Morgunblaðið - 29.10.2006, Page 20

Morgunblaðið - 29.10.2006, Page 20
20 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Kvenfataverslun á Laugavegi Höfum fengið til sölu rótgróna kvenfataversl- un. Verslunin, sem er í mjög góðu og áberandi leiguhúsnæði á besta stað við Laugaveginn, hefur umboð fyrir þekkt vörumerki. Nánari uppl. veitir: Fasteignamarkaðurinn ehf., Óðinsgötu 4, sími 570 4500. Húsnæði í boði Atvinnuhúsnæði til leigu Húsnæði á jarðhæð ásamt lítilli skrifstofu á 2. hæð til leigu í Sundaborg. 165 fm lagerrými og 39 fm skrifstofa, kaffistofa og snyrting. Húsnæðið er til afhendingar fljótlega. Upplýsingar í síma 898 8212 eða á netfangi kristjan@skyggna.is. Til sölu Beitusíld - Beitusíld Nýfryst úrvalssíld. Heimavík ehf., s. 555 6090, 892 8655. Atvinnutækifæri Til sölu fyrirtæki í innflutningi, heildsölu og smásölu. Góð álagning. Falleg, hrífandi og auðseljanleg vara. Verð ca 12 m. Svar merkt: „Uppgrip“ sendist á netfang: galle@isl.is Styrkir KÓPAVOGSBÆR Afrekssjóður ÍTK Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóð Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs (ÍTK) Samkvæmt reglugerð eru markmið sjóðsins eftirfarandi: a) Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélög- um í Kópavogi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína b)Að veita afreksíþróttafólki í hópíþrótt- um í íþróttafélögum í Kópavogi sem náð hefur afburðaárangri fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni. c) Að styrkja afreksíþróttafólk sem á lög- heimili í Kópavogi og stundar íþrótt sem ekki er iðkuð með íþróttafélagi í Kópavogi. d)Að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum jafnt kvenna sem karla. Umsóknum um styrki skal skilað á þar til gerð- um eyðublöðum fyrir 16. nóvember 2006. Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð fyrir sjóð- inn fást á skrifstofu íþrótta- og tómstundamála Fannborg 2 II hæð. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 570-1600 Íþróttafulltrúi www.kopavogur.is - www.job.is Styrkur til háskólanáms við Minnesotaháskóla Samkvæmt samningi milli Háskóla Íslands og Minnesotaháskóla (University of Minnesota) verður veittur styrkur til íslensks námsmanns til þess að stunda nám við Minnesotaháskóla næsta skólaár. Styrkurinn nemur skólagjöldum og dvalarkostnaði. Umsækjendur skulu hafa stundað nám við Háskóla Íslands og ganga þeir fyrir sem eru í framhaldsnámi við HÍ og hyggjast taka eitt ár erlendis, sem skiptistúdentar. Stúdentar útskrifaðir frá Háskóla Íslands sem hyggja á framhaldsnám við Minnesotaháskóla koma einnig til greina. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð um styrki fyrir skólaárið 2007-2008 fást á Alþjóða- skrifstofu háskólastigsins, Háskóla Íslands, Neshaga 16, sími 525 4311. Umsóknum skal skila þangað fyrir 20. nóvember 2006. Athugið að umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2006. Verktakar - Herbergi/leigu Til leigu í Skútuvogi 13, 6 íbúðaherbergi ásamt baðherbergi. Hentar sérstaklega vel verktaka sem þarf að útvega starfsmönnum húsnæði. Leigist eingöngu einum aðila. Uppl. veitir Ásbyrgi fasteignasala, Suðurlandsbraut 54, s. 568 2444. Húsnæði óskast Skrifstofuhúsnæði í miðbænum óskast Óskum eftir til kaups eða leigu 200-400 skrif- stofuhúsnæði í miðbænum. Til greina kemur heilt íbúðarhús vel staðsett á svæðinu sem hægt væri að breyta í skrifstofur. Nánari upplýsingar veitir: Fasteignamarkaðurinn ehf., Óðinsgötu 4. s. 570 4500. Félagslíf Vegurinn, Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Fjölskyldusamkoma kl. 11. Lofgjörð, kennsla, ungbarna- kirkja, barnakirkja, Skjaldberar og létt máltið að samkomu lokinni. Einar Valgeir Jónsson kennir um „Að stíga út á köllun sína“. Bænastund kl. 18:30. Samkoma kl. 19:00, Björgvin Óskarsson predikar, lofgjörð, fyrirbænir og samfélag eftir samkomu í kaffisal. Allir hjartanlega velkomnir. www.vegurinn.is Samkoma í dag kl. 20. Sigríður Hrönn Sigurðardóttir kristniboði talar. Umsjón: Harold Reinholdtsen. Heimilasamband fyrir konur mánudaginn kl. 15. Saman í bæn þriðjud. kl. 20. Kvöldvaka fimmtud. kl. 20. Opið hús daglega kl. 16-18 (nema mánudaga). Verið velkomin. I.O.O.F. 3  18710297  Rk. Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. Haustmót — Samkoma kl. 16:30. Ræðumaður Jón Þór Eyjólfsson. Skírn og barnablessun á sam- komunni. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í lok samkomu. Barnakirkjan 1-12 ára. Tekið er við börnum frá kl. 16:15 undir aðalinnganginum, rampinum. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hægt er að hlusta á beina út- sendingu á Lindinni eða horfa á www.gospel.is Á Ómega er sýnd samkoma frá Fíladelfíu kl. 20:00. Fossaleyni 14 Fjölbreytt barnastarf með söngvum, leikriti og fræðslu. Fræðsla fyrir fullorðna. Samkoma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Edda M. Swan predikar. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og til- veruna“ sýndur á Ómega kl. 14. Þriðjudagur: Alfanámskeið kl. 19. Föstudagur: Samkoma fyrir ungt fólk kl. 20. Samkoma á Eyjólfsstöðum á Héraði kl. 17.00. www.kristur.is Almenn samkoma kl. 14:00. Paul Gitwaza frá Kongó verður gestur okkar og prédikar, barna- gæsla fyrir 1-12 ára, lofgjörð og fyrirbænir. Kaffisala í lok sam- komu. Allir hjartanlega vel- komnir! Fríkirkjan Kefas, Fagraþingi 2a við Vatnsendaveg, www.kefas.is. Raðauglýsingar sími 569 1100 ÁSTAND á vinnumarkaði er með besta móti, segir á vefsíðu Alþýðusambands Íslands. Sam- kvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi í september 1 prósent og hef- ur ekki verið jafn lítið í fimm ár, eða síðan í sept- ember 2001 í lok síðustu uppsveiflu. Breytingar í vændum? Vísbendingar eru þó um að ástandið muni eitthvað versna á næstunni, að mati ASÍ. Á vefsíðu samtakanna er bent á að lausum störfum hafi fækkað frá ágústlokum til septem- berloka um hundrað og eitt. Einnig bendir ASÍ á að mikil ásókn hafi verið í skólafólk til starfa og að raddir hafi heyrst um að draga ætti úr tekjutengingum lífeyriskerf- isins til að fá fleiri eldri borgara og öryrkja út á vinnumarkaðinn. Líkt og í fyrrahaust hefur gengið sérstaklega erfiðlega að manna ýmis umönnunarstörf. Stað- an á leikskólum og hjúkrunarheimilum virðist samt heldur skárri en í fyrra, segir á vefsíðu ASÍ. Í þremur leikskólum í Reykjavík leiddi mannekla til þess að senda þurfti börn heim tímabundið. Á hjúkrunarheimilunum virðist eink- um skorta fagfólk til starfa. Á vefsíðu ASÍ er einnig minnst á uppsagnir hjá NFS og Ratsjárstofnun sem dæmi um að ekki sé allt eins gott og vera mætti á vinnumarkaðinum. Á fimmta þúsund erlendir starfsmenn hafa verið tilkynntir eða skráðir inn á íslenskan vinnu- markað það sem af er árinu, flestir í september. Auk þess eru um tvö þúsund á utangarðsskrá hjá Þjóðskrá. Þetta þýðir að líklega hafa á sjöunda þúsund erlendir starfsmenn komið til landsins það sem af er árinu. Útlendingum sem starfa á hjúkrunarheimilum hefur fjölgað. ASÍ telur það til dæmis athyglisvert að á Grund sé hlutfall útlendinga í umönnunarstörfum innan við 10 prósent en í ræstingum um 80 pró- sent. Bent er á þá skýringu að gerðar séu ríkar kröfur um íslenskukunnáttu hjá þeim sem vinna við umönnun heimilisfólks. Sláturhús hafa í haust að stórum hluta verið mönnuð af útlendingum. Svo virðist sem margir þeirra komi til landsins ár eftir ár til að vinna við slátrun, segir einnig á vefsíðu ASÍ. Ástandið á vinnumark- aði gott að mati ASÍ Morgunblaðið/Kristján Stöðugleiki Ástandið á vinnumarkaði er með besta móti að mati Alþýðusambands Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.