Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2007, Side 16
Eftir Björn Ingiberg Jónsson
Á
undanförnum vikum hafa mál-
efni óperunnar verið rædd á síð-
um Lesbókarinnar. Þeir Árni
Tómas Ragnarsson læknir og
Gunnar Guðbjörnsson söngvari
hafa þar skýrt afstöðu sína til
óperuflutnings á Íslandi. Fljótt á litið gæti virst
að himinn og haf aðskildu sjónarmið þeirra en
þegar nánar er að gáð stefna báðir að sama
marki, að efla óperuna á Íslandi.
Eitt markmið, tvær leiðir?
Sá ágreiningur á milli gildis og áhrifa sem krist-
allast í skrifum Árna Tómasar og Gunnars er
engan veginn nýr af nálinni, í hnotskurn er
hægt að segja að þarna takist á vinsældir gegn
list. Hagræn gildi og listræn gildi. Þessi sjón-
armið einskorðast ekki við óperuheiminn. Þau
er að finna innan allra listgreina. Stjórnendur
óperuhúsa verða í verkefnavali sínu að leitast
við að finna jafnvægi á milli ýmissa þátta. Þar
takast meðal annars á viðskiptaleg, listræn, sið-
ferðileg og samfélagsleg sjónarmið. Listrænar
óperur þurfa ekki að vera óvinsælar og þaðan af
síður þurfa vinsælar óperur að vera ólistrænar.
Flestar stjórnir óperuhúsa reyna að finna ein-
hverja blöndu af óperuverkum sem fullnægir
því samfélagi sem óperan tilheyrir. Tíminn leið-
ir í ljós hvort ákvarðanir stjórnenda hafa borið
þann árangur sem til var ætlast eða ekki.
Fyrir hverja eru óperur?
Óperan er ekki aðeins fyrir söngvara, hún er
ekki afmörkuð eining í tómarúmi. Ópera er ekki
sett á svið fyrir stjórnendur, söngvara, leik-
stjóra eða hljómsveit. Viðmið óperunnar er ekki
hún sjálf. Óperan er hluti samfélagsins og
markmið hennar því samfélagslegt. Á þeim
stöðum þar sem forysta óperuhúsa hefur haft
samfélagið sem útgangspunkt, skoðað ákvarð-
anir um óperusýningar reglubundið aftur í tím-
ann til þess að finna út hvort og þá hvaða mistök
voru gerð í vali á óperum, þá hefur árangurinn
verið góður hvort sem litið er á viðskiptalegu
eða listrænu hliðina í rekstri óperuhússins. Óp-
erur eru settar upp fyrir áheyrendur.
Öll samfélög breytast, óperuheimurinn fer
ekki varhluta af tískustraumum frekar en aðrar
listgreinar. Á fyrri hluta 18. aldar var Reinhard
Keiser mesta óperutónskáld veraldarinnar.
Keiser valdi óperum sínum oft grípandi nöfn:
„Hof Janusar sem lokað var af hinum mikla
Ágústusi í hinum almenna heimsfriði.“ Fáir
kannast aftur á móti við Keiser í dag. Hann
hafði sjálfan Händel í hljómsveit sinni við Ham-
borgaróperuna. Händel var á sínum tíma ást-
sæll óperuhöfundur. Hann datt úr tísku og ekki
er t.d. minnst á Händel í ritinu Staðalóperurnar
eftir Upton frá 1897, sem fjallar um helstu óp-
erur þess tíma. Núna er á hinn bóginn varla til
það óperuhús sem ekki sýnir óperur Händels.
Annað dæmi er Fást eftir Gounod, sem var á
sínum tíma mjög vinsæl ópera. „Ef uppfærsla
bregst setjið þá Fást á dagskrána og hættið að
sýna aðrar óperur, það bjargar óperuhúsinu.“
var stundum sagt. Georg Bernard Shaw kvart-
aði jafnvel opinberlega yfir því hvað hún var
sýnd oft. En breytingar á samfélaginu í kjölfar
tveggja heimsstyrjalda urðu til þess að Fást
náði ekki fyrri vinsældum eftir stríð.
Vinsældir ópera
Það er mikilsvert að þeir sem sitja við stjórnvöl-
inn nái að meta tíðarandann rétt. Það kann að
vera rétt að það séu 20 til 30 óperur sem njóta
alþjóðavinsælda á hverjum tíma. Það eru hins
vegar ekki alltaf sömu 20 til 30 óperurnar.
Vinsældalistar hafa marga kosti. Stjórnendur
geta haft þá til hliðsjónar við skipulagningu
dagskrár, en vinsældalistar koma ekki í staðinn
fyrir þekkingu á óperu, og þeir koma ekki í stað-
inn fyrir þekkingu á samfélaginu sem óperan er
í. Án staðgóðrar þekkingar á óperu og samfélagi
verða listrænar ákvarðanir ónákvæmar. Mik-
ilvægt er að í óperuhúsi sé greint á milli meg-
inmarkmiðs og aukamarkmiða. Langtímaáætl-
anir í fyrirtækjum eru yfirleitt 2–3 ára áætlanir,
einstaka fyrirtæki og stofnanir gera fimm ára
áætlanir. Áætlanir til lengri tíma, til dæmis 10–
15 ára eru óraunsæjar þar sem samfélagið og
forsendur allar breytast.
Ýmsar tölur eru til um vinsældir ópera. Í
viðamikilli óperukönnun frá 10. áratugnum fyrir
franska óperuunnendur kom í ljós að ítalskar
óperur nutu almennt mestra vinsælda á heims-
vísu, þýskar óperur voru vinsælastar í Þýska-
landi og ítalskar óperur vinsælastar á Ítalíu.
66% allra uppfærslna byggðust á 50 óperum.
Þrír fjórðu hlutar allra sýndra ópera voru
samdir á tímanum 1835–1910. Ofan á þjóðlega
vinsældaþáttinn bætist svo sagnfræðilegi þátt-
urinn, til dæmis „fyrsta óperan“, eða afmæl-
isvinsældir, til dæmis: „100 ára ártíð tónskálds.“
Í rannsókn undirritaðs á óperugeiranum voru
uppsetningar á 235 stöðum í Þýskalandi, Aust-
urríki, Frakklandi, Belgíu, Hollandi og Sviss
skoðaðar með tilliti til leikársins 2002–2003. Á
dagskrá voru 1.637 uppsetningar eftir 299 tón-
skáld. Mozart, Wagner og Verdi stóðu upp úr.
Næstir komu Puccini, R. Strauss og Händel.
20% tónskálda voru með 75% uppsetninga. At-
hyglisvert er að samvinna óperuhúsa um upp-
setningar reyndist miklu meiri í Frakklandi og
Belgíu en í Þýskalandi. Um 30% uppfærslna í
Þýskalandi voru endurupptökur.
Samkvæmt rannsókn á óperuverkum á Ítalíu
(Mariani 2006) á leikárinu 2002–03 voru 46 óp-
eruuppfærslur byggðar á 18 óperum. 12,5%
voru samvinnuverkefni og 4,2% voru endur-
upptökur.
Rekstur óperu
Það er munur á rekstri óperuhúsa í heiminum. Í
fyrsta lagi er það meginlandshugsunin sem
leggur áherslu á „verkið“ sem er öðruvísi en hin
ensk-ameríska markaðshugsun. Í öðru lagi er
það vertíðarskipulagið „stagione“ á Ítalíu gegn
hinu norður-evrópska dagskrárskipulagi „re-
pertoire“. Öll þessi kerfi hafa bæði kosti og
galla. Þau hafa þróast hvert í sínu samfélagi. Til
þess að rekstur óperu á Íslandi gangi sem best
þarf að nýta sér bestu eiginleika þessara leiða
og stuðla að samvinnu bæði heima fyrir og er-
lendis.
Á undanförnum áratugum hafa listastofnanir
leitast við að bæta reksturinn og leitað lausna í
smiðju hagfræðinnar. Niðurstöðurnar vekja
nokkra undrun. Hagfræðingar horfa á listræna
þáttinn en listafólk á hagræna þáttinn. Heillegri
mynd fæst ef horft er á málin saman; hver eru
hagræn og listræn áhrif óperu?
Vissulega eru óperuuppfærslur ekki rétt-
lættar með aðsókn einni saman. Aðsóknartölur
skipta máli á sama hátt og sölutölur skipta
bóka- og tónlistarútgefendur máli. Ef slakar að-
sóknartölur óperu eru réttlættar með auknu
framboði skemmtana og afþreyingar, þá er um
leið verið að staðsetja óperuna á þeim markaði.
Að takast á við áskoranir, veðja á óþekktar
stærðir og geta ekki spáð fyrir um aðsókn, eru
ekki afsakanir fyrir óperu sem enginn kemur að
sjá, heldur eru allar þessar óþekktu stærðir
vandamálið sem þarf að greina fyrirfram.
Það á ekki að vera áskorun að setja upp óp-
eru. Heldur krafa um fagleg vinnubrögð. Mynd-
um við vilja heyra frá lækni sem ætlar að skera
okkur upp við botnlangabólgu að skurðaðgerðin
sé honum persónuleg áskorun? Við ætlumst til
að hann skeri okkur upp faglega, vel og án mis-
taka. Í rekstri reyna menn alltaf að spá fyrir um
afkomu og forðast í lengstu lög að veðja á
óþekktar stærðir.
Forysta óperunnar skapar umgjörðina og
tekur ábyrgð á rekstri, verkefnavali og vali
listamanna. Listamennirnir sjá um listræna
þáttinn. Þeir þurfa til þess pláss, tíma, fé og fyr-
irhöfn. Á forystunni hvíla þannig ýmsar skyld-
ur, meðal annars rekstrarskyldur, listrænar
skyldur, siðferðilegar- og samfélagslegar skyld-
ur.
Þegar menn kaupa aðgang að listskemmtun
bera þeir ákveðnar hugmyndir í brjósti um
hvernig upplifunin muni verða. Ef þessi upp-
lifun er mjög ólík þeirri upplifun sem menn
gerðu sér í hugarlund og það á verri veg er hætt
við því að það fólk verji tíma sínum og peningum
annars staðar í framtíðinni.
Flestir geta nýtt æskureynslu sína á marg-
víslegan hátt og tekið meðvitaða og þroskaða
ákvörðun á fullorðinsárum um hvernig þeir
verja tíma sínum. Mín skoðun er að öll reynsla
móti einstaklinginn, jafnt og hegðun og venjur
foreldra sem hafa einnig mótandi áhrif. Það að
pabbi og mamma, afi og amma, sæki óperur
getur einnig mótað hugmyndir komandi kyn-
slóða um hvað sé vert að gera.
Margar stofnanir á Íslandi sinna því að fræða
komandi kynslóðir og byggja upp áhuga þeirra
á listum. Allir vilja ná til unga fólksins, tolla í
tískunni. Skemmtunar- og hegðunarmynstur
fólks breytist með aldri, auknum þroska, meiri
tekjum og rýmri frítíma. Margvíslegar sam-
félagslegar ástæður liggja til þess að eldra fólk
velur sér öðruvísi dægradvöl en yngra fólk.
Margt fólk yfir fimmtugt kýs að fara á óp-
erusýningar. Er nokkuð að því að setja upp óp-
erur fyrir þetta fólk svo sem eins og tvisvar á
ári? Ég er ekki viss um að fólk yfir fimmtugu
hafi mikinn áhuga á að láta kenna sér listneyslu.
Það er alveg fullfært um það sjálft að kynna sér
málin.
Samkvæmt könnunum eru konur virkari list-
neytendur en karlar. Fyrir utan alla þá vinnu
sem konur inna af hendi á vinnustað og heimili
þá halda þær uppi listalífi á Vesturlöndum. Þær
eru til dæmis duglegri að sækja myndlistasýn-
ingar, leikhús, sinfóníu, ballett og óperu. Eftir
því sem konur eru betur settar, hafa hærri laun
og meiri menntun, þeim mun betra fyrir list-
irnar. Stærsti hópur þeirra sem sækja óperu
eru vel menntaðar og vel launaðar konur á milli
50 og 70 ára. Það eru margir þræðir sem tengja
saman konur og óperu og meðal vinsælustu
ópera heims má nefna Tosca, Madam Butterfly,
Manon, Aida og La Traviata, sem fjalla allar um
ástir og örlög kvenna. Einhverra hluta vegna
reyndust vinsælar óperur oft fjalla um sterkar
konur sem höfðu samúð áheyrenda þó að þær
hegðuðu sér ekki samkvæmt forskriftinni eins
og í La Traviata og konur sem hvítir yfirstétt-
armenn tældu og sviku eins og í Rigoletto.
Kannski ópera hafi stuðlað að breyttu viðhorfi
til kvenna og auknum kvenréttindum?
Óperan var flutt inn til Bandaríkjanna á ár-
unum 1815–60 sem skemmtun við hæfi kvenna.
Hún átti að bæta samfélagið og hlúa að góðum
siðum. Það að sungið var á ítölsku, töldu menn
að væri hið besta mál því að þá myndu konurnar
ekki skilja þegar rætt væri um viðkvæm mál. Á
þessum tíma var staðalímyndin sú, að konur
gætu alls ekki lifað nema í skjóli karla en vin-
sælustu óperurnar fjölluðu um sterkar, sjálf-
stæðar konur.
Það er tilviljun að stofnun Íslensku óp-
erunnar um 1980 bar upp á sama tíma og konur
á Íslandi fóru að huga að meiri stjórnmálaþátt-
töku. Frá upphafi Íslensku óperunnar tóku kon-
ur jafnt sem karlar virkan þátt í leikstjórn, bún-
ingagerð, sviðstjórn, óperustjórn, einsöng, kór,
styrktarfélagi og ekki síst úti í sal sem áheyr-
endur. Þáttur kvenna í rekstri listastofnana
sem óperunnar er ómetanlegur.
Breiðari hópur áheyrenda
Í hinum vestræna heimi er meirihluti óp-
erugesta í eldri kantinum. Samkvæmt rannsókn
(Montgomery/Robinson, 2004) var meðalaldur
óperugesta tæp 47 ár í Bandaríkjunum.
Fólksfjöldaspár eru áhugaverðar um margt.
Þær eru nánast einu spárnar sem af nokkurri
nákvæmni segja okkur til um hvernig framtíð-
arsamfélag okkar mun líta út. Samkvæmt
mannfjöldaspám SÞ fjölgar á Íslandi á næstu 40
árum um ríflega 50 þúsund manns í þeim hópi
sem flestir gestir óperunnar koma úr. Þetta er
umhugsunarvert.
Meðalaldur Íslendinga fer hækkandi. Fleiri
ná háum aldri en áður og fleiri eiga þess kost að
njóta lengra lífs betur.
Kynslóðin sem ólst upp við eina rás á Rík-
isútvarpinu man vel eftir og átti jafnvel að vin-
um La Bohem og Rigoletto. Þegar Guðmundur
Jónsson óperusöngvari rakti söguþráð óper-
anna á milli þátta var eins og væri verið að segja
þeim sögur. Þetta fólk sem fætt er á milli 1930
og 1960 eldist óðfluga. Þó það sé duglegt við að
sækja óperur þá verður að ná til yngri kynslóða,
það verður að vera endurnýjun í áheyr-
endahópnum.
Björt framtíð
Þrátt fyrir allt á óperuflutningur hér á landi sér
glæsilega sögu. Vonandi tekst að halda í horfinu
og gera enn betur.
Vonandi tekst að sameina þau helstu sjón-
armið sem rakin hafa verið hér að framan.
Varðveita og efla um leið listgildi starfseminnar
í heilbrigðum rekstri og bera gæfu til að fyr-
irbyggja að gap myndist á milli óperu og sam-
félags.
Allt bendir til þess að bjart sé framundan í ís-
lensku óperulífi. Frábært tónlistarfólk kemur
reglulega fram á sjónarsviðið og glæsileg tón-
listarhöll í sjónmáli.
Góð ópera á erindi við marga
Konur sækja óperur mest „Það eru margir þræðir sem tengja saman konur og óperu og meðal vinsælustu óperum heims má nefna Tosca, Ma-
dam Butterfly, Manon, Aida og La Traviata, sem fjalla allar um ástir og örlög kvenna,“ segir Björn. Konur eru í meirihluta ópperugesta.
Menn hefur greint talsvert á um listræna
stefnu Íslensku óperunnar í ritdeilu hér í Les-
bókinni á undanförnum vikum. Greinarhöf-
undur er hins vegar á því að deilendur eigi
það þó sameiginlegt að stefna að sama marki,
eflingu óperunnar.
Höfundur er áhugamaður um óperu.
16 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók