Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2007, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Edouard Glissant „Eyjar geisla frá sér í allar áttir,
ekki bara eina átt, þaðan liggja vegir til allra átta.“
Franska menningarhátíðin Po-urquoi pas? hófst sl. fimmtu-dag. Í Lesbók í dag er birtviðtal Rögnu Sigurðardóttur
myndlistargagnrýnanda við Pierre Hu-
yghe sem opnar sýningu í Hafnarhúsi í
dag. Hann hefur vakið athygli fyrir fág-
aðan leik með mörk raunveruleika og
skáldskapar í verkum sínum. Sigurður
Pálsson skáld ræðir við Edouard Gliss-
ant, einn fremsta rithöfund Frakka.
Árni Matthíasson skrifar um franska
popptónlist sem verður áberandi á há-
tíðinni. Pétur Gunnarsson rithöfundur
birtir svo grein um franska menningu
sem hann ber saman við íslenska menn-
ingu. Hann bendir til dæmis á að hug-
takið „frelsi“ sé ekki jafn tamt íslenskri
hugsun og franskri, einna helst að
bankar og símafyrirtæki beiti því fyrir
sig hérlendis. Og Pétur spyr:
„Hvað skyldu Íslendingar hafa sett á
gunnfánann ef þeir hefðu gert bylting-
una í stað Frakka? Vinnuna kannski?
„Vinna, jafnrétti, bræðralag“. Og
æstustu byltingarseggirnir „yfir-
vinnuna“.“ » 4–5, 8–9, 12–13
Frelsið
eða
vinnuna?
Frönsk menningar-
hátíð á Íslandi
Emilie Simon Emilie er meðal frönsku poppstjarnanna sem koma til Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
Pierre Huyghe „Ég vil ekki festast í viðjum listheimsins,“ segir Huyghe í samtali við Rögnu
Sigurðardóttur en sýning hans í Hafnarhúsinu byggir meðal annars á íslenskri myndlist.
Laugardagur 24. 2. 2007
81. árg.
lesbók
BLANCHETT OG DENCH
BÁÐAR ERU TILNEFNDAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
FYRIR LEIK Í NOTES ON A SCANDAL » 3
Byssukúlur seðja ekki hungur mávanna við Tjörnina » 2