Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.2007, Blaðsíða 1
Vatnasafn/Library of water
Vatnasafn „Vatnasafnið felur því í sér ákveðin endalok; þetta lífsnauðsynlega efni hefur verið tekið úr sínu eðli-
lega umhverfi og um leið eru tengsl þess við restina af heiminum rofin; það mun aldrei sameinast hafinu umhverf-
is landið, Gangesfljóti í Indlandi eða Thamesánni í London,“ segir Roni Horn um Vatnasafnið opnar í dag. » 4-5
Laugardagur 5. 5. 2007
81. árg.
lesbók
LÍF ANNARRA
ÓSKARSVERÐLAUNAMYND FLORIANS HENCKELS VON DONNERS-
MARCKS UM LÍFIÐ Í FYRRVERANDI AUSTUR-ÞÝSKALANDI » 3
Hér er þó um að ræða glæpasögu sem teygir á forminu » 11
Á
sumrin finnst mér
alltaf gaman þegar
jörðin er að gróa og
græni liturinn er að
koma í tún og úthaga. Mér
finnst það skipta bændur
mestu og best að fá gott veð-
ur á sauðburðinum og um
sláttinn. Bændur þurfa góða
tíð á sauðburðinum þegar
kindurnar koma út með litlu
lömbin, að það sé góð tíð þá,
að það sé ekki kalsi, og svo á
slættinum þegar maður er að
reyna að ná góðum heyjum.
Því betra tíðarfar og þurrveð-
ursamara á slættinum, því
betra fóður fyrir skepnurnar.
- Hólmfríður Hauksdóttir
Þetta er brot úr viðtali sem var tekið fyrir bókina
Weather Reports You / Veðrið vitnar um þig fyrir
Roni Horn (Útgefandi: Artangel/Steidl) og VATNA-
SAFN / LIBRARY OF WATER. Veðrið vitnar um þig
er safn veðurfrásagna frá Íslandi. Vilt þú senda inn
frásögn? Farðu á www.vatnasafn.is/vedur
V
E
Ð
R
IÐ
V
IT
N
A
R
U
M
Þ
IG
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Hvað er fólk að lesa?Er það að lesa bráðgott smáritSmekkleysu, Það er að hefjastgleðskapur, sem kom út í vikunni
með smáprósum eftir Ivor Cutler eða for-
vitnilega ljóðabók Eiríks Arnar Norðdahl og
Ingólfs Gíslasonar, Handsprengja í morguns-
árið, sem kom líka út í vikunni?
Líklega.
En sennilega eru þó fleiri að lesa bloggsíðu
Ellýjar Ármannsdóttur þulu í Ríkissjónvarp-
inu (ellyarmanns.blog.is) en hún fær 10.-
12.000 heimsóknir á dag eða um 80.000 á
viku, hvorki fleiri né færri!
Bloggsíða Ellýjar er sú vinsælasta á
Moggablogginu en næstvinsælust er síða Sig-
mars Guðmundssonar, fréttamanns í Kast-
ljósinu, en hann fær þó helmingi færri heim-
sóknir.
Kannski er ein ástæðan fyrir vinsældum
bloggs þeirra Ellýjar og Sigmars sú að þau
eru þekkt andlit úr sjónvarpinu en muninn á
þeim má að öllum líkindum skýra með því að
Ellý bloggar um erótík. Og það var reyndar
ekki fyrr en Ellý fór að segja stuttar erótísk-
ar sögur á bloggi sínu fyrir skömmu að hún
þaut fram úr samstarfsmanni sínum í vin-
sældum.
Tvær augljósar ályktanir
virðist mega draga af
þessu: Að smásagan hafi
gengið í endurnýjun lífdaga
á blogginu og að Ellý sé
mest lesni smásagnahöf-
undur landsins.
Um erótíkina sem að-
göngumiða að lesendum
þarf ekki að fjölyrða en
önnur ástæða fyrir miklum
lestri þessara skrifa er
kannski sú að sögurnar eru á óljósum mörk-
um skáldskapar og veruleika sem þýðir í
raun að lesandanum er látið eftir að trúa sög-
unum eða ekki. Ellý bloggar auðvitað í fyrstu
persónu og vísar í sífellu til vinkvenna sinna
sem trúa henni fyrir einkamálum sínum.
Það mætti raunar halda því fram að ein af
meginástæðunum fyrir vinsældum bloggs yf-
irleitt sé sú hvað mörkin á milli skáldskapar
og veruleika og einnig á milli einkarýmis og
almennings eru óljós þar. Sumum gengur illa
að fóta sig á þessum óljósu mörkum. Fólk er
sífellt að missa jafnvægið í bloggi sínu og fara
yfir mörkin, bæði með því að opinbera sig
með einhverjum hætti og með því að ganga of
langt í ummælum um annað fólk. Ástæðan er
sú að allar reglurnar og skorðurnar sem
prentið setti okkur – og hafa gilt í 500 ár og
að stórum hluta færst yfir á aðra miðla – eru
nú farnar á flot á Netinu. Þar er engin rit-
stjórn og þar eru engar aðgangstakmarkanir
nema tæknilegar. Svo að segja allir sem vilja
geta. Það er mikil breyting; allir þeir sem
vildu skrifa eða tala í opinberum miðlum gátu
það ekki endilega.
Við vitum ekkert hvað gerist næst.
Mest lesni smásagnahöfundur landsins
MENNINGARVITINN
Ellý
Ármannsdóttir