nóv-
ember nk. kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Jólabasar
kvennadeildar RRKÍ
verður haldinn á Hótel Loftleiðum,
fundarsal 4, sunnudaginn 29. október frá
kl. 14.—17.00.
Fallegir handunnir munir er tengjast jólunum
og heimabakaðar gómsætar kökur.
Allur ágóði rennur til CP félagsins á Íslandi sem
er félagsskapur hreyfihamlaðra barna og að-
standenda þeirra.
Nánari upplýsingar um félagið
eru á www.cp.is
Nefndin.
Fyrirtæki
Eitt skemmtilegasta og mest
vaxandi kaffihús borgarinnar
er nú til sölu.
Segafredo hefur verið leiðandi
fyrirtæki í ítalskri kaffimenningu
á undanförnum árum.
Tilvalið fjölskyldufyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitir Oliver
í síma 899 9795.
TIL SÖLU
LÆKJARTORGI
Kennsla
Auglýsing um sveinspróf
Fræðslusetrin að Hallveigarstíg 1, hafa sameinast
undir nafninu IÐAN - fræðslusetur.
Sveinspróf í málmiðngreinum, húsasmíði, söðlasmíði, hársnyrtiiðn og snyrtifræði verða
haldin í janúar 2007, ef næg þátttaka fæst. Sveinspróf í vélvirkjun verður haldið 2.- 4. mars
2007.
Umsóknarfrestur er til 1. des nk. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðs-
yfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast
í desember 2006.
Umsóknarfrestur fyrir sveinspróf í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn
sem haldin verða í desember, er til 1. nóv. nk.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang: www.uns.is og á skrifstofunni.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður, er mismunandi eftir iðngreinum.
IÐAN - fræðslusetur,
Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík,
sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,
netfang: idan@idan.is
Atvinnuhúsnæði
Tangarhöfði
– hagstæð leiga
Glæsilegt 200 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð
til leigu. Skiptist í rúmgott anddyri, 7 herbergi
með parketgólfi, fundar- og eldhúsaðstöðu,
geymslu og snyrtingu.
Uppl. í símum 562 6633 og 693 4161.
Stangarhylur
Stórt skrifstofuherbergi
Til leigu mjög stórt skrifstofuherbergi á 2. hæð
í góðu steinhúsi með glæsilegu norðurútsýni.
Með hlutdeild í sameign, m.a. aðgangi að
snyrtingum og eldhúsi, er húsnæðið um 50
fm. Hagstæð leiga.
Garðabær við miðbæinn
67 fm nýtt húsnæði á 1. hæð
Til leigu 67 fm nýtt húsnæði á jarðhæð (beint
inn) með sérinngangi í nýju glæsilegu húsi
við Kirkjulund.
Góð lofthæð, stór salur með skrifstofuherbergi,
snyrtingu og góðu millilofti sem ekki er í fer-
metratölu húsnæðisins og getur nýst sem skrif-
stofa eða fl. Hentugt fyrir ýmiskonar starfsemi.
Upplýsingar veita Ingólfur í s. 896 5222
eða Bárður í s. 896 5221.
Atvinnuleysishlutfall mælist nú 1,0 prósent og hefur ekki
mælst svo lágt síðan í september 2001. Árstíðaleiðrétt at-
vinnuleysi reiknast nú 1,2 prósent og hefur lækkað um 0,1
prósent frá fyrra mánuði. Í september hafði atvinnuleysi
dregist meira saman á höfuðborgarsvæði en á landsbyggð frá
sama mánuði fyrir einu ári. Þá hafði atvinnulausum konum
fækkað meira en körlum.
Látlaus innflutningur
Það sem öðru fremur einkennir vinnumarkaðinn nú er lát-
laus innflutningur erlends vinnuafls og hefur hann aldrei
mælst jafn mikill í einum mánuði og í september, eða tæplega
eitt þúsund manns. Á fyrstu níu mánuðum ársins hafa um
4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskum
vinnumarkaði. Til samanburðar voru 3.900 erlendir starfs-
menn skráðir allt árið 2005. Áður höfðu flestir verið skráðir
árið 2000, eða um 2.300. Að einhverju leyti skýrist aukningin í
ár af nýskráningu aðila sem voru áður komnir, en atvinnurek-
endur og stjórnkerfi hafa verið að aðlaga sig nýjum reglum
um skráningu starfsfólks með erlent ríkisfang sem tóku gildi
1. maí sl.
Nýjar reglur
Frá því nýjar reglur um aðgang fólks frá nýjum aðild-
arríkjum ESB í Austur-Evrópu (nefnd 8-ESB ríki) tóku gildi
1. maí hefur dregið mjög úr veitingu atvinnuleyfa. Í staðinn
hefur fjölgað skráningum manna frá Austur-Evrópu.
Þá má geta þess að þar sem aðflutningur vinnuafls hefur
verið meiri en reiknað var með er atvinnuleysishlutfall lægra
en það mælist hjá Vinnumálastofnun. Af þessum sökum er
viðbúið að komi til endurskoðunar á stærð vinnuaflsins til
hækkunar, sem að öðru jöfnu mun leiða til lækkunar atvinnu-
leysishlutfallsins.
Morgunblaðið/Eggert
Útlendingar Innflutningur erlends vinnuafls hefur aldrei
mælst jafn mikill í einum mánuði og í september.
Stöðugt fleiri
útlendingar
Fjallað er um stöðuna á dönskum vinnumarkaði í nýlegu
riti DI sem ber heitið Fuld styrke. Dönum er hugleikið að
fjölga fólki á vinnumarkaði og að fá fólk til að vinna
meira, svo koma megi Danmörku á fulla ferð.
Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins.
Þar segir að hjól efnahagslífsins í Danmörku snúist nú
af miklum krafti en skortur sé á starfsfólki í landinu um
þessar mundir og hái það vexti danskra fyrirtækja veru-
lega.
Mörg fyrirtækja anna ekki eftirspurn og verða af um-
talsverðum tekjum fyrir vikið, samkvæmt vefsíðu SA.
Þar segir að DI fullyrði að hagvöxtur Danmerkur sé í
hættu og að samkeppnishæfni þjóðarinnar geti beðið
skaða. En hvað veldur?
Öflug hindrun
DI telja það augljóst að háum jaðarsköttum sé um að
kenna en vegna þeirra hefur reynst erfitt að fjölga fólki á
vinnumarkaði og dönskum fyrirtækjum hefur gengið erf-
iðlega að ráða til sín erlent starfsfólk, t.d. sérfræðinga
með mikilvæga reynslu og þekkingu sem koma til starfa í
landinu í lengri eða skemmri tíma. DI benda á að skatt-
heimtan hindri leið fólks inn á danskan vinnumarkað og
hvatinn til vinnu sé ekki orðinn mikill þegar fólk haldi að-
eins eftir 37 krónum af síðustu 100 krónunum sem það
vinni sér inn. Miklu myndi breyta ef jaðarskattarnir væru
að hámarki 50% en jaðarskattar á hálaunafólk í Dan-
mörku eru a.m.k. 63% en geta þó verið hærri.
Atgervisflótti frá Danmörku
Hinir háu skattar í ríki Dana hafa margs konar áhrif.
Þeir letja ekki aðeins fólk til vinnu heldur hvetja þeir
einnig fólk til að flytjast úr landi og finna sér vinnu þar
sem það ber meira úr býtum. Oftar en ekki er um vel
menntað og hæft starfsfólk að ræða – fólk sem snýr ekki
aftur heim. Frá því upp úr 1980 hafa um t.d. um 14 þús-
und vel menntaðir Danir horfið til starfa á erlendum vett-
vangi án þess að skila sér aftur heim. Danir sakna þeirra
nú sárt í þenslunni en samkvæmt úttekt DI frá 2003 segja
80% þeirra að ástæðan fyrir því að þeir flytjist ekki aftur
heim sé danski skatturinn.
Háir jaðarskatt-
ar há Dönum